Þjóðviljinn - 10.01.1981, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 10.01.1981, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 10. — 11. janúar 1981. STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI EINAR KARL HARALDSSON skrifar Tíundi hver maður er fatlaður ALÞJÓÐAÁR FATLAÐRA OG SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Aðlögun að þörfum fatlaðra Viö eigum öll á hættu a& fatlast af einhverjum orsökum, og deila tlmabundiö eöa varanlega kjör- um meö þeim sem ekki geta á fullkominn hátt tekiö þátt i þjóölifinu og notiö jafnréttis á viö aöra. Af eigingjörnum hvötum einum saman er Aþjóöaár fatl- aöra þvi engum óviökomandi. Miklu fleiri ástæöur eru þess þó fremur valdandi aö málefni fatl- aöra eru meöal brýnustu þjóö- félagsverkefna. Sá sem þetta rit- ar átti þess kost i nóvember sl. aö hlýöa á umræöur um Alþjóöaár fatlaöra á þingi Sameinuöu þjóöanna i New York, og gafst þá tóm til þess aö átta sig til nokk- urrar hlitar á þvi hve stórbrotin vandamál en jafnframt heillandi viöfangsefni viö er að glima. Hvert alþjóöaáriö, sem helgað er tilteknu málefni, hefur rekiö annað vegna ákvaröana Samein- uöu þjóöanna á siðasta áratug. Undirbúningur þeirra hefur reynst ákaflega umsvifamikill og talin hætta á aö sú samstilling kraftanna á ákveönu sviöi sem aö er stefnt heppnist ekki, ef alþjóöaárin koma hvert af ööru um langa hriö. Til aö mynda hef- ur veriö horfiö aö þvi ráöi aö fjalla sérstaklega um málefni aldraöra á alþjóöaráöstefnu áriö 1982, sem undirbúin veröur meö mörgum svæöa- og efnisflokka- ráöstefnum um allan heim. Þar er farin önnur leiö aö svipuöu marki og alþjóöaárunum hefur veriö sett. Sameinuöu þjóöirnar, stofnanir þeirra og þing, gegna þýöingar- miklu upplýsinga- og samræm- ingarhlutverki. Frá þvi aö ákvöröun var tekin um Alþjóöaár fatlaöra og samþykkt Yfirlýsing um réttindi fatlaöra á fundi Allsherjarþingsins 9. desember 1975 hafa skrifstofa og ráögjafa- nefnd alþjóðaársins i Vin unniö mikiö starf, auk þess sem stofn- anir Sameinuöu þjóöanna hafa miölaö af þekkingu sinni og reynslu I undirbúningsstarfinu. Sér i lagi trúi ég aö ýmsar skil- greiningar á viöfangsefninu svo og samræming á aðferöum til þess aö gripa á þvi séu árangur sem pappirshetjur Sameinuöu þjóöanna geti eignaö sér aö nokkru. Aö minnsta kosti eru samtökin vettvangur til þess aö koma á framfæri nytsömum gögnum viö hverja þá þjóö sem á annaö borö vill sinna málum fatl- aöra. Góð frammistaða r á Islandi Eftir þvi sem aöstaöa var til samanburöar mátti ráöa aö sam- tök fatlaöra og opinberir aöilar á íslandi hefðu staöiö sig vel á alþjóöavísu hvaö alla kynningu, undirbúning og eftirrekstur varö- ar. Þeim hefur oröið nokkuö ágengt i þvi ætlunarverki sinu aö gera alþjóöaár fatlaðra aö tima framkvæmda meöan ýmsar aör- ar þjóöir hafa varla náö svo langt aö skipa framkvæmda- nefndir og hefja undirbúnings- starf. 011 efni eru til þess aö áöur en komiö alþjóöaár liöur hafi verið sett heildarlöggjöf um Kurt Waldheim, aöalritari Sameinuöu þjóöanna, sést hér á tali viö fulltrúa úr hópi fatlaöra frú Adamson (I hjólastól). Meö þeim á myndinni er fyrir miöju Z.L.N ’Kanza, en til máls hennar er vitnað I greininni, og Ripert einn af aðstoðarframkvæmdastjórum Sameinuöu þjóöanna. Hugsið um mig sem manneskju! Þú horfir á mig með meðaumkun, hluttekningu eða kæruleysi, því ég er þroskaheft barn en þú sérð mig aðeins utanfrá. Gæti ég sagt hug minn mundirðu vita hvernig ég er hið innra. Ég er ósköp líkur þér. Ég finn til sársauka og hungurs. Ég get ekki beðið kurteislega um glas af vatni, en brennandi þorsta þekki ég vel. Ég er sjálfstæðari þegar farið er með mig eins og stóran dreng. Ég vil ekki samúð ykkar. Ég vil að þið virðið það sem ég get gert. Ég er seinn, og margt sem ykkur er sjálf sagt er mér erf itt, Gæti ég lært með mínum hraða og samt hlotið viðurkenningu, þá get ég fallið að veröld þar sem seinvirkni er grunsamleg. Hugsið um mig sem manneskju sem særir, elskar og gleðst. Og vitið að ég er barn sem þarf að örva og leiðbeina. Brosiðog kinkið kolli —janfvel það eitter nóg. Rita Dranginess. Almennur skilningur og samstöðu- kennd forsenda árangurs málefni fatlaöra, átak verið gert i slysavörnum og fræöslustarfi, og aö vaxandi framlög til úrbóta i umönnun þroskaheftra veröi far- in aö skila sér i verki, svo nokkur atriöi séu nefnd. t þvi starfi sem unniö hefur veriö i aöfara alþjóöaársins hér á landi má viöa sjá merki um undirbúning Sameinuöu þjóöanna. Hér er m.a. stuöst viö þær skilgreiningar á fötlun sem mótast hafa á sföustu árum. Þær eru afar víöfeömar og um leið vægöarlausar i garö allra viötek- inna fordóma. S.L.N’Kanza framkvæmdastjóri skrifstofu alþjóöaárs fatlaöra i Vin sagöi m.a. um þetta aö meginvanda- máliö sem vinna þyrfti aö lausn á 1981 væri ekki tilvist fatlaöra, heldur sú örorka sem þjóöfélög allra geröa neyddu upp á þá. Sú hugsun kemur einnig fram I skil- greiningu Alþjóöa heilbrigöis- málastofnunar, sem gerir greinarmun á atgervissköddun, fötlun og örorku. Skeröing á at- gervi, likamlegu eöa andlegu, leiöir til fötlunar, en örorkan táknar félagslegar afleiöingar hennar. örorkan og stig hennar er háö þvi i hverskonar umhverfi sjúkdómur eöa fötlun kemur fyrir. Astæöur af félagslegum, efnahagslegum og menningarleg- um toga leggja steina i götu hins fatlaöa, koma i veg fyrir fulla þátttöku hans i þjóölifinu og svipta hann jafnrétti á viö aöra. Þaö sem skiptir sköpum er þvi ekki fötlunin, heldur þaö aö hafa vald á umhverfinu og aöferöum til þess aö meðhöndla hana. Hvers vegna örorka? I máli Kanza framkvæmda- stjóra kom fram aö ekki veröur um raunverulega aölögun þjóöfélagsins aö fötlun aö ræöa fyrr en fólk almennt hefur brotiö af sér viöjar óttans viö þaö sem er ööruvisi, og kastaö fyrir róöa bannoröum og barnaskap sem heldur lifi I fordómum og ein- angrar hluta heildarinnar. Félagsleg endurhæfing fatlaöra hefst ekki I alvöru fyrr en aö tek- ist hefur á róttækan hátt aö breyta almennri afstööu og hegöun gagnvart fötluöu fólki. ,,Þá og ekki fyrr veröum viö loks hætt aö skapa þessum konum og körlum örorku, hvort sem fötl- un þeirra er af likamlegum eöa andlegum toga”,sagöi frú Kanza Hversvegna rekur „eölilegur” maöur fyrst og fremst augun i fötlunina? Af hverju sér hann ekki hæfileikana, snilldina, dulda eiginleika sem biöa þess aö hlúö sé aö þeim og þeir ræktaöir? Þannig er spurt og ýmsar alþjóöastofnanir hafa kafaö i þann fordómapytt sem fatlaöir kynnast daglega. Alþjóöavinnu- málastofnunin hefur til að mynda sent frá sér skýrslu um starfs- hæfni fatlaös verkafólks, sem kollvarpar mörgum sleggju- dómnum og hégiljum. Þar segir m.a.: Niðurstöður ILO „Fatlaöir leysa af hendi vissar tegundir vinnu á árangursríkari hátt en fullfært verkafólk, þetta á viö um þann blinda I vissum greinum heilbrigöisþjónustu „svo sem nuddi, um hinn heyrnar- lausa, sem getur unniö gott starf I hávaöasömu umhverfi, og um hinn þroskahefta, sem lætur vel aö starfa viö einföld og einhæf störf. Úr mörgum starfshæfnis- skýrslum um fatlaö verkafólk eru fyrir hendi sannanir um aö afkastageta þess sé yfir meöal- lagi. Astæöurnar eru einkum raktar til betri ástundunar en almennt gerist, sérlega góöra einbeitingarhæfileika, einstakrar trúmennsku og innilegs stolts yfir þvl aö veröa vel ágengt viö vinnu sina.” A grundvelli rannsókna sem þessara má gera fordómunum skömm til og niöurstööur þeirra benda eindregiö til þess aö þaö sé þjóöhagsleg nauösyn aö skikka atvinnurekendur til þess aö hafa jafnan i vinnu ákveöiö hlutfall fatlaöra, svo fremi aö hægt sé aö finna og aölaga störf viö þeirra hæfi. Það er einfaldara og kostn- aöarminna en flestir hafa leitt hugann að. Og umfram allt vinnst mikiö viö aö gera fatlaöa virka i stað þess aö halda þeim óvirkum utangarðs. Sú staöreynd liggur semsagt fyrir aö ef endurmennt- un og endurhæfing fatlaöra er fullnægjandi og fundin eru störf sem hæfa getu þeirra, þá er framlag fatlaös einstaklings, aö ööru jöfnu, alveg sambærilegt viö þaö sem gerist hjá fullfærum verkamönnum. 300 milljónir fá enga aðstoð Dorina Nowill heitir brasilisk kona sem i 30 ár hefur helgaö sig málefnum blindra, sjálf blind, einn af forvigismönnum alþjóöa- samtaka blindra og forseti nýlegrar alþjóöaráöstefnu um vandamál þessa hóps. I ræöu sem hún flutti fyrir hönd brasilisku sendinefndarinnar hjá Samein- uöu þjóöunum minnti hún á þaö aö af þeim 450 milljónum manna i heiminum, sem eiga viö fötlun aö striöa, njóta áreiöanlega ríflega 300 milljónir engrar aöstoöar af neinu tagi. Af þvi leiöir aö meginþorri fatlaöra lifir og starfar ætiö langt undir raunverulegri getu og biöur varanlegan hnekki á sjálfsáliti sinu. Vandi fatlaöra hér á landi er margvislegur og getur veriö æriö hrikalegur fyrir einstaklingana. En þó eru ástæöur fatlaöra ömur- legastar viöa i þróunarlöndinum og þó sérstaklega i strjáíbýlum sveitahéruöum. Stofnanir Sameinuöu þjóðanna hyggja sér- staklega aö þessum vandamálum hver á sinu sviöi og þar eru fyrir- býggjandi aðgeröir i fyrirrúmi. Hungur, þorsti, einhæf fæöa, ónógt hreinlæti og skortur á ónæmisaögerðum eru viöa meöal rikustu ástæðna til varanlegrar fötlunar. A alþjóöavisu hljóta fyrirbyggjandi aðgeröir aö vera forgangsverkefni. 1 ræöu Dorina Novill kom m.a. fram aö hægt er aö fyrirbyggja eöa lækna 50% til- fella af blindu eöa sjónskeröingu, en I heiminum eru nú um 42 milljónir manna blindir. í sinum hjólastóli talaði á fundi félagsmálanefndar Sameinuöu þjóöanna danski dómarinn H. Kallehauge og mælti fyrir munn Noröurlanda allra um afstööu þeirra til alþjóöaárs fatlaöra. Hann talaöi snjallt mál og ræddi meöal annars um nauösyn fyrir- byggjandi aögeröa sem fælust sérstaklega I þvi á Noröurlöndum aö stemma stigu viö slysum i umferö og atvinnulifi. En hann

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.