Þjóðviljinn - 13.12.1980, Blaðsíða 7
Helgin 13. — 14. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Þegar við vorum við
vinnu á Grímsstaðaholt-
inu, á þeim slóðum sem
seinna varð aðalaðsetur
Flugfélags Islands, dró
umferð flugvéla um völl-
inn að sér athygli okkar.
Farartæki loftsins voru
nýstárlegri þá en seinna,
er menn hættu nánast að
veita þeim athygli og litu
varla upp þó heyrðist í.
flugvél. Eitt sinn skeði
það, að stór fjögurra
hreyfla flugvél, bresk,
fórst þarna á Vellinum eða
réttar sagt í grjótholti við
eina flugbrautina. Ekki
vissi ég hvernig slysið bar
að, en heyrði sat að flug-
vélin hefði verið að lenda
þegar óhappið varð.
Áhöfnin, sem voru nokkrir
menn, munu allir hafa far-
ist og eldur kom svo upp í
vélinni, en var slökktur
áður en mjög mikið brann.
Að öllum likindum hefur vélin
farist um nóttina eða snemma
morguns. Þegar við komum til
vinnu um morguninn sáum við
draslið öti i holtinu. Siðan var
það látið liggja óhreyft og við
sáum engar mannaferðir þar i
námunda. t matartimanum stakk
einhver upp á þvi, að rétt væri að
skoða þetta. Enginn vörður var
sjáanlegur og við hlupum yfir aö
flakinu. Þar var ljótt um að litast.
Allskonar hlutir, fallhlífar* belti,
fataleifar, sumt hálfbrunniö
skinnpjötlur á beygluðum málm-
hlutum og annað smávegis lá á
við og dreif. Stærri likamshlutar
og það sem heillegra var hafði þó
verið fjarlægt. En méðan viö
vorum að skoða vegsummerkin
komu nokkrir hermenn með
alvæpni akandi eftir flugbraut-
inni, þustu af bilunum og voru
ófrýnilegir og ráku okkur burt
með þvi að ota að okkur byssun-
Ekki vorum við teknir fastir
eða færðir til yfirheyrslu. Við vor-
um fljótir að hypja okkur og vor-
um sjálfsagt talsvert smeykir,
enda ferðin farin i fljótræði og
ummerki slyssins ekki ætluð til
sýnis, og sist tslendingum. Ein-
hver smávegis eftirköst urðu
vegna þessarar ferðar okkar. Ég
held að verkstjórinn okkar hafi
fengið áminningu um að hafa
betri gát á þvi framvegis, hvað
menn hans aðhefðust. Ekki var þó
svo að skilja að við létum af allri .
hýsni um það sem ekki kom
okkur við og var i raun illa séð af
heryfirvöldunum. Við vorum for-
vitnir, eða fróðleiksfúsir og létum
fá tækifæri ónotuð til að svala
þeirri löngun.
A flugbrautinni, sem næst lá
Skerjafirðinum stóðu jafnan
nokkrar ameriskar orustuflug-
vélar. Þær voru kallaðar Erkopra
eða eitthvað i þá áttina. Við
gátum ekki stillt okkur um að
skoða þær, höfðum lengi haft um
það nokkra ráðagerð og i einum
matartimanum gerðum við al-
vöru úr þvi. Ekki gátum við séð
að þarna væri nokkur vörður
a.m.k. ekki að staðaldri. Hitt gát-
um við ekki varast, að eftirlit
væri haft með mannaferðum um
þetta svæði, úr fjarlægð.
Við fórum þrir saman i þessa
ferð og skoðuðum vélarnar i krók
og kring að utan og vorum að
leggja af stað til baka þegar tveir
ameriskir flugliðar á jeppabil
komu aðvlfandi.
Þeir spurðu okkur hvað viö
værum að gera og hvort við viss-
um ekki að bannað væri að skoða
/élarnar. Auðvitað vissum við það
ekki. Mennirnir voru ekki óvin-
gjarnlegir þó þeir væru ákveðnir
og við kunnun nóg i ensku til að
gera þeim skiljanlegt að svona
vélar ættum við ekki á íslandi og
þessvegna hefði okkur iangaö til
að skoða þær.
Fannst mér að þeir skildu
okkur á réttan hátt, en lögöu
áherslu á að eftirleiðis skyldum
við þó láta svona lagaö ógert og
við vorum fegnir að sleppa við öll
vandræði.
HÉR ERBÓKIN!
Nágranninn hennar
Selía er ung og fögur sveitastúlka, trúlofuð Georg, ungum og traustum bónda. En svo kom Hróðmar og setti
heldur betur strik í reikninginn! Sagan fjallar á æsispennandi hátt um baráttu Selíu fyrir hamingju sinni,
næstum óyfirstíganlega baráttu gegn sterkum fjölskylduböndum og hatrömmu, hefnigjörnu baktjaldamakki.
SKUGGSJÁ
Millitveggjaelda
Hann var eiginmaður hennar, en hún þekkti hann ekki! Hvert var hið dularfulla afl, sem í senn dró þau hvort
að öðru og hratt þeim frá hvoru öðru? Var það ást eða hatur? Hún áttaði sig ekki lengur á tilfinningum
sínum. Elskaði hún bróður eiginmanns síns, eða var það eiginmaðurinn, sem hún elskaði?
RAUÐU ÁSTARSÖGURNAR
ELSE-MARIE IMOHR BARNLAUS MÓÐIR
Maríanna hefur orðið fyrir mikilli sorg stuttu eftir erfiða fæðingu, fengið taugaáfall og dvalið sjö löng ár á
sjúkrahúsi. Þegar hún útskrifast þaðan er allt orðið breytt, eiginmaður hennar hafði krafizt skilnaðar og glfzt
aftur og fengið forráðaréttinn yfir Bellu, sjö ára dóttur þeirra. Taugaálagið eykst á ný og hún er á barmi
örvinglunar. En þá hittir hún Arvid, — og Bellu litlu dóttur sína, — og lífið fær tilgang á ný.
SIGGE STARK öftLÖOIN STOKKA SMUN
Jóhann í Kvarnarstofu var harður og óvæginn og átti marga óvildarmenn. Þegar elgsveiðarnar standa sem
hæst finnst hann látinn á veiðistað, — stunginn til bana. Margir höfðu heyrt Valda á Haukabergi hóta
Jóhanni misþyrmingum, jafnvel dauða. Og Valdi var duglegur veiðimaður og leiknastur allra í sveitinni að
handleika hníf. En Valdi var líka unnusti Lísu, dóttur Jóhanns! Nú reyndi á ást þeirra, tryggð og trúnað!
SIGNE BJÖRNBERG ÁSTIN ER ENGINN LEIKUR
Hrólfur var kvennagull sveitarinnar og misjöfnum augum litinn af öðrum ungum mönnum. Nýjasta stúlkan
hans var Regína í Nesi, og nú var Hrólfi alvara! En íris var ekki sama sinnis, hún hafði verið stúlka Hrólfs
næst á undan Regínu, — og svo var það Ingibjörg á Svartalæk og veðmál skógarhöggsmannanna, félaga
Hrólfs! Já, ástin er svo sannarlega enginn leikur!
Amanda Burke var fátæk, en fögur sem vorið, þegar Ravenscar lávarður sá hana fyrst og ákvað að kvænast
henni. Áhrif hans á Amöndu voru þveröfug, hún fylltist viðbjóði við tilhugsunina um atlot hans. En hún varð
að játast honum til að bjarga manninum, sem hún unni. En hver var hann, þessi dularfulli maður, sem þessi
saklausa stúlka hafði gefið hjarta sitt?
ÞÆR ERU SPENNANDI í ÁR, ÁSTARSÖGURNAR OKKAR!
Sárt eraöunna
Þetta er dularfull og snjöll ástarsaga, saga Nellie, ungu stúlkunnar, sem þekkti ekki sjálfa sig þegar hún leit í
spegilinn eftir að skurðlæknirinn hafði gert að andlitssárum hennar eftir slysið. Gat húri endurheimt ást
Marks? Gat hún barizt til sigurs við rótgróið ættarhatrið?
SeiÖur hafs og ásiar
Hún var sannfærð um, að ástin skipti engu meginmáli og vildi því giftast ríkum manni. Á þann hátt hugðist
hún sjá sér og foreldralausum systkinum sínum farborða. En daginn sem hún sá Byrne varð afdrifarík
breyting innra með henni! Ástin lætur ekki að sér hæða og ást og kaldir útreikningar fara ekki saman.