Þjóðviljinn - 04.04.1981, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. apríl 1981.
DAIJ rÁST i ÖLLLM VCRSLLNLM.
ÚTBOÐ
Byggingarnefnd ibúða fyrir aldraða i Nes-
kaupstað óskar eftir tilboðum í að gera
fokhelt ibúðarhús og ganga frá þvi að ut-
an.
Húsið er tvær hæðir, 464 ferm. að grunn-
fleti, alls 929 ferm og 3117 rúmm. f þvi eru
12 ibúðir auk sameiginlegs rýmis.
Verkinu skal lokið 1. júni 1982.
Útboðsgagna má vitja gegn 800 kr. skila-
íryggingu frá og með mánudeginum 6.
april á bæjarskrifstofúnni i Neskaupstað
eða hjá undirrituðum.
Tilboðum skal skila á bæjarskrifstofuna i
Neskaupstað þar sem þau verða opnuð
föstudaginn 24. april kl. 11.00.
ARKITEKTASTOFAN S.F.
Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur
Hall
Ármúli 11 Reykjavik Logi Kristjánsson
bæjarstjóri
Tónlistarskóla
Kópavogs
Fyrri vortónleikar verða haldnir laugar-
daginn 4. april kl. 2 e. hádegi i sal skólans.
Skólastjóri.
Hart
er lagt aö Alberti Guðmundssyni
um þessar mundir að stofna nýj-
an borgarmálaflokk ef ekki
landsmálaflokk og er ætlunin að
reynsluakstur fari fram i borgar-
stjórnarkosningum að ári. Þeir
sem eru að vinna i þessu eru þeir
sem vilja losna bæði við Geir
Hallgrimsson og Gunnar Thor-
oddsen úr forystu Skjálfstæðis-
flokksins og umfram allt Davið
Oddsson úr borgarmálum. Ef af
verður mun Albert Guðmundsson
skipa efsta sæti listans og Björn
Þórhallsson, varaforseti ASI,
annað sæti.
Stórtap
varð á rekstri Eimskipafélags Is-
lands á s.l. ári en það nam 2.7 mil-
jörðum gamalla króna. Velta
fyrirtækisins var um 36 miljarðar
króna. Þetta gerist þrátt fyrir
nokkra hlutabréfaaukningu. For-
vigismenn félagsins munu á aðal-
fundinum n.k. fimmtudag gefa
þær skýringar að tapið stafi af
verðbólgu, gengissigi og tregðu á
heimildum til hækkana á flutn-
ingsgjöldum.
Og
úr þvi að minnst er á gengissig
má nefna þaö að fréttir herma að
Hafskip h.f., keppinautur Eim-
skipafélagsins,hafi tapað 250 mil-
jónum króna eina nótt i desem-
bermánuði vegna gengissigs.
NÚ
hafa Flugleiöir fengið 10.2 mil-
jaröa króna af þeim 12 sem rikis-
valdið heimilaði ábyrgð fyrir.
Hitt er svo annað mál að fyrir-
tækið virðist ætla að komast upp
með að standa viö fæst af þeim
skilyrðum sem rikisstjórnin setti.
Þannig er nú útlit fyrir að rikið fái
aðeins einn mann i stjórn og nú er
hafinn mikill peningaleikur með
Arnarflug sem á skv. skilyrðun-
um að selja starfsmönnum.
Þannig er nú reynt að margfalda
verðgildi allra eigna Arnarflugs
til þess að Flugleiðir beri sem
állra mest úr býtum þegar þeirra
hlutur verður seldur — ef hann
verður þá seldur.
Þeir
Arnarflugsmenn eru nú hins veg-
ar á bólakafi i áætlunum um nýj-
ar, spennandi og skemmtilegar
flugleiðir og eru að afla sér heim-
ilda fyrir nýjum millilendingar-
og endastöðvum viða um Evrópu.
Talið er að þetta hafi i för með sér
að tslendingar geti flogið um all-
an heim á hagstæðari kjörum en
hingað til hafa fengist.
Næstu
daga er væntanlegt fyrra bindi af
bók úlfars Þormóðssonar um
Frimúrararegluna en hann hefur
setið i Dublin i vetur við lokafrá-
gang hennar. Auglýsingastofa
nokkur hér i borg var um daginn
að gera sjónvarpsauglýsingu um
bókina og var kvikmyndað fyrir
utan Frimúrarahöllina og tók sú
taka um 40 minútur. Það vakti at-
hygli kvikmyndatökumanna að
allan timann sat maður i bil
skammtfrá og fylgdist með. Bill-
inn var svartur SAAB með
númerinu R 174. Eigandinn, sem
sat þarna i bil sinum, reyndist
vera Ragnar Júliusson skóla-
stjóri og stórfrimúrari. Sam-
kvæmt heimildum skráargatsins
er Ragnar nýkjörinn i styrktar-
ráð (áður góðgerðarráð) Frimúr-
arareglunnar til ársins ‘1984.
Taugatitrings
hefur viða orðið vart vegna bókar
Úlfars sem er gefin út á kostnað
höfundar. Þannig mun hann hafa
farið fram á það við lnnkaupa-
samband bóksala að þaö dreifði
bókinni. Stjórn sambandsins er
nú með málið til athugunar en
allar likur benda til þess að farið
verði fram á ritskoðun á bókinni
áður en stjórnin fellst á dreifingu.
Samt situr enginn frimúrari i
stjórninni.
Viss
hefð er oröin á kappræðufundum
milli Heimdallar og æskulýös-
nefndar Alþýðubandalagsins og
verður einn slikur i næsta mán-
uði. Æskulýðsnefndin stakk upp á
þvi að umræðuefnið yrði stjórnar-
samstarfið en Heimdallur lagði
ekki i það og hafnaði hugmynd-
inni. Þeim þykir stjórnin liklega
standa of föstum fótum til þess að
hætta sér út i slikar umræður.
Samningaviðræður standa nú yfir
um hvað skuli rætt.
Þegar
nýr ritstjóri tók til starfa á Tim-
anum um daginn sagði Jóhann
Jónsson framkvæmdastjóri i
samtali við Timann að Jón Helga-
son ritstjóri mundi hætta á þessu
ári. Jóni sjálfum hefur hins vegar
ekki verið tilkynnt neitt um upp-
sögn og ekki hefur hann sjálfur
sagt upp. Þykktist hann mjög við
sem vonlegt var.
Margra
grasa kennir i smáauglýsingum
siðdegisblaðanna. Eftirfarandi
sáum við i gær i öðru þeirra og er
ekki gott að segja hvort hún ætti
heldur heima i bilaauglýsinga-
eða einkamáladálki:
„Ég hef ákveðið að láta gull-
kálfinn, sem er þýskur alþýðu-
vagn af gerðinni VW 1300 árg.
1971. Upphaflega smiðaöur að
undirlagi foringjans. Gullkálfur-
inn er með 1500 vél, sem er ekin 45
þús. km á sléttlendi. Sanngjarnt
verð er talið 9 þús. kr. en um slikt
má vist alltaf deila. Frekari uppl.
verða veittar að kostnaðarlausu i
sima 43... eftir fréttir á tákn-
máli.”
v-^^GIaený
breiðskífa
Höfundur
tónlistar:
Valgeir
Guðjónsson
Þeir sem
voru með:
Ásgeir Óskarsson,
Egill Ólafsson,
F. Bachmann,
Hanna Steina
Hjálmtýsdóttir,
Jónas R. Jónsson,
Mike Pollock,
Reynir Sigurðsson,
Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Sigurbjörn Einarsson,
Sigurður Rúnar Jónsson,.
Tómas Einarsson,
Tómas Tómasson,
Valgeir Guðjónsson,
Valva Gísladóttir,
Þorkell Jóelsson,
Vilhjálmur Guðjónsson,
Þórður Árnason.
Útgáfa og dreifing:
SVART Á HVÍTU
Vesturgötu 3, R. sími 13339