Þjóðviljinn - 10.04.1981, Side 13
Föstudagur 10. aprfl 1981 ÞJöÐVILJINN — SÍÐA 13
Nefnd til stuðnings Kortsnoj
Fyrir stuttu var stofnuð i
Reykjavik nefnd til stuðnings
Viktor Kortsnoj og baráttumáli
hans, sem er það að hann fái fjöl-
skyldu sina, konu og son, send úr
prisundinni austur i Sovétrikjun-
um. Það hefur ekki verið kynnt
opinberlega hvernig störfum
þessarar nefndar verður hagað,
en þó er fullljóst að gengið verður
á u.þ.b. 70 einstaklinga sem taldir
eru spila einhverja rullu i okkar
ágætu skákmálum og þeir fengnir
til að skrifa undir skjal til stuðn-
ings Kortsnoj. Þessu skjali
verðursiðan væntanlega stungið i
bréflúgu sovéska sendiráðsins,
sendiráðsmönnum og rikisstjórn
Sovétrikjanna til hollrar lesn-
ingar væntanlega. Sá sem þessar
linur ritar hefur verið beðinn um
undirskrift á þennan lista, og var
það tiltölulega auðsótt mál, þvi
það er auðvitað hrein firra og
móðgun við mannlegan virðu-
leika að einstaklingur skuli
hnepptir i átthagafjötra nú á tim-
um. Slikt ætti auðvitað að vera
löngu liðin tiö.
Stofnun þessarar nefndar
kemur hinsvegar alveg heim og
saman við ummæli eins af þing-
mönnum Islensku þjóðarinnar i
tilefni þess er kollegum Kortsnoj-
nefndarmanna tókst að hrekja
héðan af landi Fransmanninn
Gervasoni. Þingmaðurinn benti á
að það stæði venjulega ekki á
hjálp til handa frægu fólki þegar
þörf krefði, þá væri nú aldeilis
veriö að stofna nefndirnar hér á
landi og ekki lakara ef skjólstæð-
ingurinn kæmi austan yfir járn-
tjald. M.ö.o., hvar voru þeir
bræður Haraldur Blöndal og Hall-
dór Blöndal, svo ekki sé minnst á
Pál Heiðar, i afstöðu sinni til máls
Frakkans? Svar óskast.
Svo er það spurningin um heil-
indi Kortsnojs. Sá Islendingur
sem er i hvaö sterkastri aðstöðu
til að hjálpa honum er Friðrik
ólafsson. Og það hefur hann gert
eftir fremsta megni. Og hverjar
eru kveðjurnar? Við höfum öll
fengiðað sjá þær i Morgunblaðinu
og fleiri blöðum. Getur það stað-
ist að Kortsnoj liti á baráttu sina
sem táknræna baráttu, i þvi skyni
hafða til að efla sig i tilrauninni til
að ná heimsmeistaratitlinum úr
hendi Sovétmanna? Það er al-
kunna að hann var i hópi þeirra
útvöldu, sem gátu haft fjölskyldu
sina með sér á keppnisferðalög-
um.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
á Vesturlandi — Ráðstefna um forval og
lýðræðislegt flokksstarf.
Laugardaginn 11. april næstkomandi verður haldin i Rein á Akranesi
ráðstefna um forval oglýðræðislegt flokksstarf. Ráöstefnan hefst kl. 13
og stendur til kl. 17.30.
Fluttar verða stuttar framsöguræður, en siðan verður skipt i umræðu-
hópa, sem skila niðurstöðum i lokin. Fjallað verður um eftirtalin efni:
1. Forvalsreglur AB i kjördæminu.
Framsaga: Jónina Arnadóttir.
Umræðustjóri: Hallgrimur Hróðmarsson.
2. Samstarf sveitarstjórnarmanna á Vesturlandi.
Framsaga: Jóhann Ársælsson.
Umræðustjóri: Halldór Brynjúlfsson.
3. Landsmálastarf AB á Vesturlandi.
Framsaga: Engilbert Guðmundsson.
Umræðustjóri: Þórunn Eiriksdóttir.
Fundarstjóri verður Gunnlaugur Haraldsson. Athuguð breyttan
fundartima. — Kjördæmisráö Alþýðubandalagsins á Vesturlandi.
Alþýðubandalagið Akranesi—Árshátið
Alþýðubandalagsfélagið á Akranesi heldur árshátið sina laugardaginn
11. april i Rein og hefst hún með borðhaldi kl. 19.30.
Jenni R. Ólason og Halldór Backmann flytja á-vörp. Meöal skemmti-
atriða: Sveitin bak við hólinn, leikþáttur og fiðluleikur. Diskótekiö Disa
örvar til dansa.
Glæsilegt háborð með heitum réttum og köldum. — Húsið verður opnað
klukkan 19. — Miðasala og borðapantanir I Rein fimmtudaginn 10. aprfl
kl. 20—21. — Skemmtinefndin.
Viktor Kortsnoj
Við Islendingar buðum, af veik-
um mætti, I heimsmeistaraein-
vígi Kortsnojs og Karpovs. Það
hefur ekki komið fram i fjölmiðl-
um, að skilaboðin sem Brodbeck
kom með frá Kortsnoj voru i
spurningarformi: Hvað getið þið
borgað undir boröiö? Hvf allt
þetta rósamál? Það heföi nú eitt-
hvað verið sagt ef Karpov hefði
beöið um svona nokkuð.
Greinarhöfundur hefur ekki
heyrt um nafn á nefndinni, en
hversvegna ekki: Nefnd til stuðn-
ings Kortsnoj og/eða fjölskyldu
hans?
—hól—
Barnahjálp S.Þ.
yinnur gegn
mjólkurdufti í
þróunarlöndum
Barnahjálp Sameinuðu
Þjóðanna UNISEF er nú að
hefja herferð gegn fram-
leiðendum tilbúins mjólk-
urdufts. Nýkjörinn fram-
kvæmdarstjóri stofnunar-
innar Aida Gindy frá
Egyptalandi er á ferð um
Norðurlöndin til að leita
liðsinnis rikisstjórna í
Skandinavíu, svo að fram-
leiðendum verði settar
strangar reglur.
Málinu er þannig háttaö aö ým-
is fyrirtæki,einkum bandarisk, en
einnig þekkt fyrirtæki eins og
Neslé i Sviss (sem framleiðir
kókómalt), og lyfjafyrirtækið
Dumex i Danmörku flytja mikið
af tilbúnu mjólkurdufti til þróun-
arlandanna. Þar hefur veriö
haldið uppi miklu auglýsinga-
skrumi og mæðrum talin trú um
að vestræna duftiö sé miklu betra
en móðurmjólkin. Afleiðingin er
sú að talið er að rúm miljón barna
hafi dáiö á unaanförnum árum,
ýmist úr næringarskorti, eða
mengunarsjúkdómum *sem rekja
má tilduftsins. 1 fátæku rikjunum
þykirþað velmegunareinkenni að
eiga pela handa barninu sinu og
þvi hafa foreldrar veriö ginkeypt-
ir fyrir duftinu. Þaö er nefnilega
ekki um annaö að ræða i pelann. 1
mjög mörgum þróunarrikjum er
vatnið sem er á boðstólum mjög
mengað og þegar duftinu er
blandað i þaö berast meö alls
kyns óhreinindi og sýklar, sem aö
sögn Aidu Gindy draga börnin til
dauða innan hálfs ára.
Þaö er vilji Barnahjálparinnar
að fyrirtækjunum sem framleiða
duftiö verði gert skylt aö kynna
hvaöa hættur fylgja notkun þess,
jafnframt þvi að heilbrigðis-
yfirvöld, sem viöast eru illa
mönnuö og búa við fjárskorbleggi
áherslu á að ekkert komi i stað
móðurm jólkur. 1 danska blaðinu
Politiken sem hafði viötal við
Aidu segir aö það sé kaldhæönis-
legt að þegar vesturlandabúar
séu i æ rikara mæli aö hallast aö
brjóstagjöf-aftur, eftir nokkurt frá-
hvarf, sé veriö að halda tilbúnu
dufti að hrjáðum og vannæröum
börnum þriðja heimsins.
. (Endursagt úr Politiken.—ká)
Almennur félagsfundur i
Alþýðubandalaginu i Reykjavik.
mánudaginn 13. april kl. 20.30 að Hótel Esju.
Fundarefni: Utanrikis- og herstöðvamál.
1. Stutt framsaga, Ólafur Ragnar Grimsson.
2. Svavar -Gestsson, Guðrún Helgadóttir,
Olafur Ragnar Grimsson, Bragi
Guöbrandsson og Erling ólafsson sitja
fyrir svörum.
Mætið vel og stundvislega. — Stjórn ABR.
Aðstoð við Rauða kross
Póllands
Aö beiðni Rauða kross Póllands
sem barst i fyrradag (7. april),
hafa Rauöi Kross Islands, Dan-
merkur, Noregs, Finnlands og
Sviþjóðar ákveðið að senda sam-
eiginlega matvæli og næringar-
efni handa börnum, gömlu fólki
og sjúku sem er á stofnunum sem
Pólski Rauði krossinn rekur.
Hér er um aö ræða 27 lestir af
matvælum, samtals að verðmæti
um tsl. kr. 773.000.00.
Framlag Rauöa Kross tslands
er ný.kr. 10.000.00.
Svavar Guðrún Ólafur Bragi
Sveinn Stefán
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Almennur félagsfundur I hreppsskrifstofu Egilsstaðahrepps laugar-
daginn 18. april kl. 16. Umræður um orku- og iðnaðarmál. Framsögu-
menn Sveinn Jónsson og Stefán Thors. — Kaffi. — Stjórnin.
Flugið
Framhald af bls. 1
sátta á næstu 4 vikum, en ekki
var fallist á þau tilmæli.
Lögin gera ráð fyrir að sett
veröi sáttanefnd til þess að
reyna enn til þrautar að ná
samkomulagi um hvernig
ráða eigi flugmenn til starfa
hjá Flugleiðum. I öðru lagi
gera lögin ráð fyrir að
úrskurðaraðili verK skipaður
að loknu starfi sát'tanefndar,
ef samningar takast ekki inn-
an eins mánaðar. Gert er ráö
fyrir aö Hæstiréttur tilnefni
þrjá menn sem úrskurðar-
aöila og veröur þar um endan-
legan úrskurð að ræða.
Samstaða var um afgreiðslu
þessara laga á Alþingi og
greiddu allir þingmenn nema
, stjórnarandstaðan I Sjálf-
stæöisflokknum atkvæði með
lögunum en þingflokkur Sjálf-
stæðismanna hafði lýst þvi yf-
ir að hann sæti hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Við umræöu um frumvarpið
sagöi Svavar Gestsson félags-
málaráðherra að leggja
yrði höfuöáherslu á að
reyna til þrautar aö ná
samkomulagi i málinu á næstu
4 vikum. Varðandi þaö atriði
að vinnustöðvun er lýst
(Sieimil sagði Svavar aö hér
væri um mikilvægt grund-
vallaratriði að ræða, en
það væri mat þingflokks
Alþýðubandalagsins að um
væri að ræöa óhjákvæmilega
neyðarráöstöfun þar sem sýnt
væri að engin lausn fyndist á
þessum sérstæðu deilumálum
eftir hefðbundnum samkomu-
lagsleiðum. Hér væri ekki um
kaupdeilu aö ræða, heldur
átakamál innan starfshóps um
sérstök vinnuréttindi.
— Þ
Föstudagur: Opið frá kl. 10—03.
Hljómsveitin Glæsir og diskó.
Laugardagur: Opið frá kl.
19—03. Hljómsveitin Glæsir og
diskó.
Sunnudagur-.Opiö frá kl. 19—01.
Gömlu dansarnir. Bragi Hlið-
berg og hljómsveit leika undir
af alkunnu fjöri.
Áluliöutmn
Borgartúni 32
Sími35355.
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Hafrót og
diskdtek.
' LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Hafnit og
Hi clrrtt plr
SUNNUDAGUR: Opið frá 21—01.
Dúndrandi diskótek.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322
BLóMASALUR: Opið alla daga'
vikunnar kl. 12—14.30 og
19—23.30.
VINLANDSBAR: Opið alla daga
vikunnar, 19—23.30, nema um
helgar, en þá er opið til kl. 01.
Opið í hádeginu kl. 12—14.30 á
laugardögum og sunnudögum.
VEITINGABUÐIN: Opið alla
daga vikunnar kl. 05.00—21.00.
#kálafelT~yim\ 82200
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Organleikur.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og 19—23.30. Organleik-
SUNNUDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og kl. 19—01. Organleik-
ur. Tiskusýningar alla fimmtu-
daga.
ESJUBERG: Opið alla daga kl.
8—22.
Sigtún
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló
diskótek og „Video-show”.
Grillbarinn opinn.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló,
diskótek og „Video-show”.
Grillbarinn opinn.
Bingó kl. 14.30 laugardag.
FöSTUDAGUR: Hljómleikar frá
kl. 21—23. Utangarðsmenn ásamt
fleiri hljómsveitum. Siöan dansaö
frá kl. 23—03. Utangarðsmenn
leika fyrir dansi.
LAUGARDAGUR: Opiö frá
21—03. Hljómplötutónlist viö allra
hæfi.
SUNNUDAGUR: Opið frá kl.
21—01. Jón Sigurðsson og hljóm-
sveit leika gömlu dansana af al-
kunnu fjöri.