Þjóðviljinn - 24.12.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 24.12.1980, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 24. desember 1980 ÞJÖDVILJINN — SIÐA 15 Jóladagur Tmkikur á aðfangadag Kl. 22,20: Úr hattabúö í leikhús Útvarpið fer að vanda i hátfðarklæðin þegar jólin ganga i garð og öllum auglýsinga- og kveðjulestrinum lýkur. A aðfangadag verður mikið um tónlist, einkum þá sem and- leg telst. Af tónleikum má nefna að kl. 11.25 verður flutt Guðs- barnaljóð, tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Kamm- ersveit undir stjórn Ragnars Björnssonar leikur, en Vilborg Dagbjartsdóttir og Atli Heimir lesa textann. Eins og allir aðdáendur Jóhannesar vita þá orti hann talsvert af barnaljóð- um og jólin voru honum einkar hugleikin eins og kvæði hans sanna. Þessi flutningur er eins konar forleikur að jólunum, en á eftir leikur Sinfóniuhljómsveit Islands jólalög i Utsetningu Jóns bórarinssonar. Klukkan 19.00 að lokinni jóla- messunni verða jólatónleikar Sinfóniuhljómsveitarinnar sem leikur blokkflautukonsert i F-dúr eftir Georg Philip Tele- mann, einleikari er Camilla Söderberg. Þá er sellókonsert i e-molf eftir Antonio Vivaldi, einleikari Pétur Þorvaldsson og loks er Sembalkonsert i d-moll eftir Bach, einleikari er Helga Ingólfsdóttir. —ki Aróra Halldórsdóttir leikkona er ein af okkar elstu og reynd- ustu leikkonum. Hún gerði garðinn einkum frægan sem gaman- og reviuleikkona á ár- um áður. Við fáum að sjá hana leika i Paradisarheimt nú um jólin, en i útvarpinu ræðir Asdis Skúla- dóttir við hana að kvöldi jóla- dags. Það er ekki að efa að Aróra hefur frá mörgu að segja af löngum leikferli og kynnum viö helstu stjörnur islenskrar leiklistar. Þátturinn hefst kl. 22.20 og nefnist: Cr hattabúð i leikhúsið. —ká Sunnudagur 28. desember ÚTVARP UM JÓLIN Kl. 19,25: Pavarotti á Listaháúð Að kvöldi jóladags gefst tón- listarunnendum tækifæri til aö rifja upp kynni sin við italska tenórsöngvarann Luciano Pavarotti sem heimsótti okkur á listahátiö sl. vor. Otvarpiö flytur hluta af tónleikum hans, en eins og þeir minnast sem á hann hlýddu ætlaði allt um kolla aö keyra af fagnaðarlátum, enda enginn venjulegur hetju- tenór á ferðinni. Sem sagt, tæki- færitilaö loka augunum, slappa af og hlýða á Pavarotti syngja. —ká Luciano Pavarotti Bach Jólaleikrit útvarpsins: Rögnvaldsson,, Kristin Bjarna- dóttir og Sigmundur örn Arngrímsson. Flutningur leiks- ins tekur 100 minutur. Tækni- maður: Friðrik Stefánsson. Leikurinn segirfrá fólki, sem flest á það sammerkt að vera að flýja eitthvað. En það notar- ólikar aðferöir við aö breiða yfir raunveruleikann. Signý, Eirfk- ur og Halldór, sem fór i sigling- ar og flakk 19 ára gamall, eru buröarásar verksins. Þó má segja, að það sé innri barátta Signýjar, konu Eiriks, sem leik- urinn fjallar um. Maður hennar fyrirlitur hversdagslega vinnu. Halldór er skáldið, sem sér hlut- ina i viðara samhengi, og Signý sveiflast á milli þeirra. tsiðasta þættinum 28. desember kemur Gunnar Kvaran i heimsókn og verða leikin jóialög á pianóog selló. — Við sýnum þar, aö hægt er að nota hljóðfærin á ýmsa vegu og öðruvísi en venjulega, sagði Karólina Þjóðviljanum, t.d. beita boganum á allt annan hátt og spila á strengina inni i pianóinu. Atli Helmir Kl. 10,25: Út og suður með Birni Þorsteins- syni A sunnudagsmorgnum er i Ut- varpinu þáttur er nefnist út og suður. Friðrik Páil Jónsson fréttamaður fær ýmsa menn til að koma og segja frá ferðalög- um sem þeir hafa fariiV ýmist nýlegaeða fyrir nokkrum árum. Sunnudaginn 28. des kemur prófessor Björn Þorsteinsson ^ sagnfræðingur i heimsókn og segir frá ferð er hann fór um Rinarslóðir i október 1958. Þá var hann að leita heimilda um Marcellus Skálholtsbiskup, sem flæktist í erindum páfans hingað uppog varð biskuphér. Björn er manna fróðastur og hressastur sögumaður og ekki að efa að margt hefur vakið athygli hans þar syðra. Er öllum hér með ráðlagt aö rifa sig upp fyrir kl. 10.25 og skrúfa frá radíóinu. Björn Þorsteinsson Abrakadabra Sjóleiðin til Bagdad Annan jóladag, 26. desember kl. 20.15 verður flutt leikritið „Sjóleiðin til Bagdad” eftir Jök- ul Jakobsson. Leikstjóri er Sveinn Einarsson og fiytur hann jafnframt formála að leiknum. Með helstu hlutverk fara Jóhanna Noröfjörð, Hjalti Jökull Jakobsson Vivaldi Aðfangadagur Annar jóladagur Jólí koti Böðvar Guðmundsson verður með þátt á annan daga jóla kl. 14.00 sem hann kallar ,,Jól i Koti”. Þar verður rætt við rit- höfundana Tryggva Emilsson og Vilborgu Dagbjartsdóttur, en Silja Aðalsteinsdóttir og Þor- leifur Ilauksson lesa upp úr ýmsum verkum, auk þess sem Siguröur A. Magnússon les úr eigin verkum. t bók Tryggva Emilssonar Baráttunni um brauðið er káfli sem fjallar um jólin eins og þau gerðust á heimili hjónanna sem seinna urðu tengdaforeldrar hans. Þar segir hann nákvæm- lega frá þvi hvað haft var til matar, kökunum sem bakaðar voru og hvernig hátiðinni var háttað þar á heimilinu. Þessi frásögn Tryggva á eflaust eftir að verða merkileg heimild um lifið i sveitum ny ðra, eins og þau voru haldin, þegar efnin voru af skornum skammti en allir reyndu aðgera sem mestan mat úr þvi sem til var. Þá er einnig kafli «i‘- bók Sigurðar A. Magnússonar(Undir kalstjörnu, um jólin, sem «egir okkur hvað minningarnar geta oröið sárar þegar barn horfir upp á hörmungar fátæktar og drykkjuskapar. Böðvar tinir til eitt og annað sem tengist jólunum eins og þau voru áður en auglýsingar og kaupæði tóku völdin. —ká Tryggvi Emilsson og Silja Aðalsteinsdóttir Vilborg Dagbjartsdóttir Böðvar Guðmundsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.