Þjóðviljinn - 13.12.1980, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Helgin 13. — 14. desember 1980
William F. Pálsson
1896-1980
1 Laxárdal i Suður-Þingeyjar-
sýslu, þar sem fegursta elfur
landsins rennur — hefur að visu
aldrei verið fjölmenn byggð, þó
að á sumum bæjum þar hafi hér
áðurfyrr verið mannmargt. En
hitt er það, að i þessum dal hafa
margir mætir menn fæðst og lifað
og gert garðinn frægan. Má i þvi
sambandi nefna Benedikt á
Auðnum og dóttur hans, hina
þjóðkunnu skáldkonu Huldu. Og
þá Halldórsstaðabændur, Magnús
lásasmið og Pál Þórarinsson, er
frægur varð fyrir það ævintýri
sitt að ná sér i fallega unga
skoska konu, á ferðum sinum i
Skotlandi — og koma með hana
heim i heiðardalinn sem þótti
raunar nokkuð djarft að sögn, á
árunum rétt fyrir siðustu alda-
mót. En hvað um það. — Þeim
Halldórsstaðahjónum Lizzie og
Páli fæddist sonur hinn 12. april
1896. Það má þvi segja, að ævin-
týrið frá sumrinu 1894, þegar Páll
og Lizzie William, kona hans —
dóttir skógarvarðarins frá Fife-
shire lögðu frá Skotlands-
ströndum, hafi haldið áfram.
Enda var sonurinn nokkru siðar
borinn i kirkju og hlaut nafnið
William Franz. Og drengurinn
þessi átti heldur betur eftir að
auka á frægð samtiðar sinnar og
dals.
En nú er vist best að gera langa
sögu stutta, þó merk sé. Það er
lika svo oft búið að minnast
fólksins á Halldórsstöðum i ræðu
og riti — þessa mikla menningar-
heimiiis sins tima, sem William
eða Villi, eins og hann var kall-
aður, átti mikinn þátt i að gera og
viðhalda.
William ólst upp hjá foreldrum
Verslunar
fólk
í jólaönnum...
Smáveisla
4-6-og A
8 manna d ldll
Smáveisla á fati er kalt borö meö margskonar lostæti
Tilvalió í smásamkvæmi í heimahúsum eöa í
verslunum þar sem allir geta ekki komist frá í einu.
Höfurn aftur hinar vinsælu hreindýrasteikur
Bjóðum Egils hvítöl með matnum
Sendum
heim
Smáveisla inniheldur:
ftoastbeef, kjúkling,
Londonlamb,
grænmeti, sveppi, aspargus,
sveskjur, aprikósur,
rauðkál.
Með fylgir: Hrásalat,
coctailsósa, remolaðisósa
og italskt salat.
IIALTI HAiMMV
LAUGAVEGI 178 SÍMI 34780
SENDUM HEIM
sinum til fullorðins ára. A æsku-
árum sinum fór hann þó með
móður sinni i heimsókn til ætt-
lands hennar og kynntist fólkinu
og landinu þar. Ég heyrði talað
um það á æskustöðvum minum
sem voru vestan Hvitafells, en
Halldórsstaðir eru austan þess,
að William hafi snemma numið
enska tungu, enda töluðu for-
eldrar hans jafnt ensku og
islensku ef svo bar til. Það lék
snemma orð á þvi, að Villi væri
ýmsum hæfileikum gæddur svo
enginn hefði orðið hissa á þvi, að
hann hefði leitað meira útfyrir
heimaland sitt en hann gerði.
Hann var að visu um skeið
verslunarmaður i Húsavik en
kom aftur heim á menningar-
heimilið i dalnum. Enda var þar
löngum gestkvæmt af fólki lengra
að bæði músikfólki og söngv-
urum. Og vitanlega átti þaö við
Villa, jafnmikinn selskapsmann
og viðræðugóðan sem hann var og
i allri umgengni sem heims-
borgari. Auk sinnar miklu snyrti-
mennsku sem auðkenndi hann,
foreldrana og hinn eina bróður
sem hann átti, sem er látinn fyrir
alllöngu sem og foreldrarnir.
— En eitt var það sem Villi varð
snemma þekktur af og það var
hve augu hans voru opin fyrir
öllum undrum og dásemdum
náttúrunnar. Hann las mikið um
það efni og safnaði mörgum
gripum sem að þeirri grein laut.
Hann var þjóðkunnur frimerkja-
safnari og kunnur eggjasafnari
viða um heim. Og auk þessa var
Villi bóndi hin siðari ár. Einnig
var hann túlkur fyrir erlenda
ferðamenn i fjölda ára. Það var
heldur aldrei komið að tómum
kofunum þar sem Villi var. En
mér sem þetta skrifa eru
kærastar minningarnar um
William, þegar hann kom okkur
unga fólkinu til aðstoðar i ung-
mennafélaginu. Og þá fundum við
lika vel hversu miklum hæfi-
leikum hann var búinn. — Og
kannski fundum við það ekki
siður, að hann var vinur og félagi
okkar allra.
En nú er þessi vinur okkar far-
inn á veg allra vega. Hann
William okkar lést í sjúkrahúsi
Húsavikur 3. desember s.l. 84 ára
að aldri. En minningin vakir i
huga okkar — minning sem ekki
deyr.
Gisli T. Guðmundsson
Sögustund
í Norrœna húsinu
— Nýjar barnabækur
Mál og menning verður með sögustund i
Norræna húsinu á morgun, sunnudag.
Hjalti Rögnvaldsson, leikari, verður sögu-
pabbi, en auk hans lesa m.a. Vilborg
Dagbjartsdóttir úr nýjustu bókinni um
Emil i Kattholti og Svanhildur
Óskarsdöttir úr Madditt eftir Astrid Lind-
gren.
Sýndar verða skyggnur með myndum úr
barnabókum o.fl. Við byrjum klukkan 3.
Verið velkomin
Mál Ityl og menning
AUGLYSINQASTOFA SAM&ANOSINS
handiKjðflð
Rcykhus $amband$ln$
sími 14241