Þjóðviljinn - 14.04.1981, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 14.04.1981, Qupperneq 16
DJODV/UINN Þribjudagur 14. april 1981 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná I afgreiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Náttúruverndarráð: Mællr ekki gegn virkjun í Blöndu og í Fljótsdaf NáttúruverndarráO mælir ekki gegn virkjunaráformum i Biöndu og I Fljótsdal en hefur sett fram ýmsa fyrirvara og ábendingar, einkum hvaö varðar Fljótsdals- virkjun en náttúruverðmæti eru þar fremur i hættu en á virkjun- arsvæði Blöndu. I umsögn Náttúruverndarráðs um virkjun Blöndu sem sam- þykkt var 16.3. 1978 kemur fram að ekki viríast i húfi sérstæð eða fágæt vistkerfi og að fram- kvæmdir virðast ekki þurfa að raska svæðum eða stöðum sem varðveita bæri frá sjónarmiði náttúruverndar. Hins vegar bendir Náttúruverndarráð á,að mikil eftirsjá sé i þvi viðfeðma gróðurlendi og beitarlandi sem færi undir vatn á stæði fyrirhug- aös miðlunarlóns. Þá eru settar fram ábendingar varðandi fram- kvæmdir og óskað samráðs um þær. Hins vegar er svæði það sem fórnað yrði vegna virkjunar Jökulsár í Fljótsdal mun áhuga- verðara frá sjónarmiöi náttúru- verndar. Einkum er þar um að ræða Eyjabakkana, sem eru gróskumikið flæðiland sem fara myndu undir vatn. Þeir eru á náttúruminjaskrá og segir i áliti Náttúruverndarráðs sem sam- þykkt var 26. mars s.l. að á há- lendinu séu fá gróðurlendi á borö viö Eyjabakka. Fyrst og fremst séu það Þjórsárver, Hvitárnes og örfáir staðir á Möðrudalsöræfum. Siðan segir: „Allir þessir staðir eru hentugir fyrir miðlunarlón vegna virkjana, en jafnframt er náttúruverndargildi þeirra mik- ið. Náttúruverndarráð telur ekki annað koma til mála en þyrma einhverjum þessara svæða og þvi þarf að lita á þau f samhengi þeg- ar áformað er að taka eitthvert þeirra undir miðlunarlón. Þjórs- árver hafa tvimælalaust mest verndargildi þeirra og viðfriölýs- ingu þeirra telur ráðið verjanlegt að samþykkja miðlunarlón á ein- hverju hinna svæðanna, þvi tæpasl er þess að vænta að hægt verði að halda i þau öll til lengdar vegna mikilvægis þeirra fyrir raforkuvinnslu i landinu.” Þá kemur fram i áliti Náttúru- verndarráðs að nokkrir litt þekkt- ir en tilkomumiklir fossar i Jökulsáhyrfu meö virkjuninni en ,,þar sem Náttúruverndarráð leggur meiri áherslu á að nokkrir þekktari stórfossar landsins verði varðveittir, getur það frekar sætt sig viö að þessir hverfi.” Abendingar, fyrirvarar og ósk um samráð vegna Fljótdalsvirkj- unar eru sett fram og mun Náttúruverndarráð nefna til eftirlitsmann af sinni hálfu ef'til virkjunar kemur. Jafnframt er þess óskað aö yfirmönnum fram- kvæmda og rannsókna veröi sett erindisbréfum aðgát vegna um- hverfisáhrifa og um samráð við eftirlitsmann Náttúruverndár- ráös. — AI Sáttanefnd í flugmannadeiluna Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra hefur skipað sáttanefnd i flugmannadeiluna um starfsaldurslistann hjá Flug- leiöum hf. og var fyrsti fundur nefndarinnar i gærkvöldi. Ef nefndin hefur ekki náö sáttum eftir 4 vikur, mun Hæstiréttur skipa 3 menn i gerðardóm, sem kveður þá upp endanlegan úr- skurð i málinu. Flug hjá Flugleiðum mun hafa gengið samkvæmt áætlun i gær. Þjórsárver friðlýst Þessa mynd tók Erling Ólafsson upp eftir verunum og sér til Hjarðarfells, Múlajökuls og Arnarfells. Samkomulag hefur tekist um friöun Þjórsárvera f samstarfsnefnd Náttúruráðs og Iðnaðar- ráðuneytisins og skýrðu forsvarsmenn Náttúru- verndarráðs frá þessum tíðindum á blaðamannafundi i gær. Þjórsárverin eru talin meðal einstæðustu náttúruverðmæta í heimi/ — svæðið stendur undir við- komu 2/3 hluta íslensk-austur-grænlenska heiða- gæsastof nsins/ sem að hausti telur 80 þúsund fugla og er það stærsta gæsabyggð sem vitað er um á sögu- legum tíma. Landslagsfegurð veranna er óvenjulcg og mikil Þau mynda vota,fagra,græna sléttu sem er umgirt auðnum, jöklum og fögrum fjallahring. Þessi atriði sem gefa Þjórsárverum ótvi- rætt gildi hafa nú verið sett ofar hagkvæmnissjónarmiðum, en i ein tuttugu ár hafa verin veriö litin hýru auga sem tilvalinn staður fyrir uppistöðulón stór- virkjana i Þjórsá. 1 samþykkt um friðlýsinguna kemur fram að Náttúru- verndarráð telur að til greina gcti komiö að nokkuð svæði I suöur jaðri veranna verði lagt til miðlunar siðar ef rannsóknir sýna að það sé óhætt. Þjórsárverin eru að mestu gróið land, um 100 ferkiló- metrar að stærö, nær 600 metrum yfir sjávarmáli. Umfangsmiklar liffræðirann- sóknir fóru fram i Þjórsár- verum 1971-1974. Voru þær að mestu kostaðar af Orkustofnun en framkvæmd önnuðust Náttdrufræðistofnun og Lif- fræðistofnun auk erlendra sér- fræðinga. Loftslag i Þjórsárverum er svipað og á Hveravöllum. Meðalhiti 1971-1974 var — 0,1 gráða, meðalhitii júli 7,8 gráður og meðalhiti köldustu mánuðina — 5,4 gráður. 1 verunum eru margar jökulkvislar, fáeinar bergvatnskvislar og lækir, fjöl- margar tjarnir, litil stöðuvötn, volgar og kaldar lindir en- vatns- rennsli er mjög breytilegt eftir árstima. Mýrlendi er viðast hvar rikjandi, dýjagróöur, svo og flæðimýrar eru viða en þurr- lendisgróöur er litt stöðugur sökum vatnságangs. Varplöndin i Þjórsárverum urðu kunn áriö 1951 i leiðangri dr. Finns Guðmundssonar, Péturs Scott og James Fisher. Þau voru nytjuð fyrr á öldum alltfram undir 1700 en heimildir benda til aö fækkað hafi i stofn- inum á 18. og 19. öld. Þéttleiki stofnsins: eitt par á hektara, virðist vera meiri en annars staðar er þekkt fyrir nokkra gæsabyggð. Er talið liklegt að stofninn sé nú um það bil kom- inn yfirsittnáttúrulega hámark á svæðinu og fækkun sé aö byrja að gera vart við sig. Arni Reynisson, fram- kvæmdastjóri Náttúruverndar- ráðs sagði i gær að friðlýsing Þjórsárvera væri mikill sigur fyrir íslenska og alþjóðlega náttúruvernd. Nefnd þeirri, sem samkomulag um friðunina tókst i, er einmitt ætlað að leysa fyrirséð deilumál áður en til ákvörðunar kemur. 1 henni eiga sæti af hálfu Náttúruverndarráðs Arni Reynisson, Arnþór Garðarsson og Vilhjálmur Lúöviksson og af hálfu Iðnaðarráðuneytisins orkumálastjóri, forstjóri Rarik og ráðuneytisstjóri iðnaðar- ráöuneytisins. Aundanförnum árum hefur nefndin haldið 9 fundi. —AI Tugþusundir heiðagæsa verpa og alast upp I Þjórsárverum. Þessa mynd af nokkrum þeirra með einni fjölskyldu I forgrunni tók Erling Ólafsson, dýrafræðingur. Gassinn stendur vörð og teygir hálsinn ^ meðan aðrir I fjölskyldunni bita. Atvinnu- ástand gott á Norður- landi 565 manns voru á atvinnu- leysisskrá i mars á iandinu öllu, þaraf 211 á Norðurlandi eystra, en 203 á höfuðborgarsvæöinu. Skráðir atvinnuleysisdagar voru 12.239 og i heild talsvert færri i mars en mánuðinn á undan nema á Norðurlandi eystra, þar fjölgaði þeim um 389, urðu 4.564. Hér munar mestu að atvinnu- ástand er enn m jög erfitt á Akur- eyri, en þar fjölgaöi atvinnuleys- isdögum i mánuðinum um 610 og komust i 2.900 i heild. Þá fjölgaði skráðum atvinnuleysisdögum á Kópaskeri, Raufai’höfn og á Þórs- höfn, samtals um 501 dag, þannig að fjölgun atvinnuleysisdaga á þessum stöðum reyndist vera 1.111 dagar. A öðrum stöðum á landshlutan- um fækkaði hins vegar skráðum atvinnuleysisdögum um 722 þannig að nettóaukning varð 389 dagar. A Akureyri voru skráðir atvinnulausir i marsmánuði 134, tólf á Kópaskeri, tuttugu á Raufarhöfn og fimmtán á Þórs- höfn. Fjallfoss friðaður Akveðið hefur verið að friðlýsa Fjallfoss i Dynjandi I Arnarfirði en um miðjan siðasta áratug voru uppi áform um að virkja hann. 2. janúar 1978 samþvkkti Náttúru- verndarráð umsögn um virkjun- aráformin, óskaði eftir þvi að þau yrðu lögð til hliðar og fossinn frið- aður. 1 framhaldi af þvi sneru menn sér að öðrum leiðum i raf- orkuöflun fyrir Vestfirði, Mjólk- ár voru virkjaðar og linulögn vestur siðar hraðaö. Nú hafa Orkubú Vestfjarða og Rafmagns- veitur rikisins samþykkt friðun- ina. Hún tekur til Fjallfoss og allra fossa i Dynjandi auk Dynjandisvogsins. — AI Kappræðu f undir ÆnAb og SUS Æskulýðsnefnd Alþýðubanda- lagsins skoraði nýlega á Sam- band ungra Sjálfstæðismanna i kappræðufundarherferð um land- ið. Samband Sjálfstæðismanna hefur þekkst þessa áskorun Æskulýðsnefndar Alþýðubanda- lagsins. Fundimir verða haldnir á timabilinu 29. april.til 9. mai á eftirtöldum stöðum-. Reykjavik, Akranesi, Akureyri, Egils- stöðum, Selfossi, Vestmanna- eyjum og i Hafnarfirði. Umræðuefni kappræðufund- anna verður „Hvert stefnir á Is- landi, hverju þarf aö breyta.” A hverjum fundi verða þrir kappar frá hvorum aðila og mun hver þeirra tala þrisvar sinnum þ.e. i fyrstú umferð 10 min. en I annarri og þriðju umferö 5 min. Leyfðar verða fyrirspurnirá milli annarrar og þriðju umferðar. Kappræðufundirnir verða nánar auglýstir siðar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.