Þjóðviljinn - 13.12.1980, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 13.12.1980, Qupperneq 15
Eitt frumvarp var afgreitt sem lög frá Alþingi i gær, frumvarp til laga um breytingu á _lögum um útfiutningsgjald af sjávarafurö- um. Frumvarp þetta felur i sér að áður en útflutningsgjald er lagt á saltsild skal draga frá fobverð- mæti hennar, framleiddrar á sildarvertiö 1980, krónur 15600 fyrir hver 100 kg innihalds vegna umbúðarkostnaðar og kostnaöar við sérstök hjálparefni. Þá skal ekki innheimta útflutningsgjald af ediksöltuðum sildarflökum eöa söltuðum sildarflökum sem verkuð eru á svipaðan hátt, fram- leiddum á sildarvertið 1980 til sölu i löndum Efnahagsbandalags Evrópu. 405 atvinnu- lausir um s.l. mánaðamót Undir venjulegri árstíðasveiflu 30. nóvember s.l. voru skráðir atvinnulausir á öllu landinu 405 manns, 165 konur og 240 karlar. Þetta svarar til þess að 0,4% af áætluðum mannaflai mánuðinum hafi látið skrá sig atvinnulausa þennan dag. Hefur skráðum at- vinnulausum fjölgað um 99 frá siöustu skráningu, þ.e. i lok okt. I lok nóvembermánaöar 1979 voru skráðir 549 atvinnulausir á landinu öllu eða 0.6% af mann- afla, sem er sama hlutfall og á sama tima 1978. Sú árstiða- sveifla, sem jafnan gerir vart viö sig á þessum árstima, virðist þvi minni núen jafnan undanfarin ár, segir i skýrslu félagsmálaráðu- neytisins. Atvinnuleysi meðal kvenna virðist óbreytt frá siðustu skrán- ingu (165 á móti 169) en hefur aukist nokkuð hjá körlum eða úr 137 i 240. Skýringin á þessu liggur m.a. i samdrætti i útivinnu, sem kemur fram i auknu atvinnuleysi hjá verkamönnum, byggingar- iðnaðarmönnum og vörubifreiða- stjórum. Þá virðist atvinnuleysi hafa aukist meðal verslunarfólk^, t.d. voru á skrá i Reykjavik 26 manns úr þeirri stétt. Eftir landshlutum er skráð at- vinnuleysi mest á höfuðborgar- svæöinu, 136, og á Norðurlandi eystra, 109. og er ástæðan talin fyrrnefndur samdráttur i úti- vinnu, en annarsstaðar svo og á nokkrum stöðum noröaustan- lands er kennt um timabúndnum hráefnisskorti í fiskiðnaöi. ÍSLENSKIR SJÁVARHÆTTIR Upphaf að miklu ritverki sem Lúðvík Kristjánsson rithöfundur hefur unnið að i nær fjóra áratugi. Fyrsta bindi skiptist í fjóra eftirtalda meginkafla: Fjörunytjar og strandjurtir, Matreki, Rekáviður og Selur. Bókin er einstæð í sinni röð. Slíkt rit um sjávarhætti mun hvergi annars staðar til. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 — Reykjavík Frystur fiskur til Sovétríkjanna 1981 18 þúsund smálestir fyrir 15,9 miljarða kr. Undirritaður var í Moskvu í sl. viku samning- ur um sölu á 18.000 smálestum af frystum fiski til afgreiðslu á árinu 1981. Heildarverðmæti samningsins er rúmar 27 miljónir Bandaríkjadala, sem er um 15.9 miljarðar króna miðað við skráð kaupgengi dollarans í dag. Samkvæmt samningum eru 14.000 smálestir fryst fiskflök og 4.000 smálestir heilfrystur fiskur. Nokkur hækkun var á verði frá siðustu samningum, sem gerðir voru viö Sovétmenn i júli s.l. Kaupandi af hálfu Sovétrikj- anna var sem fyrr matvælafyrir- tækið Prodintorg, en seljendur Sölumiðstöð hraðfrysthúsanna og Útflutnings- gjald á saltsíld Sjávarafurðadeild S.Í.S.. Samn- ingsgerðina af Islands hálfu önn- uðust Arni Finnbjörnsson fram- kvæmdastjóri S.H. og Sigurður Markússon framkvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar S.I.S.. Arið 1981 er hið fyrsta undir nýjum 5 ára rammasamningi, sem lsland og Sovétrikin geröu með sér á s.l. ári. A siðasta 5 ára timabili, 1976—1980 námu heildarafgreiðsl- ur á frystum fiski til Sovétrikj- anna 67.400 smálestir á timabil- inu öllu eða að meðaltali 13.500 smálestir á ári. SKELF NG Skelfing er heimurinn skrítinn Hrífandi bók fyrir börn á öllum aldri Þetta er tuttugasta og áttunda bókin sem skáldkonan Hugrún sendir frá sér. Hún túlkar hér í þessari bók hiö viökvæma og frjóa tilfinningalíf barna á öllum aldri. m n sími 13510. , ÍSLENSK BOKAAAENNING ERVERÐMÆTl

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.