Þjóðviljinn - 26.11.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 26. nóvember 1980.
Kærleiksheimilid
-vidtalið
Rætt við
Kristján Jónsson
kennara
á Egilsstöðum
Þið gerið ekki annaö en tala og drekka te! Hvenær byrja afi og
amma eiginlega i friinu?
Vel nýttir
hitaveitu-
brunnar
á Skaga
1 „Bæjarblaöinu” frá Akra-
nesi er eftirfarandi frásögn:
Hitaveitubrunnar eru til
margs nytsamlegir, það sann-
aðist fyrir skömmu. Þá fór fram
viðgerð á kyndistöðvarleiðsl-
unni. Þurfti þá að loka fyrir
vatnið á milli brunna. Þegar
starfsmaöur hitaveitunnar fór
niður i annan brunninn þá blöstu
við honum 2 brúsar sem hengu
i niður úr rörunum. 1 þeim var
í einhver vökvi og var „sjálf-
boðaliði” fenginn til að smakka
á hvað væri i brúsunum.
Orskurður hans var „Gott
brugg”.
I rósagarði
Duttlungar
kynferðislífsins
Hitinn i svefnherberginu fór i
sex.
Fyrirsögn i Visi.
Reyfarakaup
Við gerðum lika viðskipta-
samning sem báðir töldu sig
hafa hagnast á. Ég fékk
úsóbrennivin, leðurtöskur með
afslætti og hnetur, en hann
myndir af Benedikt Gröndal og
Lúðvik Jósepssyni til aö bæta i
alþjóðlegt safn sitt af krataleið-
togum.
Atli Rúnar Halidórsson i Vik-
unni.
Molar
Ríkisvaldið
„Sá, sem ekki hefur verið i
fangelsi, veit ekki hvaö rikið
raunverulega er”.
— Leo Tolstoy
Úr þorskastríði
Bretar manna brimfley
og beita valdi enn,
kunni^ fyrir „fair play”
og fæddir „gentlemen”.
LárusH. Biöndai 1976
Skammsýni
„Þetta tal um byltingu á Kúbu
er einbert þvaöur”.
Framkvæmdastjóri i
Coca-Cola félaginu 1957.
„Hviti maðurinn mun ætið
drottna i Suður-Afriku”.
J.B. Vorster,
forsætisráðherra
Suöur-Afriku 1968
Jón Baldvin skrifar svo til allt
blaö sitt um Alþýðubandalagið og
landsfund þess i gær og setur
stórskemmtilegt met i þvi sem
Vilmundur kallar ástarheift
vanmetakratans.
Þangaöleitar klárinn sem hann
er kvaldastur....
Hress
og fersk
barátta
fyrir
austan
Kristján Jónsson kennari við
Menntaskólann á Egilsstöðum,
skáid meö meiru,brá sér suður
til að s.itja landsráðstefnu Al-
þýðubandalagsins og til að lita
inn á ráðstefnu um verkalýðs-
. mál sem einnig stóö þessa sömu
helgi.
— Hvað er tlöinda að austan
Kristján?
Það er allt bærilegt, skólinn
gengur vel og þaö er töluvert
félagslif meðal Héraðsbúa. Það
voru stofnuð samtök herstöðva-
andstæðinga sl. sumar og innan
þeirra hefur verið unnið mikið.
Það var t.d. haldin skemmtun,
þar sem flutt voru atriði frá
ýmsum fjörðum, þá var haldin
samkoma i stil við „Rokk gegn
her” og þaðeruhópar starfandi.
Það hefur verið töluverð þátt-
taka i þessu starfi, sérstaklega
hefur ungt fólk komiö þar við
sögu. Þessi barátta gegn her i
landi er bæði hressileg og fersk
þarna fyrir austan. Þó að ekki
hafi tekist að reka herinn úr
landi þá er fóik á móti honum
samt.
— Hvað um annaö pólitlskt
starf?
Það hefur greinilega verið
litið sem ekkert pólitiskt starf á
Austurlandi innan Alþýðu-
bandalagsins lengi vel, en nú
höfum við stofnað tvær nefndir
til aö vinna að pólitiskum mál-
um. Fyrst og fremst til að koma
skoðunum okkar á framfæri til
þeirra sem meö forystuna fara,
en hingað til hafa þeir komið til
okkar og gefiö linuna. Það er
gott starf innan Alþýðubanda-
lags Héraðsmanna um þessar
mundir.
— Hvernig er ástandið í skóla-
málum eftir að þiö fenguð
menntaskóla?
Það er all-gott, betra en viðast
annars staðar. Skólinn á Egils-
stöðum þjónar öllu Austurlandi
sem fjölbrautaskóli og það er
búiö að skipuleggja skólamálin
vel. Það eru 130 nemendur i
menntaskólanum og um 10
kennarar. Viðerum bara hress i
anda fyrir austan. _ká
Tekið eftir
* mmm.
15LAW05KA
DATAFöí£NINS£w
i kerfi, eða einsog segir i Tölvumálum:
„Þetta orð hefur veriö þýtt og „hálfþýtt” á ýmsa vegu, eins og
kunnugt er. Jóhann notaði i erindinu orðið „gagnasafnskerfi” yfir
þetta hugtak. Hann sýndi hinsvegar á tjaldi þá möguleika, sem á
þvi eru að hans mati, að búa til islenskt orð yfir hugtakið, með þvi
að tengja saman orð eða orðhluta. Niðurstaðan var þessi:
safns
PGagna banka stjórn
[upplýsingaj grunns (autt) [kerfi]
2 x 3 X 2 x 1 = 12
Þessi tafla gefur möguleika á 12 islenskum oröum, og geta menn
nú spreytt sig á þvi aö meta hvert þeirra er álitlegast, til aö túlka
hugtakið.
Auk þessa brá Jóhann upp mynd, þar sem hann tekur meö i
dæmið nokkur ensk orð eða slettuorð. „Islenska með slettum”
kallaði hann það. Sú tafla litur svona út:
í félagsblaði sænskra skýrslutæknifélagsins SSIaren er grein um
islenska kollega myndskreytt þannig.
Vandi tæknifræðinga
„Tölvumál”, málgagn Skýrslutæknifélags Islands fjallar um
ýmis vandamál og viðfangsefni tölvufræðinga og annarra tækni-
lærðra og er I siðasta tölublaðinu lýst vanda þeirra við að þýöa er-
lend hugtök svo vel fari, og án þess að bregða meira eða minna fyrir
sig erlendum orðum og hugtökum.
A félagsfundi nýlega tók Jóhann P. Malmquist málið fyrir i erindi
og tók þá sem dæmi enska hugtakið „Date Base Management
System”, Sem ekta kerfisfræðingi kom hann vandanum náttúrlega
saf ns
Gagna banka stjórn
Upplýsinga grunns (autt) kerf i
Data basa Management System
base
= 90
Hér eru möguleikarnir orönir 90 á að búa til orð yfir hugtakið, og
getur nú hver reynt að þekkja sjálfan sig. Hefur nokkur heyrt, af
sjálfs sin vörum eða annarra, orð eins og „databankastjórn-
system”, eöa eitthvað viðlika björgulegt?
<
P
o
Pu
?Heyröu pabbi! í myndum sem
^eru bannaðar börnum...