Þjóðviljinn - 23.10.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 23.10.1981, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. október 1981 Fóðurbirgðanefnd skilar tillögum: Viða skortir hey á Suður- og Vesturlandi Fóðurbirgðanefnd sú, sem landbúnaðarráðherra skipaði20. ágúst sl., hefur nú látið kanna heyfeng og fóðurbirgðir á þessu hausti. Nefndin sendi öllum sveitarstjórnum landsins bréf þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort skorta mundi fóður i vetur. Svör hafa borist frá 60 sveitarstjórnum. Þaö kom i ljós, eins og vitað var, að verulega skortir á hey- feng viða á Suður-og Vesturlandi og hluta af Vestfjörðum. í ein- staka hreppum Húnavatnssýslu og Skagafjarðar er nokkur vöntun á heyfóðri. Nefndin hefur, að lok- inni þessari athugun, samþykkt nokkrar tillögur, sem hún hefur sent landbúnaðarráðherra. Fara ,þær hér á eftir: 1. Fóðurkaupalán. Lán verði veitt úr Bjargráðasjóði til fóður- kaupa þeim bændum, sem nú hafa minni fóðurforða en sem nemur 80% af fóðurþörf fyrir þann bústofn er þeir höfðu á fóðr- um veturinn 1980/81. Ekki verði Fjölvaútgáfan sendir frá sér um þessar mundir nýtt verk sem verður stærsta útgáfubók félags- ins í ár. Það er Byggingarlista- saga Fjöiva, en hún er jafnframt fyrsta byggingarlistasagan, sem komið hefur út á fslensku, og er því hér um einskonar brauðryðjandaverk að ræða. Bókin er nær 300 bls. að stærð i stóru broti með nær þúsund myndum og þar af er meirihlut- inn prentaður i fullum litum. BYGGINGAR- LISTASAGA FJÖLVA þó miðað við stærri bústofn en sem svarar búmarki viðkomandi jarðar. Bændur sem óska eftir slikum lánum sæki um þau til viðkom- andi sveitarstjórnar, sem komi þeim á framfæri ásamt staðfest- ingu á rétti viðkomandi miðað við framangreindar forsendur. Framangreind lán verði óverð- tryggð. 2. Flutningastyrkir. Bjargráða- sjóður veiti styrki til flutinga á heyi um langvegu. a. Styrkir verði veittir þeim, sem sækja hey um lengri veg en 40 km. Fjölvaútgáfan hefur nú i mörg ár unnið að þessu stóra verkefni i samstarfi við ensku bóka- útgáfuna Mitchell Beazlev i Lundúnum. Bókin er unnin af fjölmennum samstarfshópi ágætra fræðimanna um bygg- ingarlist en ritstjóri verksins er Norwich lávarður. Hún hefur fengið mjög góða dóma erlendis, en hvergi hefur þó verið eins ástattog hér, aðengin byggingar- listasaga hefur verið til á islensku. Þorsteinn Thorarensen hefur þýtt bókina og umsamið hana eft- ir islenskum aðstæðum. Segir Fjölvaútgáfan að þar með sé lokaþáttur fenginn á umfangs- mikiu verki Þorsteins i útgáfu listaverkabóka, en áður hefur hann gefið út Stóru listasöguna i 3 bindum, Nútimalistasöguna og ævisgöur hinna merkustu meistara. Byggingarlistasaga Fjölva skiptist f fimm meginbálka: Fjarrænir heimar, Fornþjóð- irnar, Miðaldirnar, Endurreisnin og Nútiminn, en þeir skiptast aft- ur imarga undirkafla.Eruþeir 20 taisins og þannig tekur bókin til allra þátta heimsbyggingalist- arinnar. Aftast eru svo ýtarlegar yfirlitsupplýsingar um byggingar i öllum heimsálfum, skýringar hugtaka og registur. b. Þarsem gróffóðurvöntun var á bilinu 0—20% af fóðurþörf, verði veittur styrkur vegna fóð- urflutninga (hey- og grasköggl- ar), sem nemur 1/3 af flutn- ingskostnaði. c. Þar sem gróffóðurvöntun var umfram 20% af fóðurþörf, verði veittur styrkur v/fóður- flutninga, sem nemur 2/3 af f lut ningskostnaði. d. Flutningskostnaður við land- flutninga miðist við taxta vöru- flutningabifreiða á langleiðum með heila bilfarma (fullfermi). e. Flutningskostnaður með skip- um miðist við taxta Rikisskip. Athugað verði hvort ástæða er til sérstakra styrkja til flutn- inga á graskögglum með tilliti til þeirrar verðjöfnunar sem gildir á flutningi þeirra. 3. Greiðsla á jarðræktar- framlagi til grænfóðurs og endur- ræktunar túna. Vegna hins stór- fellda kals, sem var i túnum á sl. vori lögðu fjölmargir bændur i mjög mikla grænfóðurræktun. Af sömu ástæðum mun verða mikil þörf á endurvinnslu túna á næsta vori. Ljóst er að grænfóðuruppsker- annú á þessuhausti á mikinn þátt i að fóðurforðinn er þó ekki minni en raun ber vitni. Nefndin leggur þvi til að komið verði til móts við þá bændur sem mesta sjálfs- bjargarviðleitnisýndumeð þvi að framlag til grænfóðurræktunar og endurræktunar túna verði greitt fyrir næstu áramót eða jafnskjótt og skýrslur um úttekt jarðabóta berast. Lagt er til að sami háttur verði hafður á um þetta á næsta ári. 4. Þá Jeggur nefndin til að út- vegað verði fjármagn til efna- greininga á allt að 600 heysýnum, sem tekin yrðu á erfiðleikasvæð- um. Nefndin fer fram á að til þessa verði veittar kr. 25.000. — mhg í nýrri útgáfu: Fyrsta byggingar- listasaga á íslensku Laust embætti sem forseti íslands veitir Umsóknarfrestur um prófessorsembætti I vefjafræði I læknadeild Háskóla Islands er hér með framlengdur til 4. nóvember nk. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf um- sækjenda, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 4. nóvember nk. Menntamálaráðuneytið, 16. október 1981. • Blikkiðjjan Ásgaröi 7» Garöabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiöi. Gerum föst verötilboö. SIMI 53468 Gamlar barna- sögur XJt eru komnar hjá IÐUNNI barnasögur eftir breska höfund- inn og teiknarann ERNEST NISTER, prýddar myndum eftir hann. Þetta eru litlar bækur i öskj um. önnur askjan nefnist Litlu ömmusögurnarog eru þar fjórar sögur: Þrir vinir, Voffó list- málari, Draumur Dísu og Litlu stúlkurnar þrjár. Hin askjan kallast Góðu, gömlu sögurnar og eru þar þrjár sögur: Eins og afi, Ekki nema fuglar og Kettlingarnir þrir. Sögur þessar komu fyrst Ut, með hinum upprunalegu mynd- um árið 1890 og 1892. Litlu ömmu- sögurnar eru sextán blaðsíður hver bók, en Góðu, gömlu sögurnar tuttugu blaðsiöur hver. Margar af myndunum i bókunum eru i litum. Eigendur Rekstrartækni, þeir Kristján Sigurgeirsson og GIsli Erlends- son, ásamt Má Sveinbjörnssyni framkvæmdastjóra I Keflavik (t.h.). Mynd: Ljósmyndastofa Suðurnesja. Rekstrartækni s.f Opnar útibú í Keilavík Fyrirtækið Rekstrartækni s.f., sem veitir þjónustu á sviði rekstrarráðgjafar og skýrslu- gerðar og rekur nú stærstu reiknistofu landsins i einkaeign, opnaði i byrjun október skrif- stofu að Hafnargötu 37a i Kefla- vik. Með þvi hyggst fyrirtækið flytja til heimabyggðar megnið af þeirri vinnu sem unnið er fyr- ir fyrirtæki á Suðurnesjum. A undanförnum tiu árum hef- ur starfsemi Rekstrartækni s.f. á Suðurnesjum einkum beinst að fyrirtækjum tengdum sjáv- arútvegi. Má þar nefna, að fyr- irtækið hefur gegnt þýðingar- miklu hlutverki við hönnun, við- hald og þróun afkastahvetjandi launakerfa (bónus) I frystiiðn- aðinum. Auk þess hefur Rekstr- artækni s.f. beitt sér fyrir ákveðnu samstarfi þeirra fyrstihúsa, sem njóta þjónustu fyrirtækisins i formi mánaðar- legra funda, þar sem stjórnend- ur frvstihúsanna bera saman bækur sinar og skiptast á sam- anburðarhæfum upplýsingum. Fyrirtækið Rekstrartækni s.f. er 10 ára um þessar mundir. Stofnendur og eigendur þess eru rekstrartæknifræðingarnir GIsli Erlendsson og Kristján Sigur- geirsson. Veita þeir ásamt Steinari Höskuldssyni við- skiptafræðingi fyrirtækinu for- stöðu. Framkvæmdastjóri fyr- irtækisins i Keflavik er Már Sveinsbjörnsson rekstrartækni- fræðingur. Hjá Rekstrartækni starfa nú um 40 manns, þar af 16 sérfræðingar á sviði rekstrar-, viðskipta-, verk- og kerfisfræði. — GFr Húnvetningaf élagið: Fjölskrúðugt vetrarstarf Húnvetningafélagið i Reykja- vik hyggur á mikið starf i vetur. Hefst það með vetrarfagnaði i Domus Medica kl. 20.30,föstudag- inn 23. okt. Siðan tekur við þriggja kvölda spilakeppni I félagsheimilinu að Laufásvegi 25. Hefst hún sunnudaginn 8, nóv. kl. 20.00 og heldur siðan áfram 15. og 22. nóv. Laugardaginn 5. des. kl. 14.00, verður svo köku- og munabasar i félagsheimilinu. Eru félagar minntir á, að kökur eru vel þegnar, svo og góðir munir. Tekið verður á móti kökum og munum kl. 10—12 f.h. sama dag. Auk stjórnar og skemmtinefndar sjá um basarinn þær Alda Björns- dóttir, simi 21959, Brynhildur Friðriksdóttir, simi 82323, Halldóra ísberg, simi 23088, Sigurbjörg Sigfúsdóttir, simi 26913, Þórey Sveinbergsdóttir, simi 83776. Eftir áramótin hefst svo starfið með Húnvetningamóti að Hótel Esju laugardaginn 6. febr., kl: 19. Aðgöngumiöar verða seldir I Félagsheimilinu þriðjudaginn 2. febr.,kl. 20.00—22.00 og föstudag- inn 5. febr. á sama tlma. Dagskrá verður auglýst siðar. Föstudagana 12.,19. og 26. mars .verða taflæfingar i Félagsheim- ilinu. Hefjast þær kl. 20.00. Baldur Pálmason og fleiri þekktir skák- menn mæta. Föstudaginn 30. april verður sumarfagnaður i Domus Medica, kl. 20.30. — 1 maimánuði verður kaffisamsæti fyrir aldraða Hún- vetninga, nánar auglýst siðar. Otgáfustarfsemi Húnvetninga- félagsins er þáttur, sem vert er að vekja athygli á. Gert er ráð fyrir að næsta rit komi út fyrir áramót. Eru þeir, sem kunna að eiga efni i fórum sinum, hvattir til að hafa samband við ritnefnd, en I henni eru: Arinbjörn Arnason, simi 18141, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, simi 36137 og Björn Jónsson, simi 33644. Nokkur eintök eru til af eldri árgöngum. Guðrún Svein- björnsdóttir sér um söluna sem áður. Bridge verður spilað á mið- vikudögum I Félagsheimilinu, eins og undanfarna vetur. For- maður Bridgedeildar er Valdi- mar Jóhannsson, slmi 37757. Allmiklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar I Þórdisarlundi á næsta ári. Félagar eru hvattir til þess að styrkja skógræktarstarfiö með þvi að kaupa jólakort félags- ins. Þau verða til sölu á basar félagsins 5. des. Enn halda munir áfram aö berast til Byggðasafnsins. Hún- vetningar, sem leið eiga um Hrútafjörðinn, ættu að koma við I safninu þvi þangað eru komnir margir merkir hlutir. Þórunn Franz verður með kennslu i myndflosi i Félags- heimilinu á mánudögum og fimmtudögum i vetur. Simi henriar er 33826 en simi Félags- heimilisins 20825. —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.