Þjóðviljinn - 23.10.1981, Side 3
Föstudagur 23. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Kristmann !
áttræður
Kristmann Guðmundsson
rithöfundur er áttræður i
dag. Hann er fæddur á Þver-
felli i Lundareykjadal 23.
okt. 1901. Kristmann hélt út
fyrir landssteinana 23 ára
gamall og bjó eriendis i 13
ár. Hann haslaði sér fyrst
völl sem rithöfundur i Noregi
en fluttist heim 1939 og skrif-
aðieftir það á islensku. Bæk-
ur hans skipta tugum og hafa
verið þýddar á fjölmörg
tungumál. Kristmann Guð-
mundsson hefur á langri ævi
kvænst níu sinnum. Hann á
nú heima á Hrafnistu i Hafn-
arfirði.
Bankameim hóta
verkfallsboðun
Stjórn og samninganefnd Sam-
bands íslenskra bankamanna
hefur sent frá sér yfirlýsingu þar
sem hún átelur mjög ráðleysi og
tregðu samninganefndar bank-
anna. Telur stjórnin og samn-
inganefndin óhjákvæmilegt að
boðað verði til verkfalls innan ör-
fárra daga verði ekki grundvail-
arbreyting.
Ól.G.
Betra jafnvægi og meiri stöðugleiki i efnahagsmálum
Gruimmn verður
að treysta enn
— sagði Gunnar
Thoroddsen
í stefnuræðu
ríkisst j ómarinnar
í stefnuræðu sinni I gærkvöldi
sagði Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra að stefna rikis-
stjórnarinnar i efnahagsmálum
b.yggði á þeirri meginforsendu,
að árangurs sé þvi aðeins að
vænta, að tekið sé á öllum þátt-
um efnahagsmála i senn og
jafnvægis leitað á öllum svið-
um. Dr. Gunnar sagði að það
sem einkennt heföi þjóðarbú-
skap islendinga á þessu ári öðru
fremur væri að betra jafnvægi
og meiri stöðugleiki hefði færst i
efnahagslifið en verið hefði um
langt árabil.
Verbbólgan hefði hjaðnað
verulega án þess að færðar
væru þær fórnir atvinnuleysis
og rýrnandi lifskjara sem aðrar
þjóðir hafa fært i sömu baráttu.
Rikisfjármál og peningamál
væru i betra jafnvægi en verið
hefur á siðari árum. Viðunandi
jafnvægi hefði náðst i viðskipt-
um við útlönd. Gengi gjaldmið-
ils hefði haldist stöðugra en ver-
ið hefði um langt skeið, og þjóð-
arframleiðsla hefði aukist
meira en gert hefði verið ráð
fyrir. Þetta hefði allt tekist á
einhverjum mestu umhleyp-
ingatimum i alþjóðaefnahags-
málum.
Fram kom i stefnuræðu
Gunnars að erfiðleikar i efna-
hagsmálum heimsins og þau
slæmu viðskiptakjör sem ís-
lendingar hafa búið við á siðustu
misserum myndu á næsta ári
sniða vexti framleiðslu og tekna
Gunnar Thoroddsen: Verðum
aö treysta grunninn enn frekar.
þjóðarinnar þröngan stakk. Við-
skiptakjör Islendinga væru nú
12 - 14% lakari en þau voru á ár-
inu 1978. Ekki væru horfur á að
viðskiptakjörin bötnuðu á næsta
ári, og raunar benti ýmislegt til
þess, að sá litli bati á viðskipta-
kjörum sem fram kom á þessu
ári, myndi að miklu leyti hverfa
á þvi næsta.
Þrátt fyrir þetta væri gert ráð
fyrir að á næsta ári yxi útflutn-
ingsframleiðsla okkar um 4%,
og þjóðarframleiðsla um 1%, en
þjóðartekjur heldur minna
vegna versnandi viðskipta-
kjara. Þá taldi dr. Gunnar að
með auknum stöðugleika og
jafnvægi i efnahagsmálum væri
verið að leggja grunninn að
sókn til bættra lifskjara, og þvi
þyrfti á næsta ári að halda
áfram með gætniog festui efna-
hags- og kjaramálum til þess að
þessi árangur ónýttist ekki.
— ekh.
Framhaldsskólanemar á
Suðurnesjum mótmæla
Blaðinu hafa borist mótmæli
nemendafélags Fjöibrautaskóla
Suðurnesja i Keflavik við reglu-
gerð Menntamálaráðuneytisins
frá 10. júli sl. um starfshætti
framhaldsskóla. Á fundi félagsins
á miðvikudag var kosin nefnd er
koma skyldi mótmælum nem-
enda á framfæri við Mennta-
málaráðuneytið.
í áliti nefndarinnar kemur
fram að hún átelur vinnubrögð
ráðuneytisins við samningu þess-
arar reglugerðar sakir þess að
ekki hafi verið haft samráð við
skólameistara og kennara við-
komandi skóla, né heldur nem-
endur. Telur nefndin að hver
nemandi .eigi rétt á að ráða sin-
um námshraða og að stefna beri
að þvi að mæting nemenda i
framhaldsskólum verði frjáls i
framtiðinni. Telur nefndin að
ráðuneytinu beri að afturkalla
reglugerðina og játa þar með
mistök sín. Jafnframt telur
nefndin að ákvarðanir um starfs-
hætti og fyrirkomulag kennslu i
framhaldsskólum séu best komn-
ar í höndum nemenda og kennara
viðkomandi skóla.
Undir álitið rita þeir Páll Vil-
hjálmsson, Gunnar Schram, Jó-
hannes Ellertsson, Birgir Þ. Run-
ólfsson og Hrannar Hólm.
Ól.G
Anna Siguröardóttir er
manna fróðust um sögu
kvenna á tslandi.
Sex ár frá
kvennafrídeginum
Staða
kvenna í
11 aldir
A morgun, laugardaginn
24. október — á sex ára af-
mæli kvennafridagsins —
mun Anna Sigurðardóttir
forstöðumaður Kvennasögu-
safnsins flytja fyrirlestur i
boði Rauðsokkahreyfingar-
innar. Hann nefnist UM
STÖÐU KVENNA A ÍS-
LANDl 1 11 ALDIR og hefst
kl. 12 á hádegi i húsakynnum
Rauðsokkahreyfingarinnar
að Skólavörðustig 12, 3ju
hæð. Fyrirlesturinn er öllum
opinn og kaffiveitingar verða
á staðnum.
Anna Sigurðardóttir er
landsmönnum kunn af áhuga
sinum á kvenréttindamálum
og athugunum á sögu is-
lenskra kvenna. Hún stofn-
aði m.a. Kvennasögusafn Is-
lands árið 1975 og hefur veitt
þvi forstöðu siðan. Anna hef-
ur haldið erindi um sögu is-
lenskra kvenna bæði hér-
lendis og erlendis, m.a. tvi-
vegis á samnorrænum ráð-
stefnum um kvennasögu á
miðöldum.
Erling
Fimibogi
ólafur Ragnar
Bragi
Guðmundur
Böðvar
Landsráðstefna Samtaka herstöðvaandstæðinga
A • •
I Olfusborgum 24.-25. október
Fundarstjórar:
Dagný Kristjánsdóttir,
Guðrún Helgadóttir,
Rúnar Ármann
Arthúrsson.
DAGSKRÁ:
24.október
Kl.9.00
Brottförfrá Reykjavfk
Kl. 10.00—11.00
Skýrsla miðnef ndar,
Erling Olafsson.
Skýrsla gjaldkera,
Jón Á. Sigurðsson.
Kl. 11.00—12.00
Almennar umræður.
Kl. 14.00—14.30
Hvað er framundan
í baráttu herstöðva-
andstæðinga?
Finnbogi
Hermannsson.
Kl. 14.30—16.00
Almennar umræður
Kl. 17.00—19.00
1. Starfs- og
f járhagsáætlun,
JónÁsgeir
Sigurðsson.
2. Friðarhreyfingin
og kjarnorkuvopnalaus
svæði, Ólaf ur
Ragnar Grímsson.
3. Baráttuleiðir,
Bragi Guðbrandsson.
4. Skipulag og
starfshættir,
Guðmundur
Georgsson.
5. Menning og
barátta gegn
herstöðvum,
Böðvar
Guðmundsson.
Kl. 21.00
Kvöldvaka.
25.október
Kl. 10.00—12.00
Starfshópar, frh.
Kl. 13.00—13.30
Kosning miðnefndar.
Kl. 13.30—14.30
Starf shópar skila áliti.
Kl. 14.30—15.30
Umræður
Kl. 16.00—17.00
Afgreiðsla tillagna.
Kynnt úrslit kosninga.
Ráðstefnuslit.
HERIIMNBURT
Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst
hjá Samtökum herstöðvaandstæðinga, Skólavörðu-
stíg 1 A, sími 17966, en þar er opið alla virka daga
frá kl. 3—6.
Samtök herstöðvaandstæðinga
Guðrún
Rúnar Armann
Dagný