Þjóðviljinn - 26.11.1980, Síða 9

Þjóðviljinn - 26.11.1980, Síða 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 26. nóvember 198«. Mióvikudagur 26. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Atvinnuþróun og auðlindanýtíng Landsfundur Alþýðubandalags- ins 1980 leggur áherslu á, að ötul- lega sé unnið að eflingu íslenskra atvinnuvega, eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar. Sérstaklega verði hugað að þvi markmiði að tryggja örugga atvinnu um land allt jafn- hliða því sem undirstaða atvinnu- lifs sé treyst til lengri tima. Alþýðubandalagið telur nauð- synlegt að byggja atvinnuþróun i landinu á grundvelli skynsamlegr- ar auðlindanýtingar og bendir í því sambandi á eftirfarandi megin- atriði: Auðlindir ÞaB er ótviræð skylda opinberra aðila að tryggja skynsamlega nýtingu auðlinda og verndun umhverfis. Alþýðubandalagiö telur að stefna á þessu sviði eigi m. a. að fela i sér: 1 Eignarhald og ráðstöfunarrétt innlendra auðlinda sé i höndum íslendinga og helstu auðlindir þjóðarinnar séu opinber eign rikis og sveitarfélaga. Við nýtingu lifrænna auðlinda iands og sjávar, sem endurnýjast, sé miðað við að ekki sé gengið á „höfuðstól”, en aðeins ■notuð árleg vaxtargeta. Þess sé gætt að varðveita án röskunar vistkerfi af mis- munandi gerðum og sérstæö náttúrufyrir- bæri og að náttúrugæðum sé ekki spillt með mengun. Rannsóknir á islenskum auðlindum verði efldar og samræmdar á vegum innlendra aðila og upplýsingar um þær varðveittar i aðgengilegu formi. Gerðar verði áætlanir og skipulag varð- andi nýtingu lands, orkulinda og auðlinda hafs og hafsbotns og i þvi sambandi tekið mið af rannsóknum og stefnu um umhverf- isvernd. Sameinaðir verði i einu ráðuneyti helstu málaflokkar varöandi umhverfismál og endurskoöuð löggjöf um þau efni og sett ný og viðtæk lög um skipulagsmál. A grunni ofangreindrar auölindastefnu ■ og með félagsleg viðhorf að leiöarljósi þarf 1 að móta stefnu um þróun atvinnulifs á kom- andi árum. Landsfundurinn telur nauðsynlegt að Alþýöubandalagiö beiti sér fyrir ýtarlegri • atvinnumálaáætlun, er miöist við næstu 10 ár og þróunarhorfur allt til aldamóta. Slik áætlun ætti m.a. aö byggjast á eftirfarandi meginmarkmiöum: • Aft tslendingar hafi öruggt forræfti yfir atvinnulifi I landinu en hafni erlendri stóriftju. • Aft tekift sé mift af fyrirliggjandi upp- lýsingum um ástand auftlinda og æski- legum takmörkunum á nýtingu þeirra. • Aft kostaft verfti kapps um aft tryggja Hfskjör I landinu, er sambærileg séu vift þaft sem gerist best I grannlöndum okkar. • Aft aukin verfti áhrif starfsmanna á vinnustöftum stig af stigi og tryggt aft þeir geti haft áhrif á sem flesta þætti i starfsemi og þróun fyrirtækjanna. • Aft tryggja byggft og fjölþætta atvinnu- þróun sem viftast á landinu og skyn- samlega hagnýtingu landgæfta. Til að ná þessum markmiðum telur iandsfundurinn nauðsynlegt að tryggja fjárfestingarstjórn og skilmerkilega fram- kvæmd atvinuvegaáætlana undir forystu rikisstjórnar og viðkomandi ráðuneyta i samvinnu við samtök atvinnulifsins og sveitarstjórnir. Efla þarf veruiega frá þvi sem nú er rannsókna- og þróunarstarfsemi I þágu at- vinnuveganna, svo og hagræðingu og nýsköpun innan þeirra og örva fyrirtæki til aögerða á þvi svifti. Brýnt er, m.a. vegna tæknibreytinga er tengjast örtölvum.að taka upp ný vinnu- brögð varðandi endurmenntun og þjálfun starfsfólks og auðvelda mönnum aö skipta um störf og tileinka sér nýjungar. Afrakst- urinn af framleiðniaukningu og tækni- breytingum þarf m.a. að koma fram i betri kjörum, þar á meðal I styttri vinnutima og bættu starfsumhverfi. Um leið og landsfundur Alþýðubanda- lagsins bendir hér á nokkra þætti, er varða einstaka atvinnuvegi og auðlindir, leggur hann áherslu á sameiginlegt gildi atvinnu- starfseminnar til að skapa þann þjóðarauð, sem skipta ber sem jafnast og með félags- legt réttlæti og öryggi þjóðarheildarinnar i bráð og lengd i huga. Sjávarútvegur Undirstaðan i islensku efnahágslííi er enn sem fyrr útflutningur sjávarafurða en verðmæti þeirra hefur numið allt að 90% heildarútflutnings undanfarin ár, ef and- virði áls er ekki mefttalið. Það er þvi sjávarútvegurinn, fiskveiðar og fiskvinnsla, sem langmestu ráða um afkomu landsmanna, þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur. Aðgerðir til að auka verö- mæti sjávarafurða og framleiðni i veiðum og vinnslu skipta þvi miklu máli og eiga á skömmum tima að geta orðið til mikilla hagsbóta. í atvinnuvegaáætlun til næstu 10 ára ber m.a. að leggja áherslu á eftirfar- andi meginatriði varðandi þróun sjávarút- vegsins: 1. Leitast veröi við að ná sem bestri nýtingu þeirra fjármuna, sem þegar hefur verift varift til eflingar sjávarútveginum. 2. Stuftlaft verfti aft samræmingu veifta, vinnslu og markaftar svo sem frekast er unnt aft koma vift. Stjórnun veiftanna verfti endurskoftuft og meginstefna ákveftin meft lengri fyrirvara en verift hefur á undanförnum árum. 3. Sérstök áhersla veröi lögft á þróun frysti- iftnaðar og aukift verftmæti fram- leiöslu i öllum greinum sjávarútvegs svo og bætta meöferft og nýtingu afla. 4. Hafin verfti endurbygging fiskimjöls- verksmiftja i samræmi vift nútimakröfur um orkusparnaft, fullkomna nýtingu hrá- efnis og mengunarvarnir. 5. Unnift verfti skipulega aft markafts- málum, og sérstök áhersla lögft á markaft fyrir nýjar og fjölþættari afurftir og full- vinnslu sjávarafurfta. 6. Afram verfti unnift aft úttekt á útflutn- ingsverslun meft sjávarafurftir og reynt aö tryggja aft landsmenn verfti ekki um of háöir einum markafti. 7. Stórátak verfti gert varftandi fiskeldi i sjó. Rikift tryggi nauftsynlegt fjármagn til undirbúnings og tilrauna á þessu svifti og greifti fyrir stofnun eldisfyrirtækja i samvinnu vift aftra hagsmunaaftila. 8. Gerft verfti sérstök úttekt á starfskjörum sjómanna og fiskverkunarfólks i þvi skyni aft gera þessar atvinnugreinar aft- gengilegri ungu, vel menntuftu fólki. Þá verfti sjómönnum er lengi hafa starfaft og hætta vilja sjómennsku auftveldaft aft búa sig undir og komast i störf I landi, og þeim verfti gert fjárhagslega kleift aft afla sér endurmenntunar. iðnaðarvara i útflutningi hefur farið vax- andi, t.d. aukist um nær 25—30% að magni til það sem af er árinu. Ljóst er að vaxandi fjöldi starfsmanna þarf aö finna sér störf i _ iðnaði á næstu árum. Það gerist ekki nema ' til komi öflugt iðnþróunarátak og iðnaður- inn verði gildur þáttur i atvinnumálastefnu næstu ára. Við stefnumótun i iðnafti þarf m.a. að leggja áherslu á eftirfarandi meginatriöi: 1. Efla ber almennan iftnaö meft vifttækum aftgerftum til aft treysta hlutdeild iftnaftarins á heimamarkafti jafnframt þvi sem stuftlaö sé aft útflutningi iftnaftar- vara. 2. Unnift verfti aft bættri aöstööu til iön- reksturs á sem flestum sviftum meö hlift- sjón af samkeppnisaftstöftu og mark- miftum um iftnþróun. Sérstakt átak verfti gert til eflingar þeim greinum sam- keppnisiftnaftar, sem nú standa höllum fæti vegna óhefts innflutnings, m.a. hvaö varftar lánamál. 3. Samhliöa eflingu almenns iftnaftar ber ríkinu aft hafa forystu um stærri nýiönaftarverkefni, þar sem ljóst er aft einkaaðilar megna ekki aft veita þar nauösynlega forystu. Mikilsvert er aft stjórn á iðnrekstri rikisins veröi sam- ræmd og hlutdeild hins opinbera i iftn- þróun verfti aukin. 4. Orkufrekur iönaður og efnaiftnaöur I tengslum vift innlendar orkulindir lúti is- lenskum lögum og reglum og sé örugg- lega undir forræfti landsmanna. Slikur iftnrekstur þarf aft taka miö af efnahags- legum og félagslegum sjónarmiftum og kröfum um umhverfisvernd. Alþýftu- bandalagift hafnar erlendri stóriðju, en leggur áherslu á skipulegan og vandaftan undirbúning og uppbyggingu orkufreks iftnaðar, sem m.a. byggi á innlendum aft- föngum og skili viöunandi orkuverfti. A þessu svifti er margra kosta völ, sem þjóftin þarf aft hagnýta á komandi árum. 5. Lögft veröi sérstök áhersla á aft auka vinnsiu úr islenskum hi„efnum landbún- aftar og sjávarútvegs. 6. Haldift verfti áfram eflingu innlends skipasmiöaiönaöar, bæöi aft þvi er varftar nýsmiftar og viftgerftir. Sérstök áhersla verfti lögö á aft auka framleiftni skipasmiftastöftvanna, m.a. meft meiri samvinnu og verkaskiptingu milli þeirra. Endurnýjun skipastóls landsmanna fari sem mest fram innanlands og nýting skipasmiftastöftvanna verfti sem jöfnust. 7. Sérstakan gaum ber aft gefa rafeinda- iftnaöi sem nú erimjög örri þróun.svo og öftrum rafiftnafti meft tilliti til fram- leiftslumöguleika innanlands. Iðnaður Um 17% af fólki á vinnumarkaði starfar nú við iönað annan en fiskiðnað og hlutur Landbúnaður Landbúnaðurinn er ein af meginstoðum islensks atvinnulifs og hann þarf að treysta, m.a. með þarfir neytenda og innlends iðnaðar i huga. Hafa ber og i huga þá fjöl- mörgu sem með beinum og óbeinum hætti hafa framfæri sitt af landbúnaði auk þeirra 4500 bænda, er nú stunda búskap i landinu. Blómlegur landbúnaður er hornsteinn þeirrar stefnu að halda byggð sem viöast I landinu. Meöal atriða er hafa þarf i huga við stefnumótun i landbúnaði nú og á næstu árum má nefna: 1. Landbdnaftarframleiftslan verfti skipu- lögft þannig, aft örugglega sé fullnægt innanlandsþörfum varftandi afuröir, sem fært þykir aft framleifta hér, og þá aft teknu tilliti til sveiflna af völdum breyti- legs árferftis. 2. Nýjum og æskilegum búgreinum, sem byggja aft verulegu leyti á innlendum aðföngum, verfti veittur öflugur stuftn- ingur og gert sérstakt átak i samvinnu vift sölusamtök bænda til aö afla viftun- andi markafta fyrir afurftir, sem nú kalla á útflutningsuppbætur. 3. Framleiftsla landbdnaftarafurfta verfti skipulögft eftir svæöum og héruftum i samræmi vift landgæfti á hverjum staft. Ahersla verfti lögft á stefnumótun um Eignarhald og ráðstöfunarréttur innlendra auð- linda sé í höndum Islendinga og helstu auðlindir þjóðarinnar séu opinber eign rikis og sveitarfélaga. Sérstök áhersla verði lögð á þróun frystiiðnaðar og aukið verðmæti framleiðslu i öllum greinum sjávarútvegs svo og bætta meðferð og nýtingu afla. Aiþýðubandalagið hafnar erlendri stóriðju, en leggur áherslu á skipulegan og vandaðan undirbún- ing og uppbyggingu orkufreks iðnaðar, sem m.a. byggi á innlendum aðföngum og skili viðunandi orkuverði. hæfilega bústærft, er geti talist þjófthags- lega hagkvæm, skilaö lífvænlegum tekjum og miftaft aft þvi aö jafna aftstööu og afkomu bænda. 4. Hlúft verfti aft samvinnu um búrekslur og öftrum félagslegum rekstrarformum til sveita, m.a. varftandi aukabúgreinar. 5. Lögö veröi áhersla á aö efla innlenda fóöurframleiftslu og draga úr tilkostnafti vift búrekstur, m.a. meö orkusparnafti, svo og meft þvi aft draga úr öörum kostnafti á frumstigi framleiftslunnar. 6. Skipan verftlagsmála landbúnaftarins, þarf aö hvetja tl hagkvæmni viö bú- rekstur jafnframt þvi sem bændum séu tryggft kjör til jafns vift aftrar vinnu- stéttir. 7. Skipulega verfti unnift aft þvi aft bæta félagslega aftstöftu fólks I sveitum landsins og auka þar meft fjölbreytni I störfum, m.a. i tengslum viftsmáiönaft og meft sem greiftustum samskiptum vift þéttbýliskjarna. Orkumál Landbúnaðarframleiðslan verði skipulögð þannig að örugglega sé fuilnægt innanlandsþörfum varð- andi afurðir, sem fært þykir að framleiða hér, og þá að teknu tilliti til sveifína af völdum breytilegs árferðis. Stjórnmálaályktun landsfundar Alþýdubandalagsins Heildsöluverð á raforku verði hið sama á öllu land- inu og áfram verði markvisst unnið að jöfnun orku- verðs. Núgildandi orkuverð til stóriðju verðiendur- skoðað. Orkumál eru einhver örlagarikustu og jafnframt heitustudeilumálsamtimans eins og eðlilegt er, þegar orkulindir og mikil- vægir orkugjafar eins og olia fara þverr- andi á næstu áratugum. í ljósi þessa þurfa tslendingar að lita á orkulindir sinar og gæta þess að hagnýta þær af forsjálni og með hag komandi kynslóða i huga. At- vinnustefnu þarf að fylgja orkustefna til langs tima. Þar reið Alþýðubandalagið á vaðið með myndarlegri stefnumörkun, sem full samstaða tókst um á flokksvettvangi á árinu 1976. Forsendur islenskrar orkustefnu eru m.a. þessar: 1. Réttur samfélagsins til orkunnar i fall- vötnum landsins verfti lögfestur á ótvi- ræðan hátt og jarfthiti neftan vift 100 m dýpi verfti lýstur almenningseign. 2. Sjálfstæfti og öryggi þjóftarinnar I orku- málum verfti treyst sem best meft því aft koma innlendri orku sem viftast I gagnift og draga úr innflutningi á orku. Þannig verfti fylgst náift meft möguleikum á framleiðslu innlends eldsneytis og slik framleiftsla hafin eftir þvi sem sam- ræmist hagkvæmni og öryggissjónar- miftum. 3. Stofnaft verfti oliufélag á vegum rikisins, e.t.v. i samvinnu vift fleiri aftila, og annist þaft m.a. innkaup á oliuvörum. Leitaft verfti sem hagstæftastra samninga um oliukaup frá nokkrum aftilum og þess gætt, aö ætiö sé til staftar eölilegt magn af vara- og öryggisbirgftum. 4. Rannsöknir á hugsanlegum oliulindum á íslenska landgrunnnu veröi undir forystu islenskra stofnana og stjórnvalda og eigi farift hraftar i sakirnar en svo á hverjum tima aft islenskir aftilar hafi jafnan yfir- sýn yfir málin. 5. Eitt fyrirtæki opinberra aftila annist meginraforkuvinnslu, flutning raforku um landift eftir aftalstofnlinum og heild- sölu til almenningsveitna um land allt svo og til einstakra stórnotenda sam- kvæmt sérsamningum. Virkjanir veröi reistar fyrir raforkukerfift vifta um land meft tilliti til öryggis og hagkvæmni. 6. Lögö verði áhersla á hringtengingu aftal- stofnlina og örugga dreifingu raforku til notenda. 7. Verftlagning á orku verfti vift þaft lág- mark miftuft, aft rekstur orkukerfanna standi undir heildarkostnafti. Beitt verfti sveigjanlegri verftlagningu til aft hvetja til hagkvæmni i orkunotkun og hamla gegn orkusóun. Heildsöluverft á raforku verfti hift sama á öllu landinu og áfram veröi markvisst unnift aö jöfnun orku- verfts. Núgildandi orkuverft til stóriöju verfti endurskoftaft. 8. Afram verfti unnift markvisst aft orku- sparnafti á öllum sviftum. Athugaft verfti um stofnun á sérstökum sjófti til aft fjár- magna aftgerftir til orkusparnaftar auk myndarlegra lána til einangrunar hús- næöis. SIÐARI HLUTI á dagskra Kristján Jónsson Hafnarfirði Ég vona ad þid látið aldrei aftur mjúkmála alþingismenn tæla ykkur út i flokkspólitískar kosningar á kostnað faglegrar einingar sjómannasamtakanna Slys á Sjómanna- sambandsþingi A nýafstöðnu þingi Sjómanna- sambands lslands voru mörg merk mál rædd og ýmsar ályktanir gerðar. Það eru samt ekki þessi aðalmál sem ég ætla að fjalla hér um, heldur stóra slysið sem varð i lok þingsins þegar for- menn þriggja stórra og áhrifa- mikilla sjómannafélaga voru felldir úr stjórn Sjómannasam- bandsins. Þaö varu sjómanháféiögin í Vestmannaeyjum, Grindavik og Akranesi sem þannig voru svipt fulltrúum sinum i stjórn Sjó- mannasambandsins, til að hægt væri að fjölga fulltrúum Reykja- vikur. Ég var úti á sjó þegar þessir at- burðir gerðust og fylgdist þvi' ekki með aðdraganda þeirra. Ég hef hinsvegar oft átt sæti á þingum S.S.l og tekib þátt i að móta stefnu þess. Stefnan hefur alltaf áður verið sú að styrkur Sjómannasambandsins væri mestur ef allir landshlutar ættu fulltrúa i stjórninni og formenn allra stærri sjómannafélaga sætu i sambandsstjórn. Pétur Sigurðsson alþingis- maöur hefur oft áður verift á annarri skoðun og talið aðalat- riðið að Sjómannafélag Reykja- vikur fengi menn i stjórn sam- bandsins i réttu hlutfalli við f jölda fulltrúa þess á þingum sam- bandsins. Hann mun ekki telja það skipta neinu máli hvort stjórnarmenn hafi áhrif i stjórnum sinna félaga. Pétur hefur alltaf verið á móti þvi að sambandið væri sterkt, bæði núna undir stjórn Óskars og lfka áður á meðan Jón Sigurðsson var formaður. Pétur hefur alltaf viljað að sjómenn út um land leit- uðu til Sjómannafélags Reykja- vikur en ekki til Sjómannasam- bandsins um fyrirgreiðslu, — að Reykjavikurfélagift væri sterki aðilinn. Ég vil beina orðum minum til fulltrúa Sjómannafélags Reykja- vikur, sem nú voru margir ungir menn og jafnvel starfandi sjó- menn. Ég er þess fullviss að þið viljið allir að Sjómannasam- bandið sé sterkt og vel i stakk búið til þess aft hafa forystu i kjarabaráttu sjómanna, en til þess þurfa formenn allra stærstu sjómannafélaganna aft eiga sæti i stjórn sambandsins og hafa þannig bein áhrif á stefnu þess. Þaft skiptir hinsvegar ekki máli hve margir menn frá Reykjavik eru i stjórninni; ef formaður félagsins er þar þá mun hann gæta hagsmuna félagsins. Ég vil vekja athygli ykkar á að á fyrstu þingum Sjómannasam- bandsins voru fulltrúar Sjó- mannafélags Reykjavikur um tveir þriðju hlutar þingfulltrúa. Félagið notaði þó aldrei atkvæða- magnið til aö tryggja sér meiri- hluta I sambandsstjórn. Þá og alltaf siðan hefur rikt sú stefna að sem flest félög ættu formenn sina istjórn sambandsins. Fulltrúar á þingi sambandsins hafa aldrei áður látið Pétur Sigurðsson al- þingismann ráfta ferftinni og marka stefnuna. Emil Páll Jónsson fulltrúi sjó- manna i Keflavik og nýkjörinn ritari S.S.l, þú vilt sjálfsagt gera S.S.I. sem öflugast. Telur þú sambandið sterkara til að eiga I kjarabaráttu eftir aö hafa fellt úr stjórn formenn sjómannafélag- anna i Grindavik, Vestmannaeyj- um og Akranesi? Emil, heldur þú aðsjómenn i Keflavik sem þú ert fulltrúi fyrirséusammála þér um að sparka fulltrúum þessara félaga úr stjórn sambandsins, til aðfjölga fulltrúum úrReykjavik? Emil, ef þú vilt vinna fyrir sjó- mannasamtökin af heilum hug þá skaltu ekki láta Pétur Sigurðsson eöa aðra alþingismenn segja þér fyrir verkum. 1 stjórn sambandsins eiga sæti 13 menn og fimm eru kosnir til vara; þaö geta þvi ekki allir þing- fuiltrúar komist i sambands- stjórn. Sjómannafélag Reykja- vikur telur sig þurfa að eiga fjóra menn i stjórn. Matsveinafélagift sem margir telja útibú frá Sjó- mannafélagi Reykjavikur telur sig þurfa einn mann. Félögin i Hafnarfirði, Akranesi, Keflavik Grindavik, Vestmannaeyjum, tsafirði og Eyjafirði þurfa öll að eiga menn i stjórn sambandsins. Einnig þurfa félögin við Breiða- fjörð, á Norðurlandi vestra, á Suöurlandi að eiga menn i stjórn. Ekki væri óeftlilegt að félögin á Austurlandi allt frá Raufarhöfn til Hornafjarðar ættu tvo menn. Nú,og þá eru eftir félögin á Suður- nesjum utan Keflavikur sem lika ættu rétt á manni. Þarna eru komnir 18, það geta þvi allir fengift sina ósk uppfyllta að fullu, jafnvel þótt fjölgað væri i sam- bandsstjórn; þarna þarf að nást samkomulag. A þessu þingi voru margir ungir menn; þar voru menn flokksbundnir i öllum stjórn- málaflokkum og margir óflokks- bundnir, en ég vona og raunar veit að flestir þeirra vilja efla hagsmuni sjómannasamtakanna fyrst og fremst en lita ekki á sig sem fulltrúa flokka. Þiö eigið flestir eftir að koma oftar á þing sjómannasambands- ins og ég vona að þið látið aldrei aftur mjúkmála alþingismenn tæla .ykkur út i flokkspólitískar kosningar á kostnað faglegrar einingar sjómannasamtakanna, þið látið aldrei aftur ske slys eins og varð í kosningu siðustu sam- bandsstjórnar. Samkomulag þarf að nást i uppstillingarnefnd og stefnan hlýtur að verfta sú sama og verið hefur að formenn sem flestra aðildarfélaga eigi sæti i sambandsstjórn og að fulltrúar félaganna eða landssvæða fái sjálfir að ráöa sinum fulltrúum i stjórn sambandsins. Kristján Jónsson. erlendar bækur Secrets of the lce Age. The World of the Cave Artists. Evan Hadingham. Heinemann 1980. Evan Hadingham stundaði nám viö Cambridgeháskólánn og hefur m.a. skrifaö kunna bók: Circles and Standing Stones ásamt fleiri bókum. í þessari bók fjallar hann um hellamálverkin sem finnast t.d. i Frakklandi og á Spáni og ristur á klappir og steina sem finnast á sömu slóöum og viöar um álfuna. Þessar myndir eru þannig gerðar, aö þær hafa lengi vakið furöu og forvitni fræöi- manna og listfræðinga og þær eru vottur um samfélög og menningu forsögulegra tima. Iíversvegna leituðu menn þess- ara forsögualda langt inn I hella og dróu þar upp myndir á veggi? Þetta var fólk sem liföi á Isöld og þá hlýtur aft vakna sú spurning, hvernig það fór aö þvi aö skrimta þúsundir áratuga við þær óbliöu aðstæöur, sem það bjó við. Höfundurinn leitast við að svara þessum spurningum. Rann- sóknarsviö höfundar er vitt, spannar gróft áætlað 70 þúsund til 10 þúsund árin fyrir Krists burö. Þetta timabil tók viö af ööru, sem spannaði enn lengri tima. A þessu siöara timabili virðist sem mann- kynið hafi tekið talsveröum breytingum miðað við fyrra kyrr- stööutimabil. Þessar breytingar eru efni rits Hadinghams og meðal þeirra .er sú, sem virðist aðgreina manninn frá mann- skepnunni. Hadingham fjallar fyrst um Neandertalsmanninn, sem hefur löngum verið lýst sem hálfgerðu manndýri, sem höf- undur telur ómaklegt og mjög villandi. Arftakar Neandertals- mannsins eru þeir, sem gera hellamálverkin. Höfundurinn ræöir lifnaftarhætti isaldarfólks- ins, veiðiferðir þess i fámennum hópum nokkurra fjölskyldna svo hundruöum mila skipti, eftir hreindýrahjörðunum. Hann lýsir tækni þeirra við gerð hellamynd- anna og þvi samfélagsformi sem það þróaði meö sér, sem virðist hafa verið mun friösamlegra og betur sett varðandi matvælaöflun en menn hafa hingaö til álitið. Nútima fornleifafræði býr yfir meiri tækni til rannsókna en fyrr- um og þvi geta menn nú aflaö sér upplýsinga um t.d. mataræöi is- aldarmanna, sem hefur verið talsvert fjölbreyttara en hingað til hefur verið álitið. Rit Hadinghams er fróölegt og vlkkar hugmyndir manna um for- sögutimabilin, en skoðanir hans byggjast á hans eigin rannsókn- um og athugunum ásamt auknu magni staöreynda, sem fjöl- margir aðilar hafa sannreynt.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.