Þjóðviljinn - 30.10.1980, Qupperneq 15
Fimmtudagur 30. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
lesendum
Fyrirspurn frá Markúsi B.
Þorgeirssyni til nýkjörinnar
stjórnar Sjómannasambands
islands:
1. Á hvaöa forsendum fékk ég
ekki svar viö skeyti þvi er ég
sendi Sjomannasambandi Is-
lands þar sem ég fór fram á aö
kynna fyrir þingfulltrúum
björgunarnetiö mitt?
2. Kom björgunarnetiö mitt
ekki til umræöu á sjómanna-
þinginu? Pétur Sigurösson
alþingismaöur og ritari
Sjómannafélags Reykjavikur
haföi lofaö aö færa þaö i
umræöu á þinginu, og einnig
Guðmundur Hallvarösson vara-
formaöur Sjómannasambands
íslands og Öskar Vigfilsson —
þeir höföu allir fengiö bréf I
hendur þar sem lá fyrir yfir-
lýsing skipstjórans á Herjólfi,
Jóns Eyjólfssonar, og vélstjór-
ans á Herjölfi, sem fyrstum
manna var bjargaö úr nlmsjó
Prófun á björgunarneti Markúsar.
Fyrirspura frá Markúsi
meö netinu (þrátt fyrir aö
fyllsta öryggis var gætt i störf-
urn skipstjórnarmanna er varö-
ar lögboöin bjargtæki er fyrir
voru i skipinu).
Ég er þessa stundina aö vinna
aö hönnun á björgunarneti fyrir
Hafnarfjaröarhöfn, Isafjaröar-
höfn, Reykjavikurhöfn, og
siöast fóru þrjú net i' skuttog-
arannApril, aflaskipiö ÁsþórUr
Reykjavik og Gjafar frá Vest-
mannaeyjum. Eftirtaldir aöilar
veröa meö netin mln i umboös-
sölu i framtiöinni: fyrirtækiö
Marco i Reykjavik, fyrirtækiö
Asiaco, Reykjavík og verslunin
Ellingsen, Reykjavik. Eg er
ekki einn á báti i öryggismála-
baráttu minni þótt ég hafi sjó-
mannasamtökin á móti mér,
svo og æösta mann siglinga-
málastofnunar, Hjálmar R.
Báröarson, sem neitar aö lög-
bjóöa netiö mitt. Starfsmenn
þeirrar stofnunar hafa unniö
meö mér af heilum hug. Hvaö
veldur þessari stefnubreytingu
hjá jafnábyrgum mönnum?
Markús B.Þorgeirsson
Skipið sem Tígur hafði
lent á var nú komið góðan
spöl frá landi. „Á hvaða
leið er skipið?" spurði
Tígur stýrimanninn. „Við
erum á leið til Ameríku",
svaraði stýrimaðurinn
glaðlega. „Velkominn um
borð!" Hvað átti Tígur
að gera? Ekki gat hann
stokkið af skipinu, hann
varð að vera kyrr. Það
gæti líka verið gaman að
koma til Ameriku. En
heima beið mamma Tíg-
urs eftir sinnepi í
sinnepstertuna sína. Við
því var ekkert að gera.
Eftir þriggja daga sigl-
ingu var skipið komið út á
reginhaf, og þá réðust
sjóræningjar allt i einu á
það. Tígur sá þá koma og
var fljótur að smyrja
þykku lagi af sinnepi á
þilfarið. Þegar sjó-
ræningjarnir stukku um
borð runnu þeir á sinnep-
Framhaldssagan
Þegar
Tígurinn
fór að
kaupa
sinnep
inu og beint út i sjó. Þann-
ig bjargaði Tígur skipinu
og öllum skipverjum frá
árás sjóræningjanna.
Skipstjórinn var svo
þakklátur, að hann gaf
Tígur gullúrið sitt, tvær
kexkökur og nýja
sinnepskrukku. Tígur
þakkaði kurteislega fyrir
sig og pakkaði öllu niður í
kassann sinn.
Þegar Tígur kom til
Ameríku seldi hann kex-
kökurnar og keypti sér
happdrættismiða fyrir
peningana. Hann vann
stærsta vinninginn í
happdrættinu og það
nægði fyrir flugfarseðli
heim. Þegar Tígur kom
heim hafði hann verið að
heiman í tvær vikur.
Mamma Tígurs leit á
klukkuna þegar hann
kom heim. „Hér er sinn-
epið" — sagði Tígur og
setti sinnepskrukkuna á
borðið. „Jahá", — sagði
mamma hans. „Þú varst
lengi í burtu. Var biðröð í
búðinni?" „Nei, — sagði
Tígur, — „það var engin
biðröð". „Einmitt það.
Gerðist eitthvað sérstakt
á leiðinni?" — spurði
mamma Tígurs. „Nei",
— sagði Tigur og leit á
gullúrið sem skipstjórinn
hafði gefið honum. —
„Nei, það gerðist ekkert
sérstakt". Endir.
Barnahornid
Æþí Útvarp
kl. 20.40
Vefur
örlaganna
tJtvarpsleikrit vikunnar er
aö þessu sinni „Vefur örlag-
anna” eftir Somerset
Maugham. Mabel Constand-
urosogHoward Aggbjuggu til
útvarpsflutnings. Þýöandi og
leikstjóri er Ævar R.
Kvaran, en meö stærstu hlut-
verkin fara Kristin
Bjarnadóttir, Þorsteinn
Gunnarsson, Árni Blandon og
Helgi Skúlason. Flutningur
leiksins tekur tæpar 90 minút-
ur. Tæknimaður er Siguröur
Hallgrimsson.
Kitty Fane er gift snjöllum
sýklafræöingi, en kann ekki aö
meta hann sem skyldi og held-
ur framhjá honum meö
alþekktum kvennabósa. Svo
veröur sil breyting á högum
hennar, aö hún flyst I aöra
heimsálfu meö manni sinum
og viöerfiöleikana, sem mæta
þeim þar, sér hún hann i réttu
1 jósi.
William Somerset
Maugham fæddist i Paris áriö
1874, en faöir hans var
lögfræöilegur ráöunautur
breska sendiráösins þar i
borg. Maugham stundaöi nám
i heimspeki og bókmenntum
viö háskólann i' Heidelberg, og
læknisfræöinám um skeiö I
Somerset Maugham.
LundUnum. Hann var m.a.
læknir á vigstöðvunum i
Frakklandi i fyrri
heimsstyrjöldinni. Maugham
skrifaöi bæöi leikrit, skáldsög-
urog smásögur. Hefur sumum
þeirra veriö breytt i leikrit og
þær kvikmyndaðar. Kunnust
skáldsagna Maughams er lík-
lega ,,í fjötrum”, en hún er
öörum þræöi sjálfsævisaga.
A striösarunum dvaldist
Maugham I Bandarikjunum,
en bjó siöan lengst af I Frakk-
landi, og þar lést hann árið
1965.
Útvarpiö hefur flutt yfir 20
leikrit Maughams, og nokkur
þeirra hafa veriö sýnd hér i
leikhúsum.
Músik um miðjan dag
Þaö er dynjandi músik i út-
varpinu mestallan eftirmiö-
daginn aö venju. Þrátt fyrir
mörg lesendabréf I mörgum
blööum hefur aödáendum
miödegissögunnar enn ekki
tekist aö hafa áhrif á forráöa-
menn útvarpsins, a.m.k. ekki
sjáanleg.
Sá hópur sem hlustaöi mest
á miðdegissöguna er áreiðan-
lega talsvert stór — þaö kom
m.a. i ljós i hlustendakönnun
sem útvarpiö gekkst fyrir.
Þetta er hins vegar ekki
valdamikill eöa hávaöasamur
hópur.
Vera kann aö ákvöröunin
um að fella niöur miödegissög
una hafi veriö tekin I þeirri
góöu trú, aö meö þvi væri ver-
iö aö ganga til móts viö þá
hlustendur sem vilja ,,létta”
dagskrá. Þeir hafa vissulega
látið I sér heyra. En þeir hafa
yfirleitt veriö aö mótmæla þvi
sem þeir kalla „sinfóniur” —
ekki miödegissögunni. Væri
ekki ráö fyrir þá útvarpsmenn
aö aöskilja þetta tvennt, tón-
listardagskrána annarsvegar
og talaöa máliö, sögurnar,
hinsvegar? Ekki þenja
músikina yfir alla dagskrána
heldur bæta tónlistardag-
skrána innan þeirra tima-
ramma sem hún hafði. Og
leyfa miðdegissögunni aö vera
i firði Þetta er þó ekki nema
hálftimi á dag. — ih
Kvöldstund með Sveini
• Útvarp
kl. 23.00
Sveinn Einarsson Þjóöleik-
hússtjóri er aftur kominn á
dagskrá meö kvöldstundirnar
sinar á fimmtudagskvöldum.
Þessir þættir Sveins nutu
vinsælda I fyrra, og veröur svo
væntanlega áfram i vetur.
Sveinn sameinar f þáttunum
góöa og fjölbreytta tónlist og
þægilegt rabb inn á milli. 1
fyrra lagöi hann mesta rækt
viö þjóölög og visnasöng af
ýmsu tagi, þótt óperusöngur
og margskonar önnur tónlist
væri einnig i hávegum höfö.
Þvi miöur náöist ekki I Svein
aö þessu sinni til aö spyrja
hvaö hann væri meö i poka-
hominu I vetur, en ætli okkur
séekki alvegóhætt að bóka aö
þaö veröi eitthvaö fallegt og
skemmtilegt?
— ih