Þjóðviljinn - 11.12.1981, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. desember 1981
lólaföndu
Kársnesskóla
Jólin nálgast nú óðfluga eins og flestir vita. Að
minnsta kosti fer jólaundirbúningurinn aldrei framhjá
blessuðum börnunum, og spennan fer nú að nálgast há-
markið.
í skólum landsins fer fram margvislegt starf í tilefni
jólanna. Við fréttum af slíku starfi í Kársnesskóla i
Kópavogi, en þaðan eru myndirnar hér á síðunni. Þar
voru haldin föndurkvöld 2. og 3. des. og mættu þar börn,
foreldrar og kennarar, sem kenndu föndur í sjálfboða-
vinnu. Aðsóknin var geysimikil og komu miklu f leiri en
höfðu tilkynnt sig — svo mikill var áhuginn þegar á
reyndi. Kvöldvinnan þótti takast með afbrigðum vel og
afraksturinn varð mikill að vöxtum. Afrakstur Ijós-
myndarans er hér á síðunni, en af föndurvinnu hans
höfum við engar spurnir haft.
—ast
Litið yfir skólastofu i Kársnesskóla þegar jólaföndrið stóð sem hæst. Þarna er unnið kappsamlega á
hverju borði og enginn mátti vera að þvlað Hta upp. þótt ljósmyndari væriá vappi. (Ljósm. gel)
Kennari þessarar ungu stúlku hefur örugglega erindi sem erfiði — áhuginn skfn úr hverjum andlits
drætti. (Ljósm. gel.)
Ungu piltarnir fá hér tilsögn þrautreyndra kvenna I jólaföndri.
Hvað ungur nemur gamall temur. Hver segir svo að karlmenn á lslandi
sinni ekki saumaskap eða barnauppeldi? (Ljósm. gel)