Þjóðviljinn - 30.07.1981, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3«. júll 1981
Fimmtudagur 30. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Elisabet Þórisdóttir, forstööumaöur sumarstarfsins. Mynd —gel
Krakkarnir
vita að
þelr geta
treyst
okkur
Hvað geta börnin á þéttbýlinu
gerta' sumrin þegar skólarnir eru
lokaðir? Eru þau á götunni i reiöi-
leysi.eru þau isveiteöa eru þau á
einhverjum þeim námskeiöum
sem yfirvöld bjóöa uppá fyrir
börn og unglinga. Um daginn var
i annarrar siöu viötali rætt viö
Hjördísi Hjartardóttur, deildar-
stjóra útibús Félagsmálastofnun-
Þaö er stundum gott aö kela pinulltiö Ipúöaherberginu
Heimsókn í Fellahelli
Púöaherbergiö er ailtaf jafnvinsælt hjá öllum aldursflokkum. Mynd —gel
ar Rvk. I Breiðholti um þaö sem I
boði er i sumar fyrir börn I þessu
barnflesta hverfi borgarinnar.
Taldi Hjördis það starf gott I
mörgum greinum en ekki full-
nægjandi. Til að fá betra yfirlit
yfir heildarstarfið með börnum
og unglingum i hverfinu heim-
sóttum við Elisabetu Þórisdóttur,
forstöðumann með sumarstarfinu
og starfsmann Fellahellis.
„Þetta ersjöunda sumariðsem
við erum með námskeið fyrir
böm á aldrinum 6- 12 ára”, sagði
Elisabet. „Fyrstu þrjú sumrin
vorum við á Utivistarsvæðunum
sem hérna eru og á starfsvöllun-
um. Þessi námskeið voru opin.
Krakkarnir gátu komið þegar
þeirvildu. Si'ðan vildum við pröfa
okkur áfram með eitthvað annað
og fórum af stað með lokuð nám-
skeið i þvi' formi sem þau eru nú.
Þetta eru hálfs mánaðar nám-
skeið frá kl. 10- 12 og 1- 4. Við
könnuðum meðal foreldra hvort
áhugi væri á að börnin væru her I
hádeginu en svo reyndist ekki
vera. Samt er ekkert þvi til fyrir-
stöðu að þau sem vilja séu hér i
hádeginu og borði. Ég held mér sé
óhætt að segja að námskeið þessi
séu afar vinsæl.
Við lögðum á það áherslu strax i
upphafiað þetta yrði ekki eins og
hver annar geymslustaður og
heldurekkisem framhald af skól-
anum. Við erum bæði úti og inni
og ræðst það mikið af veðri. Yfir-
leitt finnst krökkunum spennandi
að vera inni, sérstaklega i púða-
og föndurherbergjunum. Svo er
lika hægt að spila borðtennis inni
o.fl. Þegar við erum Uti förum við
i leiki og i stuttar ferðir í ná-
grenninu. T.d. er afar vinsælt að
fara i „Indianagilið”. Við borðum
stundum úti i góðu veðri, og grill-
um þápylsur.Svo förum við lika i
lengri ferðir 1 - 2 á sumri.”
Fellahellir er sem kunnugt er
einaf þremur félagsmiðstöðvum i
borginni. Hinar eru Þröttheimar
og bústaðir. 1 Fellahelli er skipu-
lagt starf með unglingum allan
ársins hring. Bæði sumar og vet-
ur er opið frá kl. 8 - 11 alla virka
daga nema laugardaga og sjald-
an eru þar færri en 100 manns á
kvöldi. Aðallega koma unglingar
á aldrinum 13 -15 ára og þeirspila
áspil.dansa hlusta á tónlist,spila
tennis o.fl. Þarna er kaffiteria
þar sem má fá sér snarl eða bara
sitja og rabba saman. Krakkarnir
geta lika verið i tómstundaher-
berginueða púðaherberginu (það
er jafnvinsælt hjá öllum aldurs-
flokkum) eða þá i „afslöppunar-
eða ástarherberginu” eins og
Elisabet kallaði notalegt li'tið her-
bergi með lágum borðum og
mjúkum stólum að ógleymdu
sjónvarpi.
Elisabet segir okkur ennfremur
að vetrarstarfið sé ekki slður
blómlegt og vinsælt. Sl. vetur var
farið af stað með skipulagt
fræðslustarf um ákveðin mál,
kynfræðslumál, fikniefnamál og
dómsmál og réttarfar. Að
óreyndu mætti ætla að skólinn sæi
um að miðla þeirri fræðslu til
unglinga sem þeim er nauðsynleg
og ekki er tryggt aðheimilin veiti.
En það hefur sýnt sig, segir El-
Isabet, að þaö er virkilega þörf
fyrir fræðslu af þessu tagi.
En er nú vlst að náist til þeirra
unglinga sem eru kannski I hvaö
mestri þörf fyrir fræöslu þá og
umönnun sem unglingarnir í
Fellahelli fá?
„Jú, ég held að við náum til
þeirra flestra”, segir Elísabet.
„Starfið hér er eitthvað sem er!
eftirsóknarvert. Unglingarnir
finna aö þeir skipta máli, það er
talað við þá og hlustað á þá og
þeirfá virkilega svör við mörgum
spurningum um lifið og tilveruna
og annað sem brennur á þeim þá
stundina. Krakkarnir vita að þeir
geta treyst okkur.”
Eru kannski félagsmið-
stöövarnar þaö sem kemur helst
til meö aö leysa „Unglingavanda-"
máliö”?
„Ég erekkii'vafa umaðfélags-
miðstöðvar i hverju hverfi leysi
margan vanda og komi ungling-
unum mjög tilgóða. Þeir þurfa að
hafa stað útaf fyrir sig. Það má
ekki vera miklum erfiðleikum
bundið að komast þangað, ekki
lengra en i skólann. Þau vilja
hitta kunningjana fyrir utan skól-
ann og sé i hverfinu þannig
félagsmiðstöö er öruggt að þar
má alltaf hitta einhvern.” —hs
.
■ ■ ■
■
■
Þetta er einn hópurinn sem er á sumarnámskeiöi I Fellahelli I sumar. Rrakkarnir eru á aldrinum 6-12 ára á náxnskeiðunum sem eru I háifan mánuö I senn. Mynd —gel
Yfirleitter margmennil Fellahelli á kvöldin, oft um 100 manns. Þessi mynd er tekin I kaffiterlunni. Myndir —gel
Dansað I Fellahelli