Þjóðviljinn - 04.12.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.12.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 4. desember 1980 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3 Eftirlaunin Midast við grunnlaun Hlutifélagsmálapakkans i framkvœmd Tsjækofski Tsjækofskí á dagskrá í kvöld Tsjækofskl ræður rikjum hjá Sinfóniuhljómsveitinni á tónleik- um hennar i kvöld, þar sem flutt vcrða einhver vinsælustu verk tónskáldsins, Pianókonsertinn nr. 1, Hnotubrjóturinn og 1812 for- leikur. Tveir frægir rússneskir tón- listarmenn verða með hljóm- sveitinni, hljómsveitarstjórinn WoldemarNelson og pianóleikar- inn Shura Cherkassky Þá má telja til tiðinda, að Lúðrasveitin Svanur kemur til liðs við hljóm- sveitina i flutningi forleiksins 1812, en þar gerir Tsjækofski' ráð fyrir lúðrasveit. Gert er ráð fyrir að lifeyris- þegar innan ASÍ, FFSl og starfs- menn samvinnufélaga öðlist rétt til eftirlauna sem miðist við grundvallarlaun eins og þau eru samkvæmt kauptaxta og að hækkun lifeyris vegna launa- hækkana samkvæmt nýgerðum kjarasamningum, svo og verð- bótahækkanir launa 1. desember s.l. komi til greiðslu mánuði fyrr en ella. Svavar Gestsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra mælti i gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um eftirlaun til aldraðra. Frumvarp þetta var samið i framhaldi af þeirri yfir- lýsingu sem rikisstjórnin gaf út i lok október s.l. við gerð kjara- samninga ASl, VSÍ og Vinnu- málasambands samvinnufélaga, og er þetta frumvarp þvf hluti af félagsmálapakkanum sem rikis- stjórnin lagði þá fram. Krumvarpiðgerirráð fyrir að á árunum 1980—1982 skuli lífeyris- þegum greidd sérstök uppbót sem miðist við grundvallarlaun eins og þau eru samkvæmt kauptaxta L jan., 1. april, 1. júlf, 1. okt., og 1. des., 1980 og eftir það 1. mars, 1. júni, 1. sept., og 1. des. árin 1981 og 1982 i stað 5 ára meðaltals. Útgjöldin vegna uppbótar þess- arar eru af þessum sökum mun hærri á árinu 1980 en þau hefðu ella orðið, en útgjaldaaukinn verður að langmestu leyti borinn af li'feyrissjóðum samningsaðila. Um siðferðilega ábyrgð vísindamanna 1 dag, fimmtudag kl. 17.15 verður haldinn i Norræna húsinu fyrirlestur um eitt þeirra efna sem efst eru á baugi hjá visinda- mönnum: Um siðfræðilegar af- leiðingar tilrauna á sviði liffræði. Þaðer Dagfinn Föllesdalheim- spekiprófessor frá Osló sem fyrirlesturinn heldur. Hann er fluttur á ensku og er öllum opinn. Visindamenn eru sem kunnugt er farnir að fikta við erfðaefni líf- vera og hefur sú þróun vakið upp allmikinn ugg: ein afleiðing þess kviða er nýtt leikrit Valgarðs Egilssonar læknis, Dags hriðar spor, sem vakið hefur mikla athygli. Það cru vinnupallarnir við Fjöl- brautarskólann i Neskaupstað sein þarna liggja eftir fárviðriö i byrjun vikunnar og á stærri mvndinni sést hanga það litla sem eftir varð af þakinu á Víði- mýri l(>. Viðar um bæinn urðu miklar skemmdir einsog fram kom i frétt Þjóðviljans. — Ljósm.-Erna. Yfirlýsing frá Patrick Gervasoni Vegna þeirrar undarlegu stöðu sem málefni min hérlendis eru nú komin í vil ég taka fram eftirfar- andi: Ég hef beðið um hæli sem póli- tiskur flóttamaður hér á tslandi. Einfalt ætti að vera að svara þeirri spurningu minni neitandi eða játandi. Samningar þeir sem nú fara fram bakvið tjöldin um málefni min eru timasóun og annað ekki á meðan þeir ganga útá það eitt að pólitlskir aðilar komi sér saman um það með hverjum hætti ég verði fluttur hreppaflutningum til Dan- merkur. Mér er satt að segja ekki ljóst hvaðan sú hugmynd er komin, sjálfur hef ég aldrei beðið um og mun aldrei biðja um að verða fluttur þangað, enda hef ég i höndum tvö bréf frá þarlendum yfirvöldum með tilkynningu um að ég sé þar „óæskilegur”. Neiti islensk yfirvöld mér um hæli og vernd þá sem i þvi felst vil ég ekki vera fluttur einsog flækings- hundur milli landa heldur sendur beint til Frakklands þarsem ég mæti dómurum minum einsog manneskja, augliti til auglitis með stuðningi fólks sem þorir að taka afstöðu i málinu. Það er betra hlutskipti en vernd þeirra sem ekki geta tekið afstöð- una með réttindum minum en skortir hugrekki til að standa við þá afstöðu sina. Allt tal hérlendra yfirvalda um að vernda migutan sinnar eigin lögsagnar er fyrir- sláttur einn og blekkingar. Geti þeir ekki veitt mér skjól á sinu eigin lögsagnarsvæði er naumast von til að vernd þeirra dugi fremur annarstaðar. Vilji dóms- máiaráðuneytið standa við þá ákvörðun sina að visa mér Ur landi bið ég þvi um að vera sendur beint til Frakklands. Um leið og ég undirstrika þennan vilja minn vil ég biðja fyrir bestu kveðjur til krakkanna sem verið hafa á vakt i ráðuneyt- inu. Þau eru raunverulegur stuðningur. Gleðileg jól. Gunnar Gunnarsson kcmur I heimsókn og lesúr nýrri bók sinni. Alþýðubandalagið í Hafnarfirði Alþýðubandalagið i Hafnar- firði gengst i kvöld fyrir spila- kvöldi i Gúltó. Spiluð verður félagsvist og hefst hún kl. 20. Gunnar Gunnarsson rit- höfundur kemur og les úr nýrri bók sinni „Margeir og spaugarinn”. Kaffiveitingar verða i Gúttó ikvöld og eru allir velkomnir. — ekh HERERBOKIN! Atján konur, ferill þeirra og framtak í nútímahlutverkum SKUGGSJÁ BÓKABÚÐ OL/VERS STEINS SE Hér er bók, sem enginn unnandi fagurs skáldskapar má láta framhjá sér fara ólesna. Hér fer saman skilríkt og fagurt mál, ótvíræð frásagnarlist, lífsskilningur og samúð með því fólki, sem frá er sagt. Hér tekst galdur góðrar sagnalistar. — Áhugaverðari höfundur en Fríða Á. Sigurðardóttir hefur ekki sent frá sér frumverk um langt árabil. Hin síðari ár hefur ört stækkandi hópur kvenna gengið lítt troðnar leiðir menntunar og sérhæfðra starfa, andlegra sem verklegra. Hér segja 18 konur sögu sína og sanna góðan árangur athafna, sem án efa hefur á stundum reynt á þolið og kostað erfiði. Afrek þeirra mun verða öðrum fyrirmynd og hvati á braut mennta og starfsvals. — Þetta er tímabær bók í þjóðfélagi, sem ört breytist, verður æ sérhæfðara og flóknara. Gísli Kristjánsson ritstýrði og bjó til prentunar. Fríða Á. Sigurðardóttir: ÞETTA ER EKKERT ALVARLEGT

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.