Þjóðviljinn - 09.09.1981, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. september 1981
ÚTBOÐ
HH
^ >V> A
MM
Tilboð óskast i stálþil og fylgihluti (ca 650
tonn af stáli) fyrir Reykjavikurhöfn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri að Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 20. október kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sirni 25800
Fóstra óskast
á dagheimilið Sunnuborg til afleysinga i
nokkra mánuði frá 1. október n.k.
Einnig óskast aðstoðarfólk i eldhús.
Upplýsingar hjá forstöðumanni i sima
36385.
Sendlll óskast
Utanrikisráðuneytið óskar að ráða pilt eða
stúlku til sendiferða hálfan daginn, fyrir
hádegi, i vetur.
Möguleikar á fullu starfi i skólaleyfum og
næsta sumar. Nánari upplýsingar veittar i
afgreiðslu ráðuneytisins.
Utanrikisráðuneytið.
Auglýslng
Tilkynning til ibúa á Akranesi:
Vegna gerlamengunar i vatnsbóli Akur-
nesinga, er fólki ráðlagt að sjóða allt
neysluvatn fyrst um sinn.
Heilbrigðisnefnd Akraness.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins.
Byggingarverkfræðingur eða
tæknifræðingur óskast
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir að
ráða byggingarverkfræðing eðabyggingar-
tæknifræðing til starfa vegna linubygg-
inga.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist fyrir 20. september
n.k.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavik.
Blikkiðjan
Asgarði 7. Garðabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmlði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468
I
I
í Norræna hiisinu. Ljosm. —gel.
Stéttarsamband bænda:
Stjómarkjör
A nýafstöönum aöalfundi
Stéttarsambands bænda fór fram
kosning á mönnum i stjörn sam-
bandsins til næstu tveggja ára.
Fer kosning fram meö þeim
hætti, aö hvert kjördæmi stillir
upp fjórum mönnum, sem fund-
urinn kýs siöan um, en hverju
kjördæmi ber maöur f stjórnina.
Aöalmenn til næstu tveggja ára
voru kjörnir:
Úr Reykjaneskjördæmi: Gisli
Andrésson, bóndi á Hálsi meö 26
atkv.. Vesturlandskjördæmi:
Magniis Sigurösson, bóndi, Gils-
bakka.með 45 atkv.. Vestfjarða-
kjördæmi: Guðmundur Ingi
Kristjánsson, bóndi á Kirkjubóli,
37 atkv.. Norövesturlandskjör-
dæmi: Þórarinn Þorvaldsson,
bóndi á Þóroddsstöðum, 33 atkv..
Noröausturlandskjördæmi: Ingi
Tryggvason, bóndi á Kárhóli, 33
atkv.. Austurlandskjördæmi,
Þorsteinn Geirsson, bóndi á
Reyðará, 36 atkv.. Suðurlands-
kjördæmi: Böövar Pálsson, bóndi
á BúrfelÚ, 41 atkv.. Magniís á
Gilsbakka kom inn i stjórnina
fyrri Gunnar Guðbjartsson og
hlaut öllatkv. utan eitt. Hinir allir
voru endurkjörnir.
Varamenn i stjórnina voru
kjörnir: Jdn M. Guðmundsson,
bóndi á Reykjum 1 Mosfells-
sveit, 42 atkv.. Sigurður Þórólfs-
son, bóndi i Innri-Fagradal, með
25 atkv.. Jónas R. Jónsson, bóndi
á Melum, 21 atkv.. Kristdfer
Kristjánsson, bóndi i Köldukinn,
16 atkv.. Grimur Jónsson, bóndi i
Ærlækjarseli, 31 atkv.. Sveinn,
Guðmundsson, bóndi á Sellandi,
30 atkv.. Einar Þorsteinsson,
bóndi og ráðunautur i Sólheima-
hjáleigu, 19 atkv.. Kristófer i
Köldukinn og Jón Guðmundsson,
bóndi á Oslandi I Skagaíirði, urðu
jafnir að atkv., 16 hvor. Var dreg-
ið á milli þeirra og kom upp hlut-
ur Kristófers.
Endurskoðendur reikninga
Stéttarsambandsins voru endur-
kjörnir þeir Július Jónsson, bóndi
Norðurhjáleigu, og Sigsteinn
Pálsson, bóndi á Blikastöðum.
Varamaður þeirra er Guðmundur
Stefánsson, bóndi i Hraungerði.
—mhg
Skólastjórnendur þinga:
Ræða um aðstöðu og
búnað í gruimskólum
Helgina 12. og 13. september
nk. verður haldið þing Félags
skólastjóra og yfirkennara á
grunnsktílastigi. Þingið verður
haldiö á Hótel Sögu.
A þinginu verða tvö aðalmál
tekin til meðferðar. 1 fyrsta lagi
verður f jallað um notkun mynd-
segulbanda í kennslu og um það
efni mun Karl J. Jeppesen
deildarstjóri halda erindi. Þá
verður fjallað um niðurstöður
könnunar á búnaði og aðstöðu i
grunnskólum landsins, sem gerö
var sl. vetur. 1 úrvinnslu er
gerður samanburður á búnaði og
aðstöðu i fræösluumdæmunum og
i mismunandi skólagerðum. 1
könnuninni kemur fram að
búnaöur og aðstaða er mjög
breytileg og sýnir vel aðstöðumun
nemenda og kennara til starfa
milli skóla og landshluta.
A þinginu verður tekin ákvörð-
unum hvemig vinna megiskýrsl-
una nánar og hvernig niöurstöður
hennar verða notaðar. A sunnu-
deginum 13. september verður
siðan haldinn aðalfundur félags-
ins.
Breyting
á leiðum
Strætisvagna
Kópavogs
SU breyting var gerö 5. sept. sl.
á leiðakerfi Strætisvagna Kópa-
vogs aðeftirkl. 19eru leiðir 21 og
22 sameinaðar, þannig að vagn-
inn ekur frá skiptistöð venjulega
Vesturbæjarleið, en við Skelja-
brekku ekur hann Nýbýlaveg I
TUnbrekku og lýkur leið 22 á
skiptistöð. Sérstaka timatöflu og
kort yfir kvöld- og helgaráætlun
er hægt aö fá bæði i vögnunum og
skiptistöðinni.
Nýj ar
bækur
Tvær nýjar bækur eru komnar
Ut hjá Iðunni. Er önnur kennslu-
bók f tölvufræðum og heitir For-
ritunarmálið Basic. Halla Björg
Baldursdóttir tók hana saman.
Bókin skiptist i tiu aðalkafia þar
sem fjallað er um almenn atriði
tölvufræðinnar, forritunarmálið
og skráarvinnslu o.fI.< Bókin er
um 140 blaðsíður, fjölrituð.
Hin bókin heitir Dómar Ur
stjórnskipunarrétti og er eftir
Gunnar G. Schram. 1 bókinni er
ágrip flestra dóma Landsyfir-
réttar og Hæstaréttar, er varða
stjórnarskrána. Agripin eru 387
talsins en elsti dtímurinn er frá
árinu 1877 en þeir yngstu frá 1980.
Þá eru i lok bókarinnar skrár um
dóma og lög sem vitnað er til.
Bókin er 196 bls. að stærð.