Þjóðviljinn - 21.10.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 21.10.1980, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 21. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Hópur jaröfræöinga lagöi land undir fót og hélt til gosstöövanna, aö fylgjast meö framvindu mála. Axel Björnsson og Oddur Sigurösson voru aö halda i bæinn eftir aö hafa stundaö rannsóknir frá þvi á laugar- dagskvöld. Ljósm.:gel Þrfr starfsmenn Kröfluvirkjunar stóöu i kvöldkyrröinni á sunnudags- kvöldið og dáðust aö sjónarspilinu sem við blasti? gosbjarmi á himni, norðurljós yfir og tunglið i fyllingu. Jaröborinn Jötunn gnæföi uppi á einni hæöinni viö Kröflu. Orku- framleiðslan jókst skyndilega um 3 megavött nokkrum dögum fyrir gosiö- Ljósm.: gel Páll Einarsson jaröeölisfræöing- ur bendir á kort yfir gossvæöiö viö Leirhnjúk og Gæsafjöll. Ljósm.: gel Gufubólstrar stigu upp og eldar lýstu upp himininn. Horft frá Kröflu. Linurit skjálftavaktarinnar I Mývatnssveit. Til hægri er strimill halla- mælisins og þar má greina hvernig strikið snarbeygöi, rétt áöur en gos- iö hófst. Höskuldur prófessor Menntamáiaráðherra hef- ur skipað dr. Höskuld Þráinsson prófessor I Is- lensku viö heimspekideild Háskóla tslands. Er hér um að ræða prófessorsembætti i nútima- málfræði, sem dr. Halldór Halldórsson gegndi áður. Staðan hefur verið óskipuð siðan vorið 1979. Þrir umsækjendur voru um þetta prófessorsembætti, auk dr. Höskuldar. þeir Bald- ur Jónsson dósent og dr. Kristján Árnason. Heim- spekideild hafði mælt með dr. Höskuldi i stöðuna. Hlaut hann á deildarfundi 17 at- kvæöi, en Baldur 10. —eös Skipverji á Náttfara drukknaöi Skipverji á Náttfara RE 75 féll fyrir borö á föstudags- kvöld og drukknaöi. Hann hét Gunnar Hallgrimsson til heimilis aö Skólavöröustig 18 I Reykjavik. Hann var 33 ára gamall, fæddur 1947. Slysið varð kl. 21.40, en skipið var þá að veiðum á loðnumiðunum norðaustur af Halamiðum. Verið var að kasta og búið að setja út svo- kallað skott og bauju. Strax var hafist handa að reyna að bjarga manninum og kallað var á skip i nágrenninu, sem komu fljótt á vettvang. Svæðið var allt lýst upp. Menn töldu sig hafa séð Gunnar um tima, en þrátt fyrir mikla leit fannst hann ekki. Leitað var til kl. 1.30 um nóttina. Náttfari hélt til Akureyrar og kom þangað siðdegis á laugardag. Sjó- próf fóru þar fram i fyrra- dag. Veiðisvæðið er mjög norðarlega og sjórinn jökul- kaldur eða um frostmark. Talið er að menn geti haldið lifi i mesta lagi i 10 til 15 minútur i svo köldum sjó. Veður var gott á þessum slóðum þegar slysið varð, logn og sléttur sjór, en dálitið mistur. —eös Tryggingabætur beint inn á bankareikninga Tryggingastofnun ríkisins hefur ákveðið að frá næstu áramótum verði allar mánaðarlegar bótagreiðslur afgreiddar inn á reikning hinna tryggðu í lánastofnunum. Á öllum afgreiðslustöðum bankanna liggja frammi eyðublöð í þessu skyni, og þar er veitt aðstoð við útfyllingu og frágang þeirra. Bankarnir taka ennfremur að sér að koma tilkynningum um reikningsstofnun til skila. Tilkynningu þessari er beint til þeirra bótaþega sem ekki hafa fengið sér bankareikning, eða tilkynnt það Tryggingastofnun ríkisins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.