Þjóðviljinn - 17.12.1980, Page 5
■ jSU’iíIOcGL 71 TcVu'tTf.'t'iVl'i
Mibvikudagur 17. desember 1980'
**.«>,• 1 ,'Cíí? 'r
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Smánarlisti Amnesty International
Mannréttindi
eru brotin í
110 löndum
Þvl fer fjarri að ársskýrsla Amnesty lnternational sé velkomin lesning
allsstaðar. Þessi teikning úr spænska blaðinu El Pais minnir á það, að
spænska stjórnin hefur kosið að þegja sem fastast um skýrsiu sem
samtökin sendu frá sér um misþyrmingar I spænskum fangelsum.
Verdlaunabók
fyrir börn
Um þessar mundir kemur út
hjá Námsgagnastofnun bókin
Undir Regnboganum eftir Gunn-
hildi Hrólfsdóttur.
t tile'.ii alþjóðaárs barnsins
1979 ef.idi Rikisútgáfa námsbóka
til samkeppni um bækur handa
börnum á skólaskyldualdri.
28 handrit bárust til sam-
keppninnar og varð dómnefnd
sammála um að veita Gunnhildi
Hrólfsdóttur viðurkenningu fycir
handrit sitt.
Þetta er fyrsta bók höfundar,
sem er húsmóðir i Mosfellssveit.
„Sagan fjallar um Döggu, 11
ára telpu sem á heima i þorpi
norðanlands. Henni virðast öll
sund lokuð, þegar móðir hennar
slasast og Dagga verður að fara
til ættingja sinna i Reykjavik.
Ekki liður þó á löngu þar til hún
er orðin þátttakandi i lifi hinnar
glaðværu fjölskyldu i Brekku,
hinu nýja heimili sinu, þar sem
hver dagur er ævintýri likastur.”
Á siöastliönu ári hafa yf-
irvöld/ stjórnarhersveitir
og vopnaðar sveitir aðrar í
meira en þrjátíu löndum
myrt fólk og tekið af lífi.
Framin eru brot gegn
mannréttindum i stærri
eða smærri stíl í 110 lönd-
unv og þrátt fyrir baráttu
mannréttindasamtaka eru
engar sérstak$r horfur á
þvi að ástandið batni á
næstunni.
Þetta kemur fram af árs-
skýrslu Amnesty International,
aljóðlegra samtaka til aðstoðar
samviskuföngum, sem láta ótal
stærri og smærri mál til sin taka
og hafa nú siðast verið á dagskrá
á tslandi i sambandi við Gerva-
sonimálið.
Skýrslan greinir ýtarlega frá af-
skiptum Amnesty International
af málum einstakra pólitiskra
fanga, baráttu gegn pyntingum
og dauðarefsingum og þátttöku
samtakanna i mótun alþjóölegra
réttarreglna um verndun
mannréttinda. Þá geymir
skýrslan yfirlit um ásigkomulag
mannréttindamála i hverju landi.
Nítján lönd í Evrópu
Þetta er stærsta skýrsla sem
Amnesty hefur sent frá sér til
þessa. Nitján lönd i Evrópu eru á
þeirri smánarskrá: sum fyrir
pólitiskar fangelsanir, önnur fyr-
ir pyntingar i fangelsum eða illa
meðferð fanga eða fyrir þær sak-
ir, að meö löggjöf þeirra eru
takmarkaðir möguleikar á fram-
kvæmd þeirra mannréttinda sem
sett eru á blað i mannréttindayf-
irlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
011 riki Austur-Evrópu eru á
þessari skrá. Einnig eru
Grikkiand, Spánn, Italia,
Portugal, Irland, Bretland,
Frakkland og Vestur-Þýskaland
með i ársskýrslunni fyrir ýmsar
sakir — en öll Noröurlöndin
sleppa.
Flest riki Rómönsku Ameriku,
Afriku og Asiu eru á þessari skrá
Amnesty International.
Morð
Vitanlega er ástandið mjög
misjafnt i þeim yfirgnæfandi
meirihluta rikja jarðar sem
Amnesty setur á smánarskrá. En
flestir sem málum kynnast munu
reiðubúnir til að taka undir það
sjónarmið, að best sé að hlifa
engum — m.a. til að tryggja það
að samtökin verði ekki sökuð um
hlutdrægni.
Meðal þeirra afbrota sem talin
eru alvarlegust i skýrslunni eru
morð á bændum og búaliði i E1
Salvador og Guatemala, morð á
fólki úr trúarlegum eða þjóöerna-
minnihlutum i Iran, trak og
Eþiópiu, sem og manndráp i
Afganistan á Filippseyjum og i
Chile.
Tvö lönd
Einna mest rúm i skýrslunni fá
tvö lönd: Argentina og
Sovétrikin. Amnesty Internation-
al hefur um fjögurra ára skeið
unnið rækilega að þvi aö skjal-
festa hina skipulögöu kúgun gegn
st jórna ra ndstæöingum i
Argentinu, þar sem mikill fjöldi
fólks hefur „horfiö” á undanförn-
um árum, og margir hafa lent i
leynilegum fangelsum og
py ntingarstöðvum.
Að þvi er Sovétrlkin varðar er
gefið nákvæmt yfirlit yfir
meðferð stjórnvalda á hverjum
þeim sem til andófs ris. Þar er
rætt um misnotkun geðsjúkra-
húsa, vinnubúðakerfiö og fleira.
Athygli vekur hve mikilli hörku
ýmsir hópar trúaðra manna hafa
verið beittir ásamt með svo-
nefndum gagnrýnendum kerfis-
ins.
Fantaskapur lögreglu
Fatnaskapur lögreglu er mikið
efni i skýrslu þessari. Ýmisleg
dæmi eru rakin frá Bandarikjun-
um um slikan fantaskap sem
komið hefur niöur á minnihluta-
hópum. Þá er fjallað um einangr-
unarfangelsi i Vestur-
Þýskalandi, dómstóla sem starfa
i trássi við lögin á Norður-lrlandi
og margt fleira.
Sterk sa mtök
Það má ráða af skýrslunni að
Amnesty International eru öflug
samtök sem njóta alþjóölegrar
viöurkenningar. I þeim eru meira
en 200 þúsundir meðlima i 134
löndum. Starfsemin fer vaxandi.
A timanum 1. mai 1979 til
aprilmánaöar á þessu ári, sem
skýrslan nær yfir, hefur Amnesty
International sent 45 sendinefndir
og rannsóknarnefndir til 33 landa.
Amnesty eru einu samtökin i
heiminum sem reyna kerfisbund-
ið aö skrásetja brot á mannrétt-
indum um heim allan i þvi augna-
miði að þvinga yfirvöld til að láta
fanga lausa, hætta við aftökur og
pyntingar, breyta lögum.
Arangur er að sjálfsögðu misjafn,
en þó hefur samtökunum furöu
viða tekist að verða ofsóttu og
hrjáöu fólki aö liði.
áb endursagði.
Útsölustaðir fyrir flstrad viðtæki Bifreiðar & Landbúnaðarvélar h.f. Suðurlandsbraut 14. Sími 38600.
AKRANES
Versl. örin
BÍLDUDALUR
Versl. Jóns S. Bjarnasonar
BORÐEYRI
Kaufélag Hrútfirðinga
BORGARNES
Verslunin Stjarnan
BLÖNDUÓS
Kaupfélag Húnvetninga
BREIÐDALSVIK
Kaupfélag Stöðfirðinga
BÚÐARDALUR
Kaupfélag Hvammsfjarðar
DALVtK
Kaupfélag Eyfirðinga
DJÚPIVOGUR
Kaupfélag Berufjarðar
EGILSSTADIR
Versl. Gunnars Gunnarssonar
GRINDAVIK
Kaupfélag Suðurnesja
HAFNARFJÖRÐUR
Radióröst
Rafkaup, Reykjavikurv. 66
HÓLMAVIK
Kaupfélag Steingrimsfjarðar
HVOLSVÖLLUR
Kaupfélag Rangæinga
HÚSAVtK
Bókaversl. Þórarins
Stefánssonar
HÖFN — HORNAFIRÐI
Versl. Sigurður Sigfússonar
HVAMMSTANGI
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
HAGANESVIK
Samvinnufélag FljóVamanna
KEFLAVIK
Kaupfélag Suðurnesja
Radiónaust, Hafnargötu 25
Radióvinnustofan,
Hafnargötu 50
Stapafell
KRÓKSFJARÐARNES
Kaupfélag Króksfjarðar
NESKAUPSTAÐUR
Kaupfélagið Fram
REYKJAVIK
Domus, Laugavegi 91
F. Björnsson, Bergþórugötu 2
Fönix, Hátúni 6A
Radióhúsið, Hverfisgötu 37
Radióvirkinn, Týsgötu 1
Sjónvarpsmiðstöðin, Siðumúla 2
Tiðni, h.f., Einholti 2
Georg Amundason,
Suðurlandsbraut 6
Rafiðjan, Kirkjustræti 8B
Tónborg, Hamraborg 7, Kóp.
SAUÐARKRÓKUR
Kaupfélag Skagfirðinga
SIGLUFJÖRÐUR
Verslun Gests Fanndal
STYKKISHÓLMUR
Kaupfélag Stykkishólms
SKRIÐULAND
Kaupfélag Saurbæinga
SÚGANDAFJÖRÐUR
Kaupfélag Súgfirðinga,
Suðureyri
STÖÐVARFJÖRÐUR
Kaupfélag Stöðfirðinga
VOPNAF J ÖRÐUR
Versl. Ólafs Antonssonar
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
Kaupfél. Skaftfellinga
VARMAHLtÐ
Kaupfélag Skagfirðinga
Tilvaldar jólagjaf ir
VEGA 402
Litið en hljómgott tæki
i leðurtösku.
Lang- og miðbylgja.
Vtrð kr. 29.030,-
ASTRAD Vef 206 SELENA 210/2 MB
Afar næmt viðtæki.
10 transistorar, 2 dióður.
Mið-, lang- og bátabylgja
+ 5 stuttbylgjur.
Verð kr. 46.910.-
Langdrægt viðtæki i teak-kassa.
17 transistorar, 11 dióður.
Lang-, mið- og FM-bylgjur, 5 stuttbylgjur.
lnnbyggður spennubreytir fyrir 220 V.
Veri kr. 70.684.-