Þjóðviljinn - 07.03.1981, Side 4

Þjóðviljinn - 07.03.1981, Side 4
4 SÍÐÁ'—'ÞJÖÐVILJINN ' Helgih 7.-8. mars, 1981. KJARTAN ÓLAFSSON STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI i?; skrifar Hvað var sagt um áramót? — Hvað hefur verið gert? Engin verkföll — 76 samningar SÆasta hálfa áriö eða svo hefur annríki veriö mikiö hjá mörgum þeim sem vinna að gerö kjara- samninga launafólks. En nú í vikunni greindi Guö- laugur Þorvaldsson rikissátta- semjari frá þvi aö búið væri aö ljúka gerö allra þeirra kjara- samninga, sem embætti hans hefur haft til umfjöllunar. Sam- tais höfðu 76 samningamál verið til úrlausnar hjá embætti rikis- sáttasemjara á árinu 1980 og það sem af er þessu ári. — Nú hefur friðsamleg lausn fundist á þeim öllum. Það er ástæöa tii aö fagna þeim málalyktum, enda þótt menn séu aö sjálfsögöu misjafnlega ánægðir með sinn hlut og mikið vanti á aö öllu réttlæti hafi verið fullnægt. Ekki eru ýkja mörg ár liöin siöan meiriháttar verkföll voru tið á landi hér, og ísland i hópi þeirra ríkja þar sem hvaö fiestir vinnudagar töpuöust vegna verk- falla, væri tekiö mið af fjölda verkfærra manna. Nú virðist breyting á orðin i þessum efnum, hversu langæ sem hún reynist, og siöustu 2—3 árin munu þeir vinnudagar örfáir, sem tapast hafa vegna verkfalla. Flestum mun þetta fagnaðar- efni og auðvitað hefur verkfalls- vopnið ætið verið neyðarúrræði, sem verkaiýðshreyfingin beitir þvi aöeins að öll sund reynist lokuð. Fullyröingar um að lág- launafólk fari út I fórnfrekar verkfallsaðgeröir I þvi skyni helst að svala sér á pólitiskum and- stæðingum hafa ætið verið og eru þjóðlygi. Það getur hins vegar stundum verið erfitt matsatriði, hvort beiting hins dýrmæta verkfalls- vopns sé likleg til að leiða til meiri árangurs, heldur en samn- ingar án verkfalla. Hvað sem öðru lfður, þá hefur það i nær öllum tilvikum verið mat samn- ingamanna verklýðssamtakanna nú, að friðsamlegir samningar færðu aö þessu sinni ekki lakari árangur en náðst hefði með verk- föllum. A þetta mat hefur fólkið i verkalýðsfélögunum fallist. Þess vegna engin verkföll þessi árin. En þött verkfallsvopnið sé geymt, þá er þaö ekki gleymt, — og verkalýðshreyfingin verður að verareiðubúintil að draga þaðúr sliðrum hvenær sem aðstæður i kjaramálum láglaunafólks gera beitingu þess aö óhjákvæmilegri nauðsyn. Þar má spurningin um þessa eða hina rikisstjórn aldreii ráða matinu ein sér heldur skýr yfirsýn yfir alla vigstöðu verka- lýösstéttarinnar. Við skulum hins vegar vona, að landsstjórnin beri gæfu til að stýra málum með þeim hætti á næstu árum, að verkafólk og samtök þess geti unað viö þau úrslit i kjaramálum sem fáanleg eru án meiriháttar verkfalla. Orð og efndir Nú er liðið nokkuð á þriöja mánuð siðan rikisstjórnin kynnti áramótaáætlun sina um ýmsa þætti efnahagsmála. — Fróölegt er að virða fyrir sér hvernig til' hefur tekist á þessum tima. Eins og menn muna voru það þrjú meginmarkmiö, sem lögð var áhersla á i boðskap rikis- stjórnarinnar á gamlársdag. f fyrsta lagi að efla atvinnulifið og tryggja öllum landsmönnum næga atvinnu. I öðru lagi að draga svo úr hraða verðbólgunnar, að hún lækki i um 40% á árinu 1981. I þriðja lagi að tryggja kaup- mátt launafólks. Litum nú á nokkur atriði, sem að þessum markmiðum áttu að stuðla og hvernig málin standa: Fast gengi Boðað var að gengi krónunnar yrði sett fast um nokkurra mánaöa skeiö i þvi skyni að hamla gegn verðbólgu. — Við þetta hefur verið staðið aö fullu og er meðalgengi krónunnar gagnvart erlendum myntum nú hið sama og var um áramót, enda þótt nokkur breyting hafi orðið á gengisskráningu einstakra gjald- miðla, sumra til hækkunar ann- arra til lækkunar. Að þessu sinni tókst að ákveöa fiskverð fram til 1. júni n.k. án þess að sú ákvöröun eitt höfuðmarkmið efnahags- stefnu rikisstjórnarinnar. Fyrir liggur, að með bráða- birgðalögunum sem sett voru um áramót voru verðbætur á laun nú þann 1. mars skornar niður um 7 vísitölustig. En samkvæmt boð- skap rikisstjórnarinnar á fólk með miðlungstekjur og lægri hins vegar að fá fullar bætur fyrir, — þanníg að kaupmáttur ráð- stöfunartekna verði yfir árið sem heildsa sami og orðið hefði sam- kvæmt kjarasamningum en án allra efnahagsráöstafana. Við þetta verður að standa, og það er lfka meiningin. Þriðjungi minni verðbólga Það var mat allra sem til þekktu, að án viðnámsaðgerða hefði verðbólgan farið i 70—80% á Alþýöusambandsmenn á fundi meö Svavari Gestssyni, félagsmáiaráö- herra leiddi til gengisfalls á islensku krónunni, sem oft hefur borið við á undanförnum árum. Hert verðstöðvun Boöuö var hert veröstöövun til 1. mai. — Á þeim vigstöðvum hefur árangur oröið verulegur, enda þótt of snemmt sé að dæma hversu varanlegur sá árangur verður. Hvað sem öðru liður ætti hann aö gefa viðspyrnu fyrir framhaldið. A árunum 1979 og 1980 hækkaði framfærslukostnaður um nálægt 60% hvort ár um sig frá upphafi til loka árs, þó heldur minna sið- ara árið. Rikisstjórnin boðar sem mark- mið að draga úr verðbólgunni um fullan þriðjung strax á þessu ári og koma henni niður i 40% nú á árinu 1981. Enn liggur ekki fyrir hverjar verðhækkanir hafa oröið siðan hin herta verðstöðvun gekk i gildi, nema fyrsta mánuðinn, janúar. í þeim mánuði hækkaði verðlag langtum minna en næstu mánuöi á undan, eða aðeins um 1,62%, sem þýðir miðað við sama verðbolguhraða 21,3% hækkun yfir árið. Auðvitað verður ekki hægt að halda uppi svo strangri verðstöðvun árið út. Hitt segir meira, að spá Hagstofunnar um verðlagsþróun fyrstu 4 mánuði ársins gerir ráð fyrir verðbólgu- hraöa á því tímabili i heild sem samsvarar 35% verðbólgu á ári. — Standist þetta ætti að vera góð von tilþess að halda verðbólgunni innan við 50% mörkin yfir áriö og jafnvel að nálgast 40%-in, sem rikisstjórnin hefur sett sér aö"' markmiði. Trygging kaupmáttar En hér kemur fyrir litið að þrýsta verðbólgunni niður, nema um leið sé hægt að tryggja kaup- mátt umsaminna launa, sem er árinu 1981, og þannig hækkað enn verulega frá siðasta ári I stað þess að þokast niður fyrir 50%, svo sem nú má reikna með. Þetta atriði eitt — minni verðbólga sem þessu nemur — samsvarar að dómi Þjóðhagsstofnunar um 2% kauphækkun fyrir verkafólk, vegna þess að veröbæturnar á launin eru aðeins greiddar á þriggja mánaða fresti, og fólk verður þvi að biða vikum og mánuðum saman eftir þvi, aö fá hækkanir á vöru og þjónustu bættar I kaupi. Sú bið verður þvi' dýrari þeim mun meiri sem verð- bólgan er. Hagstæðasta verðbótakerfið í öðru lagi hefur verið ákveðið, að frá 1. júni 1981 og til 1. mars 1982, þá verði verðbætur á laun greiddar að fullu samkvæmt hækkun framfærsluvisitölu, án nokkurrar skerðingar. Þarna er um að ræða mun hagstæðara verðbótakerfi fyrir launafólk en áður hefur verið i boði. Þannig hefðu laun verið um 16% hærri um siðustu áramót en þau voru i reynd, ef verðbætur hefðu næstu 18 mánuði á undan verið greiddar samkvæmt þessu nýja kerfi i stað þess kerfis sem hér hefur gilt undanfarin tvö ár. — Og af þess- ari 16% skerðingu sem fyrir lá um siðustu áramót, voru aðeins rúm 6% til komin vegna versnandi viðskiptakjara. Vafalaust mun þessi mikla breyting á verðbótagreiðslum á launin færa launafólki siðar á þessu ári umtalsverðan ávinning. Enginn veitnú nákvæmlega hvað sá ávinningur verður mikill, — þaö fer m.a. eftir þróun við- skiptakjara og ýmissi verðlags- þróun. Skattalækkun Siðan er það sú lækkun skatta á miðlungstekjum og lægri, sem lýst var yfir I áramótaboðskap rikisstjórnarinnar og þá sam- svarandi hækkun ráöstöfunar- tekna heimilanna. Þessi skatta- ladikun átti að samsvara 1,5% hækkun launa. 1 sambandi við skattalækkun- ina hefur rikisstjórnin haft fullt samráð við forystumenn Alþýðu- sambandsins, en meðal þeirra fulltrúa Alþýðusambandsins sem áttu viðræður við fjármálaráð- herra um þessi efni voru Asmundur Stefánsson, forseti A.S.Í., Björn Þórhallsson, vara- forseti A.S.I. og Jón Helgason, formaöur Einingar á Akureyri. Akveðið var að fella með öllu niður sjúkratryggingagjald af öllum tekjum siðasta árs innan viö 6.750.000,- gamlar krónur. Þá hefur einnig i öllum höfuðatriðum verið gengið frá hækkun persónu- afsláttar og breytingum á skatt- stigum, — allt með fullu sam- komulagi við þá fulltrúa verka- lýðshreyfingarinnar, sem af Alþýðusambandsins hálfu tóku þátt i mótun ákvarðana um þessi efni. Sem dæmi um mat forystu- manna verkalýðshreyfingarinnar á niðurstöðum, hvað skattamálin varðar, skal hér vitnað til um- mæla Björns Þórhallssonar, ‘varaforseta A.S.Í. i blaðaviðtali þann 26. febrúar s.l., en hann segir þar: „Ef þetta kemur til fram- kvæmda eins og okkur var kynnt þetta mál, þá sé ég ekki betur en að staðið sé við það ákvæði i efna- hagsáætlun rikisstjórnarinnar um áramótin að skattar verði lækkaðir um sem svarar 1,5% i kaupmætti lægri — og meðal- launa”. Vegna málflutnings sumra stjórnarandstæðinga er rétt að taka fram að hér er að sjálfsögðu miðað við lækkun skatta frá þvi sem orðið hefði með sams konar skattlagningu og i fyrra á sömu rauntekjur. Viðleitni til launajöfnunar Þau þrjú atriði, sem hér hafa verið nefnd — minni verðbólga, hagstæðara verðbótakerfi og lækkun skatta fara væntanlega langt með að duga til að tryggja það markmið rikisstjórnarinnar að kaupmáttur meðaltekna og lægri rýrni ekki yfir árið i heild, frá þvf sem verið hefði án að- gerða, — þrátt fyrir 7-stiga skerð- inguna þann 1. mars. Vanti þar eitthvað upp á má finna ráð til að bæta úr þvi. En hér skal skýrt tekið fram, að rikisstjórnin hefur i launamálum aðeins sett sér það markmið á þessu ári að verja kaupmátt meðaltekna og lægri. Þannig munu hin gömlu skerð- ingarákvæði í sambandi við verð- bætur á laun virka áfram hjá þeim sem fyrir sina dagvinnu fá hærra kaup en tvöföld lágmarks- laun verkamanna, og þeir sem hafa tekjur fyrir ofan meðallag munu engra skattalækkana njóta. — Þetta er að sjálfsögðu i sam- ræmi við þá launajöfnunarstefnu, sem Alþýðubandalagið hefur lengi barist fyrir, og rikisstjórnin hefur reyntað koma fram i kjara- samningum á siðasta ári, — en kjaradómur reynt að brjóta niður. En litum á örfá atriði i viðbót úr áramótaboðskap rikisstjórnar- innar og skoðum hvernig horfir um þau. Verðtryggt sparifé Boðað var, að nú skyldi fólki gefinn kostur á að leggja sparifé sitt inn á fullverðtryggða banka- reikninga gegn aðeins 6 mánaða bindingu fjárins. — Við þetta hefur nú verið staðið. Eitt hið versta sem fylgt hefur verðbólg- unni á undanförnum árum er það hvernig sparifé almennings hefur brunnið upp i eldi verðbólgunnar og orðið bókstaflega að engu á skömmum tima. Fjáraflamenn hafa hins vegar kunnað að koma sinum fjármunum fyrir i eignum sem halda gildi sinu i verðbóigu- bálinu. Og hvers kyns verðbólgu- brask hefur blómstrað af þessum ástæðum. Opnun 6 mánaða verð- tryggðra innlánsreikninga var þarft skref i verðbólgubaráttunni. Boðuð var almenn vaxtalækkun frá 1. mars. — Hún varð að visu ekki stór i sniðum, en þó voru vextir lækkaðir, t.d. lækkuðu út- lánsvextir af vaxtaaukalánum bankanna um 2,4%. — En auð- vitað var þvi aðeins hægt að verð- tryggja sparifé með þeim hætti sem gert hefur verið og lækka út- lánsvexti á sama tfma, að afkoma lánastofnana var almennt mjög góð á siðasta ári, en þá nutu þær hagstæðs vaxtamismunar. Til þess að hægt verði að halda áfram á þeirri braut, sem nú hefur verið mörkuð i vaxta- málum verður m.a. að þoka verð- bólgunni niður. Lausaskuldir i föst Ián Boðað var, að húsbyggjendum sem ættu i erfiðleikum vegna lausa^kulda yrði gefinn kostur á, að fá lausaskuldum breytt i lengri lán, og þannig greitt að nokkru úr þeirra bráðasta vanda. Aö þessu máli hefur verið unnið og má vænta úrslita næstu daga. Af hálfu rikisstjórnarinnar var skipuð sérstök nefnd til að vinna að tillögugerð i þessum efnum. Sú nefnd hefur nú skilaö af sér til rikisstjórnarinnar og orðið sam-» mála um flest atriði. 1 tillögunum er gert ráð fyrir að þeir sem byggt hafa eða keypt ibúðarhúsnæði á siðustu 3—4 árum, og skulda af þeim sökum yfir tvær miljónir gamallakróna i skammtfmalánum hjá lánastofn- unum, geti átt þess kost að fá þessum skammtimalánum breytt i lengri lán til 6—10 ára með álika kjörum og nú fylgja lánum Hús- næðisstofnunar rikisins. Samráð við verka- lýðssamtökin Hér mætti sitthvað fleira þylja um orð og efndir i sambandi við áramótaboðskap rikisstjörnar- innar, og að sjálfsögðu er ýmis- legt enn ekki komið til fram- kvæmda. Siðast en ekki sist skal þó hér aðeins minnt á tölulið fimm, en þar segir: „Viðræður verði hafnar við samtök launafólks og aðra hags- munaaðila atvinnulifsins um framkvæmd samræmdrar stefnu i kjaramáluin, atvinnumálum og efnahagsmálum til næstu tveggja ára.” A öllu veltur fyrir rikisstjórn- ina, hvernig til tekst um þetta mikilvæga atriði. Hér þarf að koma skriði á málin strax, og marka vfðtæka stefnu til loka kjörtímabilsins i náinni samvinnu við verkalýðssamtökin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.