Þjóðviljinn - 23.10.1981, Qupperneq 5
Föstudagur 23. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Kjamorkustríðsraus Reagans
forseta vekur upp mikla reiði
„Aldrei gera Rússar Reagan meiri grikk en hann gerir
sjálfum sér” (Evening Standard)
Reagan uppi I skýjum? —Nei, en ský endurspeglast I skotheidu gleri
fyrir framan ræöustói hans.
Bandariskir ráöherrar og opin-
berir blaðafulltrúar hafa verið
önnum kafnir við að reyna að
kveða niður mikia öldu reiði og
mótmæla, sem ummæli Reagans
forseta um möguleika á takmark-
aðri atómstyrjöld i Evrópu hafa
vakiö. En ýmsir gagnrýnendur
vigbúnaðarkapphiaupsins I Evr-
ópu hafa einmitt sakað risaveldin
um að haga máium þannig, að
Evrópa verði vettvangur styrj-
aidar ef til átaka kæmi — og þá
með þeim hætti að risaveldin sjálf
gætu sloppiö.
Meðal þeirra sem hafa haldið
slikri gagnrýni mjög á lofti er
Alva Myrdal, sem lengi var full-
trúi Sviþjóðar I afvopnunarvið-
ræðum.
Hvað sagði hann?
Bandariskir útskýrendur hafa
reynt eftir föngum að túlka um-
mæli Reagans á blaðamanna-
fundi á föstudaginn var á þá leið,
að hann hafi aðeins verið að segja
að Nató ætti að eiga kost á hvers-
kyns sveigjanlegum viðbrögðum
til að mæta Sovétrikjunum.
En hvað var það þá sem Reag-
an sagði?
Fyrir hann var lögð spurning
um það, hvernig hann imyndaði
sér „taktiska notkun (kjarnorku-
vopna) án þess að hún hefði það i
för með sér, að ýtt yrði á hnapp-
ana alla leið upp” — m.ö.o. án
þess að gripið yrði til langdrægra
eldflauga, sem risaveldin ætla að
kála hvort öðru með. Svar hans
var á þessa leið:
,,Ég gæti imyndað mér að báðir
notuðu taktisk kjarnorkuvopn á
vigvelli án þess að það leiddi til
þess að annaðhvort risaveldanna
ýtti á hnappinn.”
Þessu fylgdu svo vangaveltur
að Bandarikin gætu knosað Rússa
ef þvi væri að skipta og staðhæf-
ing um að Sovétmenn tryðu á að
hægt væri að sigra i atómstyrjöld.
Reaganstjórnin hefur hinsvegar
sætt vaxandi grunsemdum Evr-
ópumanna um að hún undirbúi
þann möguleika af fullri alvöru
að heyja „takmarkaða” kjarn-
orkustyrjöld með árangri og geri
sér vonir um að Bandarikin sleppi
við afleiðingar hennar.
Hreinskilni?
Sem fyrr segir hefur mikið ver-
ið deilt á þessi ummæli Reagans
undanfarna daga. Frankfurter
Rundschau, frjálslynt vestur-
þýskt blað, segir i stórri fyrir-
sögn: „Reagan telur að hægt sé
að láta Ameriku sleppa” — og
spyr i yfirfyrirsögn: „Atómstrið
aðeins i Evrópu?” í sama blaði
segir siðan:
„Friðarhreyfingin i Evrópu,
Þýskalandi og i öðrum hlutum
Evrópu mun kunna Reagan þakk-
ir fyrir þá barnslegu hreinskilni,
sem hann notar til að sefa landa
sina með” — Ein útskýring á um-
mælum Reagans er reyndar sú,
að þau séu ætluð til heimabrúks —
en þá er þvi gleymt, að fleiri hafa
eyru að heyra en Bandarikja-
menn.
Verstur sjálfum sér
I leiðara i breska ihaldsblaðinu
Evening Standard segir á þessa
leið um mál þetta:
„Reagan hefur hleypt nýju lifi i
draugaganginn um kjarnorku-
strið i Evrópu með skeytingar-
leysi i klúðruðu orðfari sem hefði
ekki getað komið á verri tima....
Staðreyndin er sú, að Reagan for-
seti hefur greitt eigin málstað
þyngra högg en Rússar hefðu get-
að gert sér vonir um að þeim tæk-
ist, jafnvel i fjarstæðustu draum-
órum sinum”.
Einn þeirra sem hefur harðlega
gagnrýnt Reagan fyrir þetta mál
og önnur skyld er Mondale, fyrr-
um varaforseti Carters. Hann
hefur veist harðlega að forsetan-
um fyrir að klúöra sambandinu
við bandamenn i Evrópu. „Og
Reagan hefur,” segir Mondale,
„komið okkur i þá furðulegu
stöðu, þegar svo litur út sem það
séum viðenekki Sovétmennsem
séu tregir á aö ganga til samn-
ingaviðræðna um afvopnunar-
mál”
Fyrri reynsla
Alveg frá þvi að stjórn Reagans
tók við völdum hefur hún orðiö
fyrir ýmsum skakkaföllum vegna
þess, að forsetinn eða einstakir
ráðherrar hafa „misst út úr sér”
eitthvað sem ekki átti að fara
hátt. Og menn geta rifjað upp, að
þessir menn meinavenjulega það
sem þeir „missa út úr sér” — og
þarf þá ekki að gripa til sálfræði-
legra skýringa á þvi að mismæli
sé innri maður. Menn minnast
þess til dæmis, þegar Weinberger
varnarmálaráðherra boðaöi
framleiðslu nifteindasprengju og
vakti upp mikil andmæli i Evr-
ópu. Þá voru ummæli hans borin
til baka — en siðar hafa þau
reynst fullkomin alvara.
Hershöföingi rekinn
Og núna i vikunni var hershöfð-
ingi einn Robert L. Schweitzer,
rekinn úr Oryggismálaráöi
Bandarikjanna fyrir að segja of
mikið. Hann hélt þvi fram i ræðu
yfir liðsforingjum, aö Rússar
væru nú fremri Bandarikjamönn-
um að þvi er varðar langdrægar
eldflaugar og langfleygar
sprengjuflugvélar. Hann sagði
ennfremur aö þróunin væri i átt
til styrjaldar, að Rússar hefðu
innrás i Evrópu i undirbúningi —
„Rússar undirbúa sig og þeir
munu gera árás” sagði hann.
Hvita húsinu þótti þetta tal full
ábyrgðarlitið, lýsti þvi yfir aö
Schweitzer væri að viðra sinar
persónulegu skoöanir og rak
hershöfðingjann úr öryggisráð-
inu.
Það er hinsvegar ekki hægt að
reka forsetann þótt hann missi
eitthvað út úr sér.
áb tók saman.
CIA fær aukið
umboð til njósna
Eftir að Reagan forseti tók við
völdum hefur hann unnið að þvi,
að setja úr gildi þær takmarkanir
á starfsemi ieyniþjónustunnar
CIA, sem stjórn Carters kom á —
að gefnum mörgum tiiefnum. Og
enn sem fyrr er spurt: er hægt að
njósna um eigin þegna án þess að
skerða freisi þeirra og mannrétt-
indi?
Reaganstjórnin hefur þegar
lagt fram tvenn drög að starfs-
reglum fyrir barndariskar
leyniþjónustur. Bæði hafa vakið
upp mikla öldu mótmæla — bæði
frá þeim sem vilja vernda
mannréttindi og svo frá hægri-
sinnum sem vilja gefa CIA sama
„rétt” til ýmissa ljósfælinna
verka og stofnunin hafði fyrir
daga Carterstjórnarinnar.
Vikublaðið Newsweek hefur
komist yfir þriðja skjalið þarsem
reynt er að berja saman reglur
um þessi mál. Af þvi sést, að
Reaganstjórnin ætlar að fá CIA
sérstakt nýtt umboð til að njósna
um bandariska borgara.
Newsweek gerir ráð fyrir þvi,
að þessi áform vekji upp mikla
gremju. Þær reglur sem Carter
setti árið 1978 um starfsemi CIA
voru m.a. ætlaðar til þess að
koma i veg fyrir að leyniþjónust-
an gæti haldið áfram að misbeita
valdi sinu með þvi að senda
erindreka sina inn I bandarisk
félagasamtök af ýmsu tagi.
Reglur Reagans munu afturkalla
slikt bann og gefa CIA leyfi til að
safna upplýsingum með þvi að
smeygja sérinnisamtök og reyna
að hafa áhrif á starfsemi þeirra —
með þeim fyrirvara þó að
samþykki saksóknara þurfi að
koma til að slikt sé gert.
Reglugerð Reagans mun einnig
gefa CIA rýmri möguleika til að
njósna um bandariska þegna
heima fyrir. Að visu mun erind-
rekum CIA ekki leyft að hlera
sima eða nota aðra slika tækni
sem krefjast sérstakt leyfis
dómstóla þegar verið er að
fylgjast með bandariskum þegn-
um heimafyrir — hinsvegar mun
hin nýja reglugerð afnema allar
takmarkanir á þvi, að fylgst sé
, með bandariskum þegnum á
ferðalagi erlendis. Aður fyrr átti
umboð CIA til að safna i möppur
upplýsingum um Bandarikja-
menn að takmarkast við þá sem
„að skynsamlegú mati” voru
taldir eiga þátt i njósnum eða
hermdarverkum — en nú er sagt
að hinar nýju reglur leyfi CIA að
safna allskyns upplýsingum um
menn, m.a. blaðamenn eða
kaupsýslumenn, sem ekkert hafa
af sér gert — m.a. um einkamál
allskonar, simareikninga og
fleira þessháttar.
Bandariska mannréttindasam-
bandið hefur fordæmt tillögur
þessar sem „meiriháttar ógnun
við borgaralegt frelsi”. Og ýmsir
sérfræðingar og starfsmenn CIA
eða þá Alrikislögreglunnar hafa
lika gagnrýnt tillögurnar — þó
ekki væri nema vegna þess, að
„CIA hefur enn ekki endurheimt
traust almennings” eins og einn
þeirra kemst að orði. Gæti
reyndar orðið bið á þvi.
(Endursagt)
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJISHUSINU11 Jl! HUSINU
OPIÐ í ÖLLUM
DEILDUM TIL
KL.10 í KVÖLD
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
BYGGINGAVÖRUR
TEPPI
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Ótiúlega bagstœðir
greiðsluskilmálar á
flestum vöruflokkum.
Allt niður i 20% út-
borgun og lánstími allt
að 9 mánuðum.
JIS
Jón Loftsson hf.
'A A ▲ A A A
H U il H H 13 |
l_j mn m on m cu i
t—j L-j i_; l_ □ Ljuan,
Hringbraut 121 Sími 10600
Frá 1. okt. verður opið: Mánud.-miðvikud. 9—18, fimmtud.
9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12.