Þjóðviljinn - 24.06.1981, Blaðsíða 9
8 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. júni 1981
Miövikudagur 24. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
— Ég tel aö vinstra sam-
starfið í bæjarstjórninni
hafi gengið vel það sem af
er þessu kjörtímabili og
vonandi verður svo áfram/
en að því standa Alþýðu-
bandalagið/ Alþýðuflokk-
urinn og Framsóknar-
menn. Við höfum 6 f ulltrúa
af 9 i bæjarstjórninni.
Það er Sigurjón Erlings-
son, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins á Selfossi
sem mælti svo/ þegar
blaðamaður Þóðviljans tók
hann tali eina örskotsstund
hérna á dögunum.
Sitt af hverju
sameiginlegt
— Nú er Selfoss ekki lengur eitt
af sveitarfélögum sýslunnar
heldur hefur hann veriö gerður aö
sérstöku bæjarfélagi. Teluröu aö
það hafi verið rétt ákvörðun?
— Já, það álit ég og tel reynsl-
una styðja þá skoðun. Mér finnst
betur og ýtarlegar fjallað um þau
málefni, sem snerta sérstaklega
þetta byggðarlag eftir breyting-
una en áður. Kannski má svo að
orði komast, að afgreiðsla mála
sé léttari i vöfum. En þrátt fyrir
þennan aðskilnað höfum við
margvisiegt samstarf viö sýsl-
una. Við rekum t.d. sameiginlegt
bókasafn, byggöa- og listasafn,
sjúkrasamlag, sameiginlegar
brunavarnir og sorpeyðingu með
nágrannas veitarfélögunum.
— Hvað eru margir ibúar á Sel-
fossi?
— Þeir munu vera um 3500 og
segja má, að þeim fjölgi jafnt og
þétt.
Iðngarðar
— Samstarfiö með meirihluta-
mönnum i bæjarstjórninni hefur
gengið vel, segirðu, en hverjar
eru þær framkvæmdir, sem eink-
um hefur verið unnið að á kjör-
timabilinu?
— Það er nú eitt og annað, sem
við höfum haft með höndum en i
stuttu viðtali verður ekki komist
hjá að fara fljótt yfir sögu.
Ég vil kannski nefna þaö fyrst,
að i byrjun þessa kjörtimabils var
hafin bygging fyrsta iðnaðarhús-
næðisins á vegum bæjarins. Er
það byggt samkvæmt reglugerð
um iðngarða, sem bæjarstjórnin
hefur sett og er i raun og veru af-
leiðing þess, að við stofnuöum
sérstakan iönþróunarsjóð, sem er
i eigu Selfosskaupstaðar. Aug-
ljóst er að framkvæmd sem þessi,
stuðlar mjög að bættu ástandi i
atvinnumálum hér á Selfossi og
styrkir þau verulega. Rekstur
þriggja fyrirtækja fer nú fram i
þessu húsi og fyrirspurnir úr
ýmsum áttum bera þess vitni aö
vöntun sé hér á atvinnuhúsnæði.
Úr þvi er ætlunin aö reyna aö
bæta og er þetta upphafið að þvi.
Húsnæði
fyrir aldraða
— Það kom i mínn hlut, að veita
Félagsmálaráði forstöðu. Það
Félagsmálaráð hefur unnið að þvl að koma upp byggingum fyrir aldraða. sem ákaflega brýn þörf var á. Mynd: —gel
Stærsta framkvæmdin á f járhagsáætlun fyrir þetta ár er bygging félagsheimilis. Mynd: —gel
þegar á allt er litið þá held ég að
ekki verði annað sagt en að at-
vinnuástandið hér að Selfossi sé
allgott. En fólki fjölgar og jafn-
framt þurfa atvinnumöguleikar
að aukast.
Og þvi var það, að i vetur leitaöi
bæjarstjórnin til Framkvæmda-
stofnunar rikisins og fleiri aöila
og óskaöi eftir aðstoö til þess að
gera úttekt á atvinnumálum á
Selfossi og að i framhaidi af þvi
verði unniö aö atvinnu- og iönþró-
unaráætlun fyrir Selfoss og ná-
grenniö. Þetta fékk góðar undir-
tektir og að undanförnu hefur
Sigurður Guðmundsson unniö að
þessu verkefni af hálfu Fram-
kvæmdastofnunar. Hefur fyrsti
hluti þessa álits nýlega verið
lagður fram á fundi bæjarráðs.
Besti kosturinn
Og þar með látum við Sigurjón
Erlingsson lokið þessu spjalli
okkar um málefni Selfoss.
— Þaö væri kannski freistandi
að minnast einnhvað á lands-
málapólitikina, segir Sigurjón, —
en það er nú raunar önnur saga,
sem liklega er best að láta þá biða
betri tima. Þó vil ég segja það, að
þótt rikisstjórnin okkar sé nú ekki
algóð, þá sé ég ekki betur en hún
sé sá besti kostur, sem við eigum
völ á nú, og ég styð hana heils
hugar. Ekki kæri ég mig um að
skipta á henni og þeim Geir og
Kjartani, ásamt einhverju fylgi-
fé- — mhg
-
Sigurjón Erlingsson: Ég sé ekki betur en þessi rikisstjórn sé besti
kosturinn, sem viðeigum völ á nú. Mynd: —gel
Með
mörg
jarn
í eldinum
— mgh rœðir við Sigurjón
Erlingsson, bœjarfulltrúa
A Iþýðubandalagsins
á Selfossi
hefur unnið aö því, að koma upp
byggingum fyrir aldraöa, sem
ákaflega brýn þörf er á. í þvi
skyni var skipulagt sérstakt
svæði i nánd við miðju bæjarins
og þar er þessum byggingum ætl-
að að risa. Fyrsta húsið er þegar
fokhelt og er að þvi stefnt, að það
verði tilbúið til afhendingar 1.
nóvember i haust. I þessu húsi
verða 8 ibúöir. Umsóknir um slikt
húsnæði eru miklu fleiri en hægt
er að sinna á þessu stigi og er
ijóst, að sleitulaust verður að
halda áfram við að koma upp
svona byggingum. Aformuð er
bygging þriggja húsa af þessari
stærö. Auk þess er hugmyndin aö
reisa þarna dvalarheimili og fé-
lagsmiðstöö, sem næst miðju
hverfisins. Þessar framkvæmdir
voru undirbúnar i byrjun kjör-
timabilsins og vinna viö þær hófst
skömmu siðar.
Dagvistarheimili
og leikskólar
Dagvistarrými hefur veriö
stóraukiö á þessu kjörtimabili og
var ekki vanþörf á. Þá var og haf-
inn rekstur nýs leikskóla, fyrir 60
börn.
Og úr þvi að viö erum að ræða
þessi mál þá langar mig til þess
að nota tækifærið til þess að leiö-
rétta ummæli Morgunblaðsins
varðandi uppsögn fóstra hér.
Blaðiö heldur þvi fram, aö bæjar-
félagiö hafi hafnað viöræðum við
fóstrurnar. Sannleikurinn er sá,
aö bæjarráð hefur visað þessu
máli til samninganefndar bæjar-
ins, eins og eðlilegt er, og segir
um það i bókun, að það vænti
þess, að þessir aðilar taki málið
fyrir á þeim grundvelli, sem fram
kemur i fundargerð Félagsmála-
ráðs, ,,...að málið verði leyst
þannig, að ekki komi tii lokunar
dagvistarheimila og þess
vænst, að mál þetta verði leyst
með samkomulagi”. Ef einhver
getur túlkað þetta sem neitun á
viöræðum þá hefur sá hinn sami
annan skilning á mæltu máli en
ég.
Stærsta framkvæmdin á fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir þetta
ár er bygging félagsheimilis.
Hugmyndin er, að lokiö verði við
að steypa upp stóran hluta þess i
sumar. Bætir sú bygging úr
brýnni þörf og kemur til með að
auövelda mjög alla félagsstarf-
semi hér. Viö höfum, i þessum
efnum, oröið aö notast hér við
gamalt hús frá striðsárunum og
sem eiginlega veröur að teljast
ónýtt.
Ef við vikjum að byggingu
skólahúsnæðis þá er þess að geta,
að byrjaö er á viðbyggingu við
barnaskólahúsið og er henni ætl-
að að bæta starfsaðstöðu fyrir
stjórn og starfsfólk skólans.
Unnið er nú að stofnun fjöl-
brautaskóla á Selfossi. Er svo ráð
fyrir gert, að bygging á fyrsta
áfanga hússins geti hafist i haust
og höfum viö hér tryggt f jármagn
til þess af okkar hálfu. Bygging
fjölbrautaskóla hér er okkur ekki
aðeins mikils viröi hvaö mennt-
unarmálin snertir heldur og at-
vinnumálin þvi slikur skóli er tal-
inn muni skapa hér 35-40 ný störf.
Lif og fjör á dagheimilinu. Mynd: —gel.
Þetta er þvi ekkert smámál fyrir
okkur, frá hvaða sjónarmiði sem
það er skoðað.
íþróttamiðstöð
— Eitthvað hef ég um þaö
heyrt, aö þið séuð að setja á lagg-
irnar iþróttamiðstöð.
— Já, það er rétt. t vor var
komið hér upp iþróttamiðstöð,
sem ætlaö er að starfa yfir sum-
ariö. Er hún rekin af bændum eða
íþróttaráöi, nánar tiltekið. Skap-
ast þarna aðstaða bæöi til úti- og
inniiþróttaiðkunar. Mannvirki
iþróttamiðstöðvarinnar eru öil
staösett nálægt hvort öðru og
mynda þannig eina heild. Þeim
iþróttahópum, sem hingað sækja,
er ætluð gisting i húsnæði barna-
og gagnfræðaskólanna, en mötu-
neyti verður rekið i Gagnfræða-
skólanum, á vegum Hótel Selfoss.
Hóparnir fá til afnota sali fyrir
kvöldvökur og stofur fyrir fundi
og bóklega fræðslu. Skipulagðar
verða skoðunarferðir um Selfoss
og nágrenni, eftir þvi sem óskað
verður. Boðið er bæði upp á fimm
daga dvöl, frá kl. 16.00 á sunnu-
degi til kl. 16.00 á föstudegi og svo
helgardvöl frá kl. 18.00 á föstu-
degi til kl. 15.00 á sunnudegi. Gert
er ráö fyrir að hóparnir hlýti leið-
sögu þjálfara og fararstjóra.
Starfsemi þessi lofar góðu ef
marka má þær undirtektir, sem
hún hefur fengið nú þegar i upp-
hafi.
Þá má og skjóla þvi hér aö, að
unnið er aö veruiegum endurbót-
um á sundhöllinni.
Úr ýmsum áttum
Unglingavinna fer fram á veg-
um bæjarins, fyrir 13, 14, og 15
ára unglinga. Vinna þeir að ýms-
um störfum, svo sem aö ganga
frá og taka til á opinberum svæð-
um auk þess sem veriö er að
koma upp tjaldstæðum fyrir
ferðamenn og er það nýmæli.
Aðalskipulag og gatnagerð hef-
ur veriö i endurskoðun og er þvi
nú lokið. Meiningin er að ljúka á
þessu ári lagningu slitlags á götur
i gamla bænum.
Þá vil ég ekki láta hjá liða að
minnast á lagningu hitaveitu til
Eyrarbakka og Stokkseyrar, sem
samningur hefur verið gerður um
viö bæjarstjórn Selfoss, en aö
henni er nú verið að vinna.
Bæjarráð hefur óskað eftir og
átt fund með ráðamönnum Slát-
urfélags Suöurlands og Mjólkur-
bús Flóamanna þar sem m.a.
hafa verið ræddir möguleikar á
þvi, að þessi fyrir tæki ykju hér
vinnslu úr búvörum.
Atvinnu- og
iðnþróunaráœtlun
Auövitað mætti á fleira drepa
og fara um þetta fleiri oröum en
á dagskrá
>Bandarísk verkalýðshreyfing er komin
langt frá uppruna sínum, frá því að
vera byltingarsinnað afl, sem reyndi að
breyta þeirri þjóðfélagsgerð
er hún bjó við, til þess að verða
eins konar stofnunarveldi
Jon Kjartans
son, Vest-
Bandarísk
verkalýðshreyfing
Sá er þessar linur ritar, var fyr-
irstuttuihópi f jögurra fulltrúa er
A.S.l. valdi til viku feröar til
Bandarikjanna i boði banda-
riskra stjórnvalda og verkalýðs-
hreyfingar. Tilgangurinn með
fis-inni var sá að kynnast starfs-
semi verkalýösfélaga þar vestra
og ræða við leiðtoga stéttarfé-
laga. Ekki verður ferðasagan
rakin hér, en þar sem bandarisk
verkalýöshreyfing heldur á þessu
ári upp á aldar afmæli samein-
ingar undir eitt merki, þá taldi ég
ekki úr vegi aö lesendur fengju
smá nasasjón af sögu hennar og
uppbyggingu.
Þann 15. nóvember 1881 komu
leiðtogar nokkurra sérsambanda
saman til að stofna landssamtök
með þaö fyrir augum að sameina
allt launafólk i Bandarikjunum
undir eitt merki. Skipulögð
verkalýðsbarátta i Bandarikjun-
um er þó mun eldri og fyrsta
verkfallið, sem sögur fara af var
háð i New York 1796.
Hatröm barátta
Saga verkalýðsbaráttu i
Bandarikjunum hefur fram undir
þetta einkennst af rangsleitni i
samskiptum við löggjafarvald og
dómstóla, hrottaskap og blóðsút-
hellingum i samskiptum við at-
vinnurekendur. Af þeim sökum
hefur bandarisk verkalýðshreyf-
ing átt mun erfiöara uppdráttar
og þróast i' annan farveg en
bræðrahreyfingar hennar i
Evrópulöndum.
1 lok 19. aldar og upphafi þess-
arar höfðu ýmis risafyrirtæki og
samsteypur komið sér upp einka-
her eða lögreglu, sem beitt var af
mikilli harðýgi til að berja niður
flestar tilraunir verkafóiks til að
bæta ömurleg kjör sin, aöbúnaö
og vinnutima. Fylkisstjórnir og
sambandsstjórn voru einnigfúsar
til að senda lögreglu, þjóðvarð-
liða og her til aö berja á verka-
mönnum, ef málaliðar atvinnu-
rekenda höfðu ekki i fullu tré við
mótþróafullan verkalýð. Auk
þess risu upp heilu einkalögreglu-
fyrirtækin, sem falbuðu atvinnu-
rekendum aöstoö sina við þá iðju
að brjóta á bak aftur verkalýösfé-
lög, leggja til verkfalls — brjóta
og sundra verkfallsaögerðum
þeirra. Þaö fyrirtæki, sem einna
frægast hefur orðiö i þessari and-
verkalýössinnuðu baráttu, er
Pinkertonfyrirtækið. Dómstólar
létu oft á tiðum ekki sitt eftir
liggjaþegar tilþeirra kasta kom.
Aðgerðir verkalýðsfélaga voru
oftar dæmdar ólöglegar og for-
svarsmenn þeirra fangelsaðir.
Ofáir dauðadómar yfir verka-
lýðssinnum er svartur blettur á
sögu bandarisks réttarfars.
Öamerísk — ólögleg
Það sem einna helst aðgreinir
bandariska verkalýðshreyfingu
frá þeirrievrópsku a-, að hún hef-
ur aldrei gert neinar alvarlegar
tilraunir til að hafa pólitisk áhrif
á þá þjóöfélagsaðagerð, sem hún
byr viö s.s. með tengslum viö
sósialiskan st jórnmálaflokk,
heldur starfar hún eingöngu sem
fagleg hagsmunasamtök, sem
reynir aö fremsta megni aö
standa vörö um hagsmuni um-
bjóðenda sinna, innan þess
þrönga ramma, sem löggjafinn
setur starfssemi hennar hverju
sinni. Þegar AFL var stofnað, var
i upphafi tekin sú ákvörðun að
stofna ekki nýjan flokk, heldur
styðja þá flokka, sem fyrir væru
eftir þvi sem kaupin gengju á
Eyrinni hverju sinni. Þrátt fyrir
þessa ýfirlýsingu setti Atvinnu-
rekendasambandið bandariska
fram þá kenningu árið 1913 sem
reynst hefur harla lifseig allar
götursiöan aö verkalýðssamtökin
væru „óamerisk, ólögleg og svi-
virðileg samsærissamtök” Jafn-
framt þessu reyndu andverka-
lýðssinnuð öfl aö koma þeim
kvitti á kreik, aö tengsl væru á
milli verkalýðshreyfingarinnar
og rússnesku byltingarinnar (sú
móðursýki náöi reyndar hámarki
á McCarthy-timanum) og má
segja aö bandariska verkalýðs-
hreyfingin hafi æ siðan verið önn-
um kafin viö aö þvo af sér „rauöa
stimpilinn”. Hún hefur jafnvel
gengið svo langt aö snúast gegn
félagslegum umbótum, sem
henni hefur þótt iykta um of af
kommúnisma. Reyndar gerir
meginþorri Bandarikjamanna
engan greinarmun á
kommúnisma og sósialisma, tel-
ur hvorttveggja jafn ó-ameriskt.
A sviði löggjafar um félagslegar
tryggingar eru Bandarikjamenn
mjög aftarlega á merinni, miðað
við all-flestar Evrópuþjóðir. Aft-
urá móti hafastéttarfélögin sam-
ið um slikt við atvinnurekendur
og eru það ýmist atvinnurekend-
ur eða sjóðir félaganna, sem ann-
ast greiöslur vegna sjúkrakostn-
aðar, eftirlauna o.fl.
Þröngar skorður
t landi einkaframtaksins er
starfsemi stéttarfélaganna settar
mjög þröngar skorður, borið
saman við það sem tiðkast i vel-
flestum E vrópulöndum. Hvert
fyrirtæki, eða heilu fyrirtækja-
samsteypurnar. geta komist upp
með að semja ekki við stéttarfé-
löginog neyöast þvi aöeins til aö
gera slikt, ef meirihluti starfs-
manna samþykkir að ganga i
stéttarfélag — en atvinnurekand-
inn hefur heimild til að meina
talsmönnum stéttarfélaganna að-
gang aö fyrirtækinu til aö ræöa
við verkafólkiö, þaö gildir einu
þótt félagið hafi gert samninga
við samskonar fyrirtæki á næsta
götuhorni. Algengt er að slik fyr-
irtæki, sem ekki kæra sig um að
fá stéttarfélögin inn á gafl hjá
sér, neiti að ráða félagsbundiö
verkafólk i vinnu og oft eru fé-
lagsbundnir verkamenn reknir úr
vinnu islikum fyrirtækjum ef upp
kemst um félagsaöild þeirra.
Góður bisnis
Þaö er reyndar arðvænleg og
vaxandi atvinnugrein i Banda-
rikjunum, sem á máli þarlendra
nefnist „Union bursting” en það
eru einskonar ráögjafarfyrirtæki
sem selja atvinnufyrirtækjum
þjónustu sina, þegar þau vilja
bægja stéttarfélögum og áhrifum
þeirra frá starfsfólki sinu og
vinnustað. Einnig taka slik
„þjónustufyrirtæki” að sér að
losa fyrirtæki úr „klóm” stéttar -
félaga og ráða niöurlögum litilla
og veikburöa stéttarfélaga sé
þess kostur, og eru slik „þjónustu-
fyrirtæki” oft ekki vönd að með-
ulum i' viðureign sinni við verka-
lýöshreyfinguna.
Mafía
og myrkraverk
1 hugum margra, bæöi utan
Bandarikjanna og innan, er það
nokkuð Utbreidd skoðun að tengsl
séu milli verkalýðshreyfingar-
innar þar og skipulagðrar glæpa-
starfsemi, enda hefur þaö verið
vinsælt kvikmynda- og sjón-
varpsefni. Þessi imynd virðist
ætla að veröa harla lifseig, þó að
vitað sé aö AFL-CIO (bandariska
Alþýðusambandið) taki mjög
hartá öllu fjármálamisferli sam-
bandsfélaga sinna. Er þar nær-
tækast dæmiö um samband flutn-
ingabi'lstjóra, sem rekið var úr
AFL-CIO vegna f jármálamisferl-
is forseta þess.
Við bau skilyrði, sem hér hafa
verið rakin i örstuttu máli, hefur
bandarisk verkalýðshreyfing
vaxið Ur grasi og hefur nú innan
sinna vébanda rúmlega 20%
launafólks þar i landi. Okkur þyk-
ir það ekki stórt hlutfall, að að *-
eins fimmtihver launamaður sé
innan stéttarfélaga þar vestra.
En bandarisk verkalýðshreyfing
hefur þó furðu mikil áhrif, bæði
beintog óbeint á bandariskt þjóö-
lif, t.d. meö áhrifum á almenn
laun, þar sem fyrirtækin, sem
ldía verkalýðsfelögin úti, neyðast
tilaö bjóöa starfsfólki sinu svipuð
kjör og stéttarfélögin semja um
hverju sinni, þótt oft vanti ýmis-
legt á, ef grannt er skoðaö.
Bandarisk verkalýðshreyfing
er komin langt frá uppruna sin-
um, frá þvi að vera byltingar-
sinnað afl, sem reyndi aö breyta
þeirri þjóöfélagsgerö, er hún bjó
við, til þess að veröa e.k. stofnun-
arveldi meö höfuðstöðvar sinar á
toppi piramidans, i Washingtffli.
HUn vill nU telja sig það afl i
bandarisku þjóðlifi, sem hafi
aukin áhrif á stöðugleika þess,
sem þýöir einfaldlega að hún
sættir sig viö rikjandi ástand og
kýs fremur stéttasamvinnu en
stéttaátök.
Forusta hreyfingarinnar er þvi
talin all-ihaldssöm, enda aðeins
einn sósialdemókrati (eins og
merkingin er lögð i það orð i
Evrópu) i 33ja manna miöstjórn
Bandariska Alþýðusambandsins
(AFL-CIO).
Reagan-stjórnin hefur nú
ákveðið að lækka skatta og til að
mæta þvi tekjutapi hefur hún
ákveöiö aö skera alÍTharkalega
niöur þær naumu félagslegu um-
bætur, sem bandarisk alþýða bjó
þó við. Fróöiegt veröur að fylgj-
ast með viðbrögðum AFL-CIO viö
þeirri árás á lifskjör almennings.