Þjóðviljinn - 21.10.1980, Page 16
UÚÐVIUINN
Þriðjtidagur 21. október 1980.
Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná I afgreiðslu blaðsins^i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðaisími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími aigreiðslu 81663
Fjölmenn ráðstefna SH á Akureyri:
Alls kyns furðukarlar og kerlingar voru á Lækjartorgi i gær. Þar var hljómsveitin Diabolus in Musica
ásamt vinum og vandamönnum að kynna nýja hijómplötu með talsverðum tilþrifum og alls konar uppá-
komum, sem drógu að sér fjölda áhorfenda.
Ljósm :eik.
Sundasamtökin berjast gegn fyrirhuguðu stórhýsi SIS
áformum um að leyfa byggingu
skrifstofuháhýsiS SIS. I fyrradag
afhjúpuðu stofnfélagar Sundsam-
takanna skilti á fyrirhuguðum
byggingarstað o g er á það letrað:
„Verndum sýn við Sundin. Ékk-
ert háhýsi hér”.
— Ætlunin er að þarna verði
höfuðstöðvar Sambandsins um
allverulega framtið, sagði
Kjartan P. Kjartansson fram-
kvæmdastjóri Skipulagsdeildar
SIS i samtali við Þjóðviljann i
gær.
— Meirihluti borgarstjórnar
hefur tjáð sig velviljaðan þvi að
við fáum að reisa þarna hús og
einnig er meirihluti hafnar-
stjórnar þvi samþykkur. En þar
sem teikning að húsinu liggur
ekki fyrir, á að sjálfsögðu eftir að
ganga frá ýmsum atriðum, sagði
Kjartan.
Aðspurður hvort þarna yrði
byggt háhýsi, svaraði Kjartan, að
reynt yrði að nýta lóðina sem
allra best ef þarna yrði byggt og
hæðirnar yrðu þvi töluvert
margar. — En hversu álman yrði
stór, sem gengi upp i himininn,
veit ég ekki, sagði Kjar-
tan. — Það markast af þörf okkar
og áætlunum um framtiðina.
Komið hefur fram að Sámband-
inuhafiveriðboðin lóð inýja mið-
bænum við Kringlumýrarbraut.
Kjartan sagðist ekki hafa séð það
boð. — Ég held að miðbærinn gefi
ekki þá möguleika sem við erum
að sækjast eftir, rými og aðstöðu,
sagði hann.
— Þetta stóra vöruhús okkar og
Innflutningsdeildin er veigamikill
þáttur i rekstri Sambandsins og
það var hugmyndin að reyna að
tengja þetta saman. Við erum nú
með starfsemi okkar viðsvegar i
borginni og ætluðum að reyna að
safna þessu öllu saman á einn
stað, sagði K jartan. — eös
segir Kjartan P. Kjartansson framkvœmdastjóri
Skipulagsdeildar Sambandsins
Um helgina voru stofnuð sam-
tök, sem berjast fyrir verndun
útsýnis og náttúrufegurðar við
Sundin og annars staðar á strand-
svæði Reykjavíkur. Þessi samtök
nefnast Sundasamtökin og tilefni
stofnunar þeirra er fyrirhuguð
skrifstofubygging Sambandsins
nálægt Holtagörðum við Holta-
veg.
A stofnfundi samtakanna var
skorað á borgarstjórn að falla frá
Öll starfsemi SÍS
yerdi á einum stad
Varað við auknu hermangi
Miðnefnd kýs nýjan formann í kvöld
Tveggja daga lands-
ráðstefnu Samtaka her-
stöðvaandstæðinga lauk á
Akureyri síðdegis á sunnu-
dag. Ráðstefnan var vel
sóttog umræður líflegar og
jákvæðar að sögn Guð-
mundar Georgssonar, frá-
farandi formanns samtak-
anna. Þetta var í fyrsta
sinn sem landsráðstefnan,
sem er æðsta stofnun sam-
1 gærkvöldi var félagsfundur
Hinu islenska prentarafélagi og
var ekki tekin ákvörðun um verk-
fallsaðgerðir. Tvær tillögur lágu
fyrir fundinum og voru báðar
felldar. Onnur var um að boöa
verkfall frá og með 29. október
n.k. en hin um að fara I eins dags
verkfall þann dag eins og 43ja
manna samninganefnd ASt hefur
hvatt til.
I gærkvöldi voru einnig fundir f
Grafiska sveinafélaginu og Bók-
bindarafélagi Islands. I hinu
fyrra var samþykkt verkfall frá
og með 29. október en þó með
þeim fyrirvara að fulltrúaráð
takanna, kemur saman
utan höf uðborgarsvæðisins
og sagði Guðmundur að
það hefði greiniiega verið
fyllilega réttmætt og
undirstrikað að samtökin
eru landssamtök þótt þau
hafi aðsetur í Reykjavik.
Skipulag samtakanna, starfs-
áætlun fyrir næsta ár og baráttu-
málin: brottför hersins og úrsögn
úr Nató ásamt umræðum um
félagsins tæki endanlega ákvörð-
un með tilliti til aðgerða annarra
bókagerðarmanna. Fundur i Bók-
bindarafélaginu felldi að fara i
verkfall 29. okt. en stjórnin hefur
áfram verkfallsheimild. Eftirfar-
andi tillaga var samþykkt á fundi
bókbindara:
„Alm. félagsfundur I BFI, hald-
inn 20. okt. 1980 samþykkir kröft-
ugar vitur á stjdrn ASl vegna
seinagangs og áhugaleysis á kröf-
um BFl. Skorar fundurinn á
stjórn ASIaösinna kröfum BFI af
meiri festu og einurð.”
— GFr.
stöðu tslands I kjarnorkuvæddu
vigbúnaðarkapphlaupi settu
mestan svip á ráðstefnuna. Sam-
þykktar voru tvær ályktanir, ann-
ars vegar var varað við aukinni
tilhneigingu til að ánetjast her-
manginu enn frekar eins og hug-
myndir um byggingu oliustöövar
i Helguvik og flugstöðvar á Kefla-
vikurflugvelli, svo og óskir um
aukna flutninga fyrir herinn til að
leysa vanda Flugleiða sýna. Hins
vegar itrekuðu samtökin baráttu-
mál sin I ályktun þar sem bent er
á aö með breyttu eðli herstöðvar-
innar á Miðnesheiði sé rennt enn
frekari stoöum undir kröfuna um
brottför hersins og úrsögn úr
Nató.
Þá var á landsráðstefnunni
itrekuð krafa SH um þjóöarat-
kvæðagreiðslu og útfært nánar
hvernig vinna ætti að framgangi
hennar. A ráðstefnunni voru
lagöar fram hugmyndir að
breyttu skipulagi samtakanna og
var þeim vlsað til miðnefndar.
Verður það verkefni hennar að
vinna úr þeim og leggja fyrir
næstu landsráðstefnu.
Ný miðnefnd var kjörin, en
hana skipa 12 aöalmenn og 12 til
vara. Nokkrar breytingar urðu á
skipan aðal- og varamanna og ný
nöfn komu I stað fyrri mið-
nefndarmanna. Guðmundur
Georgsson sagðist ekki geta tekið
að sér aftur sæti aðalmanns i
miðnefnd og var hann kjörinn
varamaður. Hann sagði að sam-
kvæmt samþykktum samtakanna
væri reiknað með þvi að vara-
menn tækju virkan þátt I störfum
miðnefndar og ætti þvl að geta
skapast örugg samfella i starfið
þó margir fyrrverandi aöal-
manna i miðnefnd væru nú vara-
menn. Miðnefnd skiptir með sér
verkum og verður nýr formaður
samtakanna kosinn á fyrsta fundi
hennar I kvöld. —AI
Stefán
Jóhann
látinn
I gærdag lést Stefán Jóhann
Stefánsson, fyrrverandi forsætis-
ráöherra og formaður Alþýðu-
flokksins. Hann gegndi ráðherra-
embættum I ýmsum rikisstjórn-
um og var forsætisráðherra á ár-
unum 1947—49. Hann hætti af-
skiptum af stjórnmálum snemma
á 6. áratugnum og var síðan
sendiherra Islands i Kaupmanna-
höfn til ársins 1966 er hann Iét af
störfum fyrir aldurs sakir.
—GFr.
Verkfall fellt hjá prenturum
Pétur
Hojfmann
látinn
Síðastliðinn sunnudag lést
i Reykjavik Pétur Hoffmann
Saiomonsson, sem um ára-
tuga skeið hefur verið einn af
kunnustu mönnum þessa
lands. Pétur var einn af þeim
mönnum sem varð
þjóðsagnapersóna i lifanda
lifi, og i hópi þeirra er settu
svip á bæjarlifiö i Reykjavik,
en þeim fer nú óðum fækk-
andi. Ævisaga Péturs kom út
fyrir nokkrum árum og um
hann hafa verið ort ljóð sem
sungin hafa verið inná
hljómplötu.
Viðbótarspurningar
eftirlitsmanna
til Flugleiða:
Engin
svör enn
S.l. föstudag rituðu Birgir
Guðjónsson og Baldur
Óskarsson eftirlitsmenn
rikisins með rekstri Flug-
leiða hf. bráðabirgðaskýrslu
með athugasemdum um
fjárhagsstöðu fyrirtækisins
og er hún eitt af fylgiskjölum
með skýrslu samgöngu-
ráðherra. Þar kemur m.a.
fram að engin svör hafa bor-
ist við viðbótarspurningum
og athugasemdum eftirlits-
mannanna sem óskað var
eftir 30. september s.l. og
itrekaðar óskir þeirra um
f já rs tr e y m is á æ tlu n á
greiðslugrunni hafa engan
árangur borið.
I skýrslunni sem dagsett
er 17. þ.m. segir að greiðslu-
staða fyrirtækisins sé mjög
slæm og greiðslustöðvun
blasi við. Þessi staða er óháð
þvi hvort Atlantshafsflugið
heldur áfram eða ekki og
telja eftirlitsmennirnir alls
ekki vist að lántökur upp á 12
miljónir dollara með aðstoð
rikisins nægi fyrirtækinu
eins og nú horfir. Telja þeir
að sérstaka lagasetningu
þurfi til að veita
rikisábyrgðina, enda eru
flugvélar fy rirtækisins
(DC-10 undanskilin) veðsett-
ar fyrir meira en 100% en
helstu fasteignir um 56%.
Ljóst sé að komi ekki til að-
stoðar rikisins stöðvist allur
rekstur Flugleiða hf.
1 bráðabirgbaskýrslu eftir-
litsmannanna eru endur-
teknar ýmsar þær athuga-
semdir sem hvað harðast
var deilt um I fjölmiðlum i
byrjun september þegar
Flugleiðir kynntu blaða-
mönnum nýtt mat á eignum
sem var jákvætt og nýja
rekstraráætlun sem sýndi
eins miljarðs rekstraraf-
gang. Er það skoðun eftir-
litsmannanna að verulegrar
bjartsýni gæti i þessu endur-
mati og bent er á að
rekstraráætlanir fyrirtækis-
ins hafi alls ekki staðist und-
anfarin misseri. —AI