Þjóðviljinn - 14.05.1981, Blaðsíða 16
DWOVHHNN
Fimmtudagur 14. mai 1981
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná í áfgreiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími aigreiðslu 81663
Flugmannadeilan
að leysast?
Reynum
til þrautar
í nótt
sagði ríkissáttasemjari
— Viö stefnum á aö ljúka
samningum á þessum fundi en
enda þátt einungis sé deilt um
smáatriöi núna sýnir reynslan
okkur aö samkomulag þar um
getur dregist á langinn, sagöi
Guölaugur Þorvaldsson rikis-
sáttasemjari er viö höföum sam-
band viö hann á tólfta timanum I
gærkvöldi.
Fundur Loftleiöaflugmanna
meö rikissáttasemjara hófst kl.
15 i fyrradag og stóö til kl. 9 um
kvöldið. 1 gær var svo framhaldiö.
kl. 16 og þeim fundi var ekki lokiö
er viö náöum sambandi viö rikis-
sáttasemjara seint i gærkvöldi.
FIA menn samþykktu fyrir
nokkru sáttatillögu Guölaugs
Þorvaldssonar en ekki reyndust
þeir Loftleiöamenn eins fúsir til
sátta.
Gjaldskrárnefnd:
Áburður
hœkki
um 74%
Gjaldskrárnefnd hefur afgreitt
tillögur um leyfi til handa opin-
berum fyrirtækjum um hækkanir
á vörum og þjónustu. Þar er m.a.
lagt til aö áburöarverksmiöjan
fái aö hækka framleiösluvöru
sina um 74%, en stjórn verk-
smiöjunnar haföi farið fram á
85% hækkun.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra var i gær spurður
hverju þessi mikla þörf verk-
smiðjunnar fyrir hækkun sætti.
Hann sagði að þegar á það væri
litið að áburðarverksmiðjan fengi
hækkanir aðeins einu sinni á ári
væri ljóst að hækkunin væri ekki
mikið meiri en gerist og gengur
og sum þjónustufyrirtæki heföu
hækkað þjónustu sina meira á
siöasta ári. Hann bætti þvi við að
truflanir á orkusölu til verksmiðj-
unnar heföu haft i för meö sér
aukin kaup á erlendum áburöi
sem hefði hækkað um 25% i er-
lendri mynt. Þegar viö bættust al-
mennar veröhækkanir innan-
lands þyrfti enginn aö undrast
þessar tölur.
Þjóðhagsstofnun og hagdeild
seölabankans hafa afgreiöslu
gjaldskrárnefndar til athugunar
en Pálmi kvaðst vonast til að
rikisstjórnin gæti afgreitt máliö
einhvern næstu daga.
— j
Aðalfundur
útgáfuféiags
Þjóðvlljans
Aöalfundur Gtgáfufélags Þjóö-
viljans veröur haldinn kl. 20 i
kvöld aö Grettisgötu 3.
Félagsmenn eru minntir á að
fjölmenna. Heikningar félagsins
og Þjóöviljans fyrir áriö 1980
liggja frammi á skrifstofunni á
Grettisgötu 3.
Fóstrudeilan
--------------- i
Hreyfing
komin á
samnmga-
málin
Foreldrar taka
börnin með í
vinnuna
„Þaö voru rædd ýmis atriöi
sem ekki höföu veriö rædd áöur”
sagöi Marta Sigurðardóttir fóstra
isamtali viö Þjóðviljann siödegis
i gær. Fóstrur á rikisdaghcimil-
um og fulltrúar rikisvaldsins hófu
samningafund i gærmorgun kl. 10
en siöan var honum frestaö kl. 14
en hófst aftur kl. 18.
Að sögn Mörtu var allt i óvissu
um það hvort til tiðinda myndi
draga, svo virtist sem nokkur
stifni væri enn i rikinu, en von-
andi færi eitthvað að gerast.
1 morgun fjölmenntu foreldrar
barna á dagheimili Landspitalans
með börn sin i vinnu, til að láta á
það reyna hvort hægt er að vera
með þau i vinnunni. Foreldrarnir
eru orðnir landþreyttir á þeim
drætti sem orðið hefur á samningi
rikisins við fósturnar, en foreldr-
ar hafa lýst yfir fullum stuðningi
við kjarabaráttu fóstra.
—ká
Bíómiðinn
skal kosta
19 krónur
t frétt um veröhækkanir i blaö-
inu I gær var frá þvi skýrt aö bió-
miöar hækkuöu nú ur krónum
17.50 i kr. 20. Fékk blaðamaöur
þaö verö gefiö upp i sima hjá einu
bióinu i borginni.
Samkvæmt upplýsingum verð-
lagsstofnunar er þetta verð á al-
mennum sýningum skýrt verð-
lagsbrot. Hið leyfða verð biómiða
væri 19 krónur og frá þvi væri
ekki heimilt aö vikja nema um
væri að ræða auglýst hækkaö verð
en leyfi þarf frá verðlagsstofnun
til að hækka miðaverðið.
Biógestir skulu þvi hafa það i
huga að þeir eiga að fá miða sina
á 19 krónur og engar refjar. Ann-
aö er verðlagsbrot nema hækkaö
verö sé auglýst. En i slikum til-
vikum myndi verðið vera nær 25
krónum.
-j
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins kemur saman á laugardag:
Undirbúningur
k j arasamninga
meginmál fundarins
Eins og áður hefur komið
fram i blaðinu verður aðal-
fundur Verkalýösmálaráös Al-
þýðubandalagsins haldinn nk.
laugardag og hefst kl. 10 stund-
vislega i Hreyfilshúsinu i
Reykjavik.
Guöjón Jónsson, formaöur
ráðsins, sagöi i viðtali við Þjóð-
viljann i gær að aðalmál fundar-
ins yrðu viðhorfin i kjaramál-
unum og hvernig staðið verður
að næstu samningagerð. Þá
verður fjallað um þróun at-
vinnu- og efnahagsmála og
kosin veröur ný stjórn ráðsins.
Framsögumenn á fundinum
verða þeir Svavar Gestsson, As-
mundur Stefánsson, Guö-
mundur J. Guömundsson og
Ölafur Ragnar Grimsson.
Fulltrúar i Verkalýösmála-
ráöinu eru beðnir aö mæta vel
og stundvislega, en öllum Al-
þýöubandalagsmönnum er
frjálst aö koma á fundinn.
Guöión Jónsson
Vestmannaeyingar eigá sina göngugötu og nú hefur veriö gefiö leyfi til aö opna þar útimarkaö. A föstu-
daginn i vikunni sem Ieiö var búiö aö opna þar blómamarkaö og margir komu til aö skoöa og kaupa af-
skorin blóm. (Ljósm. S.dór)
Heimild nýju laganna notuð í fyrsta sinn:
Viimsla stöðvuð
í Straumsvík
Vinnustöövun varö i Alverinu i
Straumsvik i fyrradag er
öryggistrúnaöarmaöur nýtti i
fyrsta sinn heimild I nýju
lögunum um aöbúnaö og hoiiustu-
hætti á vinnustööum vegna
óþolandi aöstæöna á vinnustaö.
Veriö var aö taka úrgangsefni
til endurvinnslu er öryggis-
trúnaöarmaöur verkamanna á
staönum, Eyjólfur Bjarnason,
skipaöi svo fyrir, aö vinnslan
skyldi stöövuö. Kallaöi hann síö-
an til mann frá Vinnueftirliti
rikisins og ábyrga menn frá fyrir-
tækinu. Varö niöurstaöan sú aö
hætt var viö vinnsluna.
Eyjólfur Bjarnason sagöi i
samtali viö Þjóöviljann i gær aö
þessi endurvinnsla heföi alltaf
veriö vandamál á staönum en
keyrt heföi um þverbak nú, enda
meira magn I vinnslu en áöur
heföi verið. Hann sagöi, aö allt
heföi þetta gengiö átakalaust
fyrir sig, enginn heföi i raun and-
mælt stöövuninni, enda heföu
verkamennirnir veriö ákveönir i
aö gefa i engu eftir.
Siguröur Briem rafmagnsverk-
fræöingur hjá álverinu sagöi I gær
aö ástæöan fyrir þessum
vandræöum væri sú aö veriö væri
aö taka I notkun þurrhreinsitæki,
sem ættu aö varna mengun frá
verksmiöjunni en meö þeirri aö-
ferö væri erfitt aö endurvinna
súrálið úr úrgangnum. Veriö væri
aö leita aö bráöabirgöalausn á
þessum vanda en þekkt væri aö-
ferö sem væntanlega yröi tekin
upp i haust. Hann taldi aö þaö
magn sem væri endurunniö næmi
um 5000 tonnum á ári svo aö hér
væri um mikið verömæti aö ræöa
en um 90% úrgangsins væri súrál.
-j