Þjóðviljinn - 30.08.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 30.08.1980, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN ■ ■■ Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar í | p Vonarstræti 4 simi 25500 Starfsfólk heimilishjálp Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar óskar að ráða starfsfólk til heimilishjálp- ar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður heimilishjálpar Tjarnargötu 11, simi 18800. Kj ötiðnaðarstöð Sambandsins viljum ráða eftirtalda starfsmenn: 1. Kjötiðnaðarmenn 2. Nema i kjötiðnaði 3. Verkafólk til ýmissa starfa. Nánari upplýsingar á staðnum. Kjötiönaðarstöö Sambandsins Kirkjusandi sími:86366 III Borgarspítalirm 'P Lausar stödur Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa á ýmsar deildir spitalans. Staða deildarstjóra á göngudeild Hvita- bandsins. Ætlast er til að umsækjandi hafi geðhjúkr- unarmenntun eða starfsreynslu á geð- deild. Hlutastarf kemur til greina. Sjúkraliðar Sjúkraliða vantar til starfa nú þegar á hjúkrunar- og endurhæfingardeild Borg- arspitalans við Barónsstig. Nánari upplýsingar eru veittar á skrif- stofu hjúkrunarforstjóra i sima 81200 (207) og (201). Revkjavík, 31. ágúst 1980. F orstöðumaður Starf forstöðumanns Sundlaugar Fjöl- brautaskólans i Breiðholti er laust til um- sóknar. Laun skv. kjarasamningi borgarstarfs- manna. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til Fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnar- götu 12, fyrir 12. september n.k. Starfsfólk óskast Starfsfólk óskast nú þegar til fiskvinnslu- starfa. Mikil vinna. Unnið eftir bónus- kerfi. Upplýsingar gefur frystihússtjóri i sima 96-61710 og 96-61720. Fiskvinnslustöð Hrisey Járitiðnaðarmenn Óskum eftir að ráða rennismiði, plötu- smiði, rafsuðumenn og nema i plötusmiði. Upplýsingar gefur yfirverkstjóri i sima 20680. Landssmiðjan. Fulltrúar stéttarfélaga starfsmanna Flugleiða á fundi með stjórnvöldum í gœr Viðræður við Luxemborg- ara hafnar að nýju Lagalegt gildi uppsagna starfsfólks Flugleiða verði kannað Kikisstjórnin hefur ákveðið i framhaldi af vifiræðum viö full- trúa allra stéttarfélaga starfsmanna Flugleiða i gær- morgun, að taka upp viðræður við yfirvöld i Luxembourg svo fljótt sem kostur er, um möguleika á áframhaidandi samvinnu land- anna á sviði flugmála. A nærri klukkustundarlöngum fundi sem haldinn var i Stjórnar- ráðinu skýrðu fulltrúar stéttarfé- laganna fyrir forsætis- og við- skiptaráðherra og fulltrúum frá félags-, og samgöngumálaráðu- neytinu, sjónarmið sin varðandi uppsagnir starfsfólks Flugleiða og rekstrarvanda fyrirtækisins. A fundi i rikisstjórninni var sið- an ákveðið að óska eftir skriflegri greinargerð um niðurstöður við- ræðna Flugleiða við aðila i Lux- embourg og hugmyndir félagsins um framhald slikra viðræðna, en yfirvöld i Luxembourg hafa sýnt mikinn áhuga á þvi að þessum viðræðum verði framhaldið. Þá var einnig ákveðið að stjórnvöld beittu sér sjálf fyrir viðræðum við yfirvöld i Luxem- bourg um möguleika á áfram- haldandi samvinnu landanna á sviði flugmála eins og áður sagði. Einnig var samþykkt að félags- málaráðuneytið kanni næstu daga lagalegt gildi uppsagna starfsfólks Flugleiða hvað varðar samningsbundinn uppsagnarfrest starfsmanna og einnig hvort upp- sagnir þessar samrýmist ákvæð- um laga og reglugerðar um til- kynningaskyldu fyrirtækja til vinnumálaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins um samdrátt i rekstri, eins og segir i frétt frá forsætisráðuneytinu i gær. Annar fundur fulltrúa stéttarfé- laga starfsmanna Flugieiða með stjórnvöldum verður að öllum lik- indum haldinn i næstu viku, sam- kvæmt ósk stjórnvalda. — Ig. Jófriður Björnsdóttir formaður Flugfreyjufélagsins Tel fundinn hafa haft góð áhrif Bíðum í einhverja daga en málinu verður haldið vel vakandi i okkar herbúðum ,,Ég tel að þessi fundur hafi haft góð áhrif til lausnar þeim vandamálum, sem fjöldaupp- sagnirnar hafa i för meö sér, og eins hvernig að þeim uppsögnum er staðið" sagði Jófriður Björns- dóttir formaður Flugfreyjufé- lagsins i samtali við Þjóöviljann að afloknum fundi fulltrúa stétt- arfélaga starfsmanna Flugleiða með ráðherrum og öörum fuiltrú- um stjórnvalda I stjórnarráöinu i gær. „Fulltrúar rikisstjórnarinnar lýstu þvi yfir á þessum fundi að þeir ætluðu að taka upp viðræður við Luxembúrgarmenn um sam- vinnu i flugrekstri til að koma þessum Flugleiðum á flot aftur.” „Við munum biða i einhverja daga eftir niðurstöðum af þessum ráðagerðum rikisstjórnarinnar, en það er alveg ljóst að þessum málum öllum verður haldið vel vakandi i okkar herbúðum”, sagði Jófriöur. -lg- Jófriður Björnsdóttir i stjórnar- ráðinu i gærmorgun að afloknum fundi með fulitrúum stjórnvalda. Mynd — gel. Karl Steinar Guðnason form. Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavikur Uppsagnirnar eru ólöglegar Miðstjórn ASÍ og fulltrúar stéttarfélaga Flug- leiðamanna halda fund um málið á miðvikudag Við telium þessar uppsagnir á starfsfólki Flugleiða ólöglegar, og ég á von á þvi aö miðstjórn ASt og fuiltrúar frá viökomandi stétt- arfélögum starfsmanna Flug- leiöa haldi sameiginlegan fund á miðvikudaginn kemur þar sem þessi mál verða rædd og hugsan- legar aðgerðir ákveönar” sagði Karl Steinar Guðnason formaður verkalýös- og sjómannafélags Keflavlkur i samtali við Þjóövilj- ann i gærmorgun að afloknum fundi með fulltrúum stjórnvalda. „Við fórum þess á leit við rikis- stjórnina að teknar yröu upp aft- ur viöræður við Luxembúrgar- menn vegna fyrirhugaðrar sam- vinnu um flug yfir Atlantshafiö, og einnig að stjórnvöld reyndu á annan mögulegan hátt að styrkja stöðu Flugleiða”. Karl sagði jafnframtað Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra heföi óskaö eftir þvi á fundinum, að haldinn yrði annar slikur mjög bráðlega þvi nauðsynlegt væri að fá fram lausn á þessu máli. -lg- Karl Steinar Guðnason kemur af fundi fulltrúa rikisstjórnarinnar i gærmorgun. Mynd — gel.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.