Þjóðviljinn - 26.11.1980, Side 5
Mi&vikudagur 26. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
SVÖLURNAR — félag fyrrverandi og núverandi fiugfreyja,
erunú þessa dagana aöselja jólakorttil styrktar starfsemi sinni,
en ágóðinn af sölunni rennur allur til liknarmála.
Jólakortin I ár eru með nýstárlegu sniði, gerð úr rauðum
pappa en hvit að innan með mynd af jólarós. Þau eru þríbrotin,
lokast með gylltu innsigli, sem á er prentað félagsmerki Sval-
anna, og er gert ráð fyrir að utanáskrift sé sett beint á rauðan
pappann, og eru umslög þvi óþörf.
SVÖLURNAR eru um þessar mundir að afhenda námsstyrki
til handa kennurum og öðrum leiðbeinendum vangefinna og
málhaltra, og verja til þess í ár 2,5 milljónum króna. Næsta við-
fangsefni félagsins á sviði liknarmála verður að kaupa hjálpar-
tæki fyrir algerlega hreyfihamlað fólk til nota á Grensásdeild
Bo rgarsjúkrahússins.
Fjölskyldan i frjálsu samfélagi
Landssamband sjálfstæðiskvenna og Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna I Reykjavik, hafa gefiö út bókina „Fjölskyldan i frjálsu
samfélagi.” Bókin kom út hinn 24. okt sl. þegar fimm á voru liðin
frá kvennaverkfallinu.
1 bókinni eru greinar um flesta þá þætti sem snerta fjölskyld-
una og eru þær eftir 24 höfunda bæði karla og konur sem „eiga
það sameiginlegt að vera sjálfstæðismenn og vilja stuöla aö
eftirsóknarverðri framtið á Islandi, — þjóðfélagi, sem reist er á
frelsi einstaklingsins til orða og athafna, án óþarfa afskipta
rikisins” segir i fréttatilkynningu frá þeim sjálfstæðiskonum.
Tilgangur útgefenda er að koma af stað umræðum um málefni
fjölskyldunnar sem leiði af sér markvissa stefnumörkun í
þessum málum.
Frœðslufundur um Eþiópiu
A morgun fimmtudag, mun Kristilegt stúdentafélag, K.S.F.
halda fræ&slufund I stofu 201 i Arnagaröi. Fræðsiufundurinn
hefst kl. 17.15 og fjallað verður um efnið „Byltingin f Eþfópiu —
kristniboð”.
Kristniboðarnir Helgi Hróbjartsson og Jónas Þórisson, sem
báðir störfuðu i Eþiópiu og þvi nákunnugir aðstæðum, flytja
framsöguerindi. A eftir verða umræður og fyrirspurnir.
Allir eru velkomnir.
Svölurnar selja jólakort
Gitartónleikar
i Bústaðakirkju
Pétur Jónasson heldur
gitartónleika i Bústaðakirkju i
kvöld kl. 20.30.
Pétur hóf gitarnám við Tón-
listarskólann i Görðum niu
ára að aldri og var kennari
hans Eyþór Þorláksson. Vorið
1976 lauk hann einleikaraprófi
frá sama skóla og burtfarar-
prófi ári siðar. Haustið 1978
hóf Pétur framhaldsnám við
hinn þekkta gitarskóla
Estudio de Arte Guitarristico i
Mexicoborg og var einkakenn-
ari hans argentinski gitar-
leikarinn Manuel López
Ramos. Burtfararprófi lauk
hann i ágúst 1980.
Þumalina flytur búferlum
Barnafataverslunin Þumalfna erflutt að Leifsgötu 32 og býður
sem fyrr upp á flest það sem börn þurfa á að halda. Auk þess
selur verslunin snyrtivörur sem unnar eru úr jurtum og jurta-
olium,en jurtirnar eru ræktaðar á lifrænan hátt. Verslunarstjóri
iÞumalinuer Friða Jónsdóttir, sem þarnaer viðafgreiöslu.
Öjl gegn ölvunarakstri
Nokkur félagasamtök og
stofnanir hér á landi hafa tek-
ið saman höndum undir sam-
heitinu „öfl gegn ölvunar-
akstri” um að koma á fram-
færi og vekja athygli á stað-
reyndum um ölvun við akstur,
sem er vaxandi vandmái i um-
ferðinni. Nægir a& minna á,
aö á árinu 1979 voru 2609 menn
teknir fyrir ölvun við akstur.
Af þessu tilefni hafa
Umferöarráö og Afengis-
varnarráð látið prenta vegg
spjald og bækling, sem ung-
templarar og lögreglumenn
munu dreifa & Stór-Reykja-
vikursvæðinu, en Slysa-
varnarfélagið annarsstaöar á
landinu. Bæklingurinn á ekki
sist erindi til ungs fólks, og er
eintakafjöldi nægur til dreif-
ingar meðal allra nemenda á
aldrinum 17—20 ára. Skóla-
stjórum er sérstakleg bent á
að panta þessa bæklinga hjá
Umferðaráði.
—ih
Pétur Jónasson — nýkominn
frá námi I Mexikó
A efnisskránni eru verk eftir
Luys de Narvaéz, Manuel M.
Ponce, Johann Sebastian
Bach, William Walton, Heitor
Villa-Lobos og Isaac Albéniz.
Egill ólafsson t.v. I hlut-
Glámur og Grettir horfast I augu fyrir gUmuna, miklu
verki Gláms og Kjartan Ragnarsson sem Grettin.
Leikfélag Reykjavikur sýnir
SÖNGLEIKINN GRETTI
eftir ólaf Hauk Slmonarson
og Þórarinn Eldjárn
Leikstjóri:
Stefán Baldursson
Tónlist: Hinn isienski
Þursaflokkur
Dansstjórn:
Þórhildur Þorleifsdóttir
Leikmynd:
Steinþór Sigurðsson
Það er rétt að játa það strax að
ég hef ævinlega haft heldur
daufan smekk fyrir söngleikjum
og aldrei getað fengið það al-
mennilega í höfuðið að ameriska
músfkalið sé eins ágæt listgrein
og af er látið. Einkum á þetta við
hin alvörugefnari og dramatisk-
ari verk þessarar tegundar. Það
sem mér þótti eiginlega langbest
við Gretti var að 'þetta var eigin-
lega allt i gamni. Og sýningin er
tvlmælalaust nógu fjörug, kraft-
mikil og fyndin til þess að veita
ágæta skemmtun.
Grettir segir sögu af vandræða-
unglingi úr Breiðholtinu sem
verður stórstjarna i sjónvarpinu.
Söguþráðurinn er að visu ansi
tætingslegur, en textinn er upp-
fullur af allskyns innskotum,
uppákomum og tilfallandi
skemmtilegheitum sem halda
sýningunni gangandi og breiða
ágætlega yfir götin i sjálfri aðal-
sögunni, sem er dálitið vand-
ræðaleg á köflum, einkum
framan af, en í seinni hlutanum
tekst að beina henni i dálitið
skemmtilegan farveg kringum
dramatískan hápunkt verksins,
glimu Grettis við s’jónvarps-
drauginn Glám, sem hann getur
að vlsu sigrast á likamlega en
ekki á hugmyndinni. Og snjöll er
súhugdetta að augu Gláms breyt-
,ast i linsur myndavélanna og of-
sækja Gretti þannig að sjón-
varpsferli hans er þar með sjálf-
krafa lokið.
En sýningin lifir meira á ein-
stökum snjöllum atriðum og hug-
dettum en samhangandi sögu-
þræði eða framvindu. Og mörg
atriðin eru óvenjulegu fyndin, t.d.
nektrarsena Grettis og apa-
mennska föður hans. Það vantar
hins vegar bæði I textann og
uppsetninguna þá stefnufestu og
samþjöppun sem hefði getað gert
verulega heilsteypt verk úr þess-
um efnivið.
Sýningin er einnig nokkuð hrjáð
af þeim sjúkdómi sem alltof oft
herjar á íslenskt leikhús — hún er
of löng. Ég er viss um að það
mætti stórlega bæta hana með
niðurskurði um svona 20 minútur.
En það er eins og niðurskuröur sé
ekki sterkasta hlið islensks lista-
folks. Þegar það hefur einu sinni
sett eitthvað á blað eða svið er
þvi oftast ákaflega sárt um að sjá
af þvi aftur.
Grettir er viðamikil, flókin og
mannmörg sýning og það hefur
ekki verið neitt áhlaupaverk að
koma öllum þáttum hennar heim
og saman, einkum við erfiðar æf-
ingaraöstæöur I Austurbæjarbiói.
Stefáni Baldurssyni hefur tekist
nokkuð vel að fá heillegan svip á
sýninguna og nýtur þar dyggi-
legrar aðstoðar Steinþórs, sem
hefur gert alveg sérlega hagan-
lega leikmynd, og Þórhildar Þor-
leifsdóttur sem hefur séð um
dansinn. Að visu þótti mér dans-
inn heldur fyrirferðarmikill i sýn-
ingunni og þótti sem hann stund-
um dræpi fremur á dreif áhrifum
hennar en hann bætti við þau. Það
var lika alltof augljóst að dansar-
arnir eru ekki atvinnufólk i þess-
ari grein.
Það er mikið á Hinn islenska
þursaflokk lagt að semja og flytja
tónlist til að halda þetta langri
sýningu gangandi, og reyndar
endist þeim ekki innblástur til að
halda uppi fjölbreytni og tilbreyt-
ingu i tónlist sinni allan timann.
Mörg lögin eru einhæf og hvert
öðru keimlik. En það er mikill
kraftur i þursunum og flutningur
þeirra er hafinn yfir mina gagn-
rýni. Þeir halda uppi dampinum
allan timann, þeir eru ekki of
háværir og mörg laganna eru
verulega snjöll og hugmyndarik.
Hlutur leikara er yfirleitt mjög
góður. Kjartan Ragnarsson fer
algerlega á kostum í titilhlut-
verkinu, enda er hann eins og
skapaður I hlutverkið. Sviðs-
persóna Kjartans er þannig, að
honum lætur mjög vel að leika
einfeldningslegar persónur, stór
börn (sbr. minnisverð hlutverk
hans í Hjálp og Selurinn hefur
mannsaugu) og hér nýtist honum
sú mikla llkamlega tækni sem
hann hefur yfir að ráða til hins
ýtrasta.
Aðrir standa honum litt að baki.
Jón Sigurbjörnsson er óborgan-
lega fyndinn I hlutverki föðurins
sem fær vinnu sem api i Sædýra-
safninu og kann svo vel við sig i
hlutverkinu að hann gengur al-
gerlega inn i það. Jón kann
greinilega svo vel við sig i hlut-
verkinu að mann fer jafnvel að
gruna að rennilásinn sé í raun og
veru horfinn. Auk þess er Jón
listagóður söngvari.
Hanna María Karlsdóttir er
leikkona sem ævinlega er mér til
gleði vegna hnitmiðunar i hreyf-
ingatækni og sérkennilegrar
kimnigáfu. Hvort tveggja nýtist
henni til fullnustu i hlutverki
Gullauga og mér fannst einleiks-
atriði hennar það besta i sýning-
unni.
Fleiri eiga lof skilið. Sigurveig
Jónsdóttir og Harald G. Haralds-
son voru traust bæði i leik og
söng, einkum var söngur Haralds
skemmtilegur, eins og hans er
von og visa. Egill Olafsson olli
heldur engum vonbrigöum i hlut-
verki Gláms — það er einhver
frumkraftur i þeim manni sem
heillar áhorfandann algerlega.
Sverrir Hólmarsson
Þjóðviljann
vantar blaðbera
í þessi hverfi
frá 1. des. nk.
Sæból Rauðalalækur —
Tjarnarból Bugðulækur
Bergstaðastræti Laufásvegur
Þið munið eftir lu% vetrarálaginu?
DIOOVIUINN
Siðumúla 6 S. 81333.