Þjóðviljinn - 13.12.1980, Síða 1
SUNNUDAGS
BLAÐID
DJÚÐVIUINN
36
SIÐUR
Helginl3—14.
desember 1980.
283.-284. tbl.
45. árg.
Tvö blöð
í dag
BLAÐ I
Verð kr. 500
1 + 1 = 1?
Það sem Hafþóri
Guðjónssyni
dettur í hug
Bls. 10
BLAÐ II
/
Einar Laxness
skrifar um bók
Einars
Olgeirssonar
Bls1 4
Leiklist fyrir
börn á íslandi
Opna
BLAÐ I
Hæpin forvitni:
Frásogn frá
hernámsárunum
Bls. 7
Svavar Gestsson um mál Gervasoni
Útffundiir
á Lækjartorgi í dag,
laugardag, kl. 14.00
m
Aöalhciður Bjarnfreðsdóttir Heimir Pálsson
Til stuðnings
Gervasoni
Með fundinum vilja stuðningsmenn Frakkans
Patricks Gervasoni minna á að fyrst og fremst ber
að lita á mál Patricks Gervasoni út frá mannúðar-
sjónarmiðum. Sömuleiðis harma þeir að málið
skuli hafa verið flækt i lagakróka, póiitiska flokka-
drætti og einstrengingsleg þjóðernisviðhorf. Pat-
rick Gervasoni er friðarsinni, sem hefur það eitt til
saka unnið, að hann neitar að bera vopn.
Á fundinum munu taka til máls:
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, form. Sóknar.
Hreinn Hákonarson, guðfræðinemi
Heimir Pálsson, menntaskólakennari
Pétur Pétursson, þulur
Sigurður A. Magnússon, rithöfundur
og Anton Helgi Jónsson, rithöfundur.
Fundarstjóri verður Bryndis Schram.
Sigurður A. Magnússon
Bryndfs Schram
Anton Helgi Jónsson
PéturPétursson
Veitum honum landvist
Svavar hefur sæst á brottvisun
Gervasoni, segir á forsiðu Helgar-
póstsins i gær, og er þetta útlegging
blaðsins á ummælum Friðjóns
Þórðarsonar dómsmálaráðherra.
Af þessu tilefni sneri Þjóðviljinn
sér til Svavars Gestssonar félags-
málaráðherra og spurði hann um
sannleiksgildi þessara orða.
Svavar sagði:
Ég hef fyrir mitt leyti aldrei tekið
undir önnur sjónarmið en þau að
Gervasoni fái landvistarleyfi hér á
landi. í þessu felst afstaða min, en
ekki vald i málinu. Þessi afstaða er i
samræmi við einróma samþykkt
landsfundar Alþýðubandalagsins.
Það sem haft er eftir dómsmálaráð-
herra um mina afstöðu i Helgarpósti
er algerlega út i hött. 1 fyrsta lagi er
það ekki hans hlutverk að túlka min
sjónarmið. Það geri ég sjálfur. En i
öðru lagi er ljóst að endanleg niður-
staða er ekki fengin i málinu eins og
berlega kemur fram i viðtölum við
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar-
lögmann i blöðunum i dag. Það er þvi
enn, þrátt fyrir allt, unnt að gera sér
von um lausn þessa máls með sam-
komulagi allra aðila.
Afstaða min i þessu máli hefur oft
komið fram, m.a. i blöðum og i rikis-
stjórninni. 1 verki hefur þessi afstaða
komið fram með þeim hætti að ég
veitti Gervasoni atvinnuleyfi strax
og eftir þvi var leitað.
Rikisstjórnin sem heild getur ekki
tekið vald af einum ráðherra. Ráð-
herra er sjálfstætt stjórnvald og
lyktir mála eru á valdi hvers ráð-
herra fyrir sig.
Svavar Gestsson