Þjóðviljinn - 24.12.1980, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. desember 1980
Sunnudagur 28. desember
Jóladagur
Sjónvarp um jólin
Kl. 21,55:
Hver er hrœddur við
Virginiu Woolf?
„Paradísarheimf’
A jóiadag veröur frumsýndur
fyrsti hluti sjónvarpskvik-
myndarinnar Paradisarheimt-
ar, sem gerð er eftir sögu Hall-
dórs l.axness. Það er Rolf
HSdrich sem. stjórnaði upptök-
unni og gerði handritið, en við
sögu koma margir ieikarar bæði
óreyndir og reyndir i kvik-
myndalist.
Myndin segir frá ævi Steinars
bónda i Hliðum undir Steinahlið,
dóttur hans Steinu og konu hans.
Steinar bóndi lagði land undir
fót fór til Danmerkur að hitta
vin sinn kónginn og hestinn
Krapa sem hann færði konungi
að gjöf á Þjóðhátiðinni á Þing-
völlum 1874. Siðan leggst
Steinar i ferðalög i leit að Para-
dis á jörðu sem hann heldur
vera vestur i Utahriki 1 Banda-
rikjunum. Þann fróðleik hefur
hann frá Þjóðreki biskupi sem
kominn var til Islands til að
boða trú mormóna, en var bara
laminn.
Myndin gerist á tslandi aö
stórum hluta, en einnig vestur i
Utah,i Danmörku og Skotlandi,
auk þess sem lýst er för vestur-
fara yfir Atlantshafið.
Sýning fyrsta hlutans hefst kl.
20.35, annar hlutinn verður
sýndur sunnudaginn 28. des. og
hinn þriðji á nýjársdag kl. 20.25.
Kl. 21,35:
Að kvöldi aöfangadags jóla verða tónleikar f sjónvarpssal. Þar leika Camilia Söderberg og Snorri örn
Snorrason á blokkflautu og lútu, en Agústa Agústsdóttir syngur. Þau flytja lög frá fimmtándu,
sextándu og sautjándu öld. Frá vinstri Camilla, Agústa og Snorri örn.
Richard Burton leikur prófessorinn i myndinni Hver cr
hræddur við Virginu Woolf?. Þar sem hjónabandið er sýnt á
heldur nöturlegan hátt.
Kvikmy ndin,,H ver er
hræddur við Virginu Woolf?”
verður á dagskrá sjónvarpsins
laugardagskvöldið 27. des.
Mynd þessi er gerð eftir leik-
riti Edwards Albees,en það var
sýnt hér i Þjóðleikhúsinu tyrir
alUmörgum árum. Það eru þau
Elisabeth Taylor og Richard
Burton sem leika hjónin sem
orðin eru hundleið hvort á öðru
og rífast eins og hundar og
kettir. Nöpur lýsing á hjóna-
bandinu, en þau Taylor og
Burton fara á kostum. Ef við
munum rétt hér þá var myndin
mjög orðuð við Oskarsverð-
launin á sinum tima, en hún var
gerð árið 1966. Leikstjóri er
Mike Nichols, sem bæði hefur
fengist við leikritagerð, og leik-
stjórn á sviði og i kvikmyndum.
Kl. 20,35:
Morðið í
Austur-
landa-
hrað-
lestinni
A annan dag jóla veröur þaö
sjálf Agata Christie sem endar
dagskrá sjónvarpsins $>á verður
sýnd kvikmyndin „Moröiö i
Austurlandahraðlestinni” sem
gerð var eftir sögu hennar.
Þar segir frá dularfullum at-
burðum sem eiga sér stað og
þaö kemur i hlut hins snjaila
Hercule Poirot að leysa gátuna.
Hann er ein frægasta söguper-
sóna Agata Christie, franskur-
Leynilögreglumaðurinn snjalli Hercule Poirot á tali viö ein farþeg-
anna i Austurlandahraðlestinni.Alberí Finney og Rachel Roberts i
hlutverkum sinum.
leynilögreglumaður sem notar
heilann og athyglisgáfuna við
lausn hinna fióknustu mála.
í einum vagni Austurlanda-
hraölestarinnar er maður
myrtur en i lestin er full af fólki,
flestu riku en um leið dularfullu
sem gæti átt hlut að morðinu.
Fjöldi þekktra leikara kemur
fram, þar má nefna Albert
Finney, Ingrid Bergmann, Van-
essa Redgrave, Sean Connery
o.fl. Það er óhætt að mæia með
myndinni sem góðri afþreyingu;
hún er bæði spennandi og vel
gerö af Sidney Lumet.
Úr teiknimyndinni um Oliver Twist
Kl. 18,10=
Teiknimynd um
Oliver Twist
Börnin fá sinn skammt i jóla-
dagskrám útvarps og sjón-
varps. Stundin okkar er á dag-
skrá á jóladag kl. 18.00, þar sem
jólasveinarnir munu skemmta
og gengið verður i kringum
jólatré.
Sunnudaginn 28. des. verður
sýnd teiknimynd um Oliver
Twist, byggð á sögu Charles
Dickens. Það má minna á að
seinna i vetur verður Oliver
settur á svið i Þjóðleikhúsinu.
Sagan um Oliver segir frá litl-
um strák sem elst upp við illan
kost á munaöarleysingjahæli.
Þar gerist hann svo djarfur aö
biðja um meiri mat, en er harð-
lega refsað fyrir svoleiðis
frekju. Hann leggur út i hinn
stóra heim og lendir þar i ýmsu
m.a. kynnist hann þjófum i
Lundönaborg. Að lokum leysist
vandi Olivers, en sjón er sögu
rikari.
—ká
Annar jóladagur