Þjóðviljinn - 01.05.1981, Page 11
Föstudagur 1. mal 1981 ÞJÓÐVILJINN — SlDA 11
1. maí ávarp
Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga 1981
Sjúkrahús
Skagfirðinga,
Sauðárkróki
1. maí minnast hundruð milj-
óna verkamanna um heim allan
liðinna tfma. Þeir hugleiða þá
ftílagslegu þróun, sem orðið
hefur á siðustu tiu, fimmtán eða
hundrað árum. Þeir þakka
afkomuskilyrði foreldra. Þeir
bera þau saman við stöðu sina
nú og eru sór meðvitandi um
þær gífurlegu umbætur, sem
skipulögð verkalýðshreyfing
hefur náð fram með þrotlausri
baráttu við forréttindahópa i
heiminum fyrr og nú. 1. mai
minnast margir þeirra sem
orðið hafa að þjást fyrir verka-
lýðsfélag sitt eða stjórnmála-
skoðanir og starf, þeirra sem
hafa verið reknir úr starfi eða i
útlegð, brottreknir, fangelsaðir
og pyntaðir og jafnvel myrtir.
1. mai lysa verkalýðsfélög um
heim allan yfir, með lögmætum
eða ólögmætum hætti, þeim
kröfum sem þau gera til vinnu-
veitenda og rfkisvalds. Þau
setja fram hugmyndir sinar um
réttlátara, lýðræðislegra og
frjálsara þjóðfélag og nýja
skipan alþjóðlegra efnahags- og
félagsmála.
1. mai standa hundruð
miljóna verkamanna saman um
heim allan, og i trausti á mátt
sinn horfa þeir vongóðir til betri
framtiðar.
Fyrir 6 mánuðum samþykkti
stjórn Alþjóðasambands
frjálsra verkalýðsfélags stefnu-
yfirlýsingu fyrir 9. áratuginn. 1
sambandinu eru nú 128 aðildar-
sambönd með yfir 70 miljónir
meðlima i 91 landi. í stefnuyfir-
lýsingunni er bent á að frum-
markmið sambandsins, sem
dregin eru saman i slagorðinu
„brauð, friður og frelsi” séu
hvert öðru háð, og séu i fullu
gildi. En efnahagslegar, félags-
legar og st jórnmálalegar
aðstæður til að ná þeim fram
hafa breyst.
Heimurinn sem við lifum i
einkennist af vaxandi ágrein-
ingi og kreppu vegna þess að
hagvexti eru takmörk sett.
Fáein risavaxin fjölþjóðafyrir-
tæki verða sífellt aðsópsmeiri i
efnahagskerfi heimsins, og þau
stjórna oft bæði heimsmarkað-
inum og hráefnaöflun vegna
einokunaraðstöðu sinnar.
Tekjumunur þjóða á milli fer
stöðugt vaxandi.
Samkvæmt upplýsingum
Alþjóðabankans búa átta-
hundruð miljónir manna i þriðja
heiminum við aðstæður sem
ekki uppfylla nein réttlætanleg
skilyrði um mannsæmandi lif.
Atvinnuleysi i öllum heims-
hlutum er hrikalegt. Nú þegar
eru 23 miljónir manna i OECD-
löndum einum saman atvinnu-
lausar.
Ráðstefna Alþjóðasambands
frjálsra verkalýðsfélaga um
„Hlutverk verkalýðs-
hreyfingarinnar i þróunar-
málum”, sem haldin var i
Nýju-Delhi i marslok sl., sýndi
að óhjákvæmilega fer efnahags-
legt og félagslegt ástand i
heiminum versnandi, eins og
margir hafa spáð.
Við lifum öll i sama heimi.
Fátækt, hvar sem hún er,
stefnir almennri velferð i hættu.
Þess vegna verður að ná jafn-
vægi i hagvexti og bilið milli
rikra og fátækra verður að
minnka.
Hér fara á eftir nokkrir þættir
úr stefnuyfirlýsingu samtak-
anna um þróunarlöndin:
• 1 nýrri efnahags- og félags-
legri skipan verður að viður-
kenna frjáls verkalýðssamtök
og hlutverk þeirra i þjóðfélag-
inu.
• Með endurskipulagningu
alþjóðlegs f já rm ál akerfis
verður að færa stóraukið fjár-
magn tQ þróunarlanda og lækka
vexti.
• Gera þarf orkuáætlun fyrir
allan heiminn og hafa eftirlit
með oliugróða. Stofna þarf
orkuþróunarsjóð fyrir þróunar-
löndin.
• Með samræmdri hagstjórn
vcrða iðnrikin að koma á fullri
atvinnu, auka rauntekjur, auka
opinbera þróunaraðstoð, aðlaga
sig nýjum aðstæðum i heimsvið-
skiptum og vinna bug á verð-
bólgunni.
• Gera þarf áætlun til að upp-
fylla frumþarfir fólks í þróunar-
rikjunum.
• Afnema verður viðskipta-
hömlur.
• Stofna þarf alþjóðlegan sjóð
til að standa straum af endur-
skipulagningu.
A lþjóðsam ba nd frjálsra
verkalýðsfélaga leggur áherslu
á að efnahagsaðgerðir verði
ekki eingöngu til hagsbóta fyrir
forréttindaklikur og fjölþjóða-
fyrirtæki; þær verði aö ná til
fátækrahverfanna og hinna
hungruðu miljóna, umfram allt
i dreifbýlishéruðum þriðja
Sumarbúðlr
að Úlfljótsvatni
fyrír börn og unglinga 7-14 ára
Innritun hefst mánudaginn 4. mai á
skrifstofu B.í.S. i Hagaskóla. Opin kl.
13—18, simi 23190.
Ath.: Sérstakt tilboð fyrir 12—14 ára.
Úlf 1 j óts vatnsráð
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts eiginmanns mins
og föður okkar
Einars Jóelssonar,
Sundstræti 25, isafirði.
Torfhildur Torfadóttir
og börn
heimsins. Það er þess virði að
berjast fyrir stefnu Alþjóða-
sambands frjálsra verkalýðs-
félaga til að stuðla að réttlæti og
friði.
í mörgum löndum eru nú við-
hafðar aðferðir eins og mann-
rán, pyntingar, morð, kúgun,
útlegð og innilokun á geðveikra-
hælum, tilþess að þagga niður i
talsmönnum verkalýðsfélaga og
öðrum þeim, sem eru á önd-
verðum meiði við rikjandi
stjórnvöld.
1. mai láta hundruð miljóna
verkamanna i ljósi áhyggjur
yfir versnandi stjórnmála-
áátandi í þessum löndum.
Þeir lýsa yfir samstöðu með
öllum þeim sem hætta lifi sinu
fyrir frelsi og lýðræði. Þeir
munu halda áfram að veita
fullan stuðning þeim sem hafa
hugrekki til að berjast gegn
ólýðræðislegum rikisstjórnum
og ómannúðlegum aðgerðum
þeirra.
Ekkert vandamál er óleysan-
legt, og þegar allir verkamenn
innan vébanda frjálsra verka-
lýðsfélaga og bandamenn
þeirra vinna að þvi að ná fram
hinum réttlátu kröfum okkar,
komumst við áreiðanlega nær
þvi takmarki að allir fái brauð,
að friður riki i heim inum og allir
njóti frelsis.
Lengi lifi 1. mai.
Ljósmóður vantar til sumarafleysinga
frá 1. júni.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjórinn,
simi 95-5270.
ÚTBOÐ
Byggingasamvinnufélagið Vinnan óskar
eftir tilboðum i undirstöður, fyllingu i
grunn, grunnlagnir, grunnplötu 10 ein-
býlishúsa, 7 parhúsa og 24 bilskúra við
Kleifarsel Rvk.
Útboðsgögn verða afhent frá og með 5.
mai á skrifstofum okkar að Höfðabakka 9
og Laugavegi 42 gegn 1000,- króna skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 12. mai.
hönnun hf
verkfræðisioía.
LODA1600 CANADA
Með sérstökum samning-
um við LADA-verksmiðj-
urnar hefur tekist að fá af-
greidda til íslands Lada
1600 sem sérstaklega hefur
verið framleiddur fyrir
Canada markað. Lada 1600
Canada er að auki búinn
nýja „OZON" blöndungn-
um sem sparar bensín-
notkun um 15% án nokkurs
orkutaps.
Verð til öryrkja
ca. kr. 43.700.—
Munið! Varahlutaþjónusta okkar er i sérf/ok/ i.
Það var staðfest i könnun Verð/agsstofnunnar.
Verð ca.
kr.67.890
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
jíióaTafN Sudurlandsbraul 14 - llrykjaúk - Simi .'IIUMNI