Þjóðviljinn - 29.11.1980, Page 8

Þjóðviljinn - 29.11.1980, Page 8
8 SIÐA — ÞJOÐVILJINN Helgin 29. — 30. nóvember 1980. STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI Einar Karl Haraldsson skrifar Sögulegt ASl-þing Sögulegu Alþýðusam- bandsþingi er nú lokið. Víst er að átökin sem þar urðu og niðurstaða þeirra munu draga langan slóða, en að svo stöddu er ráðleqast að spara sér að draga víðtæk- ar ályktanir um framvind- una í samræmi við þann vísdóm sem segir að um framtíðina sé sérstaklega erfitt að spá. Enda þótt merk dagskrármál hafi veriö til umfjöllunar á ASf- þingi hafa þau aö verulegu leyti falliö f skugga pólitiskra átaka. Ein merkilegasta niöurstaöa þingsins var sú, aö kenningin um „lýðræöisflokkana” andspænis Alþýöubandalaginu varö sér enn einu sinni rækilega til skammar, og reyndist haldlaus meö öllu þegar á reyndi. Alltaf ööur hvoru skýtur þvi upp f pólitfskum málflutningi aö hér á landi séu þrir „lýöræöis- flokkar” og er þá Alþýöubanda- laginu um leið visaö á óæöri bekk i islenskum stjórnmálum meö viðeigandi frösum. Undarlega oft bregöur svo viö að öxullinn sem þessi skilgreining hvilir á reynist vera afstaðan til hernaðarbanda- lagsins NATO! Þetta er ömur- iegur vitnisburöur um lýöræöis- skilning ýmissa islenskra stjórn- málamanna, þvi ekkert er eins ólýðræðislegt og hernaöarbanda- lag, þar sem stórveldi stjórnar meö tilskipunum, og leiötogar aöildarrikjanna neyöast til þess aö leyna þjóðir sfnar hinu sanna um vigbúnað, hernaöarstefnu og hlutverk i stórveldaátökum. Kenningunni um lýðræðisflokka er þó haldið úti á fleiri miöum og á henni hefur veriö klifað viö stjórnarmyndarnir i daglegum áróöri krata og ihalds, og nú sfðast i aöfara ASl-þings. Kenningin um lýðræðis- flokkana hefur allsstaöar reynst marklaus þvi Alþýöubandalagiö er, hvort sem mönnum innan flokks sem utan, líkar betur eöa verr orðinn harla miölægur stjórnmálaflokkur. 1 stað sam- stöðu um aö vinna gegn Alþýöu- bandalaginu, sem predikuö er i forystugreinum Morgunblaösins, Alþýöublaðsins og Visis, er uppi samkeppni um aö vinna meö flokki sósialista á tslandi þegar aö raunveruleikanum kemur. Óheilindi krata- forystunnar Margir Alþýöubandalagsmenn bera ugg i brjósti vegna þeirra griörofa sem uröu milli Alþýöu- flokksmanna og Alþýðubanda- lagsmanna á 34. Alþýðusam- bandsþinginu, en flestir þeirra telja að þau hafi verið óhjákvæmileg og raunar hafi forystumenn Alþýðuflokksins knúið þau fram meö tilraunum sinum til þess aö einangra Alþýöubandalagsmenn i verka- lýöshreyfingunni. Fyrir Alþýöusambandsþing og fram i miöja þingviku gerðu flokksbroddar Alþýöuflokksins og Pétur Sigurösson alþingismaöur Sjálfstæöisflokksins marg- ítrekaðar tilraunir til þess aö fylkja „Iýöræöisöflunum” gegn Alþýöubandalaginu og einangra þaö innan ASl. Margir leikir voru leiknir i þvi tafli og er ástæöu- laust aö endurtaka þaö hér en minna má á Sjómannasambands- þing þar sem Alþýöubandalags- menn voru hreinsaðir úr trúnaöarstööum. Þaö sem endanlega sannfærði þorra þeirra sem taldir eru til Sjálfstæöisflokksins innan verka- lýöshreyfingar um óheilindi for- ystu Alþýðuflokksins var ein- leikur Karls Steinars Guöna- sonar, er hann snéri skyndilega við blaðinu og bauö Alþýöubanda- laginu upp á eindæmi óbreytt ástand i miðstjórn (6 og 4). Þá haföi farið fram innbyröis próf- kjör I kratasveitinni og ljóst oröið, að Karli Steinari var ekki ætlaö miöstjórnarsæti miöaö viö þrjá Alþýöuflokksmenn i uppstill- ingu. A ASl-þinginu sjálfu þótti fram- koma flokksbrodda Alþýðu- flokksins meö miklum eindæmum og olli hún ekki sist óánægju Aróðursmenn kenningarinnar un „samstöðu lýðrœðis- flokkanna” gegn Alþýðubanda- laginu urðu sér til skammar meðal almennra félaga, sem til- heyra kratasveitinni. Dæmi- gerðust var framkoma Alþýöu- flokksmanna i kjaramálanefnd- inni þar sem þeir settu á sviö upp- hlaup, geröu fyrirvara um ýmsa þætti, og létu brydda á sjónar- miöum, sem ekki áttu neinn hljómgrunn meðal annarra nefndarmanna, hvar i flokki sem þeir stóöu. Trúnaðarbrestur Fyrst og siöast er þaö aivar- legur trúnaöarbrestur er veldur afhroöi Alþýðuflokksins á nýliönu Alþýöusambandsþingi. „Þaö sem veldur slæmri stööu Alþýöu- flokksins á þessu þingi er einfald- lega það, að flokksmenn hans i verkalýöshreyfingunni láta um of stjórna sér af stjórnmála- mönnum hans á þingi”, sagöi einn hinna nýkjörnu miöstjórnar- manna aö aflokinni kosningu i fyrrinótt. Þetta eru orö aö sönnu, þvi enda þótt kvartaö sé yfir þvi aö verkalýðsmálin séu flokkspóli- tisk, þá er ekki um neitt einfalt samhengi aö ræöa. Verkalýösfor- ingjar veröa aö kappkosta aö hafa sem sjálfstæöasta stööu gagnvart þeim flokkum, sem þeir aöhyllast, eigi þeir i senn aö geta beitt áhrifum sinum á pólitiskum vettvangi og gætt stööu sinnar gagnvart umbjóöendum sinum i verkalýösfélögum og sam- böndum. t Alþýöuflokknum hefur sú þróun veriö áberandi aö tveir þingmenn, þeir Karvei Pálmason og Karl Steinar Guðnason, hafa stýrt kratasveitinni i verkalýös- hreyfingunni með haröri hendi, auk þess sem þingmenn flokksins hafa verið með afskiptasemi i tima og ótima. Þrir þingmenn Alþýöuflokksins voru áberandi á þinginu, þaö er þau Karvel Pálmason, Karl Steinar Guöna- son og Jóhanna SigurÖardóttir. Heföu þau vel mátt minnast hvernig fór fyrir þeim Guömundi H. Garöarssyni og Pétri Sigurðs- syni, þáverandi þingmönnum, á siöasta Alþýöusambandsþingi. Og enn haföi Pétur ekki erindi sem erfiöi á ASt-þing i þing- mannsfötum Sjálfstæöismanna nema ef væri það aö leiöá j ljós' að Geirs-armurinn nýtur sáralit- ils fylgis i verkalýössamtökun- um. Persónulegt traust Verkalýöshreyfingin tortryggir þing og rikisstjórn og hefur fulla ástæöu til þess i ljósi reynslunnar. Um leiö hefur hún hug á þvi aö treysta itök sin á löggjafarsam- komunni og i landsstjórninni til þess aö festa i sessi þann árangur sem hún nær meö samtakamætti sinum. t þessu er fólgin þver- stæöa og er ekki öllum hent aö brúa bilið. Karl Steinar Guðnason geldur þess tam.innan sins flokks og I hreyfingunni sem heild, aö hann talaöi tungum tveim er Ólafslög voru á döfinni meö visi- töluskeröingu i þingflokki Al- þýöuflokksins, en á móti I miö- stjórn ASt, og stóö aö óvinsælu brotthlaupi Alþýðuflokksins úr vinstri stjórninni. Enda þótt vafalaust sé aö mik- illi prentsvertu veröi eytt I aö býsnast yfir þvi aö Alþýöubanda- lagsmaður skuli nú verma for- setastólinn i ASÍ og yfir samstööu „sjórnarliöa” i æðstu stofnun verkalýðssamtakanna, er ekki hægt aö lita fram hjá þeirri staö- reynd aö persónulegt traust réöi miklu I úrslitum kosninga á ASt þingi. Hin glæsilega kosning for- setanna tveggja verður ekki skýrö meö ööru móti, en að þeir njóti trausts úr öllum áttum, og þaö, ásamt meö sambands sjónarmiöum úr Landssambandi verslunarmanna og VR, átti sinn rika þátt i þvi aö jafnvel nokkrir stjórnarandstæöingar úr röðum Sjálfsæöismanna stóðu aö for- setakjörinu. Jarðsamband og raunsæi Engum blööum er um þaö aö fletta, aö Alþýöubandalagiö stendur sterkt aö loknu ASl þingi, enda þótt þaö hafi misst einn mann i miðstjórn frá siöasta kjör- timabili. Miðaö viö samsetningu miöstjórnar er ljóst að það á kosta völ i meirihlutasamstarfi. Mikið er skrifaö um Al- þýðubandalagiö, og kemst raunar annaö varla aö hjá andstæöingum þess, en fátt er þar sagt af kunn- áttu um innra starf flokksins. Mest ber á þeirri villukenningu aö um sé að ræöa haröa og skipu- lagöa miöstýringu innan hans. Vilji menn finna lykilinn að starfi Alþýöubandalagsins aö efnahags- og kjaramálum opnast dyrnar aö hinu gagnstæöa. Hin pólitiska forysta Alþýöu- bandalagsins vinnur i nánu sam- starfi viö forystumenn flokksins innan verkalýöshreyfingarinnar. Um vixláhrif hlýtur ætiö aö vera aö ræöa, en ósjaldan þegar á döf- inni eru efnahags- og kjaramál eru þaö verkalýösforingjarnir sem ráöa miklu um rammann, sem hin pólitiska forysta veröur að halda sig innan. Þetta er „jarðsamband” Alþýðubanda- lagsins og ótviræður styrkur, en um leiö „Akkillesarhæll” að mati sumra kenningamanna og fræöinga i flokknum. Samt sem áöur er þaö staðreynd aö þaö sem Alþýöubandalagiö kann að skorta I „teoretisku” hreinlifi bætir þaö upp meö pólitisku raunsæi i hinni daglegu baráttu. Þaö er lykillinn að stööu þess I dag, hversu lengi sem hún endist og formúlan dugir flokknum. Alvarlegt jafnréttismál Þann skugga ber á miö- stjórnarkjöriö i ASI aö þar f jölgar ekki konum heldur fækkar um eina. Þaö er i engu samræmi viö kynjaskiptingu innan ASI. Lands- sambandasjónarmið ráða miklu um þessa niðurstöðu en eins og margoft hefur sýnt sig hafa þau hvergi nærri verið allsráöandi, og þvi má vænta þess aö litiö veröi á skipan miöstjórnarinnar sem al- varlegt jafnréttismál. Guöriöur Eliasdóttir vék fyrir Karvel Pálmasyni samkvæmt niðurstöðu i prófkjöri krata, og Bjarnfriður Leósdóttir var ekki I þeirri upp- stillingu sem Alþýðubandamenn stóðu að, og náöi ekki kjöri. Al- þýðubandalagsmenn tefldu fram formönnum landssambanda en vegna verulegrar óánægju með þá stillingu mála bauðst Guömundur J. Guömundsson til þess að rýma sæti sitt á listanum. tJrslitum réöi aö áhrifamenn i Dagsbrún og VMSl voru fast- heldnir á það sjónarmið aö for- manni VMSl skyldi teflt fram. Fullvist er aö þessi niöurstaða veldur verulegri óánægju innan Alþýðubandalagsins, ekki sist meöal kvenna, og gæti ýtt undir innanfiokksdeilur um jafnrétti kynjanna. Þess ber aö geta hér aö af hálfu Alþýöubandalagsmanna i kjörnefnd var Aðalheiði Bjarn- freðsdóttur stillt upp til miö- stjórnar ásamt öskari Vigfús- syni, og geröu ekki aðrir uppá- stungu um þau, sem teljast til óháöra, er miöstjórn er skipt upp eftir flokkamunstrinu. Ráðvilla krata Sé aðal Alþýðubandalagsins pólitiskt raunsæi veröur ekki sama sagt um Alþýöuflokkinn, sem glutraöi niöur stööu sinni i forystu ASt vegna mistaka og óáreiöanleika flokksbrodda sinna. Aðal þingkrata viröist vera að hafa til aö bera óyggjandi vissu um þróun mála i ókominni tiö, en vita ekki sitt rjúkandi ráö hvunndags og frá degi til dags. Þannig setur Alþýðuflokkurinn nú traust sitt á þaö að Gunnar Thoroddsen muni rjúfa núverandi stjórn skömmu fyrir landsþing Sjálfstæöisflokksins I vor til þess aö geta staöiö þar fyrir samein- ingu flokksins. Þetta er þaö eina sem vekur þeim kratabroddum bjartsýni um betri tiö á næstunni. Dæmið gengur upp Hiö sama má raunar segja um miðstjórn ASl, og er það mála sannast aö varla veröur þaöan aö vænta tiöinda af flokkspólitlskum átökum fyrr en Sjálfstæðismenn hafa fylkt sinu liö saman. Þangaö til eru allar likur á þvi aö dæmið gangi upp hjá þeim Ásmundi Stefánssyni og Birni Þórhalls- syni, og þeim takist sú ætlun sin að sameina meginstofninn úr helstu hópum innan ASI undir merki sitt. Og þá ekki siöur marga Alþýðuflokksmenn úr verkalýöshreyfingunni heldur en aðra, þvi þeir gerast nú æriö þreyttir á forystumönnum sinum. —ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.