Þjóðviljinn - 04.12.1980, Side 11
Fimmtudagur 4. desembfer 1980 ÞJÓÐVIL3INN — SIÐA 11
íþróttír
Vikingar sigruðu ungversku meistarana Tatabanya i Höllinni i gærkvöldi, 21;20
SVONA EIGA SÝSLUMENN AÐ
VERA
„Gjörsamlega
útkeyrðir”,
sagði Páll
Björgvinsson
fyrirliði
Víkings eftir
leikinn
„Menn eru að tala um það að
boltinn hér sé lélegur, en ég segi
ykkur það strákar, ef sá handbolti
sem við lékum i kvöld er talinn
íélegur þá veit ég ekki hvað hand-
bolti er,” sagði Páli Vikingsfyrir-
liði Björgvinsson, við sina menn
eftir að þeir höfðu lagt að velli hið
fræga lið 'I'atabanya frá Ung-
verjalandi með 21 marki gegn 20.
Leikurinn var hreint út sagt stór-
kostlegur og bauð uppá allt sem
góðan handknattleik má prýða,
hraða, spennu, baráttugleði, yfir-
vegun o.s.frv. Það má fullyrða að
islenskt félagslið hefur ekki oft
sýnt önnur eins tilþrif eins og Vik-
ingur gerði i gærkvöldi.
Höllin beinlinis „sprakk” þegar
á fyrstu min. ieiksins þegar
Kristján varði skot frá Katona. I
kjölfarið fylgdu siðan 2 Vikings-
mörk, 2-0. Ungverjarnir virkuöu
þungir og ragir. Þeir minnkuðu
þó muninn fljótlega niður i eitt
mark, 3-2. Þá snéru Páll og Arni
laglega á Ungverjana i tvigang og
breyttu stöðunni I 5-2. Áhorfendur
voru vel með á nótunum og þoku-
lúðrablástur og hvatningarhróp
fylltu Höllina. Ungverjar minnk-
uðu muninn i 5-4, en aftur skoraði
Páll, 6-4. Nú var eins og Vik-
ingarnir væru að missa móðinn.
Ungverjar skoruðu 2 næstu mörk
og jöfnuðu, 6-6 og tóku forystuna,
6-8. Þorbergur og Arni sáu um að
koma Vikingsskútunni á réttan
kjöl, 8-8. Það sem eftir liföi hálf-
leiksins skoruðu liðin á vixl, 11-11
i leikhléi.
Sagt eftir
leikinn
„Þetta eru góð úrslit fyrir
islenskan handbolta. Við áttum
góðan leik gegn hinu sterka liði
Tatabanya og gátum unnið þá
með 6—7 mörkum, ef við heföum
skorað úr dauðafærum okkar,”
sagði þjálfari Vikings, Bogdan
Kowalzyk og bætti við: „Seinni
leikurinn veröur erfiður fyrir
Viking, en við eigum möguleika á
aö komastáfram”
Þjálfari Tatabanya, Antaioczy
Alfred, var ekki alveg jafn hress
og Bogdan og sagði: „Ég hafði
vonast eftir betri úrslitum, a.m.k.
jafntefli. Vikingsliðið kom mér
ekki ýkja mikiö á óvart, en þaö
var erfitt fyrir okkur aö leika fyr-
ir framan þessa æstu áhorfendur.
Heima vonast ég eftir eins góðum
leik og i kvöld.”
„Stórkostleg liðsheild skóp
sigur okkar i þessum leik, þetta
sýnir að staða okkar i 1. deildinni
er engin tilviljun,” sagði ólafur
Jónsson Vikingur og vildi koma á
framfæri þakklæti til áhorfenda
fyrir frábæran stuðning.
Þannig fór eitt af mörgum dauðafærum Vikinganna forgörðum. ólafur Jónsson hefur snúiö á hinn fræga Bartalos, en knötturinn fór I stöng.
Mynd:
- gel.
Þegar á fyrstu min. seinni hálf-
leiks þrumaði Þorbergur knettin-
um i mark Ungverja, 12-11. Vik-
ingar höfðu tök á að auka muninn,
en Steinar lét verja frá sér i
hraðaupphlaupi og Basti jafnaði
fyrir Tatabanya, 12-12. Þaö er i
rauninni óþarft að rekja gang
leiksins næstu mín. liðin skiptust
á að skora og jafnt var á öllum
tölum upp i 18-18. Barátta, hraöi
og kraftur leikmanna og óp áhorf-
enda settu mörk sin á leikinn um
miðbik seinni hálfleiks. Ahorf-
endurnir beinlinis ærðust af fögn-
uðu þegar Steinar kom Vikingum
2 mörkum yfir undir lokin, 20-18.
Hinn frábæri Kontra, minnkaði
muninn fyrir Tatabanya með
glæsilegu marki, 20-19. Þorbergur
reyndi skot, ótimabært, en
Ungverjar misstu knöttinn og
Páll skoraði 21. mark Vikings, 21-
19 og 5 min til leiksloka. Aftur
misstu Ungverjar knöttinn, en
það gerðu Vikingar einnig og
Kontra skoraöi fyrir Tatabanya,
21-20. Þegar tæpar 2 min. voru
eftir renndi Guðmundur sér innúr
horninu, en Bartalos varði skot
hans. Ungverjunum tókst ekki að
nýta sér þann tima sem eftir var
til marka og Vikingarnir stóöu
uppi i leikslok sem sigurvegarar,
veröskuldaðir.
Það er enginn vafi á þvi að
Tatabanya er geysisterkt lið. Það
leikur mjög stift „uppá mark”
eins og sagt er á handboltamáli,
þ.e. leikmenn biða eftir aö tæki-
færin gefist og skora siðan með
snöggum langskotum eða eftir
gegnumbrot. 1 liðinu eru nokkrir
frábærir einstaklingar og ber þar
hæst hornamennina, Basti (no. 4)
og Kontra (no. 11), en hann lék i
heimsliðinu fyrir skömmu. I
vörninni var hvergi veikan hlekk
að finna enda eru hér á ferðinni
atvinnumenn i iþróttinni.
Undirrituðum er það til efs að
Vikingsliöið hafi leikið betur en
það gerði i gærkvöldi. Vikingarn-
ir nýttu oft á tiöum illa upplögð
marktækifæri og með „eðlilegri”
nýtingu hefðu þeir sigrað með
4—6 marka mun. Hvað um það,
afrek þeirra er stórkostlegt.
Kristján, Arni, ólafur, Guðmund-
ur, Steinar, Þorbergur og Páll
eiga heiður skilið fyrir aö sýna
okkur og sanna hvers islenskir
handboltamenn eru megnugir
þegar á reynir. Til hamingju,
Vikingar!
Mörk Tatabanya skoruðu:
Gubányi (no 7) 7, Basti (no 4), 6,
Kontra (no 11) 6, Babos (no 13) 2
og Katona (no 5) 1.
Fyrir Viking skoruðu: Þor-
bergur 7, Páll 5/1, Arni 4/1,
Steinar 4 og Guðmundur 1.
Dómarar voru Rodil og Ohlson
og er þaö samdómaálit þeirra
sem i Höllinni voru i gærkvöldi aö
sjaldan hafi sést betri dómgæsla
hér á landi.
-IngH
Haukar sýndu stórgóöan leik
— þrátt fyrir þriggja marka tap 21:18
■
I
- Enn sigra V-
I Þjóðverjar
I" Vestur-Þjóðverjar sigruðu ■
Búlgari 3-1 I forkeppni HM I*
■ knattspyrnu I gærkvöldi.|
| Mörkin skoruöu fyrir þýska ■
■ Kaltz (2) og Rummenigge. í
Þá sigruðu Tékkar vini |
" okkar Tyrki 2-0 i Prag. ■
INehoda skoraði bæði mörk- |
in. Bæöi þessi lið eru meö ■
í íslandi i riðli.
Einn leikur var i 8 liða J
■ úrslitum enska deildabikars- ■
iins i gærkvöldi. Manchester I
■ City sigraði WBA, 2-1.
!■ ■ mm ■ wm ■ wm ■ mm ■ ■■ ■ nfl
„Ef við hefðum haldið fullri
einbeitni siðustu minúturnar i
fyrri hálfleik, þá hefðum við
unnið þetta lið. Við vorum búnir
að ákveða að hanga vel á
boitanum og spila yfirvegað, og
ég tel að okkur hafi tekist það að
mestu leyti”, sagöi Hauka-
maðurinn Arni Hermannsson
sem átti stórleik meö félagi sinu
á móti þýska meistaraliöinu
TuS Nettelstedt i evrópubikar-
keppninni i iþróttahúsinu í
Hafnarfirði i gærkvöldi.
Leikur liðanna var jafn fram-
an af og þrátt fyrir þriggja
marka tap 21—18 mega Haukar
vel við una. Fyrirfram höfðu
fæstir búist við að þeir næðu að
sýna jafn góðan leik og raunin
varð á i gærkvöldi, miöað við
frammistööu liðsins i 1. deild-
inni i vetur.
Það var hinn stórgóði linu-
maður Lárus Karl sem tók for-
ystu fyrir liö sitt með góðu
marki, og brátt fylgdu tvö á eft-
ir, einnig af linunni frá Karli á
meðan leikmenn Nettelstedt
náðu aðeins að gera eitt mark.
Stórgóö byrjun 3-1. En bestu
menn þýska liösins
Júgóslavarnir Waltke og Miljak
náðu brátt að jafna muninn i 3-2,
og eftir 10 minútna leik var jafnt
3-3. Haukamenn gáfu sig ekki og
leiddu leikinn 6-5, 8-7 og siöan 9-
8, en þegar 4 minútur voru til
hálfieiks náöu Nettelstedt i
fyrsta sinn forustunni 10-9 og
þrjú mörk fylgdu i kjölfarið.
Staöan I hálfleik 13-10 og ekki
von á glæsilegu framhaldi.
Leikmenn Nettelstedt virkuðu
1 fyrstu hálftaugatrekktir, töp-
uðu oft boltanum og þaö virtist
taka þá nokkurn tima að læra
inná leikmenn Haukaliðsins. í
siðari hálfleik mættu þeir öllu
ákveðnari til leiks og bættu
strax marki við og staöan 14-10.
Sigurður Sigurðsson kom
Haukamönnum aftur á strikiö
með góðu marki og um miðjan
hálfleikinn var munurinn aðeins
2 mörk 16-14. Aður hafði mikiö
gengiö á hjá Haukamönnum.
Létu verja hjá sér tvö vitaköst
og áttu tvö stangarskot. Gunnar
lokaði aftur á móti markinu hin-
um megin og þvi áttu Haukar
góðan möguleika á að jafna
leikinn. Þegar 5 min. voru til
leiksloka var staðan 18-17, og
stemmningin gifurleg i þétt-
skipuðu iþróttahúsinu. Miljak
langbesti leikmaður Nettelstedt
tók þá til sinna ráða og kom með
þrjú mörk i röö, meðan Hauka-
liðiö skoraöi aðeins einu sinni og
endanleg úrslit voru ráöin 21-18.
Þjóðverjarnir léku ekki eins
góðan handknattleik og menn
áttu von á. Bæði voru þeir oft
klaufar með boltann og gáfu
linumönnum Haukaliðsins oft
gott rými. Haukaliðið kom
vissulega á óvart, spilaði
friskan og ákveðinn handbolta
og ætluöu greinilega aö selja sig
dýrt. Með betri nýtingu i vita-
skotum og nákvæmari sending-
um hefði sigurinn getað orðið
þeirra.
Bestu menn Haukaliðsins
voru þeir Arni Hermannsson
sem barðist eins og ljón allan
leikinn og Gunnar Einarsson,
sem varði hátt i 20 skot i leikn-
um.
Hjá Nettelstedt bar mest á
Miljak og Waltke sem skoruðu
2/3 af mörkum leiksins.
-»g.
Ad leikslokum
„Eg er nokkuð ánægður með
þessi úrslit. Þetta er allt i
áttina hjá okkur”, sagði fyrir-
liði Hauka, Arni Sverrisson
eftir leikinn. „Viö vorum
óheppnir, ónýttum þrjú viti i
röö og tvö stangarskot. Ég átti
von á Þjóöverjunum sterkari.
Meö skynsamlegu spili þá
getur þetta lið okkar náö ansi
langt”
— lg
Mér fannst liðið spila vei á
köflum, en það vantaöi
baráttuna siðast i fyrri hálf-
leik. Miljak var agalega
lúmskur og snöggur, ög skaut
úr þröngustu færum á allra
erfiðustu staði” sagði Gunnar
Einarsson markvörður
Haukaliösins. _ |g
Það kom mér á óvart aö þeir
skyldu leika 6-0 i vörninni
sagði Axel Axelsson sem
þekkir vel til Nellelstedtsliös
ins. „En Haukarnir verða að
gæta að þvi að þeir mæta allt
öðru liöi á útivelli en þvi sem
þeir spiluðu við i kvöld” — lg