Þjóðviljinn - 26.11.1980, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. nóvember 1980.
Ásmundur og Karl sigruðu
Ásmundur Pálsson og
Karl Sigurhjartarson
urðu Reykjavíkurmeist-
arar í tvímenning 1980.
Þeir sigruðu með geysi-
legum yfirburðum í
mótinu, sem lauk á
sunnudagsnótt.
Þeir tóku þegar forystuna i
byrjun mótsins og aðeins i einni
eða tveimur umferðum gáfu
þeir hana eftir. Gangur mótsins
var þessi:
Er 8 umferðum var lokið:
Asmundur — Karl 130
Guðmundur — Sævar 71
Steinberg — Tryggvi 65
Sturla — Sigurður 61
Er 12 umferðum var lokið:
Guðmundur — Sævar 124
Asmundur —Karl 121
Guðlaugur — örn 85
Guðmundur Páll — Sverrir 81
Er 18 umferðum (2/3) var
lokið:
Ásmundur — Karl 188
Guömundur — Sævar 135
Guðm.Páll —Sverrir 127
Guðlaugur — Orn 97
Jón — Simon 91
Er 20 umferðum var lokið:
Ásmundur — Karl 246
Jón — Simon 124
Guðmundur — Sævar 103
Guðm. Páll — Sverrir 91
Þarna var nokkuð sýnt, að tit-
illinn var þeirra. En litum á
framhaldið, eftir 25 umferðir:
Asmundur —Karl 300
Guðmundur —Sævar 168
Guðm. Páll — Sverir 125
Jón — Simon 120
Og úr'slit mótsins eftir 27
umferðir urðu:
1. Asmundur Pálsson —
Karl Sigurhj. 1739 (335)
2. Guðm. Hermannss. —
Sævar Þorbjörnss. 1609 (205)
3. Jón Asbjörnss. —
Simon Sinonars. 1563 (159)
4. Guðm. P. Arnarson —
Sverrir Arm. 1561 (157)
5. Jón Baldursson —
Valur Sigurðss. 1472 ( 68)
6. Páll Valdimarss. —
Eirikur Jónss. 1468 ( 64)
7. Sturla Geirsson —
Sigurður Vilhjálmss.1462 (58)
8. Björn Eystemss. —
ÞorgeirP. Eyj. 1452 ( 48)
9. Hjalti Eliasson —
Þórir Sigurðsson 1444 ( 40)
Asmundur Pálsson og Karl Sigurhjartarson. Nýbakaðir Reykja-
vikurmeistarar I Bridge.
Umsjón:
Ólafur
Lárusson
10. Hannes R. Jónsson —
Lárus Herm. 1442 ( 38)
11. Guðlaugur R. Jóh. —
örn Arnþórss. 1442 ( 38)
Óhætt er að segja að yfir-
burðir Ásmundar og Karls voru
geysilegir, enda báðir tveir
gamalreyndir i spilinu. Þetta er
fyrsta árið sem þeir spila
saman og árangurinn vekur
ýmsar spurningar, hvort ekki sé
timabært fyrir „toppinn” að
reyna fyrir sér með nýjum
makkerum. Fyrsta árið gæti
alltént orðið gott...
Til hamingju með sigurinn,
Asmundur og Karl.
Góöur keppnisstjóri var
Agnar Jörgensson, en um út-
reikning sá hin gamla kempa,
Vilhjálmur Sigurðsson.
Ráöstefna vinstri andstöðu í verkalýðshreyfingunni:
Óheíllaþróun sem
snúa verdur viö
Jóhanna
Egilsdóttir
segir frá
Setberg hefur sent frá sér
bókina „99 ár” eftir Gylfa Grön-
dal. Hér segir Jóhanna Egils-
dóttir ævisögu sina, sem
spannar nærri heiia öld.
Þessi óvenjulega bók er hvort
tveggja i senn: persónusaga
vinnumanns og vinnukonu, sem
komu fótgangandi til Reykja-
vikur árið 1903 og byrjuðu að búa
með tvær hendur tómar, og sagan
af fyrstu baráttuárum verkalýðs-
ins, þegar fátæk alþýða reis upp
og krafðist bættra lifskjara.
1 bókinni er jafnframt lýst
mörgum þjóðkunnum mönnum
og konum: Jóni Baldvinssyni,
Ólafi Friðrikssyni, Haraldi
Guðmundssyni, Ólaíi Thors,
Héðni Valdimarssyni, Brieti
Bjarnhéðinsdóttur, Jóninu
Jónatansdóttur, Jóni Ólafssyni
bankastjóra, Jóni Axel Péturs-
syni, Vilhjálmi S. Vilhjálmssyni
og fleirum.
Jóhanna Egilsdóttir er ennþá
kvik I hreyfingum og hnyttin I til-
svörum, enda þótt hún hafi lifað
nærri heila öld. Jóhanna Egils-
dóttir varð 99 ára i gær.
Bókin „99 ár” er 185 blaðsiður
auk fjölda mynda.
Helgina 22.—23. nóv. var haldin
ráðstefna vinstri andstöðunnar I
verkalýðshrey fingunni. Þar
mætti til skrafs og ráðagerða
margt áhugafólk um verkalýðs-
jnál. A ráðstefnunni voru rædd
starfsemi og stefna verkalýðs-
hreyfingarinnar, málefni
ASÍ-þings og framhalds starfsins.
ihópnum, sem kaus að nefna sig
STÉTTABARATTUHÖPINN, var
kosin 9 manna hefnd til að hefja
útgáfu fréttabréfs og undirbúa
aðra ráðstefnu um svipað leyti og
kjaramálaráðstefna ASl verður I
vor.
Á ráðstefnunni var gerö eftir-
farandi samþykkt.
Yfirlýsing frá ráðstefnu
Stéttabaráttuhópsins
Verkalýðshreyíingin hefur
verið á undanhaldi s.l. 3 ár. Hvað
eftir annað hala hagsmunir
verkafólks lotið i lægra haldi fyrir
sameiginlegum aðgeröum rikis-
valds og atvinnurekenda.
Kaupmætti launa hefur hrakaö.
Enn sárara veröur þetta undan-
hald þegar haft er i huga hversu
langt er i það að dagvinnutekjur
nægi til framfærslu.
Si'ðustu samningar gerðu vart
meira en að ná upp kjara-
skerðingunni áriö á undan. En
verkalýðshreyfingin situr áfram
uppi með Ólafslögin og þau nægja
til þess að kjarabætur þessara
samninga verða uppétnar á einu
ári. En það er hætta á að þetta
gerist ennþá fyrr. Undanhald án
baráttu leiðir einungis til aukins
sjálftrausts og nýrrar sóknar at-
vinnurekenda og rikisvalds á
hendur verkafólki.
Orsaka undanhaldsins er fyrst
og fremst að leita innan verka-
lýðshreyfingarinnar sjálfrar, til
þeirrar stefnu, að samábyrgð
með auðvaldinu er sett i stað
baráttu sem eingöngu grund-
vallast á hagsmunum verka-
fólksins sjálfs.
Þessi stefna og undanhaldið
sem hlýtur að koma i kjölíarið
hefur skapað vantrú verkafólks á
möguleikum verkalýðssamtak-
anna og dvinandi áhuga á starfi i
þeim.
Þessari óheillaþróun verður að
snúa við. Til þss verður að vinna
nýrri stefnu íylgi innan
hreyfingarinnar. Meginatriði
hennar eru:
1. Að verkalýðshreyfingin hætti
að taka tillit til hagsmuna at-
vinnurekenda, en móti stefnu
sina alfarið út frá hagsmunum
alþýðuheimilanna og styrk
eigin samtakamáttar.
2. Að starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar verði óháð
rikisvaldinu.
3. Að virku lýöræði verði komið á
i hreyfingunni sem feli i sér
stöðuga þátttöku verkafólks i
mótun baráttunnar og skapaðir
möguleikar til þess að verka-
fólk geti haft stöðugt eftirlit
með gerðum forystu sinnar.
En það er ekki nóg aö segja
þetta. Þeir sem vilja nýsköpun
hreyfingarinnar i þessa átt þurfa
að taka höndum saman og skipu-
leggja sig til sameiginlegs átaks.
Ekki bara með yíirlýsingum og
ályktunum heldur með sam-
ræmdu starfi i félögunum og á
vinnustöðum.
Þátttakendur á ráðsteínunni
setja sér þaðmarkmið á næstunni
að vinna að tengslum og sam-
starfi meðal þeirra sem þessa
stefnu hafa.
Það eru llkur á þvi að atvinnu-
rekendur og rikisvald stefni að
nýjum árásum á kjör verkafólks
á næstu mánuðum. Þetta kallar á
andstöðuöflin að hefjast þegar
handa að skipuleggja sig.
Þátttakendur á ráðstefnunni
haja opið hús kl. 20:30 mánu-
dags-, þriðjudags- og miðviku-
dagskvöld n.k. að Hallveigar-
stöðum á horni Túngötu og
Garðastrætis, meðan þing ASI
stendur yfir. Þar veröur rætt um
þau mál sem á dagskrá þingsins
eru og lagt á ráðin.
Við tiJkynnum
aðsetursskipti
og nýtt símanúmcr: 8 59 55
OH
Mcö stórbættri aðstöðu gctum við boðið
stórbættabjónustu,því cnn höfum við
harðsnúið lið,scm brcgður skjótt við!
Nú Parf enginn að bíða lengi
eftir viðgeröamanninum.
t>ú hrinair og hann er kominn
ska
innan skamms.
Einnig önnumst vió nýlagnir
og gerum tilboð. ef óskao er.
%•* RAFAFL
Iramleiðslusamvinnu-
lélag iönaöarmanna
SMIÐSHÖFÐA 6 - SlMl: 8 59 55
Auglýsingar í
símaskrá 1981
Eyðublöð fyrir auglýsingapöntun ásamt
upplýsingum um verð og fyrirkomulag
auglýsinga i simaskrá 1981, hafa verið
send flestum fyrirtækjum landsins. Aug-
lýsendur i siðustu simaskrá, sem óska að
hafa auglýsingar sinar óbreyttar i sima-
skrá 1981, þurfa að leggja inn nýja pöntun,
annars verða auglýsingarnar ekki endur-
teknar. Frestur er til að panta auglýs-
ingar til 1. desember n.k.
Nánari upplýsingar i sima 29140 og á Póst-
og simstöðvunum.
SÍMASKRA—AUGLÝSINGAR,
sími 29140,
pósthólf 311,
121 Reykjavík.