Þjóðviljinn - 19.03.1981, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN. Fimmtudagur 19. mars 1981.
SVÆÐISFUNDUR
Kaupfélögin á Suðurlandi halda svæðis-
fund með stjómarformanni og forstjóra
Sambandsins í félagsheimilinu Hvoli,
Hvolsvelli, laugardaginn 21. mars 1981
kl. 13.00 — 20.00.
Fundarefni:
1. Viðfangsefni Sambandsins.
Frummælandi: Erlendur Einarsson, for-
stjóri.
2. Samvinna kaupfélaganna og tengsl við
Sambandið.
Frummælandi: Oddur Sigurbergsson
kaupfélagsstjóri.
3. Stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar.
Frummælandi: Valur Amþórsson, stjórnar-
formaður Sambandsins.
4. Tengsl félagsmanna við kaupfélögin.
Frummælandi: Einar Þorsteinsson ráðu-
nautur.
5. Önnur mál — almennar umræður.
Féiagsmenn kaupfélaganna eru hvattir til að
koma á fundinn.
Kaupfélag Ámesinga
Kaupfélag Rangæinga
Kaupfélag Skaftfellinga
Kaupfélag Vestmannaeyja
Samtök mígrensjúklinga
halda aðalfund sinn að Hótel Heklu
Rauðarárstig 18, miðvikudaginn 25. mars
1981 kl. 20.30
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Rætt um árlegan kökubazar.
Almennar umræður.
Kaffiveitingar.
Mætum nú öll sem áhuga höfum fyrir fé-
laginuog máleínum höfuðveikra. Ræðum
málin yfir kaffibolla, að Hótel Heklu.
Stjórnin.
Árshátíð
Alliance Francaise
verður haldin i Lindarbæ föstudaginn 20.
mars kl. 19.30. Franskur matur og
skemmtiatriði. Miðasala verður i kvöld i.
Franska bókasafninu ki. 17—19 og við inn-
ganginn i Lindarbæ föstudaginn kl. 17—19.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Auglýsinga- og áskriftarsími
81333 DIOÐVIUINN
Tillaga um skelfiskvinnslu í Flatey:
Vantar þó vinnuafl,
vatn og frystihús
Nokkur umræöa varö í siðustu
viku á Alþingi um tillögu þriggja
þingmanna þess efnis aö íbúum
Flateyjar á Breiöafiröi veröi veitt
leyfi fyrir veiöum og vinnslu á
skelfiski. Leyfiö verði veitt eigi
siöar en aö hausti 1981. Flutnings-
menn eru Gunnar Pétursson,
Matthfas Bjarnason og Karvel
Pálmason. 1 umræöum kom fram
að flestskortir til veiöa pg vinnslu
á skelfisk i Flatey. Þar er ekki
frystihús, þar vantar vatn, þar
vantar vinnukraft og báturinn
þar er ekki nægilega stór til veiö-
anna.
Sighvatur Björgvinsson gerði
grein fyrir tillögunni, þvi fyrsti
flutningsmaöur er sat um skeið á
þingi fyrir Sighvat er nú horfinn
af þinginu.
Guömundur J. Guðmundsson
tók næstur til máls. Sagöist
Guðmundur telja tillöguna illa
Igrundaða og ekki heppilegustu
leiðina til aö styrkja atvinnulifið á
Breiöafjarðareyjum. Guðmundur
benti á að íbúar i Flatey væru um
16 og þar af væru vist 3 eða 4
menn er hefðu möguleika þarna á
vinnslu. Þá væri þarna 12 tonna
bátur i eigu þriggja manna og
ekki gætu þeir bæði veitt og
stundað vinnslu. Ef þessi bátur
veiddi2tonnafskelfiskiþá myndi
þurfa 20—30 manns til að hand-
vinna fiskinn.
Guömundur J. minnti á að
ekkert frystihús væri i Flatey i
vinnsluhæfu ástandi og myndi
það kosta stórfé að koma þvi i
gagnið. bá væri ekkert vatn i
Flatey til þessarar vinnslu, en
skelfiskvinnsla er ákaflega
vatnsfrek. Það vantaði þvi fólk,
vatn og frystihús á staðnum.
Guðmundur J. sagðist einnig
telja hæpið að skerða skelfisk-
kvóta Stykkishólms meiren orðið
hefði, enda væri skelfiskvinnsla
undirstaða atvinnulifs þess staðar
og atvinnuástandið ekki of gott. 1
Stykkishólmi væri auk þess búið
að koma á fót einni fullkomnustu
vinnslustöð i heimi á þessu sviöi.
Eiður Guönasontók i svipaðan
streng og Guðmundur J. og taldi
þingsjá
tillöguna ekki þrauthugsaða. I
Flatey væri nánast engin aðstaða
tilþess aðvinnaskelfisk.þar væri
ekki frystihús, þar vantaði vatn
og rafmagn auk vinnuafls.
Sagðist hann telja að vænlegra
hefði verið að leita einhverra
annarra ráða til að leysa atvinnu-
yinða eyjarinnar.
/ Matthias Bjarnason einn
/flutningsmanna sagðist ekki telja
það breyta miklu þó að sá eini
bátur er væri i Flatey fengi leyfi
til skelfiskveiða, enda þyrfti hann
ekki endilega að veiða hörpudisk,
það væru til fleiri skelfiskar en
hörpudiskur. Þá sagði hann aö
lika væri mögulegt að bora fyrir
vatni iFlatey og á meginlandinu.
Matthias sagði aö skelfisk-
veiðar og vinnsla væri aö visu
ekki eina leiðin til að efla byggð
ogstyrkja atvinnulífið iFlatey og
ef til vill mætti finna aðrar leiðir
er menn gætu orðið ásáttir um.
Steingrimur Hermannsson
sjávarútvegsráöherra sagði að
hann teldi aö smákvóti til skel-
fiskveiða myndi styrkja byggð i
Flatey, en hins vegar lægi ljóst
fyrir að ekki væru forsendur fyrir
sliku. 1 Flatey væri ekki nægi-
legt vatn, frystihúsið úr sér
gengið og fátt væri þar um fólk.
Jafnvel þótt hann myndi veita
leyfið þá myndi staðurinn ekki fá
heimild vegna hollustuhátta.
Staðurinn fullnægði ekki þeim
ströngu kröfum sem settar væru i
dag um vinnslu á skelfisk.
Steingrimur gat þess að Fram-
kvæmdastofnun væri að vinna að
byggöaáætlun fyrir Breiða-
fjarðareyjar og væri hún langt
komin. Sagðist hann hafa hreyft
þvi við starfsmenn stofnunar-
innar að þeir gerðu Uttekt á þvi
hvað gera þurfi i Flatey til þess
að þar megi vinna hörpudisk.
Karvel Páimason einn flutn-
ingsmanna ásakaði Guðmund J.
Guðmundsson fyrir að vera með
árásir á ibúa Flateyjar. Sagðist
hann telja það skyldu rikisvalds-
ins aö leggja það af mörkum
sem til þarf til að á Flatey verði
blómleg byggð. Tillaga súer hann
væri meöflutningsmaður að væri
ef til vill ekki eina leiðin til að
rétta hlut fólks þarna og sjálfsagt
væri að athuga með aðra mögu-
leika.
Vegna oröa Karvels tók
Guömundur J. aftur til máls og
sagðist hann vilja leggja áherslu
á að hann hefði alls ekki verið
með neinar árásir á ibúa i Flatey.
Hann væri hlynntur öllum skyn-
samlegum aðgerðum til að efla
byggö I Flatey. Væri eðlilegt að
gerð væri úttekt á þeim mögu-
leikum sem fyrir hendi væru likt
og Framkvæmdastofnun væri nú
að vinna að.
—Þ
Þingmenn allra flokka:
Relst verði viðbótar-
bygging fyrir Alþingi
Lögö hefur veriö fram á Aiþingi
tiilaga þess efnis aö heimkynni
þingsins veröi áfram I hinu aldar-
gamla þinghúsi og byggingum I
næsta nágrenni þess. t tiiiögunni
er ennfremur lagt til aö látin
veröi fara fram samkeppni meöal
islenskra húsameistara um
megingerö og skipulag nýrrar
byggingar á svæöinu sunnan og
vestan viö gamla Alþingishúsiö.
Þá er að lokum lagt til aö for-
setum Alþingis veröi falinn undir-
búningur þessarar samkeppni,
þar með talin skipun manna i
dómnefnd ásamt þeim.
Flutningsmenn þessarar tillögu
eru forsetar Alþingis, þeir Jón
Helgason, Sverrir Hermannsson
og Helgi Seljan.en auk þeirra er
Benedikt Gröndalflutningsmaður
tillögunnar. 1 greinargerð með
tillögunni kemur fram að núver-
andi Alþingishús sem reist var
1881 er fyrir löngu orðið of litið
fyrir starfsemi þingsins. Úr þvi
hafi að visu verið bætt með
kaupum á húsum i næsta
nágrenni, og starfi nú Alþingi i
fjórum húsum öðrum en þing-
húsjnu, þ.e. Þórshamri, Vonar-
stræti 8 og 12 og Kirkjustræti 8.
Það svæði sem lagt er til að við-
bótarbygging risi á, markast af
Templarasundi, Kirkjustræti,
Tjarnargötu og Tjörninni. I
greinargerðinni segir að ýmist
megiflytja eða rifa þau hús, sem
á þessu svæöi standa nú. Alþingi
eigi þegar flest þessi hús og
lóðirnar, nema Oddfellowhúsið.
Það hús sé rammgerð stein-
bygging, sem girði fyrir þann
kost, að nýbygging fyrir Alþingi
snúiútaðTjörninni. Niðurrif þess
á sfðara stigi gæti þó haft megin-
áhrif á skipulagshugmyndir segir
i greinargerðinni.
/
Skóverksmiðja SIS hyggst loka vegna rekstrarerfiðleika:
Stjómvöld koml tíl aðstoðar
Segja þingmenn kjördæmisins
Lögð hefur veriö fram tillaga á
Alþingi þar sem rikisstjórnin er
hvött til aö láta nú þegar fara
fram könnun á meö hvaöa hætti
hægt sé að efla og styrkja
rekstrargrundvöll skóiðnaðar og'
stuöla aö áframhaldandi rekstri
skógerðar i landinu. Flutnings-
menneru Guömundur Bjarnason,
Stefán Jónsson, Lárus Jónsson,
Árni Gunnarsson og Stefán Val-
geirsson.
I greinargerð kemur fram að
nú er aðeins ein skóverksmiöja
starfandi i iandinu það er Iðunn
erhóf starfsemi sina 1936. Þegar
starfsemin stóð með mestum
blóma unnu hjá fyrirtækinu um
120 manns, en vegna mikilla
erfiðleika i rekstri og samdráttar
iframleiðslu og sölu er starfsfólk
nú um 50 manns. Verksmiðjan
hefur verið rekin með rekstrar-
halla undanfarin ár og hefur þvi
stjórn SIS ákveðið að hætta
rekstri verksmiðjunnar á næst-
unni.
Flutaingsmenn benda á að mik-
ið af þvi' fólki er vinnur við verk-
smiðjuna er fullorðið fólk sem
unnið hefur á sama vinnustað um
árabilog eigi þvi án efa erfitt með
að fá vinnu við sitt hæfi ef starf-
seminni’verði nú hætt. Telja þeir
að hér sé um að ræða verulegt
vandamál, bæði i atvinnulegu og
félagslegu tilliti, sem stjórnvöld
verði að taka tíl athugunar, og
leita beri allra hugsanlegra leiða
til að koma i veg fyrir að iðngrein
þessi verði lögð niður.
—Þ