Þjóðviljinn - 14.04.1981, Síða 13
Þriðjudagur 14. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Kortsnoj
sigraði 1
Lone Pine
Kortsnoj
Opna skákmótið i Lone Pine
trekkir enn. Verðlaun þar eru
með þeim bestu sem gerast og
stórmeistararnir flykkjast til
smáþorps i Kaliforniu, sem varla
telur meira en eitt þúsund ibúa.
Þorpshöfðinginn, Statham
drottnar yfir ibúunum með
miljónum sinum i dollurum, og
munar litið um aö fjármagna eitt
skákmót á ári. Þessi mót hafa
verið haldin i u.þ.b. 10 ár og Stat-
ham hefur lagt u.þ.b. 1 miljón
dollara samtals i verðlaunafé og
annað. Það sér samt ekki högg á
vatni. Hjá honum hefur ameriski
draumurinn ræst. Hann býr i
kyngimagnaðri höll langt i burtu
frá skarkala heimsins. Auðurinn
kemur frá uppfinningu i læknis-
fræðimekanisma sem nú þykir
ómissandi. Hin siðari ár hafa
tslendingar, einir Norðurlanda-
búa (fyrir utan Larsen sem varla
getur talist Norðurlandabúi þar
sem hann býr á Kanarieyjum),
verið iðnir við aö tefla þarna enda
alltaf von að ná i hluta úr titli eöa
einhverju þess háttar. íslands-
meistarinn, Jóhann Hjartarson
náði i sinn fyrsta áfanga aö þessu
sinni. Hann hlaut 4 1/2 vinnig af 9
mögulegum. Aðrir þátttakendur
islenskir voru Guðmundur Sigur-
jónsson sem hlaut 5 vinninga og
Jón L. Árnason sem hlaut 4 1/2
vinninga. Frammistaða Guð-
mundar og Jóns var hvorki betri
né verri en við var að búast i svo
sterku móti, en þeir geta vissu-
lega betur. Sú var tiöin að menn
gerðu sér ekkert annaö að góðu en
að vinna eins og 3 stórmeistara i
röð i Lone Pine mótum og þar er
átt við þann mikla skákskelfir
Hauk Angantýsson, en i Ameriku
er hann sá íslendingur sem menn
skak
Umsjón Helgi ólafsson
óttast mest. I mótinu 1978 hafði
honum gengið slælega i upphafi,
en tók að leiðast þófið og vann
stórmeistarana Westerinen, Res-
hevski og Christiansen alla i röð!
1 siðustu umferð var meiningin að
vinna Timman en þá var Hollend-
ingurinn búinn að fá sig fullsadd-
an á að tapa fyrir Islendingum og
lagði Hauk að velli eftir mikinn
darraðardans. Stórmeistara-
árangur islenska togarajaxlsins
fór þvi fyrir bi.
Ýmsar góðar skákir voru þó
enga að siður tefldar að þessu
sinni. Guðmundur vann t.d. Res-
hevski rétt eins og að drekka vatn
og Jóhann Hjartarson var með
gjörunnið á móti Ivkov, en tókst
að klúðra skákinni niður i jafn-
tefli i endatafli. Jón L. Ámason,
sem vann tvo stórmeistara á
þessu móti i fyrra, tefldi ekki af
Tilbúnir rétt-
ir frá Kjötiðn-
aðardeild SÍS
Eins og kunnugt er hóf Kjöt-
iðnaðardeild StS á Kirkjusandi
framleiðslu á frystum, tilbúnum
réttum árið 1976. Veruleg aukning
hefur orðið á sölu þeirra að
undanförnu. Að sögn Sigurðar
Haraldssonar hjá Kjötiðnaðar-
stöðinni nam framleiðslan á sið-
asta ári aö jafnaði 1200—1500
matarskömmtun á dag fimm
daga vikunnar.
Mötuneyti hafa sýnt þessum
málum mikinn áhuga og er nú
mötuneyti Sambandsverksmiðj-
anna á Akureyri fariö að bjóöa
þessa rétti. Sér Kjötiðnaðarstöð
KEA á Akureyri um dreifingu
nyröra. Rikismötuneytin hafa
sýnt málinu áhuga. Nefna má, að
'hinir tilbúnu réttir eru taldir
henta vel fyrir fiskiskip. Einn
togari er nú með þá til reynslu en
trúlega eru þeir ekki siður
hentugir fyrir smærri báta.
Litið hefur hinsvegar verið af
þvi gert, enn sem komið er, að
selja réttina fyrir almennan
markað i verslunum. Henta þess-
ir réttir þó mjög vel til heimilis-
nota. Þá má hita upp i venjuleg-
um bakarofni beint úr frysti á
50—60 minútum. Nú eru 32 réttir á
boðstólum frá Kjötiðnaðarmið-
stöðinni, þar af 10 fiskréttir. Upp-
gefið geymsluþol i frysti eru 3
mánuðir.
Mjólkurframleidslan:
Undir innan-
landsneyslu
Innvegin mjólk hefur minnkað
um 13,2 milj. ltr. eða 11% á sl.
tveimur árum. Svarar samdrátt-
ur til þess að allri mjólkurfram-
leiðslu heföi verið hætt i Vestur-
landskjördæmi eöa i Skagafiröi
og Þingeyjarsýslum. Þessar upp-
lýsingar komu fram i skýrslu
framkvæmdarstjóra Osta- og
smjörsölunnar, Óskars Gunnars-
sonar, sem hann flutti á aöalfundi
hennar. Orsakirnar fyrir minnk-
andi mjólkurframleiöslu taldi
Óskarvera fóöurbætisskattinn og
fyrirhugað kvótakerfi.
Að áliti Óskars er sennilegt að
mjólkurframleiðslan I ár verði
um 100 milj. ltr. Nær það ekki
innanlandsneyslu. Hann taldi, aö
i góðum árum yrði framleiðslan
að vera 110—112 milj.ltr. en það
væri 3—4% umfram árlega innan-
landsneyslu, miðað viö 10 ára
timabil. Það er ódýrt fyrir þjóð-
félagiö aö greiða þá tryggingu i
útflutningsbótum, sagði Óskar. A
sl. ári fóru um 105,2 rnilj. ltr. af
mjólk til innanlandsneyslu en
innvegin mjólk hjá mjólkursam-
lögunum var 107 milj. ltr. mhg
sama krafúnum nú. Hann tefldi
þó nokkrar góðar skákir. Hér
kemur eitt dæmið:
Hvítt: Jón L. Arnason
Svart: Brooks (Bandarikin)
Sikileyjarvörn
1. e4-c5
2. Rf3-d6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-Rf6
5. Rc3-a6
6. Be2-e5
7. Rb3-Be7
8. 0-0-Be6
9. Be3-Rbd7
10. f4-Hc8
(Fischer lék þessu einhverju
sinni. Bókin með skákum hans er
biblia bandariska (flóð...) skák-
mannsins.)
11. Khl-0-0 13. Bxc4-Hxc4
12. f5-Hc8 14. Rd2
(Jón hefur teflt þannig nokkr-
um sinnum gegn Najdorf-afbrigð-
inu. Riddarinn stendur betur á d2
en á b3. Hann valdar ýmsa mikil-
væga reiti i stöðunni.)
14. .. Hc8 17. g4-Rfd7
15. Df3-b5 18. Dg2-h6
16. a3-Rb6 19. Hadl-Rc5
(Svartur hefur teflt byrjunina
ómarkvisst og það er t.d. eftir-
tektarvert að riddarar hans
standa illa og eru i litlum takt við
vanda stöðunnar.)
20. Rf3-Rca4 22. c3!
21. Rxa4-Rxa4
(Svarta staðan er sennilega
þegar töpuð. Mótspil er ekkert að
finna á drottningarvængnum og
það er kominn fiðringur i hvita g-
peðið.)
22. .. Dc7 25. Bh6-Hf7
23. g5-hxg5 26- Hgl
24. Bxg5-f6
(Jón er kominn með myljandi
sókn. Hann teflir lokin sérlega
skemmtilega.)
26. .. Bf8 28. Rg6-Db7
27. Rh4-Hd8 29. Be2-Rxb2
(Svartur bauð jafntefli eftir
þennan leik, sem auðvitað ber að
skoða sem lélegan brandara.)
30. Hd5!
(Hvftur þarf ekkert með ridd-
arann að gera.)
30. .. Ra4 32. Hg4
31. Dh3-Hfd7
((Onnur vinningsleiö var 32.
Dh8+ Kf7 33. Rxf8 Hxf8 34.
Hxg7+ Ke8 35. Hg8 Hf7 36. Bh6
Hxg8 37. Dxg8+ Ke7 38. Bf8+!
o.s.frv., en þetta dugir einnig.)
32. .. Rxc3 34. Hh8 + -Kf7
33. Hh4-Rxe4 35. Dh5!
(Fallegt og afgerandi.)
35. .. Rg3 +
(Eða 35. — Rg5 36. Re5+ Ke7
37. Df7 + ! Rxf7. 38. Rg6 og mát i
næsta leik. 35. — Dxd5 strandar á
36. Rf4 + .)
36. hxg3-Dxd5 +
37. Kgl-Ddl +
(Álika lélegur brandari og jafn-
teflistilboðið i 29. leik.)
38. Dxdl
— svartur gafst hpp.
Þessi sigur dugði þó skammt.
Þegar upp var staðið kom i ljós að
Kortsnoj hafði hreppt 1. verð-
launin, 15 þúsund dollara. Hann
teflir af miklu öryggi og ætti að
geta veitt Karpov harövitugt
viðnám i Merano i sumar. Seira-
wan, Sosonko og Gligoric komu
þar næst með 6 1/2 vinning.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Borgarnesi og nærsveitum
Skirdagsfagnaður
Hin árlega skirdagskvöldvaka Alþýðubandalagsins I Borgarnesi og
nærsveitum verður haldin i Valfelli 16. april n.k. kl. 20.30. Ýmislegt
verður til skemmtunar. Kaffiveitingar. — Stjórnin.
Alþýðubandalag
Héraðsmanna
Almennur félagsfundir i hrepps-
skrifstofu Egilsstaðahrepps
laugardaginn 18. april kl. 16.
Umræður um orku- og iðnaðar-
mál. Framsögumenn Sveinn
Jónsson og Stefán Thors. — Kaffi.
— Stjórnin.
Sveinn
Stefán
Aðalfundir félagsdeilda ABR
Aðalfundir félagsdeilda Alþýðubandalagsins I Reykjavik verða haldnir
i aprilmánuði.
Þegar hafa eftirtaldir fundir verið ákveðnir: í. deild: Miðvikudaginn
15. april. II. deild: Miðvikudaginn 22. april. III. deild: Fimmtudaginn
30. april. IV. deild: Miðvikudaginn 22. april.
Hver fundur verður nánar auglýstur siðar. — Stjórn ABR.
Aðalfundur I. deildar ABR (Vesturbær-miðbær)
Aðalfundur I. deildar ABR verður haldinn miövikudaginn 15. april kl.
20:30 aö Grettisgötu 3.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Kosning nýrrar stjórnar og fulltrúaráðs.
3. Adda Bára Sigfúsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Siguröur G. Tómas-
son ræða borgarmálin.
4. Almennar umræður.
Mætið vel og stundvislega. — Stjórnin.
Æskulýðsfélag sósíalista
Stjórnarfundir
Stjórnarfundir félagsins eru opnir öllum félögum.
Næsti stjórnarfundur verður haldinn miðvikudag-
inn 15. april kl. 17.00 að Grettisgötu 3. — Stjórnin.
Samkomulag
Framhald af bls. 3
Aðalatriði málsins er hámarks-
vinnustundafjöldi 14 stundir og
lágmarkshvildartimi 10 stundir
og frávik frá þessu. 1 samkomu-
laginu er gert ráð fyri, að heimilt
sé aö láta vinna allt að 16 stundir
ef um er að ræða verk sem verður
aö ljúka. 1 þvi tilviki er samt sem
áður gert ráð fyrir 10 tima hvild
án þess að dagvinnulaun skerðist.
Tök Jón sem dæmi ef unnið er i
fiskmóttöku til kl. 24.00, þá þarf
viðkomandi ekki að byrja aftur að
vinna fyrr en kl. 10.00 næsta
morgun en hefur kaup frá kl. 8.00.
Þá er og heimilt að stytta
hvildartimann niöur i 8 stundir og
erþá 16stunda vinna hámar.k en 8
stunda hvild lágmark og skal
greiöa tvöföld laun fyrir þann
tima sem á vantar 10 tima hvild,
jafnt virka sem helga daga.
Varöandi fridaga segir, aö á
hverju 7 daga vinnutimabili skuli
vera einn frfdagur. Heimilt er að
fresta frídegi en þá skal veita tvo
fridaga næst. — S. dór.
Hjólum
ávallt hægra
megin «
— sem næst
vegartonin hvort heldur/
viö erum í þéttbýli
eða á þjóðvegum.y
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveituteng-
ingar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og logeftirkl. 7á
kvöldin).
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hvérskonar blikksmiði.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
LAUS STAÐA
Dósentsstaða i raforkuverkfræði við rafmagnsverkfræði-
skor verkfræði- og raunvisindadeildar Háskóla Islands er
laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo
og námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavfk,
fyrir 31. mai n.k.
Menntamálaráðuneytið
6. april 1981.