Þjóðviljinn - 24.12.1980, Side 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN: Miðvikudagur 24. desember 1980
Miðvikudagur 24. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Skortur • vöntun • þrengsli • aðstöðuleysi
Helgi H. Jónsson fréttamaður sýnir okkur „bókasafn" fréttastofunnar sem er að finna I einskonar skáp eða smágeymslu.
-,,Sjóðir útvarpsins
brenna upp á verðbólgu-
bálinu og ekkert er að gert.
Við væntum þess að ráða-
menn sjái sóma sinn í því
að þegar verði hafist
handa um byggingu út-
varpshúss og einnig að
bætt verði úr húsnæðis-
málum stof nunarinnar
þangað til nýtt útvarpshús
rís."
Þetta sagði Klemens
Jónsson formaður Starfs-
mannafélags útvarpsins á
fundi með blaðamönnum
um daginn. ,,Vegna fjár-
skorts og aðstöðuleysis
hlýtur dagskráin að fara
síversnandi með hverju
ári," sagði Klemens. ,,Á
næsta ári verða fjárfram-
lög til dagskrárgerðar
sjónvarpsins 30—33% lægri
en á þessu ári og f járveit-
ing til dagskrárgerðar í út-
varpi minnkar um
14—15%."
Mikill rekstrarhalli
Rekstur Rikisútvarpsins hefur
verið mjög erfiður undanfarið.
Mikill rekstrarhalli varð á siðast-
liðnu ári og við lok nóvember i ár
nemur halli sjónvarps um 650
milj. kr. af tæplega 3.3 miljarða
veltu. Alian þennan halla má
rekja til fjárfestingarfram-
kvæmda, sem nær allar voru
ákveðnar árið 1979. Tekjur sjón-
varps af afnotagjöldum hafa
numið um 77%, en af auglýsing-
um 23%.
Hallarekstur hljóðvarps á sið-
asta ári var 86 milj. kr. og var
orðinn 154.6 milj. i nóvemberlok
s.l. af 2.247 miljón kr. umsetn-
ingu. Auglýsingar gefa 48.4% af
heildartekjum hljóðvarps og af-
skriftir á þessuu timabili eru 247.3
milj. Rekstrarafkomu hljóðvarps
má þvi lika lýsa þannig, að rekst-
ur skili um 93 milj. kr upp i af-
skriftir á 11 fyrstu mánuðum
þessa árs.
r.ióiiusio er svo þröngt, að varla er hægt að munda myndavél þar með góðu móti. Starfsstúlkurnar
verða aðhafa sérstaka lagni tilaðbera ef allt á aö ganga snuröulaust.
Stiklað á
stóru
1 þrengingum
afmælis-
barnsins
Skrifstofan er líka
kaffistofa
Auglýsingadeild Utvarpsins
starfar i tveimur herbergjum.
Þar starfa 6 manns og eru að
jafnaði 4 á vakt. Þá starfa 4 inn-
heimtumenn hjá auglýsingadeild
og sökum rUmleysis verður að af-
greiða þá i skrifstofu auglýsinga-
stjóra, sem jafnframt er notuð
sem kaffistofa starfsfólks. Þá er
rými fyrir viðskiptamenn af mjög
skornum skammti.
Sökum mannfæðar er vinnu-
álag mjög mikið á auglýsinga-
deild, sérstaklega fyrir jól, en
einnig er það mikiö á ýmsum öðr-
um árstimum. Auglýsingadeild
fer með það vandasama hlutverk
að gæta málfars og innihalds
auglýsinga.
Ekkert bókasafn
Bókasafn hefur Utvarpið ekk-
ert. Mikið er til af bókum, en
vegna rúmleysis er þeim pakkað
niður i kassa jafnóðum og þær
berast stofnuninni og sendar burt
i geymslu. Þegar bóka er þörf,
sem algengt er vegna dagskrár-
gerðar og frétta, verður að senda
eftir þeím i leigubil á seinustu
stundu.
?imm í glerbúrinu
Dagskrárdeild býr við þrengsli
ns og aörar deildir. Dagskrár-
jóri, aðstoðardagskrárstjóri,
ílltrUi barnaefnis og fastráðinn
jgskrárgerðarmaður hafa eigin
:rifstofur, en dagskrárfulltrUar
eru tveir i herbergi, og hafa enga
aðstöðu til einkaviðræðna við
fólk, en þeir annast efnisleit og
niðurröðun dagskrárefnis. Fjórir
starfsmenn i einu herbergi annast
daglega skýrslugerð, reikna Ut
laun þeirra sem fram koma i dag-
skrá, og sjá um Utgáfu dagskrár.
Tveir dagskrárgerðarmenn haf-
ast við i litlu glerbUri, auk þriggja
aðstoðarmanna og er þar varla
rUm fyrir tvo. 1 þessu glerbUri,
sem er varla nema fimm fer-
metrar er unnið vikulega efni
sem tekur 5 klukkustundir og 30
minUtur. Lausráðið dagskrárfólk
hefur enga aðstöðu til neinnar
vinnu. Það getur tyllt sér á örfáa
stóla á göngum og einn simi er á
gangi, sem það getur notaö, en
hvergieraðfinna afdrep,hvað þá
ritvéltilafnota. Ekkert fundaher-
bergi eða viöræðuherbergi er fyr-
ir dagskrárdeild og engin leið aö
láta menn gera tilraunaþætti, til
aðprófa hæfni þeirra. Engin mót-
taka er fyrir lesara eða aðra
flytjendur, sem dagskrárdeild
kallar til. Þeir veröa að biða á
göngum.
Hallarekstur
sjónvarps s.l. ár
650 miljónir,
hljóðvarps
86 miljónir
t þessu 5 fermetra glerbúri á 5. hæð hafa 5 starfsmenn þáttanna „Morgunpósts” og ,,A vettvangi” að-
setur. —Ljósmyndir: —gel—
Hafa ekki eigið
skrifborð
A fréttastofu starfa 15 manns.
Þar eru 12 skrifborð og kemur
fyrir að tiu kUluritvélar eru i notk
un i senn. Fréttastjóri hefur eigin
skrifstofu, en 2 fréttamenn hafa
ekki eigin skrifborð og verða þvi
að sitja við annarra manna borð.
þegar þeir eru að störfum. 1
tveimur kompum eru Utvarp,
telex, fjarritar og geymslur og
litil kaffistofa inn af stofunni.
Engin skilrUm eru i fréttastofunni
sjálfri. Mikil umferð fólks er um
fréttastofuna, bæði sendla með
margvisleg erindi og viðmælenda
i fréttum og hvergi er afdrep til
að eiga einkaviðræður við menn.
Hver sem er gengur beint inn i
miðja fréttastofuna, hvaða erinda
sem hann gengur. Fréttamenn
geta hvergi setið einir við vinnu
eða lestur og verða að semja
hvaða efni sem er i þeim hávaða
og erli, sem á fréttastofunni er.
Rými fyrir uppsláttarbækur er
mjög takmarkað og engin aðstoð
við skjalavörslu og bókavörslu.
Enginn
plötuvörður
A tónlistardeild starfa 17
manns, þegar fullráðið er i störf.
Þrengsli eru þar mikil, svo að
þegar plötugeymsluskápum er
rennt fram á gólf, til að ná i plöt-
ur, stöðvast umferð um vinnu-
stofuna. Spjaldskrá er orðin full,
þrjár manneskjur hafa ekki við
að skrá plötur og nýjar plötur
safnast i læsta skápa, þar sem ill-
mögulegt er að hafa gagn af
þeim. Plötuspilarar starfsfólks
eru svo lélegir að erfitt er að meta
hvort plötur eru flutningshæfar.
Hljómplötuvörður hefur aldrei
veriðráðinn og þviskortirmjög á
eftirlit með hljómplötum og hvar
þær eru niður komnar. Umferð
um tónlistardeild er mikil, ekki
sist af þáttagerðarfólki, sem
starfsfólk verður að veita aðstoð.
Vinnufriður er enginn, þar sem
skilrUm vantar i vinnustofu. Að-
staða aðkomufólks til að hlusta á
tónlist er i litilli loftlausri kompu,
sem einnig er notuð til kaffigerð-
ar og samskonar aðstaða er fyrir
starfsfólk til að hlusta á segul-
bönd.
Allar hillur löngu
fullar
Leiklistardeild hefur tvö her-
bergi til umráða. Annað herberg-
ið er jafnframt notað fyrir sam-
lestur á leikritum og oft kemur
fyrir að 6—8 leikarar séu þar við
æfingar samtimis. Kössum með
leikritahandritum er staflað upp
meðfram veggjum þvi allar hillur
eru löngu yfirfullar. 45—50 leikrit
berast á mánuði hverjum til yfir-
lestrar frá Utlöndum, en alls eru
flutt um 80 leikrit á ári hverju i
hljóðvarpinu.
Ingveldur Thorsteinsson stendur hér við skjalasafn auglýsingadeildar
á ganginum við auglýsingastofu útvarpsins.
litlu skrifstofuherbergi fyrir for-
stöðumann deildarinnar, en auk
þess þremur litlum herbergjum,
til viðgerða og viðhalds, fyrir
geymslur á tækjum og varahlut-
um. Eina afdrep tæknimanna er
herbergi þula, fyrir framan
þularstofu. 6 upptökuherbergi eru
i hUsinu, mismunandi stór. t öll-
um tilvikum eru stjórnklefar
mjög litlir. Það er sérlega baga-
legt, þar sem vinnsla samsettra
þátta hefur aukist mjög og
stjórnendur þeirra eru i stjórn-
klefa, frekar en i upptökuher-
bergi, en i gerð klefanna er ekki
gertráð fyrir þessu. Tækjabúnað-
ur Utvarps er að mestu 21 árs
gamall, en endingartimi slikra
tækja er talinn vera 10 ár. Hægt
er að imynda sér hvað margir
hlustendur nota nU 20 ára gamalt
Utvarpstæki. 1 einum stjórnklefa
er 7 ára gamalt hljóðborð, sem er
litið og ófullkomið, en með þvi er
þó mögulegt að senda Ut flóknari
þætti en almennt er, svo sem
Morgunpóst, A vettvangi, Viku-
lokin og fleiri. NUverandi tækni-
búnaður veldur þvi að þrátt fyrir
Utsendingar i stereo, verður mik-
ill hluti af dagskrárefni Utvarps-
ins áfram i mono, svo sem flestir
tónlistarþættir, leikrit og annað
efni, sem ekki er Utvarpað beint.
Leikarar hafa engan samastað
meðan þeir biöa eftir upptöku á
atriðum sinum og verða þá að
hirast á göngunum þar sem að-
eins eru 4—5 stólar.
Mikið af dagskránni
áfram í mono
1 tæknideild vinna 16 tækni-
menn. Deildin hefur yfir að ráða
Vonandi verður
ekki hægt að
prenta greinina
óbreytta á
hundrað ára
afmælinu
Sögulegt efni
liggur
undir skemmdum
Þannig mætti lengi þylja
þrengsla- og þrengingasögu hins
fimmtuga Utvarps. Þulir hafa t.d
áratugum saman starfað i
þröngri þularstofu. Loftræsting
hefur verið mjög slæm þar og loft
þungt. Segulbandasafn er i öðru
húsi i nágrenninu, en einnig á Ut-
varpið mikið safn af efni á göml-
um plötum og stálþráðum i
geymslu við Suðurlandsbraut.
Útvarpið hefur tekið upp marg-
vislegt efni, sem á eftir að hafa
ómetanlegt sögulegt gildi, en
sumt af þvi liggur undir skemmd-
um. Eldhús er örlitið og aðbúnað-
ur þar slikur, að kæliskápar
standa Uti á gangi.
NU er mál að harmatölum linni.
Eigi skal gráta Björn bónda held-
ur safna liði, eins og þar stendur.
Vonandi verður ekki hægt að
prenta þessa grein aftur óbreytta
i 100 ára afmæli RikisUtvarpsins
árið 2030.
Húsvörður útvarpsins situr hér I glerbúri slnu á gangi inni a augiýsingadeiid. t þessu 3ja til 4ra fermetra
húsrými geymir hann birgðir af skrifstofutækjum, ritföngum og pappir, sem þörf er fyrir dag frá degi.