Þjóðviljinn - 06.11.1980, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. nóvember 1980
Fimmtudagur 6. nóvembcr 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
VIÐ ERUM HLUTI AF HEILDINNI
— Það er að sjálfsögðu
von okkar allra, sem fatl-
aðir erum, að árið 1981, ár
fatlaðra, megi í raun og
sannleika verða okkar ár,
að það megi efla skilning
alþjóðar á aðstöðu okkar,
þörfum og þeirri getu, sem
við búum yfir til þess að
geta gerst virkir og gjald-
gengir þegnar í þjóðfélag-
inu, ef það kærir sig um að
gera okkur það kleift. Og
þá er það ekki hvað síst það
samstarf, sem samtök
fatlaðra hafa nú f itjað upp
á við Alþýðusamband
íslands og aðila vinnu-
markaðarins, sem við
væntum okkur mikils af.
Þannig fórust orð
Jóhanni Pétri Sveinssyni
frá Varmalæk í Skagafirði
er blaðamaður hitti hann
að máli í herbergi hans í
Hátúni 12 fyrir nokkrum
dögum.
Forsagan
— Samstarf viö Alþýðusam-
bandið, segiröu, hvað er þar á
seyði?
— Jú, þaö mál á sér nokkra
forsögu, þótt ekki sé hún löng. Svo
er mál með vexti, að starfandi er
á vegum Sjálfsbjargar
milliþinganefnd I atvinnumálum
fatiaðra. A 20. landsþingi
Sjálfsbjargar, sem haldið var
7.-9. júni i vor.var samþykkt, að
á alþjóðaári fatlaðra, 1981, skyidi
megináhersla lögö á atvinnu- og
lifeyrismál fatlaðra. Hjá Sjálfs-
björg i Reykjavik skaut svo sú
hugmynd upp kolli, að senda
menn inn á næsta Alþýðu-
sambandsþing til þess aö kynna
fulltrúum þar málefni fatlaðra og
hugmyndir þeirra um bætta að-
stööu i þjóöfélaginu og leita eftir
samstarfi viö Alþýöusambandið
um það baráttumál.
—mhg ræðír
við Jóhann
Pétur
Sveinsson
stud. jur.
um málefni
fatlaðra
Jóhann Pétur Sveinsson: ,,A1-
þýðusambandið hefur rétt okkur
höndina. Við væntum þess að
þjóöfélagið i heild geri það
einnigi’.
Nefndarkosning
Næsta skrefið var svo það, að á
fundi, sem Sjálfsbjörg i Reykja-
vik og stjórn Landssambands
fatlaðra stóðu að, var kosin
nefnd, til þess að hrinda þessari
hugmynd i framkvæmd, skrifa
ASt um máliö og undirbúa
kynningaratriði til að leggja fyrir
Alþýðusambandsþing, ef þingiö
vildi veita okkur áheyrn. 1 nefnd-
ina voru tilnefndir Theódór Jóns-
son, og er hann formaður hennar,
Trausti Sigurlaugsson, Rafn
„Viðerum aðeins að fara fram á að þjóðfélagið nýtistarfsorku okkar”. — Frá Mtilalundi, öryrkjavinnu-
stofu SIBS. Aðalmynd: Ctbúiðmyndaalbúm, aðofan til v. unnið að almanaksgerð, að neðan til v.: gyll-
ing á bókum. — Mynd: — gel.
Benediktsson, Sigursveinn D.
Kristinsson, Hrafn Sæmundsson,
Sigmar 0. Mariusson og Jóhann
Pétur Sveinsson.
Nefndin hefur nú haldið tvo
fundi (sá þriðji var fyrirhugaður
daginn, sem þetta viðtal átti sér
stað). Strax á fyrri fundinum var
gengið frá bréfi til ASÍ. Frá þvl
hefur nú borist jákvætt svar, viö
erum boðnir velkomnir á þing
þess. Þaö er þvl á hreinu, að
fulltrúar frá okkur munu koma til
með að mæta á næsta Alþýöu-
sambandsþingi og flytja þar okk-
ar mál. Nefndin er nú að vinna aö
ýmiss konar gagnasöfnun þessu
viðkomandi.
Ég vil lika taka það fram, að
Alfa-nefndin, — en hún hefur meö
höndum framkvæmdir til undir-
búnings alþjóðaárs fatlaðra, —
hefur lýst fullum stuðningi við
þessa viðleitni pkkar. Formaður
Alfa-nefndarinnar er Margrét
Margeirsdóttir.
Beggja hagur
Viö teljum mjög mikilsvert aö
samstarf geti tekist við launþega-
samtökin um hagsmunamál okk-
ar. A hinum Noröurlöndunum
vinna þessir aðilar mjög vel
saman en hérlendis hefur ekki
verið um slikt að ræða hingað til,
en vonandi er nú breyting á þvi i
sjónmáli.
— Hvernig mundi samstarfi
ykkar og Alþýðusambandsins
verða háttað?
— Þaö kemur vitanlega margt
til greina og áreiðanlega fleira en
maöur áttar sig á svona i upphafi.
En án þess að við förum aö rekja
þá þræði, — það er hætt viö að
þetta spjall mundi lá lengjast úr
hófifram, þá get égt.d. nefnt það,
að i gegnum trúnaðarmannakerfi
verkalýðsfélaganna ætti að mega
afla upplýsinga um ástand
einstakra vinnustaða með tilliti
til atvinnumöguleika fatlaöra.
Eru þeir þannig úr garöi gerðir,
að fötluöum sé kleift aö vinna þar
og ef svo er ekki hverra úrbóta er
þá þörf?
Hér eru hagsmunirnir engan
veginn aðeins á aðra hliðina, þótt
svo kunni kannski að virðast I
fljótu bragðl Þáð er t.d. mikið
hagsmunamál launþegasam-
takanna i sambandi við iifeyris-
sjóðagreiöslur, aö fatlaðir fái
jafnrétti á vinnumarkaði.
Tvennu er brýn-
ast að breyta
— Hvaða mál eru það einkum,
sem þér finnst brýnast brenna á
fötluðum ?
— Þegar svo er spurt kemur
mér tvennt fyrst i hug. t fyrsta
lagi er þá aö vinna bug á þeirri
algengu trú, að þeir, sem fyrir þvi
verða að fatlast, séu ekki lengur
gjaldgengir á almennum vinnu-
markaði. Þeir séu I raun og veru
dæmdir úr leik. Þeir hafi
ekki lengur möguleika á aö vera
þátttakendur i hinu venjulega
mannlifi, þeir séu nokkurskonar
utangarösfólk, sem verði að sætta
sig við aö lifa i sinum sérstaka
heimi.
Gleggsta dæmiö um þaö,hvað
þessi hugsunarháttur hefur veriö
rikjandi, eru vinnustaðirnir.
Þannig er frá þeim gengið flest-
um, að ógerlegt er t.d. fyrir hjóla-
stólafólk aö komast þar inn fyrir
dyr eða að bera sig þar hjálpar-
laust um, þótt inn yrði komist.
Annað hvort höfum við hreinlega
gleymst eða það hefur verið taliö
sjálfsagt, að ef við gætum dundaö
eitthvað þá værum við bara út af
fyrir okkur. Viö værum eiginlega
sérstakur þjóðflokkur, sem ekki
ætti samleiö meö ófötluöum.
Þessi hugsunarháttur er sem
betur fer að breytast. Auðvitað
geta fatlaöir ekki unnið hvaða
störf sem eru, en fjölmörg störf
geta þeir leyst af hendi alveg
jafnvel og hinir sem ófatlaðir eru
og þaö hefur sýnt sig, aö þar eru
þeir engu lakari vinnukraftur.
Við erum i raun og veru aðeins
að fara fram á að þjóðfélagið nýti
starfskrafta okkar og þaö er engu
siöur i þess þágu en okkar. Viö
erum enginn sérsöfnuður, við
erum hluti af heildinni. Um leið
og þetta sjónarmið er viðurkennt
þarf að fylgja þvi eftir með breyt-
ingum á vinnustöðum I það horf,
að fatlaöir komist þar allra sinna
ferða. Þetta er viöast hvar hægt
að gera og til nýrra vinnustaða á
ekki að efna nema með þetta
stjórnarmið i huga.
Líkar vel í
lögfræðinni
Jóhann Pétur Sveinsson er
stúdent frá Hamrahliðarskólan-
um og nú er hann á öðru ári i lög-
fræðinni við Háskólann. Honum
likar námið vel og segir aðstöðu
fyrir fólk i hjólastólum góöa i
Lögbergi, trúlega ekki
annarsstaðar betri i byggingum
Háskólans.
— það voru gcrðar fyrir mig
tvær smá skábrautir til þess að
auðvelda mér að komast inn i
húsið; annars þurfti ekki meö, og
innan húss er svo lyfta.
— Veistu af nokkrum öörum i
hjólastól, sem stundar nám við
Háskólann?
— Nei, ég veit ekki til þess.
Aftur á móti er einn nemandi þar
sjónskertur. Vera má þó, að
einhverjir fleiri i þessum hópi séu
með einhverjum hætti fatlaðir,
þótt ég þekki ekki til þess; þetta
er svoddan aragrúi.
Það liður að þvi aö Jóhann þurfi
að mæta á fundinum, sem að var
vikið hér að framan. Ég ætla þvi
ekki að tefja hann lengur að sinni.
Um leið og við kveðjumst segir
hann:
— Við fatlaðir vonum, að þetta
ár marki timamót i baráttu okk-
ar. Viö biðjum um samstarf.
Alþýðusambandið hefur tekiö i
hönd okkar. Við væntum þess aö
þjóöfélagiö i heild geri það einnig.
— mhg
Það þykir grunsamlegt ef
sögurit er ekki leiðinlegt
Mál og menning hefur
um alllangan tíma unnið að
því að koma út mannkyns-
sögu eftir íslenska menn;
nú fyrir skemmstu kom út
sjötta bókin í þeim bálki og
er eftir Jón Thór Haralds-
son. Hún fjallar um það
merkatímabil landafunda,
siðbótar, trúarstyrjalda og
uppgangs borgarastéttar
1492—1648.
I viðtali spurðum viö Jón fyrst
að nytsemd þess aö semja slikt
verk á islensku.
— Þegar svo er komið, sagöi
hann, að máladeildarstúdentar
geta kinnroöalitiö sagt aö þeir lesi
hvorki dönsku né ensku sér að
gagni, þá ætti ekki aö vera van-
þörf á slikri bók. En að svo miklu
leyti sem þetta dæmi snýr að mér
get ég sagt að mestu réði blátt
áfram áhugi á þessu efni.
Tímabilum skipt
Þú manst að Asgeir Hjartarson
fór af staö meö fyrstu tvö bindin
og stilaði manna best. Siöan gerð-
ist ekkert I mörg ár, þar til Björn
Þorsteinsson, sú eldsál, reis upp,
það var um 1960, og sagði að þessi
fjandi dygði ekki lengur. Þá var
kallaöur saman á vegum Máls og
menningar hópur af mönnum og
timabilum úthlutað. Ég var þá
stráklingur og veit enn ekki af
hverju ég var hafður meö. Nú:
Sverrir Kristjánsson tók við af
Ásgeiri og hélt áfram með mið-
aldir. Jón Guönason og Berg-
steinn Jónsson voru enn fyrr bún-
ir með sinar bækur en þessar
bækur þrjár komu út allar á næst-
siðasta áratug.
Ég fór aö vinna á Þjóöviljan-
um, og er fátt jafn litiö uppörf-
andi fvrir ritstörf no
mennska. Ég^var samt_að^dunda,
viö þetta, en sóttist seint. Einn
kaflann lauk ég við i prentara-
verkfalli. Hann var um frelsis-
baráttu Niöurlendinga og er eitt
af þvi sem sýnir mér hvað svona
hlutir eru háöir persónulegu
mati. Fyrir nokkrum árum skrif-
aði Jón Þ. Þór greinaflokk i
Lesbók Morgunblaösins um sama
efni, mjög fróölegan. Ég sá að viö
höföum notað nokkurnveginn
sömu bækurnar. Og viö komumst
kannski ekki að beinlinis ólikum
niðurstöðum — en hvor okkar
lagði allt aörar áherslur en hinn.
Ég vantreysti sögu
Satt að segja vantreysti ég
sögu. Liklega er þaö
McCarthyisminn á kaldastriðsár-
unum, sem sýnir mér best hve llt-
ið er að marka hana. Það er
nefnilega svo erfitt aö höndla
andrúmsloft liðins tima. Ef menn
á okkar aldri, sem tóku út þroska
sinn á þeim árum, þegar reynt
var bókstaflega að frysta
sósialista út úr mannlegu félagi,
— ef við færum að lýsa þessum
tima, þá mundi ungt fólk i dag lita
á útkomuna sem hverja aðra
taugabilun.
Menn segja gjarna sem svo: ég
segi sannleikann — eins og ég
man hann. Tökum dæmi af Jóni
Rafnssyni, sem samdi ágæta bók,
„Vor i verum”, um stéttabaráttu
kreppuáranna, en þar haföi hann
staðið i fylkingarbrjósti. Ég taldi
mig nauðþekkja þetta allt, sagði
þessi glöggi maður viö mig, en
þegar ég fór aö bera mig saman
við félaga mina þurfti ég sifellt að
vera að breyta. Mig misminnti
svo oft, lika um atburði sem ég
var á kafi I sjálfur, sagði Jón
Rafnsson.
Sífelld breyting
— Hvaö er erfiðast við aö glima
við þann tima sem þú skrifar um?
— Það fór mest i taugarnar á
mér, að engum tveim bar saman.
Ég var lengi að dunda við þetta, i
sumarfrium einna helst, og
sankaöi jafnan aö mér sem mestu
af þvi sem út kom um timann á
aðgengilegum tungumálum. Ég
sé alls ekki eftir þeim tima, ööru
nær. Viðhorf voru alltaf að breyt-
ast, ýmislegt var lagfært, ný blæ-
brigöi voru dregin fram. Ef ég
hefði hespaö þessum 430 siöum af
á 5—6mánuðum rétt eftir 1960, þá
heföi bókin kánnski ekki verið
úrelt nú, en snöggtum
Rœtt við Jón Thor
Haraldsson
um mannkynssögu-
rit hans um
tímabilið 1492-1648
ónákvæmari i umgengni viö
staöreyndir.
Mikiö af kóngum
—- Hve lengi er mann-
kynssögurit að verða úrelt?
— Ég veit það ekki, ég er að
vona aö þessi bók endist út árið.
Ég geri mér grein fyrir göllum
á þessari bók. Tveir ágætir sagn-
fræðingar lásu þetta yfir fyrir
mig. Annar var svo elskulegur að
segja, að þetta væri læsilegt rit,
en hörðum marxistum þætti
kannski fullmikið fara fyrir kóng-
um og hershöfðingjum. Bókin er
alls ekki nógu marxisk. Og það er
biátt áfram af þvi ég er ekki nógu
góður marxisti.
Bókin mætti vera meira um
hagsögu. Þetta er ansi mikið
stjórnmálasaga, einfaldlega af
þvi að mér finnst hún einna
skemmtilegust. Saga án stjórn-
mála er eins og Hamlet prinslaus.
Þetta eru stærstu gallarnir frá
minu sjónarmiöi. Svo veit ég að
það hljóta að vera einhverjar
beinar villur i svona bók, sjálf-
sagt hefur mér skotist yfir eitt-
hvaö eöa ég mistúlkað. Mestur
vandinn er aö fá úr efniviönum
sem samfelldasta heild, yfirsýn
yfir timabiliö.
Að grufla i persónum
Skemmtilegust þótti mér hins-
vegar menningarsagan. Ég tók
þar ákveöinn pól i hæðina, ákvað
að gera þá kafla ekki að nafna-
listum, hafa heldur færri visinda-
menn eða-lista meö, hafa fleira
um færri menn, en litilræði um
marga. Skrifaði t.d. ekki um rit-
höfund nema ég heföi lesiö hann
sjálfur. Þaö er sjálfsagt
tslendingseðlið að hafa gaman af
að grufla i slikum einstaklingum.
Persónusaga hefur alltaf verið
skratti rik I okkur tslendingum —
og má vel vera það.
Aætlun min var annars eitthvaö
á þessa leið: Að komast aö þvi
hvaö gerðist. Hversvegna þaö
geröist. Og i þriöja lagi langaði
mig til að einhver hefði svolitia
ánægju af að lesa þetta. En þá er
maður kominn út á hálan is, þvl
þaö þykir grunsamlegt, sögurit
eiga að vera leiöinleg til aö það sé
tekið mark á þeim...
— Ef þú ættir kost á aö skrifa
meira um sögu, hvar mundir.þú
bera niður?
Mig langar til að fást við nýrri
sögu, helst þá millistriðsárin. Ég
er orðinn þaö gamall, að þau
passa best við minn aldur....
— áb.
á dagskra
/
A þessu feilaði dr. Sigurður Nordal
sig, sem ég dáði og dái, þótt honum
yrði það á að kanna ekki Hrafnkelsdal.
Mest sló mig þegar hann neitaði
tilveru Laxárdals á sögusvæðinu.
Hann er til enn í dag með nafni.
Hrafnkelssaga
/ / • 1 * X *
í nýju ljosi
Grein með þessu nafni birtist i
Sunnudagsblaði Þjóðviljans
13.—14. sept. 1980. Þar segir að
fundist hafi við rannsókn I Hrafn-
kelsdal á annantug byggðarieifa.
Rannsókn þessi náði einnig til
Brúardala og Vesturöræfa. A
Brúaröræfum fundust einnig 5
rústir. Það gleður alltaf min
gömlu augu er saga landsins
skýrist. Suma varðar ekkert um
fortiöina, en geta með þvi oröiö
gliðsla I nútiðinni. 1 raun vitum
viðlltiö um hvað landið var byggt
hátt upp til dala og öræfa, sem nú
teljast. Á landnámstið mun gróð-
ur landsins hafa verið gjörólikur
þvi sem nú er. Jöklar, eldgos og
uppblástur hafa huliö heil
byggðarlög og tilvera þeirra talin
þjóðsaga. Alþýðumenn hafa oft
fundið rústir og fornminjar, en
hver tekurá merinni mark? Aftur
á móti hefur sagnfræöingum og
fleiri mönnum orðiö þaö á að
hlýta reglu gamalla tóbaks-
manna i tóbakshallæri, aö láta
sömu tugguna ganga frá munni til
munns uns ekki finnst bragð
(þetta er þó ekki sagt menntun til
lasts, en bókvisi er ekki einhlit).
Ég þekkti Hallgrim sem bjó á
Vaöbrekku i Hrafnkelsdal og
hann sagöi mér frá mörgum rúst-
um sem hann heföi fundiö. Þessu
var auðvitað lltiil gaumur gefinn,
þar sem kotbóndi átti I hlut.
Það er ekki mitt hlutverk aö
skrifa um Hrafnkelssögu, en
langar þó aö fara þar um
nokkrum oröum. Fornleifarann-
sóknir eru nú að færast i aukana
og þar mun margt fram koma
sem eykur við sögu íslands. Land
þetta hefur fundist hundruðum
ára fyrir svonefnt landnám. Hér
hafa sjóhrakningamenn hafst við
tima og tima. Þegar svo land
byggðist sem kallað er, bendir
margt til þess að hér hafi verið
einhver slæðingur af fólki, sem
ekki hafi verið einsetumenn eins
og okkur er sagt. Aö landsnáms-
menn hafi flutt meö sér búfé að
nokkru ráði, er harla ótrúiegt.
Þarna var um að ræða heilar
fjölskyidur og vini, þræla, mat-
föng, verkfæri og búshluti;
kannski örfáar skepnur, sem
þurftu fóöur og vatn. Hitt er trd-
legra aö fólkiö sem hér var fyrir
hafi verið búiö að koma sér upp
fjárstofni, sumt af þvi sloppiö,
lifað villt og ijölgað ótt. Ekki er
ótrúlegt að hér hafi lika verið svin
villt og tamin. Ef ekki á aö af-
skrifa allar arfsagnir, þá er
ótrúlegt að stórbændur sem um
.getur hafi i hvelli komið sér upp
þrem fjórum stórbúum. Fyrr má
nú vera tilhleypingin. Hitt er
sennilegra, að bæöi þeir sem hér
voru fyrir og eins landnámsmenn
hafi sótt sér fé til Færeyja. Aö fé
hafi getaö lifað hér villt, er ekki
að efa. Allt fram á mina daga liföi
vilit fé árum saman á öræfum i
Skaftafellssýslu.
Viðvitumekki hvað biskuparn-
ir létu Ara fróða fella niður úr
Islendingabók.
Ekki er ótrúlegt að hann hafi
eitthvað skrifað um þetta fólk
sem fyrir var á landinu, en land-
námsmenn drepiö eða gert að
þrælum. Sæmundur og biskup-
arnir voru þrælkristnir menn og
hafa ekkikært sig um aö lýst væri
afdrifum þessa fólks. Kannski er
það afsökun sem Ari setur fram:
„Hvat missagt er i fræöum þess-
um ér skylt aö hafa þaö er
sannara reynist”. En hver vissi
meira en Ari sem hafði sambad
ogaðgang að öllu þvi fólki I land-
inu, sem mest vissi, mundi lengst,
var vitrast og óljúgfróðast.
Fornleifarannsóknir munu nú
sem óðast fara i vöxt og þar mun
margt fram koma sem vissir
menn munu gleypa vind yfir. Hér
má nefna rannsóknina I Herjólfs-
dal.Inn á þessi mál mun ég koma
i annarri grein ef ég tóri.
Svo við aðeins vikjum að
Hrafnkelu og deilum um hana.
Báðir aðilar hafa mikiö til sins
máls. Sagan er sýnilega skrifuð
af manni þaulkunnugum
„Dalnum” og mér þykir mjög
trúleg tilgáta prófessors Her-
manns Pálssonar um að Brandur
ábóti hafi skrifaö söguna.
Brandur hefur haft þarna náin
kynni, vegna vensla við frændlið
sitt á Valþjófsstaö. Gaman væri
að bera saman stil Hrafnkelu og
bóka þeirra sem eru viö Brand
kenndar.
Mér finnst kristilegum hug-
myndum bregða fyrir i Hrafn-
■kelu, t.d. um aö afturhvarf hafi
orðiö á breytni Hrafnkels eftir
ósigur hans. Slikt virðist þó hafa
runnið út I sandinn. Þetta er ekki
ólikt þeirri baráttu sem Brandur
háöi er rætt var um eftirmál og
hefndir eftir Odd bróöurson hans,
en þar mátti hann ekki nærri
koma. Þarna stóð baráttan eins
og I mörgum okkar fornu sögum
milli heiðni og kristni, en heiönin
bar þó oftast hærri hlut og þar
liggur liftaug sagnanna. Aftur-
hvarf Hrafnkels.ef verið hefur,
rennur úti sandinn, er hann fer
með mannf jölda aö einum manni
alsaklausum og vegur hann. Sám
lét hann aftur halda lifi, það var
sniðugt og dýpri hefnd en 'dráp.
Ósigur Hrafnkels fyrir Sámi
hefur mér alltaf sýnst hreinn
skáldskapur, en einhvern ósigur
hefur hann hlotið hvernig sem
hann hefur aö borið. Eftir skap-
ferli Hrafnkels, er það með ólik-
indum eftir að vera orðinn valda-
maöur i Fljótsdal, aö heimta ekki
aftur rfki sitt af Sámi nema fyrir
áeggjan griðkonu. Þetta hefði
verið honum auðvelt og þarf ekki
rökstuðnings við.
Sama er að segja um liðveislu
Þjóstarsona, sem viröist skáid-
skapur, kannski til að breiða yfir
hinn raunverulega ósigur Hrafn-
kels, en öll rök hniga aö þvi að
Hrafnkell sé raunsönn persóna og
hafi verið valdamaöur. Við vitum
kannski einna mest um goðorða-
skipan i' landinu, en sumir munu
hafa haft goðanöfn áður en alls-
herjarlög voru sett þar um og
ýmsir goðar þá fallið úr sögunni.
Þjóstarsona er hvergi getið svo
ég viti og ekki virðist hafa verið
pláss fyrir þá á umgetnu svæði.
Þótt þeir hefðu misst goðanafn,
þurftu þeir ekki að falla alveg úr
sögunni, hefðu þeir verið mikils-
háttar. Arfsagnir geta haft mikið
gildi, en oft blandaöar skáldskap.
Þar verður þvi aö fara bil beggja
uns annaö sannara reynist.
Mér hefur alltaf fundist Hrafn-
kela bera einkenni skáldsögu og
fornleifarannsóknir breyta þar
engu um i raun. Aðalpunturinn
stendur um manninn Hrafnkel,,
ósigur hans oguppgangurá tveim
vigstöðvum. Formálar, t.d Aust-
firðingasöguþátta, eru sumir meö
endemum rangsnúnir og að engu
hafandi. Þar er ég fæddur og
uppalinn og þekki allar aðstæður.
Þetta liggur I þeirri latvinnu að
koma ekki á sögustaðina heldur
giska á. Menn skyldu hafa i huga
orð dr. Helga Péturss, að jarð-
fræöin kemur allsstaðar við sögu
og fylgir okkur útyfir gröf og svo-
kallaðan dauða.
A þessu feilaöi dr. Siguröur
Nordal sig, sem ég dáöi og dái
þótt honum yrði það á að kanna
ekki Hrafnkelsdal. Mest sló mig
þegar hann neitaði tilveru Laxár-
dals á sögusvæðinu. Hann er til
enn f dag með nafni og hefur
óefað verið byggður. Þar hefi ég
verið til „grasa” og segi eftir
eigin sjón. Það er hættulegt
menntaafbrigði að hægja á heila
slnum og láta aðra hugsa fyrir
sig, þetta þarf að úrættast. Það er
heill heimur sem biður rann-
sóknar I fornsögum okkar og mun
byggjast mikiö á jarðfræði. Þótt
égsébara múgamaður ætla ég að
bera niöur næst i öðrum Aust-
firðingasögum þar em ég er
nákunnugur. Snorri Sturluson
talar um aö skilja „jarðneskri
skilningu”, sem gæti þýtt jarð-
fræði.
erlendar
bækur
The Gospel of St Matthew.
J.C. Fenton. The Pelican New
Testament Commenta ries.
Penguin Books 1978.
Rannsóknir og útlistanir á guö-
spjöllunum eru gamalt viðfangs-
efni guðfræðinga. Hver timi
leggur sitt mat á guðspjöllin og
hinar ýmsu kirkjudeildir skilja
þau sinum skilningi. Þau verða
ekki lesin án talsverðrar þekking-
ar á guðfræöi og tilorðningu
þeirra svo að gagn sé að og hefur
það veriö aðalstarf klerkdómsins
að auka skilning manna á þessum
ritum, allt frá þvi á fystu öldum
eftir upprisu Krists.
Penguin útgáfan hefur gefið út
kommentara viö öll guðspjöllin,
og eru þeir taldir marka nokkur
timamót i þeim fræðum. Hingað
til hafa slik útskýringarrit oft
verið full sérhæfð eða þá of út-
þynnt til þess að gagnsamleg
væru sæmilega upplýstu fólki.
Penguin útgáfan leitast viö að út-
lista og skýra þessi helgu rit á
þann hátt að skiljanlegt er og
jafnframt er forðast að útþynna
efnið I einhverjum Reader Digest
stil. Klerkdómurinn og leikmenn
ættu þvi aö hafa fullnot af þessum
útgáfum. Sira John Fenton, sem
ritar hér um Mattheusar guö-
spjall, tilheyrir ensku biskupa-
kirkjunni, svo að þvi er kenningin
borin fram og útlistuð á kórréttan
hátt.