Þjóðviljinn - 01.05.1981, Page 25
Föstudagur 1. mal 1981 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 25
Arnþrúður Gunnlaugsdóttir
sextug 3. maí
Sunnudaginn 3. mal á Arnþrúö-
ur Gunnlaugsdóttir, Laugavöllum
5 á Egilsstööum, sextugsafmæli.
Auövitaö minna sllk tlmamót I llfi
góöra kunningja mann sjálfan á
stööuna I eigin stundaglasi. En
upp i hugann koma jafnframt
minningar um ógleymanlegar
samverustundir og tröllatryggö
fólks, sem er I hlutverki hins
veitula allt sitt llf, eins og ekkert
sé sjálfsagöara. Arnþrúöur var
tengd æskuheimili mlnu, Hall-
ormsstað, I yfir þrjátlu ár, þang-
aö sem hún kom ung stúlka I Hús-
Ráðstefna um
dómgœslu
hjá ISÍ
N.k. mánudag, 4. mai, veröur
haldin ráðstefna á vegum ungl-
inganefndar tSI um dómgæslu-
mál i yngri aldursflokkum.
Verður ráðstefnan haldin i Leifs-
biíð á Hótcl Loftleiðum og hefst
kl. 20.30.
Ráðstefna þessi er haldin i
þeim tilgangi að fá upplýsingar
um stöðu þessara mála i ein-
stöki m iþróttagreinum. t sumum
greiium, einkum knattleikjum,
mun vera skortur á dómurum.
Eru vanhöld tið og i sumum til-
vikum eru gæði dómgæslunnar
slök.
Haldin verða fimm stutt erindi
um þetta efni, en á eftir verða
umræður. Framsögumenn verða
Róbert Jónsson, Jóhannes
Sæmundsson, Jón Erlendsson,
Stefán Ingólfsson og Helgi
Þorvaldsson.
Ráðstefnustjóri verður Reynir
Karlsson. Ráðstefna þessi er opin
öllum og eru einkum þjálfarar
dómarar og forystumenn félaga
hvattir til að mæta.
mæðraskólann norðan frá Eiöi á
Langanesi haustið 1941. Hún er
ein úr 11 barna hópi hjónanna
Gunnlaugs Jónassonar bónda og
Þorbjargar Danielsdóttur, en
Gunnlaugur bjó á Eiði I 40 ár og
siöan synir hans tveir eftir þaö.
Ég sveikst um aö fara aö Eiöi I
þaö eina sinn, sem ég hef komib
út á Langanes, en kannski er
Eiöisvatniö og krluvarpið enn
meira lifandi I minningunni úr
frásögnum mágkonu minnar fyr-
ir bragðiö.
Arnþrúöur stundaöi nám I Hús-
mæöraskólanum á Hallorms-
staö I tvo vetur 1941—43 ásamt
Þrúöi Guömundsdóttur fóstur-
systur sinni. Skólavist þar skilaöi
miklu I bóklegum og verklegum
fræöum og hæfileikar Arnþrúöar
til hugar og handa nutu góös af
dvölinni hjá Sigrúnu Blöndal.
Þrátt fyrir stutta skólagöngu I ár-
um taliö er Arnþrúöur fjölmennt-
uö kona og hefur náð aö auka
stööugt viö þekkingu sina og vlö-
sýni eftir því sem árin hafa liöiö.
Hún giftist Siguröi Guttorms-
syni hálfbróöur minum áriö 1943,
átti meö honum 6 börn og komust
5 til manns, en eitt dó I vöggu.
Meö honum reisti hún nýbýli aö
Sólheimum I jaöri Hallorms-
staðarskógar, þar sem þau
bjuggu i 10 ár, en fluttu aftur aö
Hallormsstað 1955. Þar veittu þau
föður mlnum öldruðum gott skjól
i meira en áratug eftir að hann
hætti störfum sem skógarvörður.
Hann mat Arnþrúði mikils sem
verðugt var. A Hallormsstaö
stóðu Arnþrúður og Siguröur fyrir
búi, slmstöö og risnu I meira lagi,
enda gestkvæmt á staönum sum-
ar sem vetur. A slikum bæjum I
þjóðbraut þarf oft aö sinna tiu
verkum samtlmis og Arnþrúöur
leysti þá skipulagsþraut aö þvl er
virtist fyrirhafnarlaust og ævin-
lega meö glööu bragöi og tlma til
viöræöna um landsins gagn og
sveitarinnar I ys dagsins.
Sigurö missti hún á miöjum
aldri 1968, en varö þeirrar gæfu
aönjótandi að eignast annan
traustan lífsförunaut fáum árum
siðar, Einar Hallason frá Sturlu-
flöt I Fljótsdal. Þau fluttu úr
gamla bænum á Hallormsstaö I
Egilsstaði haustiö 1974, og þar
fagnar nú Arnþrúöur merkum
áfanga I dag á nýju mynd-
ar-heimili og enn meö sýn til Snæ-
fells úr stofuglugganum.
Á Egilsstööum hefur Arnþrúöur
unniösem ráðskona og matselja á
sjúkrahúsinu og ég er ekki I vafa
um aö hún hefur létt mörgum
dvölina þar meö sinu glaba viö-
móti og góöum réttum.
Margháttuö störf hennar aö
félagsmálum og menningarmál-
um veröa ekki tiunduö hér, en aö
þeim hefur hún gengiö af sömu
alúö og til annarra verka.
A sextugsafmælinu sendi ég þér
Arnþrúöur innilegar hamingju-
óskir meö þakklæti fyrir allt sem
þú hefur veriö mér og minum frá
þvi þig bar aö garöi á Hallorms-
staö á morgni æskunnar.
Kynni af fólki meö þinu hjarta-
lagi gefa hversdeginum lit og llf-
inu gildi.
H jörleifur Guttormsson
APEX
lægstu
fargjöldin
OSLO
verð kr. 2.316.
STOKKHOLMUR
verð kr. 2.896.-
GLASGOW
verð kr. 1
KAUPMANNAHOFN |
verð kr. 2.539.-
LONDON
verð kr. 2.189
NÆTURFARGJÖLD.
LUXEMBURG
Fjölskyldupakki,
og bíll í tvær vikur
Verð kr. 2.159.
fyrir manninn.
mo<vm
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg I Símar 28388 og 28580.
Frá Sjáfsbjörgu
í Reykjavík og
nágrenni
Stjórn Sjálfsbjargar félags fatlaðra i
Reykjavik og nágrenni samþykkti á fundi
nýverið að taka fullan þátt i kröfugöngu
Verkalýðsfélaganna i Reykjavik 1. mai.
Stjórnin hvetur fatlað fólk að sýna sam-
stöðu með þvi að f jölmenna i gönguna og
styðja með þvi jafnréttishugsjónina.
Jafnfraxt hvetur stjórn Sjálfsbjargar i
Reykjavik og nágrenni Sjálfsbjargarfé-
laga um land allt til að taka virkan þátt i
1. mai aðgerðum hver i sinni heima-
byggð.
■þátttakendur eru minntir á að koma hlý-
lega klæddir.
Þeim sem ekki hafa möguleika á að kom-
ast á eigin vegum er bent á að hafa sam-
band við skrifstofuna i sima 17868.
Fjarlægðar-
steypustólar
Húsbyggjendur, verktakar og aðrir
framkvæmdaaðilar i mannvirkjagerð um
land allt. Notið fjarlægðarsteypustóla
okkar við rafmagns- og járnalagnir.
Stólarnir eru framleiddir i geðdeild Borg-
arspitalans i Arnarholti á Kjalarnesi.
Hafið samband við steypugerðina i sima:
91-66680 eða 91-66681, sem veitir allar
nánari upplýsingar.
Geðdeildin Arnarholti.
TILBOÐ
Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar, sem
verða til sýnis þriðjudaginn 5. mai 1981,
kl. 13—16 í porti bak við skrifstofu vora að
Borgartúni 7:
Ford Fairmont, fólksbifreið...................... árg. 1978
Mazda 929, fólksbifreið........................... ” 1977
Mercury Comet, fólksbifreið....................... ” 1976
Ford Cortina L-1600, fólksbifreið................. ” 1977
Ford Escort, fólksbifreið......................... ” 1976
Peugeot504 station, diesel........................ ” 1974
Ford Bronco....................................... ” 1974
Plymouth Trailduster torfærubifreiö............... ” 1975
Ford F-250 pick-up 4x4............................ ” 1973
Toyota Dyna pick-up............................... ” 1972
Ford Econoline sendiferðabifreið.................. ” 1976
Chevy Van sendiferðabifreið....................... ” 1974
Chevrolet Suburban sendiferðabifreið.............. ” 1973
Land Roverdiesel.................................. ” 1973
Land Rover bensin................................. ” 1972
GAZ 69 torfærubifreið............................. ” 1972
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16:30,
að viðstöddum bjóðendum. Réttur er
áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki
teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006