Þjóðviljinn - 27.08.1981, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 27. ágúst 1981 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 11
iþróttir (3 íþróttir (3 íþróttir [
VERRA GAT ÞAÐ VERIÐ:
3:0 SIGUR DANA
Marteinn Geirsson, fyrirliði islenska Iandsliðsins. Vörn islenska landsliðsins haföi i nógu að snúast gegn Dönum I gær, og þrátt fyrir mörkin
þrjú, stóð hún sig vel undir stjórn Marteins. Marteinn fær litla hvild, þvi úrslitaleikur Bikarkeppninnar biður hans á sunnudag.
16 þúsund áhorfendur urðu vitni
að 3-0 sigri Dana gegn islenska
landsliöinu á Idrætsparken i
Kaupmannahöfn i gærkvöldi. Má
segja að við höfum haldiö andlit-
inu og vel það.
Leikurinn þótti heldur slakur,
og virtust Danir heldur áhuga-
lausir. Staðan i hálfieik var 3-0.
Eins og viö var aö búast léku
strákarnir okkar stifan varnar-
leik, og varö ekki mikiö um
marktækifæri, þó svo aö Danir
hafi skoraö öll sin mörk i fyrri
hálfleik.
Allan Simonsen var potturinn
og pannan i leik Dananna, og þó
svo aö hann hafi verið i strangri
gæslu tókst honum aö skora tvö
mörk á siðustu minútum hálf-
leiksins. Aður haföi Lyndkvist
skoraö fyrir Danina.
Islendingar áttu aöeins eitt
marktækifæri i leiknum og kom
þaö i siöari hálfleik. Magnús
Bergs skaut þá yfir i nokkuð góöu
færi.
Þó útlitiö hafi veriö dökkt i hálf-
leik, gáfust okkar menn ekki upp,
og komu i veg fyrir aö Danir skor-
uðu fleiri mörk. Danska liöiö var
eins og venjulega léttleikandi,
enda hafa liösmenn þess sérlega
góða boltameðferö, en marktæki-
færi þeirra voru ekki i samræmi
viö yfirburöi þeirra á vellinum.
Okkar menn hafa sennilega
farið inn á meö þvi hugarfari aö
reyna aö ná jafntefli, eöa a.m.k.
aö fá sem allra fæst mörk á sig.
Veröur þaö aö teljast á allan
máta eölilegt, þvi allir vissu aö
Danir eru meö talsvert sterkara
liö en viö, auk þess sem þeir voru
á heimavelli.
Margir höföu taliö aö landsliöiö
fengi á sig burst gegn Dönum, en
telja verður aö viö höfum sloppið
nokkuö vel, og getum viö haft i
huga aö Danir unnu sjálfa Itali i
vor meö 3:1.
Vonandi angra þessi úrslit ekki
„anti sportista’’ hér á landi mjög.
Þeir heföu eflaust viljaö fleiri
dönsk mörk.
B
Viðar Þorkelsson má ekki leika,
þvi hann hefur leikið i bikar-
keppni 2. flokks á sumrinu. Að-
spurður kvaðst Hólmbert, ekki
vera búinn að gefa 1. deildina upp
á bátinn, en þar eiga Framarar
veika von á sigri.
Aö sjálfsögðu ætla Eyjamenn
sér ekkert annað en sigur á
sunnudaginn, en eftirtaldir 20
leikmenn hafa verið valdir i
undirbúning fyrir leikinn: Guð-
mundur S. Mariasson, Páll
Pálmason, Sigurlás Þorleifsson,
Þóröur Hallgrimsson, Helgi
Einarsson, Hlynur Stefánsson,
Þórhallur Þórhallsson, Guö-
mundur Erlingsson, Kári Þor-
leifsson, Gústaf Baldvinsson,
Ömar Jóhannsson, Viðar Elias-
son, Kári Vigfússon, Snorri Rúts-
son, Valþór Sigþórsson, Jdhann
Georgsson, Ingólfur Ingólfsson,
Bergur Agústsson, Sigurjón
Kristinsson og Agúst Einarsson.
Kjartan Másson er þjálfari IBV.
Eyjamenn ætla að koma timan-
lega til Reykjavikur með
Herjólfi, þannig að ekki ætti að
koma til „klassiskrar” frestunar
Guðmundur
og Magnús
dæma ytra
Guðmundur Haraldsson mun
dæma leik Liverpool og finnsku
meistaranna OPS Oulu i Englandi
30. september. Honum til að-
stoðar á linunni verða Óli P.
Ólsen og Róbert Jónsson.
Magnús Pétursson mun dæma
leik Valeringen og Legia Varsjá i
Osló þann 16. sept. Honum til aö-
stoðar verða þeir Þorvarður
Björnsson og Sævar Sigurösson.
Bikarúrslitaleikur KSÍ á sunnudaginn:
Fram og ÍBV leika
x /
annao anð 1 roð
Úrslitaleikurinn f Bikarkeppni
KSl fer fram á sunnudaginn
kemur á Laugardalsvellinum, og
hefst kl. 15.30. Til úrslita ieika
Fram og tBV. Er þetta í annað
skiptið i'röð scm þessiiiö leika til
lírslitaí Bikarnum. í fyrra sigraöi
Fram 2-1.
Þessi Bikarúrslitaieikur er sá
22. í röðinni. KR hcf ur oftast orðiö
Bikarm eistari eða 7 sinnum,
Fram og Valur hafa unnið fjórum
sinnum hvort félag, Vestmanna-
eyingar hafa unnið tvivegis, og
ÍBA, ÍA, ÍBK og Vikingur hafa öll
unnið Bikarinn einu sinni.
Skagamenn hafa oftast leikiö til
úrslita, eða 9 sinnum.
,,Þetta verður harður leikur, og
hart barist um miðjuna”, sagöi
Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
Fram á blaðamannafundi. „Ég á
von á því að Eyjamenn veröi
erfiöari en i fyrra, og eins er ég
smeykur um aö landsliðsmenn
Framara veröi etv. þreyttir eftir
leikinn gegn Dönum svo ekki sé
minnst á hugsanleg meiðsli”.
Hólmbert taldi, að amk. 3 mörk
yrðu skoruö i leiknum, og ekki
yröi lögö meiri áhersla á varnar-
leikinn en gengur og gerist.
Trausti Haraldsson einn albesti
leikmaöurinn i liöi Fram hefur átt
viö smávægileg meiðsli aö striöa,
en liklegt er taliö, að hann veröi
búinn aö ná sér aö fullu fyrir leik-
inn. Heyra mátti á Hólmberti aö
hann teldi Ómar Jóhannsson
„heilann” i IBV liöinu, en ekki
fékkst Hólmbert til að segja hvort
Ómar yröi i sérstakri gæslu.
Framararmunu tefla fram sömu
mönnum i' leikinn og aö undan-
förnu. Þó ber þess aö geta, að
eins og svo oft þegar Vestmanna-
eyingareiga ihlut. Eyjabúarætla
aö fjölmenna á leikinn, og verða
sérstakar ferðir á sjó og i lofti i
tilefni leiksins.
Eins og áöur segir, er þetta
annaö árið i' röö sem þessi lið
leika til úrslita um Bikarinn, og i
bæöi skiptin hafa liðin verið meö
innlendan þjálfara, og verður
slikt að teljast einkar ánægjulegt.
Ætti þaö aö vera umhugsunarefni
fyrir önnur félög, sem sum hafa
alltof oft kastað peningum á glæ
meö þvi að ráöa erlenda þjálfara,
sem litlum eöa engum árangri
hafa skilað. Má i þessu sambandi
nefna, að siöan Hólmbert tók við
þjálfun Fram 1979, hefur árangur
liðsins verið einstaklega góöur.
Undirhans stjórn hefur Fram tvi-
vegis orðið Bikarmeistari (1979
og 1980) og i fyrra varð Fram i 2.
sæti 1. deildar.
Hreiðar Jónsson dæmir leikinn,
ogóli P. ólsen og Sævar Sigurðs-
son verða li'nuverðir.
Vestmannaeyingar veröa aö hafa góöar gætur á þessum pilti á sunnudaginn ef ekki á illa aö fara fyrir
þeim, þvi fái hann aöleika lausum hala, láta Frammörkin ekki biöa eftir sér. Myndin sýnir Pétur Orm-
slev senda knöttinn i netib.
Guömundur Haraldsson, dómari.
Fjórir
í bann
A fundi sinum i fyrradag
dæmdi Aganefnd KSl fjóra leik-
menn i eins leiks bann. Eru það
KR-ingarnir Sigurður Péturs-
son og Börkur Ingvarsson, Jón
Alfreðsson IA, og Sævar
Sverrisson Selfossi.
Sigurður og Börkur voru
komnir með 10 refsistig, en Jón
var rekinn af leikvelli gegn
Viking. Þessiþrir verða þvi ekki
meö ileik KRog 1A þann 3. sept.,
og veröur skaöi KR-inga að
teljast meiri þó svo Jón sé afar
traust stoð i liöi Skagamanna.
Jón Aifreössyni var vikiö af
leikvelli gegn Vlking og fær cins
leiks bann.