Þjóðviljinn - 23.10.1981, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN
Föstudagur 23. október 1981
Abalstmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt af> ná i blaöamenn og aöra starfsmenn
hlaösins i þessum simum : Eitstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
8i285, ljósmyndir 81257. Lauyardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Krossanesverksmiðjan slær tvær flugur í einu
Helmings orkusparnaður
— og mengun úr
sögunni
Gufuþurrkun í stað eldþurrkunar skapar einnig betri afurðir
//Það má segja að við ná-
um að slá tvær flugur í
einu höggi með því að
koma upp þessum loft-
þurrkunarbúnaði. I fyrsta
lagi minnkar orkukostn-
aður um helming og i öðru
lagi á mengunar-
vandamálið að verða úr
sögunni. Þar fyrir utan
fáum við betri vöru úr
hráefninu"/ sgði Pétur
Antonsson/ f orst jóri
Krossanesverksmiðjunnar
á Akureyri.
Loftþurrkun
Þessa dagana er unnib aö
meiriháttar endurbótum á verk-
smiöjunni, og i staö eldþurrkunar
á mjöli, veröur sett upp loftþurrk-
unarkerfi, þaö fyrsta sinna teg-
undar hérlendis, en slikur útbún-
aöur hefur veriö i notkun I nokkr-
um fiskimjölsverksmiöjum í Nor-
egi undanfarin tvö ár og gefið
mjög góöa raun.
Hérlendis er einungis notast við
eldþurrkun i fiskimjölsverk-
smiöjum, sem er mjög orkufrek,
auk þess sem erfitt hefur veriö aö
halda mengun i skef jum samhliöa
slikum útbúnaöi eins og flestir
landsmenn þekkja af illri raun.
Mlnni
tilkostnaður
„Okkur leist betur á að taka
loftþurrkun i notkun hér heldur en
gufuþurrkun. Þaö fylgir þvi
miklu minni tilkostnaður þar sem
viö getum aö miklum hluta notast
viö sama tækjabúnaö og fylgir
eldþurrkuninni en þar fyrir utan
þarf aö kaupa ýmis önnur tæki.
Þá er hægt aö framkvæma þessa
breytingu i áföngum, án þess aö
þurfa aö stööva vinnslu I verk-
smiöjunni, en viö áætlum aö taka
þennan nýja útbúnaö i notkun
fyrir næstu áramót.
Að sögn Péturs veröur helm-
ings orkusparnaöur af þessari
framkvæmd. „1 dag notum viö 60
litra af oliu á hvert hráefnistonn,
en orkuþörfin eftir breytinguna
veröur um 30 litrar á tonnið i
samsvarandi viömiðun”.
Betrí vara
Pétur sagði aö nýja vinnsluað
ferðin kæmi I veg fyrir alla meng
un, og gæfi að auki betri vöru. ,,E
okkur tekst að tryggja þau gæði
þá er ekki loku fyrir þaö skotiö aí
viö ættum aö geta náö inn á betr
markaði fyrir þessa afurð en
hingað til, þ.e. fóöursölu ti
minkabúa og fiskeldisstööva
m.a., en þar nafa Norömenn og
Ættu
að
vera úr
sögunni
Ending þessarra
véla alltof mikil
„Þessar vélar eru komnar úr
notkun alls staöar I heiminum
nema hér, og staöreyndin er sú,
aö öryggisbúnaöur var ekki eins
fullkominn fyrir 40 árum á slikum
tækjum og hann er i dag. Raunar
eru þessi tæki úrelt enda hætt aö
framleiöa þau fyrir 17 árum.
Fiskverkendur hafa viljaö halda
þessum vélum og eiginlega má
segja aö endingin á þeim sé allt of
mikil. Þær ættu aö vera úr
sögunni fyrir löngu”, sagöi Karl
Agústsson hjá Baaderþjónustunni
i samtali viö Þjóðviljann.
Karl sagöi þvl miöur heföu
oröiö slys, og i öll skiptin ætti ungt
fólk i hlut, sem ætti ekki aö vinna
viö vélar sem þessar.
„Við höfum átt viöræöur viö
Vinnueftirlitiö vegna þessa og
reynt aö finna lausn á þessu
vandamáli, en þeir hafa ekki séö
ástæöu til aö banna notkun vélar-
innar, enn sem komið er”, sagöi
Karl.
-lg.
Eg nota hana
helst aldrei"
segir Matthlas
Guðmundsson
verkstjóri
í BÚR
Matthias Þ. Guðmunds-
son verkstjóri hjá BÚR
stígur á stöðvunarhemil
hausingavélarinnar
hættulegu. — Mynd: Ari.
Hœttulegar vélar
„Ég nota þessa vél ekki nema
i algjörri neyö. Mér stendur
stuggur af henni, enda hafa orð-
iö hér slys. Kona missti td. visi
fingur i þessari vél,” sagöi
Matthias Þ. Guömundsson
verkstjóri hjá Bæjarútgerö
Reykjavikur, en i saltfisk-
vinnslu fyrirtækisins er aö finna
eina Baader 414 hausingavél.
„Vélin er ekki ólögleg, en hún
er hættuleg, þvi að hún stoppar
alls ekki þótt stigiö sé á fótstigiö
sem á aö rjúfa strauminn.
Slagiö er þaö mikiö aö hún
heggur áfram. Ég lét setja
neyðarrofa hérna upp fyrir
þessa vél, sem allir vita af sem
hér vinna. Þá bannaði ég algjör-
lega aö menn væru meö köll eöa
öskur hér inni, þvi að ef eitthvað
slikt heyrist þá vita menn aö
þeir eiga aö hlaupa á rofann og
rjúfa strauminn. Sá sem á
annaö borö lendir i þessari vél,
nær ekki aö stööva hana sjálfur.
Annars nota ég hana helst
aldrei”, sagði Matthlas.
-lg-
J
mánuð
Framkvæmdanefnd um ár aldraðra skipuð 24. júlí s.l.
Hefur starfað rúman
tillaga 19 Sjálfstæðisþingmanna um ár aldraðra
mörgum mánuðum á eftir ákvörðunum stjómvalda
19 Sjálfstæöismenn hafaá þingi
mæltmeð stofnun nefndar til þess
að annast framkvæmd árs ald-
raöra 1982. Svavar Gestsson skip-
aöi hinsvegar sjö manna nefnd
hinn 24.júli sl. sem fékk þaö hlut-
verk aö annast undirhúning árs
aldraöra i samræmi viö ályktun
Sameinuöu þjööanna frá 11. des-
ember 1980. Nefndin hóf starf 9.
september og hefur haldið fimm
fundi og eru þeir nú vikulega.
Þegar Sjálfstæöismenn á þingi
ranka viö sér cr nefnd til undir-
búnings árs aldraöra búin aö
starfa i einn og hálfan mánuö.
1 fréttatilkynningu frá Páli Sig-
urðssyni ráöuneytisstjóra um
málið segir að á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna 1978 hafi
verið ákveðið að halda heimsráð-
stefnu um málefni aldraöra á ár-
inu 1982. Nafni ráðstefnunnar hafi
slöan veriö breytt á allsherjar-
Jánginu 1980 og ákveðið aö hún
skyldi heita heimsráöstefna um
öldrun til aö minna á þau tengsl
sem eru á millialdraðra einstakl-
inga og hækkandi aldurs ibúa. 1
framhaldi af þessu var þeim til-
mælum beinttil allra aöildarrikja
Sameinuöu þjóðanna aö skipuö
yrði í hverju landi framkvæmda-
nefnd til þess að annast undirbún-
ing og þátttöku i ráðstefnunni
þannig aö á árinu 1982 yröi sér-
stök áhersla lögð á málefni aldr-
aöra i öllum aðildarrikjunum. Is-
lensk stjórnvöld uröu við þessum
tilmælum, og er þegar búiö að til-
kynna um skipan nefndarinnar til
Sameinuðu þjóöanna.
Undirbúningur er i fullum
gangi og nefndina skipa auk Páls
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Þórarinn V. Þórarinsson, Pétur
Sigurösson og Hrafn Sæmunds-
son, Adda Bárá Sigfúsdóttir, og
Gunnhildur Sigurðardóttir. Þessi
stjórnskipaða nefnd hefur einnig
það verkefni að vinna að laga-
setningu um heilbrigðis og vist-
unarþjónustu fyrir aldraða.- ekh
Mengunin hverfur
Danir ráöið markaðnum hingaö
til”.
Ljóst er aö fleiri fiskimjöls-
verksmiöjur hyggja á endur-
bætur, enda vinnslubúnaöur
margra þeirra orðinn lélegur og
úreltur, en forráöamenn verk-
smiöjanna ætla að biöa meö frek-
ari ákvarðanir þar til séö veröur
hvernig til tekst hjá Krossanes-
verksmiðjunni sem stigur nú
stórt skref fram á viö til orku-
sparnaöar og mengunarvarna.
-lg
Annað
hvort
fingur
eða
höndin
öll
„Þaö hefur skolliö á slysaalda á
þessu ári og hún hefur komiö
okkur alveg i opna skjöldu. Nú
siöast missti 17 ára piltur úr
Grindavík þrjá fingur i þessari
sömu tegund hausunarvélar og
þaö er þriöja slysið sem ég man
eftir nú á einu ári,” sagöi
Guömundur Eiriksson hjá Vinnu-
eftirliti rikisins i samtali viö
Þjóöviljann.
40 slikar véiar
Um 40 hausunarvélar af
geröinni Baader 414 eru i notkun
víða um land i saltfiskvinnsluhús-
um, og skreiðarvinnsluhúsum, en
þessar vélar eru flestar 30—40 ára
gamlar, en hætt var aö framleiöa
þessa tegund hausunarvéla fyrir
17 árum.
Aö Sögn Guömundar, eru
vélarnar mjög hættulegar, þrátt
fyrir aö þær uppfylli allar kröfur
um öryggi, aö minnsta kosti allar
þær sem slys hafa oröiö viö á
siöustu misserum.
„Þaö er engin regla til um
hversu gamlar vélar mega veröa
án þess aö þær úreltist frá öryggis
sjónarmiöi. Hér er þvi spurning
um aldur og bönn, en það hefur
komiö til tals aö innkalla allar
þessar vélar. Ef menn fara á
annaö borö I vélina, þá er af fing-
ur eöa jafnvel hönd upp aö úlnliöi
eins og dæmi er til og allir
þekkja.”
Guömundur sagöi mestu
hættuna stafa af þvi, aö börn eöa
unglingar væru látin vinna viö
þessar vélar, sem þvi miður væri
allt of algengt. Þaö er fótstig viö
vélina til að stööva hana ef með
þarf, en þaö er segín saga, aö ef
þeim sem viö hana er skrikar
fótur, þá á hann litil tök á aö stiga
á fótstigiö. Viö höfum rætt mögu-
leika á þvi aö stækka fótstigið aö
mun, og bæta öryggið. Þessi mál
eru öll til athugunar núna”, sagöi
Guömundur. _ ig.