Þjóðviljinn - 05.12.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. desember 198« ÞJÓÐVILJINN — $1ÐA 3
Setu lokið í dómsmálaráðuneytinu
Aðgerðin var
nauðsynleg
Stuðningsmenn Gervasonis
sem settust að i göngum dóms-
málaráðuneytisins ákváðu
snemma i gærmorgun að hætta
setunni, enda töldu þeir að að-
gerðirnar hefðu náð þeim tilgangi
sem til var ætlast.
Klukkan 9.30 var boðað til
blaðamannaíundar i dómsmála-
ráðuneytinu og þar var lesin yfir-
lýsing frá hópnum þar sem segir
m.a.: Aðgerðin hefur sýnt að hún
var nauðsynleg, þvi með henni
hefur okkur tekist að knýja fram
viðbrögð og skýrari afstöðu i mál-
inu.
Sem einstaklingar áskiljum við
okkur allan rétt til að gripa inn i
gang mála hvenær sem er, við
munum ekki láta deigan siga.
Við alla þá sem lýst hafa yfir
stuðningi við kröfuna um pólitiskt
hæli Gervasoni til handa, viljum
við segja þetta: Sýniö stuðning
ykkar i verki. Veitum Patrick
Gervasoni hæli sem pólitiskum
flóttamanni!
— ká
Höfundar lýsa stuðningi við leikara
Minnst 8 leikrit
á ári í sjónvarpi
Hlutur islenskra leikara 0.3% af leiknu efni i sjónvarpi
Félag íslenskra
leikritahöfunda hefur
ákveðið að skýra sér-
staklega frá deilu leik-
ara við Ríkisútvarpið
um hlut leiklistar í dag-
skrá sjónvarps á
ársþingi Leikrita-
höfundasambands
Norðurlanda og á
alþjóðaþingi leikrita-
höfunda, en báðar þess-
ar samkomur eru nú í
desember.
1 frétt frá íélaginu segir að
leikritahöfundar lýsi fullri sam-
stöðu með Félagi islenskra
leikara, og það sé vitaskuld ekki
siður áhyggjuefni fyrir höfunda
að leikritagerð sjónvarpsins
dregst sifellt saman. Hún er nú
0.3% af leiknu efni sjónvarpsdag-
skrárinnar, en krafa leikara er nú
aðhún verði 1.4%,oger þaðlangt
undir þvi lágmarki sem flestar
aðrar þjóðir setja sér.
Stjórn Félags islenskra
leikritahöfunda helur sent
menntamálaráðherra bréf og
beðið hann að beita sér fyrir
skjótri og farsælli lausn á deil-
unni. Er þar einnig bent á aö
styrkja þurfi ljárhagsgrundvöll
sjónvarpsins til að það geti að
minnsta kosti staöið viö fyrirheit
sin um gerð 8 leikrita á ári.
Leikritahöfundar telja það brýna
nauðsyn að skýrt sé afmarkað i
fjárhagsáætlun sjónvarpsins,
hversu miklu fé eigi að verja til
leikritagerðar, þannig að leiklist-
in verði ekki eiliflega útundan,
þegar hart er i ári. Þá er lögð
áhersla á það i bréfinu til
menntamálaráðherra, að efla
þurfi hlut innlendrar dagskrár-
gerðar i sjónvarpinu, og þar eigi
leikritagerð að vera ofarlega á
lista, en ekki einhverskonar horn-
reka einsog hingaö til.
Að lokum segir að þaö óhæfu-
ástand að flutningur innlendrar
leiklistar i islenska sjónvarpinu
skuli um það bil vera að leggjast
niður sé þegar farið að vekja all-
mikla athygli hjá erlendu
leikhúsfólki.
— ekh
Stjórnarfrumvarp um fœðingarorlof
3 mánaða orlof allra foreldra
Stjórnarfrumvarpi til laga um
fæðingarorlof hefur verið útbýtt á
Alþingi frá Svavari Gestssyni
fclagsmáiáráðherra, sem felur i
sér að foreldrar sem eiga lög-
hcimili á lslandi eiga rétt á
þriggja mánaða fæðimgarorlofi.
Frumvarp þetta er flutt I fram-
haldi af yfirlýsingu rikisstjórnar-
innar við gerð siðustu kjara-
samninga ASÍ og VSl og er þvf
hluti af félagsmálapakkanum
svonefnda.
Frumvarpið feiur i sér breyt-
ingu á almannatryggingalögun-
um i þá veru aö lögfestur verði
lágmarksréttur fæðingarorlofs til
handa öllum foreldrum á hinum
almenna vinnumarkaði, auk
þeirra sem eru heimavinnandi.
Fæðingarorlofið greiðisl á þann
hátt að foreldri sem unnið hefur
1032—2064 dagvinnustundir
siðustu 12 mánuði fyrir töku
fæðingarorlofs á rétt á óskertri
mánaðarlegri orlofsgreiðslu i 3
mánuði. Foreldri sem unnið hefur
516—1031 dagvinnustundir á rétt á
2/3hlutum heildargreiðslna i þrjá
mánuði og foreldri sem er utan
vinnumarkaðar og hefur unnið
515 dagvinnustundir eða minna á
rétt á 1/3 hluta af heildar-
greiðslunni.
Frumvarpið, ef að lögum
verður, leiðir til mikilvægra
breytinga á réttarstöðu i
fæðingarorlofi og eru þessar
helstar:
1. Allar konur sem íorfallast
vegna barnsburðar eiga sama
rétt til 3 mánaða íæðingarorlofs
en á mismunandi launum eftir at-
vinnuþátttöku.
2. Foreldri sem helur hálfa til
fulla atvinnuþátttöku á rétt á
mánaðarlegum fæöingaroriofs-
greiðslum og lækkar það hlutfall
miðað við vinnuþátttökuna.
3. Fæðingarorlofið greiðist úr
lifeyrisdeiid Tryggingastolnunar
rikisins gegn framvisun vottorös
læknis og sönnunar um launa-
greiðslur og atvinnuþátttöku.
4. Ef um fleirburafæðingar er
að ræða framlengist fæðingaror-
lofiö um einn mánuð.
Svavar Gestsson.
5. Mæður sem af nauðsynlegum
heilsufarsástæðum verða aðhefja
orlofið meira en einum mánuði
fyrir áætlaðan fæðingadag eiga
rétt á viðbótagreiðslum
tima.
6. Ættleiðandi foreldrar, upp-
eldis- eða fósturforeldrar eiga
rétt á tveggja mánaða greiðslum
vegna töku barns til 5 ára aldurs.
Fæðingarorlofsgreiðslur miö-
ast við kr. 530.221 á mánuði
miðað við 1. des sl. og breytist sú
tala i' samræmi við kaupbreyt-
ingar á hverjum tima.
Með þessu frumvarpi er létt af
Atvinnuleysistryggingasjóöi og
atvinnurekendum greiðslu
fæðingarorlofsins.
cr safn skemmtilegra sagnaþátta. Fyrra bindi Syrpu, þjóðsögurnar, sem út kom í
fyrra, hlaut hinar beztu móttökur lesenda jafnt sem gagnrýnenda, og var það að
vonum. Sagnaþættir Gísla eru ekki síður merkir eða skemmtilegir.
FRÁ YSTU NESJUM eftir Gils Guðmundsson
er safn vinsælla vestfirzkra þátta og kennir þar margra grasa. Sagt er frá Hans
Ellefsen og hvalveiðistöðinni á Sólbakka, þættir eru af afreksmönnum og
atkvæðamönnum, sérkennilegu fólki og fornu í lund og víða er slegið á léttari
strengi óg gamansöm atvik færð í letur, en í öðrum þáttum greinir frá örlagaríkum
og válegum tíðindum. Lengsti þáttur bókarinnar er um Holt í Onundarfirði og
Holtspresta.
ÆVIÞÆTTIR AUSTFIRÐINGS eftir Eirík Sigurðsson
SKUGGSJA
er ekki ævisaga í venjulegri merkingu þess orðs, en stiklað er á veigamestu
atburðum í ævi hins merka skólamanns og bindindisfrömuðar og sagt frá fjölda
manna, sem margir hverjir höfðu sterk áhrif á lífsviðhorf hans og lífsstefnu.
Hlýhugur og hrifning á æskustöðvunum og samúð og virðing fyrir
samferðamönnum mótar alla frásögn.
BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SE
SYRPA II úr handritum Gísla Konráðssonar
HERERBOKIN!