Þjóðviljinn - 17.12.1980, Side 7
Mismimiir á útflutningsverði einstakra súrálsfarma frá Astralíu
til íslands, skv. áströlskum hagskýrslum og aðflutningsskýrslum
ÍSALS, á timabilinu janúar 1974 til júní 1980
Farm nr. 1 . . Lestunar- dagur í Gove (1) Magn (tonn) (2) Útfl.verðm. skv. ástr.hagskýrsl. FOB/í þu's. US$ (3) Útfl.verán.skv. aöfl.sk. ISALS TOB/í þús. US$ (4) Mismunur 1 þús. US$ (5) Hækkun' í hafi % (6)
1 8 05.01.74 18.544 1.596 i 2.059 ’ 1 463 1 , 29,0‘ 1
9 16.04.74 25.374 : 2.218 3.350 i L 1-13? :| [ 1
1 10 1 123.07.74 j i 35.060 I 1 3.023 ] í 5.070 ’ « í*.04?
4.11 ] ^15.09.74 | 37.228 j 1 2.853 1 1 5.543 .■í 1 R94,
|l2 j J05.12.74 | jf 34.309 2.693 1 I 5.0J8 lÍ*3** 1 m13 '
W 13 P18.09,75 ] i 37.205 1 I 4.009 1 6-313 ] W *303 | F57,‘4 1
r 14 *G9.04.75 : 31.239 3.338 5.411 ] E 2.073 i f 62,1
15 20.09.75 \ 34.313 ' 3.449 4.736 f 1.287 36,7
16 28.10.75 32.845 3.221 4.584 1.363 42,3
17 21.12.75 21.921 2.190 3.140 950 42,4
18 03.04.76 33.087 2.562 4.875 2.313 89,2
19 14.07.76 37.946 4.322 5.287 965 22,2
20 07.11.76 38.004 3.655 5.727 2.072 56,7
21 28.02.77 30.539 3.755 5.334 1.579 42,1
22 06.06.77 40.474 4.216 5.975 1.759 41,7
23 05.09.77 36.151 3.746 5.661 1.915 51,1
24 13.01.78 35.527 3.772 5.528 . 1.756 46,6
25 30.04.78 32.422 3.362 5.042 1.680 50,0
26 16.10.78 37.531 4.040 5.836 1.796 44,5
27 16.01.79 37.003 4.036 5.754 1.718 42,6
28 17.04.79 36.018 3.856 5.919 2.063 53,5
29 23.07.79 33.922 3.686 5.598 1.912 51,9
30 20.10.79 35.518 3.803 6.924 3.121 82,1
31 01.03.80 42.488 5.514 8.716 3.202 58,1
32 03.05.80 36.685 4.941 7.999 3.058 61,9
Samtals' 87.856 135.398 47.542 54,1
Krafa um endurskoðun álsamninga
2. Á fundi rikisstjórnar Islands hinn 9. desember sl.
voru framangreindar samanburðartölur úr opinberum
hagskýrslum og innflutningsgögnum lagðar fram og
kynntar. Áskildi ríkisstjórnin sér allan rétt i þessu efni
og samþykkti jafnframt á þessum fundi sinum, að hið
fyrsta yrðu teknar upp viðræður milli Alusuisse og
hennar varðandi þetta mál og jafnframt til endurskoð-
unar á núverandi samningum milli islenskra aðila og
Álusuisse og að þær viðræður færu fram hérlendis.Er i
þvi sambandi sérstaklega höfð i huga brýn endurskoðun
á orkuverði.
Alusuisse þar, Alusuisse hér
3. Alusuisse er einkaeigandi að Islenska álfélaginu h.f.
(ISAL) og sér þvi fyrir súráli til álbræðslu og hefur gert
svo frá upphafi (1969). Alusuisse er einnig einkaeigandi
að Swiss Aluminium Australia Ltd. (Austraswiss), en
það fyrirtæki er staðsett i Astraliu og starfrækir þar
súrálsverksmiðju i Gove i samvinnu við ástralska fyrir-
tækið. Gove Alumina Limited. Austraswiss er 70%
eignaraðili að súrálsverksmiðjunni og Gove Alumina
Ltd. 30% eignaraðili. Alusuisse kaupir súrál af þessum
aðilum og endurselur það til ISAL og hefur svo verið frá
þvi að verksmiðjan i Qnve tök til starfa 1979.
HflMrra súráftveftB)
togra ttftsaMofejatd
l.Súrába*eimi m qjjfeostnaðftrliður viðá*bræðsihj og
hefur mikiL áhtffá Sttemi hennar. bar sem I8A% en
undanþeg# isienskutn skattalögum en weiðir fram-
leiðslugjaid, sem er takmarkað við 55W hámark af
nettóhagnaði bræðslunnar og sem skal ekki vera lægra
en 35% af nettóhagnaði, hefur verðlagning súráts bein
áhrif á það framleiðsiugjald sem fyrirtækinu er skytt að
greiða til Islenska rikisins.
Upplýsingar frá Hagstofu Ástraliu
5. Aflað hefur verið upplýsinga um útflutningsverð á
súráli frá Astraliu og þá sérstaklega til íslands. Var haft
samband við stjórnvöld i Astraliu um málið, en i ljós
kom að sérstök lög i Ástraliu banna stjórnvöldum
upplýsingagjöf til þriðja aðila um útflutningsverð ein-
stakra fyrirtækja. Frá Hagstofu Astraliu reyndist hins
vegar unnt að fá staðfestar upplýsingar um heildarút-
flutning frá Astraliu til tslands, sundurliðaðar eftir
mánuðum á timabilinu júli 1972 til júni 1980, svo og
árlegt yfirlit um heildarútflutning til Islands eftir vöru-
tegundum. Þar sem það er einungis Alusuisse sem selur
súrál til Islands frá Ástraliu og annar útflutningur en
súrál er innan við 2% af heildarútflutningi til Islands var
hægt að reikna fob-verðmæti súrálsútflutningsins til
Islands eftir mánuðum fyrir allt timabilið júni 1972 til
júni 1980.
Rikisendurskoðun lagði lið
6. Með aðstoð Rikisendurskoðunar var siðan aflað
gagna um innflutningsverð á súráli til tslands. Gögn
þessi eru aðflutningsskýrslur, undirritaðar af tveimur
fulltrúum ISAL, farmbréf útgefið á Gove i Astraliu og
undirritaðaf viðkomandi skipstjórum, svo og vörureikn-
ingar, sem eru útgefnir af Alusuisse i ZUrich. A aðflutn-
ingsskýrslunum er sérstaklega tilgreint fob-verð
viðkomandi farms, þ.e.a.s. þaðverðsem ættiað vera hið
sama og skráð útflutningsverö i Ástraliu.
Fob-verð i báðum tilvikum
7. A grundvelli fyrrgreindra upplýsinga var hægt að
bera saman fob-verðmæti hvers einstaks súrálsfarms til
íslands, eins og það er skráð i útflutningshöfn við það
fob-verðmæti, sem tilgreint er i islenskum aðflutnings-
skýrslum. Mismunurinn á þessum tveimur stærðum er
verðhækkun farmsins i hafi, hækkun sem ekki verður
skýrð með flutningskostnaði, þar sem borin eru saman
samskonar verð og án flutningskostnaðar I báðum
tilvikum.
„Hækkun í hafi” mun meiri en
allar raforkugreiðslur ísal
8. Niðurstöður útreikninga gefa til kynna, að á árinu
1973 hafi útflutningsverð frá Astraliu verið nálægt
uppgefnu verði til tslands. Frá janúar 1974 hefur hins
vegar hver súrálsfarmur hækkað verulega i verði á
leiðinni til Islands. Meðaltalsaukning i hafi nemur
54,1%. Samtals er hér um að ræða mismun að upphæð
47.5 milljónir bandarikjadollarar á timabilinu. Fer hér
á eftir sundurliðun þessarar upphæðar eftir árum og til
samanburðar er sýnt, hvað ISAL hefur greitt fyrir raf-
orku á sama timabili. Hækkun Raforku-
súráls- greiöslur
verðs I hafi tSAL
Ar (þús. US») (þús. US»)
1974 .... 8.657 3.582
1975 ....7.026 3.081
1976 .. . .6.300 4.058
1977 . . . .5.253 4.920
<1978 ....5.232 5.770
1979 . . . .8.814 6.458
1980 (jan,— júni).. . . . . 6.260 3.6601)
Samtals 47.542 31.529
1) Áætlað
Staðfest af bresku
endurskoðunarfyrirtæki
9. Þessar niðurstöður hafa verið bornar undir hið
alþjóðlega endurskoðunarfyrirtæki, Coopers & Lybrand
i London, sem áður hefur verið leitað til meö endurskoð-
un á reikningum ISAL. I umsögn til iðnaðarráðuneytis-
ins hefur Coopers & Lybrand staðfest gildi þeirra heim-
ilda sem útreikningarnir byggja á og aö tölur, sem
notaðar eru, séu i samræmi við heimildirnar. Jafnframt
staðfesti endurskoðunarfyrirtækið þá reikningsaðferð
sem liggur til grundvallpr útreikningunum og tölulegar
niöurstöður þessara atbugaaa.
ló.Fyrir liggur I skýrslu Coopers ft Lybrand frá 1975,
að á árinu 1974 hafi súrálsviðskipti Alusuisse og ISAL
ekki veriö i samræmi viö ákvæði aöalsamningsins. t
framhaldi af þvi fóru fram viðræður um breytingar á
skattgreiðslum og raforkuverði. Framangreindar upp-
lýsingar og niðurstöður útreikninga gefa ótvirætt til
kynna.aðsúrálsviðskipti Alusuisse og ISAL hafa alla tiö
siöan 1974 verið sama marki brennd.
Rannsókn haldið áfram
ll.Samkvæmt ákvæðum aðalsamningsins (27.03 gr.)
ber að grundvalla útreikning nettóhagnaðar ISALS á
viðurkenndum bókhaldsreglum og samkvæmt hlutlæg-
um mælikvarða á viðskiptaháttum milli óskyldra aöila
að því er Varðar öll viöskipti ISALS. Ljóst er, aö
útflutningsverðið frá Gove i Astraliu, sem nú er upplýst,
þurfi ekki að vera á hverjum tima sama verð og fáanlegt
er i viðskiptum óskyldra aðila. Af þeim ástæðum hefur
iðnaðarráðuneytið fengið hið alþjóðlega endurskoðunar-
Miðvikudagur 17. desember 1980: ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 7
fyrirtæki, Coopers & Lybrand, til að afla frekari gagna
um súrálsverð milli óskyldra aðila og Rikisendurskoðun
til að gera endurútreikninga á framleiðslugjaldinu
1975—1979 áður en viðræður hefjast til Alusuisse. Sér-
staklega beri að skoða viðmiðun þá sem felst i meðalút-
flutningsverði frá Astraliu á þessu timabili, en þaðan er
súrál flutt til margra landa og til skyldra sem óskyldra
aöila.
Segjast nota þetta
l eigin f járfestingu!
12. I samræmi viö ákvæði aðalsamningsins kynnti
rikisstjórn tslands Alusuisse mál þetta með formlegum
hætti og gaf Alusuisse kost á, að koma á framfæri
upplýsingum og skýringum áður en málið væri kynnt
Alþingi og almenningi. Einn af varaforstjórum
Alusuisse kom til Islands i þessu skyni og voru helstu
svör hans þau, að inn i útflutningsverðin frá Astraliu
vantaði hluta af kostnaði við fjárfestingu Alusuisse þar
og að Alusuisse greiddi talsverðar fjárhæðir til fram-
leiðslufyrirtækjanna i Ástraliu á hverju ári vegna kostn-
aðarhækkana og kæmu þær fjárhæðir ekki fram í
útflutningsverðum hagskýrslnanna. Staðhæfði hann að
súrálsveröin til ISAL væru og hefðu ávallt verið i sam-
ræmi við viðskipti milli óskyldra aðila.
1 viðræðum við Alusuisse hefur iðnaöarráðuneytið
itrekað þann vilja rikisstjórnarinnar að þetta mál verði
tekið upp milli aðila hið fyrsta og að jafnframt hefjist
viðræður um endurskoðun allra samninga milli
Alusuisse og islenskra aðila. Er gert ráð fyrir, að slikar
viðræður geti hafist snemma á næsta ári.
Ríkisst jórnin óskar endurskoðunar
allra samninga við ALUSUISSE