Þjóðviljinn - 23.10.1981, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 23.10.1981, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. október 1981 w„ V V ■ i -A.*« ***%4S*2*Vfn Leikfélag Akureyrar frumsýnir Jömfrú Ragnheiði í kvöld SAGA UNGS OFURHUGA SEM GUÐIRNIR ELSKUÐU Fyrsta frumsýning Leikfélags Akureyrar á þessu leikári er i kvöld I Samkomuhúsinu. L.A. riður á vaðið meö nýja leikgerð af Skálholti Kambans sem Briet Héðinsdóttir, leikari og leikstjóri, er höfundur að. Leikgerð Brletar nefnist „Jómfrú Ragnheiöur” og sækir efni sitt í leikgeröir og skáldverk Guðmundar Kambans, rekur sögu Ragnheiðar Brynjólfsdóttur eins og Kamban segir frá henni I skáldverki slnu Skálholti. Tónlistin við Jómfrú Ragnheiði er samin af Jóni Þórarinssyni, leikmynd er gerö af Sigurjóni Jóhannssyni og lýsing hönnuö af David Walter. Brlet Héöinsdóttir leikstýrir. Það eru rúm 40 ár siöan Jón Norðfjörð leikstýröi „Skálholti” Kambands á Akureyri. Hann lék einnig Brynjólf biskup I þeirri sýningu en Ragnheiði Brynjólfs- dóttur lék frú Regfna Þórðar- dóttir leikari. Alls koma fram um 20 leikarar I „Jómfrú Ragn- heiði”, sem byrjar göngu slna á fjölum Akureyrarleikhússins I kvöld. Ragnheiður biskupsdóttir er leikin af Guðbjörgu Thorodd- sen, sem útskrifaöist frá Leik- listarskóla tslands á þessu ári. Brynjólf Sveinsson biskup leikur Marinó Þorsteinsson og Daöa Halldórsson Hákon Leifsson, og er það frumraun hans á leiksviöi. Helgu I Bræðratungu leikur Sunna Borg. Helsti munurinn á leikgerð Brletar Héðinsdóttur miðað við hinarfyrri er sá,aðhlutur sumra persónanna er aukinn, en dregið úr hlut annarra. Þungamiðja „Jómfrú Ragnheiðar” er saga hennar sjálfrar og persónugerð. Fyrst og fremst saga ungrar konu, sem er aö berjast sjálf fyrir að mega ráða eigin lifi, saga um baráttu hennar gegn rikjandi skipan mála eins og hún kemur fram I þeirrar tiðar karlveldi, foreldraveldi og kirkjuveldi. Saga ofurhuga sem ger-ir upp- reisn og er dæmd til að mistakast. Þetta er og hin klassiska harmsaga foreldris, I þessu tilfelli föðurs, sem gengur fram I fullvissu þess að hann sé aöeins aö gera það sem dóttur hans er fyrir bestu. En leikritið hefur I leikgerð Brletar einnig skirskotun til samtlmans með þeirrispurn sem hún vekur: Eiga harmsögur sér enn stað á öld atómsins? Hér hefur verið stuðst við kynningu frá Leikfélagi Akur- eyrar I frásögn af verkinu, en þar er einnig vitnað til texta I skáld- sögunni Skálholti, sem gæti veriö nokkurskonar einkunnarorð sýningarinnar: „Hún yfirgaf þennan heim mánudaginn 23. mars 1663, þegar hún hafði lifað 21 ár, 6 mánuði og 15 daga. Allir þeir sem nú og síðar krupu við dánarbeð hennar, skildu, að hún haföi verið mannvæn, flestum stúlkum framar, en syndug eins og við vorum öll. Engum datt I hug, að hún væri fágætt eintak hins litt göfuga mannlega kyns. Ef til vill dó hún I öllu tilliti og. ung, ef til vill var henni unnað af guðunum.” Eitt er vist að saga Ragnheiðar er tslendingum ákaflega hugstæð enn I dag eins og nýlegar bækur og umræður sýna, og „pflagrims- ferðir” margra íslendinga til Skálholts þar sem hin rómantlska harmsaga átti sér stað. Ekki er þvi að efa að margir leggi leið sýna I Samkomuhúsið á Akureyri næstu vikur. Eiðurinn: Ragnheiður (Guöbjörg Thoroddsen) séra Torfi (Theódór Júllusson) og Oddur Eyjólfsson (Andrés Sigurvinsson). Ljósm. Þemrill. Daði Halldórsson (Hákon Leífsson) og Ragnheiður Brynjólfsdóttir (Guðbjörg Thoroddsen). Ljósm. Þengill. Ragnheiður (Guðbjörg Thoroddsen) og Helga I Bræðratungu (Sunna Borg). Ljósm. Þengill. Ný leikgerð eftir Bríeti Héðinsdóttur þar sem Ragnheiður Brynjólfsdóttir er þungamiðjan

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.