Þjóðviljinn - 05.12.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. desember 1980
^Hugsa sér að þjást )
svona rómantlskt
útaf vanköntum \
tækninnar!
En hvaða númer ætl..
/ Þetta þýðir ekkert
' Alltaf það sama.
Skakkt númer.
.. Skakkt... Iiless...
\ : Alltaf skakkt...
Halló er þetta skakkt
númer?
Veit ekki — við hvern
viltu tala?
/
'\yonlaust! Hjarta j
imitt segir að núm-'
erið sé'“skakkt! j
I vetur er leiklistin á dagskrá,
áhersla verður lögð á upplestur,
framsögnog leikræna tjáningu.
Námskeiðið verður einu sinni i
viku og hefst eftir áramót. Enn
er hægt að skrá sig hjá Sjálfs-
björgi
(juðmundur sagði að til-
gangurinn með námskeiðinu
fyrir utan ánægjuna væri að efla
sjálfsöryggið, menn yrðu frjáls-
ari og fengju æfingu i að koma
fram og tala frammi fyrir öðr-
um.
— ká
sem við kaupum frá Dyngju á
Egilsstöðum eða Pölarprjóni á
Blönduósi.er 50% af kostnaði og
við reynum að gjörnýta hana
með að vinna barnafatnað og
fleira úr afgöngunum. Þetta
gengur svosem bærilega, en
hvort sem þið trúið þvi eða ekki
var fyrirtækið nú ekki endilega
stofnað til að græða einnhver
ósköp á þvi, heldur fyrst og
fremst til að auka fjölbreytni i
atvinnu. ' __vh
HÚRRA
„Mannfélaginu má likja við
voldugt vitlausrahæli, þar sem
vitfirringarnir rogast með sömu
sandpokana i eilifri hringrás
milli kjallara og þaklofts.
Brjáluðustu vitfirringarnir taka
sér þau sérréttindi að sitja á
lotnum herðum hinna og lemja
þá áfram með bareflum. Og
þaðan öskra þeir hnakkakertir
hver i kapp við annan: Blessað
sé framtak einstaklingsins!
Lengi lifi hin frjálsa sam-
keppni! Húrr-a!
Þórbergur Þórðarson:
t „Bréfi til Láru” 1924.
Kærleiksheimilið
Hæ amma! Manstu eftir mér?
Molar
Allar konur eru hættulegar, en
hættulegastar eru þær sem eru
nýbúnar að taka bilpróf.
Ókukennari.
Ctilokað
Hvernig á lika að vera hægt að
stjórna landi meö meira en 300
mismunandi ostum!
de Gaulle
Ég umgengst fremur karlmenn
en konur. Ekki vegna þess að
þeir eru karlmenn, heldur
vegna þess að þeir eru ekki
konur.
Kristin Svíadrottning
Ekki síst
til að
auka fjöl-
breytnina
— segir Sigfús
Kristinsson um
starfrækslu
saumastofu á
Reyðarfirði
Saumastofan Harpa hf. heitir
litið fyrirtæki á Reyðarfirði og
hefur nú verið rekið i 4 ár.
Þegar við litum inn um daginn
stóð yfir útsala á fatnaði unnum
úr afgöngum eða þvi sem sniðst
utanaf, en annars framleiðir
saumastofan samkvæmt pönt-
unum fyrir útflytjendur, Alafoss
og StS.
Sigfús Kristinsson forstjóri
sagði, að alls ynnu við sauma-
stofuna 14 manns, en flestir i
hálfsdagsstarfi, konur sem
jafnframt eru húsmæður.
— Flest er þetta starfsfólk,
sem ekki mundi fara i fiskvinnu
af ýmsum ástæðum, annaðhvort
afþviaðþaðhefurekkiheilsu til
þess eða ekki aðstæður vegna
bama og heimilisskyldna.
— Svo þið eruö ekki i sam-
keppni við fiskvinnslustöðv-
amar um vinnukraftinn?
— Það er öðru nær, við höfum
þvi miður ekki möguleika á að
keppa i' kaupi við þær. Við get-
um t.d. ekki farið úti bónus eða
þessháttar.höfum fram að þessu
ekki fengið það stórt verkefni að
slikt mundi skiia sér. Voðin,
Æfing í
framsögn
og upp-
lestri
vidtalid
Leiklistarnámskeið
fyrir fatlaða:
Hvað skyldu þeir Lúövík Jóseps-
són og Einar Olgeirsson segja
utn samvinnu Aiþýðubanda-
lagsins við ihaldið i ASl? spyr
Arni Gunnarsson I VIsi: „Þetta
gátu strákarnir lika”, myndu
þeir segja. Þeir mynduðu
nýsköpunarstjórnina með ihald-
inu I striðslok.
Rætt við
Guðmund
Magnússon
leikara
Sjálfsbjörg landssamtök fatl-
aðra efna til leiklistarnám-
skeiðs I vetur fyrir félagsmenn
sina I samvinnu við Námsflokka
Reykjavikur. Það er Guð-
mundur Magnússon leikari sem
annast námskeiðið og Þjóðvilj-
inn sló á þráðinn til hans til aö
forvitnast um þetta framtak.
Guðmundur sagði að hann
hefði tekið slikt námskeið að sér
i fyrra, en þá hefði það verið
auglýst sem félagsmála-
námskeið. Hann hefði ekkert
kunnað i fundarsköpum eða
ræðumennsku, en tekist að
bjarga sér fyrir horn með bók-
um. Þá var námskeiðiö tvisvar i
viku,annað skiptið var sjónum
beint að félagsmálum en i hitt
aðupplestri framsögn og spuna.
Þau gripu til þess ráðs að stofna
málfundafélag sem hélt aðal-
fund á hverjum þriðjudegi. Þar
var stöðugt verið að kjósa i
stjórn, svo að allir lentu i
einhverjum embættum og
æföust i fundasköpum.