Þjóðviljinn - 07.01.1982, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 07.01.1982, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN: Fimmtudagur 7. janúar 1982 Erindi á Orku- þingi gefin út Alþýðuleikhúsið Illur fengur á f jalirnar á ný — Vita ræðir um verk sín á sunnudag t kvöld, fimmtudaginn 7. janú- ar hefjast á ný sýningar I Alþýöu- leikhúsinu á gamanleiknum Illur fengur eftir breska höfundinn Joe Orton. Illur fengur er gallsvartur glæpafarsi, þar sem ýmislegt óvenjulegt og krassandi gerist inn á heimili siöprúös og strangtrú- aðs ekkjumanns. Með hlutverkin i leiknum fara Arnar Jónsson, Bjarni Ingvarsson, Bjarni Stein- grimsson, Borgar Garöarsson, Helga Jónsdóttir og Guðmundur Ölafsson. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson, leikmynd og búninga gerir Jón Þórisson. Næsta sýning er á laugardag. A morgun, föstudaginn 8.1,hefj- ast aftur sýningar á leikriti Vitu Andersen, Elskaðu mig, sem sýnt var við mikla aðsókn fyrir jól, en höfundurinn er einmitt staddur hér á landi um þessar mundir. Hún veröur viðstödd sýninguna á Elskaöu mig á sunnudagskvöldið og mun ræða viö áhorfendur á eft- ir um verk sin. Barnaleikritið Sterkari en Súp- ermann er einnig komiö úr jóla- frii og á sunnudag kl. 15.00 hefjast sýningar á þvi á ný. Ct er komiö i fjölrituöu formi rit meö öllum erindum sem flutt voru á ORKUÞINGI '81. Orku- þingiö var haldiö dagana 9.—11. júni sl. á vegum iönaöarráöu- neytis, oliufélaganna, Orkustofn- unar, Rannsóknaráös rikisins, Sambands islcnskra hitaveitna, Sambands islenskra rafveitna og Verkfræöingafélags tslands. Orkuþingiö vakti mikla athygli og var mikiö frá þvf sagt i fjölmiöl- um sem þar kom fram; m.a. voru nokkur erindanna birt aö hluta eöa i heilu lagi. Reyndist þingiö gagnlegur vettvangur til skoö- anaskipta um stefnumótun i orkumálum. Fyrirhugaö er aö Orkuþing veröi haldiö reglulega i framtiöinni. Ritið er i tveim heftum, alls 675 bls., og inniheldur 36 erindi sem undirbúin voru fyrir Orkuþingið og auk þess viöhorf stjórnmála- flokka varðandi þjóðfélagsleg markmið i orkumálum, sett fram i ljósi þess sem fram kom á þinginu. Viðhorf stjórnmála- flokkanna voru flutt i lok Orku- þings af: Guðmundi G. Þórarins- syni, alþm. Kjartani Jóhanns- syni, alþm. Kjartani Ólafssyni, ritstjóra, og Þorvaldi Garðari Kristjánssyni, alþm. Þá eru i ritinu birtar meginniö- urstöður ORKUÞINGS ’81 eins og Vilhjálmur Lúðviksson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðs rikisins, dró þær saman i þinglok. Ritiðer yfirgripsmikil heimild um stöðu og horfur I orkumálum tslendinga um þessar mundir og án efa fróðleg og gagnleg heimild fyrir alla þá, sem um orkumál fjalla. Fyrir Orkuþing kom einnig út ritið Þróun orkubúskapar, álits- gerð starfshóps Rannsóknaráðs rikisins um þróun orkumála á ts- landi. Ritið er 217 bls. og gefur ýtarlegt sögulegt yfirlit um orku- mál á Islandi og helstu atriði er varða þróun á næstu árum, ekki sist rannsóknir i orkumálum. Rit þessi eru fáanleg hjá Rann- sóknaráöi rikisins, simi 21320, eða hjá Bókabúð Sigfúsar Eymunds- sonar og Bókabúð Máls og menn- ingar. Góð gjöf tíl Gigtarfélagsins Fimm konur, sem eru miklir velunnarar Gigtarfélags tslands færðu félaginu nýverið rausnar- lega gjöf — 60 þúsund krónur. Þess var getið, aö þetta væri af- rakstur nokkurra mánaða tóm- stundastarfs þessara fimm kvenna. BRÉFSKÁK/3 Hvað er bréfskák? Eftir að bréfskákþættir hófu göngu sína hér i Þ jóðvi I janum, fyrsta fimmtudag i hverjum mánuði, hafa menn verið að spyrjast fyrir um það, hvort ekki væri hægt að fá nánari útlistun á því hvernig bréfskákkeppni fer fram, hvaða mót standa tii boða o.s.frv. Fyrst er þess aö geta aö innan I Skáksambands tslands starfar sérstök nefnd sem hefur umsjón með málefnum bréfskákarinnar hér á landi. Nefnd þessi skipu- leggur Bréfskákþing tslands, sem hefst i byrjun hvers árs, velur menn i landskeppnir, 01- ympiukeppni, Evrópukeppni landsliða og útvegar mönnum þátttöku i einstaklingsmótum, I gegnum alþjóðabréfskáksam- bandið ICCF. Reglur t öllum aðalatriðum gilda al- mennar skákreglur FIDE, með ákveönum undantekningum, sem eru nokkuö augljósar, t.d. regluna um að snertur maður sé færður. Leiksendingar fara á milli manna i pósti, á þar til gerðum skákkortum, póstkort- um eða i sendibréfum. Algeng- ast er að notað sé alþjóðlegt táknkerfi I leiksendingum: ABCDEFGH ABCDEFGH þýöir þannig 1. 5254-3735 1. e4-c5 2. 7163-4746 2. Rf3-d6 3. 4244-3544 3. d4-exd4. Þetta er mikxlvægt, þvi ritvill- ur eru bindandi og leikir verða ekki teknir aftur. Umhugsunartimi er 30 dagar fyrir 10 leiki og er þá ekki tal- inn með sá timi sem bréf eru I pósti. Sparaöur timi kemur keppendum til góða I framhald- inu, þannig að ef fyrstu 10 leikj- unum er ávallt leikið sama dag og kort andstæöings er móttek- ið, á viðkomandi til góða 60 daga til að ljúka tuttugasta leiknum. Eins og sjá má af þessu er hætta á tiinahráki hlægilega litil þegar miöað ér við kappskákir t.d. ' Skylda er við hverja leiksend- ingu að láta koma fram 1) Dag- setningu póststimpils á leik- sendingu andstæðings, 2) Komudag siöasta leiks hans 3) Sendingardag eigin leiks, eða dagsetningu sem sjá má fyrir að verði á póststimplinum, þvi sd dagsetning ein gildir 4) Not- aður umhugsunartimi, þ.e. bæði á siðasta leik og heildarum- hugsunartlmi. Keppandi getur tekið sér 30 daga leyfi á ári, auk þess sem skákstjóri getur veitt aukaleyfi vegna vinnu, veikinda eða ann- arra brýnna aðstæðna. Þetta eru helstu punktar úr bréfskákreglum ICCF, en regl- urnar I heild er að finna I tima- ritinu Skák, 1. hefti 1982. Bréfskákmót A töflunni má sjá veg þann sem fara veröur til þess að öðl- ast heimsmeistaratitilinn i bréf- skák. Hver sem er getur til- kynnt þátttöku i I. II. og III. flokk I Evrópu- og heimsmótun- um. Hafi menn yfir 1900 Elo-stig komast þeir beint inn i meist- araflokk sömu móta. Allar nán- ari upplýsingar veitir umsjón- armaöur erlendra móta, Sverrir Karlsson, Box 122, 202 Kópa- vogi. Bréfskákþing Islands hefst I lok febrúar árlega. Teflt er i þremur flokkum landsliðs-, meistara- og almennum flokki. Skráning stendur nú yfir I 6. Bréfskákþingi íslands, og við þátttökutilkynningum tekur Jón A. Pálsson, Hrauntungu 105, 200 Kópavogi. Hvers vegna bréfskák? Ótrúlega margir virðast halda aö þeir einir tefli bréf- skák, sem búa úti á landi, og geti þar af leiöandi ekki sinnt skákinni með öðrum hætti. Þetta er ekki allskostar rétt, þvi fjöldinn allur af skákmönnum I þéttbýli hefur uppgötvaö kost- ina við bréfskákina. Sem dæmi má nefna að margir iðka bréf- skákina til að halda við og auka byrjanaþekkingu, auk annars sem af bókum má læra. Einnig má nefna aö margir eiga þess ekki kost aö taka þátt I venju- llegum kappskákarmótum vegna vinnu sinnar, eða ann- arra anna. Vegna hins rúma umhugsunartima geta menn beðið meö leiksendingar, þar til vel stendur á o.s.frv. Að lokum er hér stórskemmti- leg skák, sem nýorðinn Evrópu- meistari i bréfskák, W.A. Kaluchin tefldi I úrslitakeppni 18. Evrópumeistaramótsins. Hvitt: J.Hartung Nielsen (Danmörk) Svart: W.A.Kaluchin (Sovétrikin). Katalónisk-byrjun 1. c4 - e6 2. g3 - Rf6 3. Bg2 - d5 ■ 4. d4-dxc4 5. Rf3 - a6 6. Re5 - c5 7. Ra3 - cxd4! 8. Raxc4 - Ha7! (Nýr leikur af nálinni. Eftir 8. - Bc5 9 Bd2-00 10. Ba5-De7 11 0-0 hefur hvitur mótspil fvrir peðið.) 9. 0-0 - b5 13. Rxc6 - Dd5 10. Rd2 - Bc5 14. Rxa7 - Bb7 11. Rb3 - Bb6 15. f3 - Bxa7 12. Bc6+ - Rxc6! 16. Bd2? Hvernig þú verður heimsmeistari! (Skárri kostur er 16. a4) 16. — - h5! 18. Del 17. Kg2 - h4 (Hvernig á svartur að haga sókninni? Besta leiðin liggur ekki i augum uppi). (EBa 19. e4 -h3+! 20. Khl - Rxe4!. 21. fxe4 - Dxe4+) 19. - - hxg3 21. Khl - Dh5» 20. Dxg3 - Hh6! (Jaröarförin auglýst siöar!!) 22. Rd4 - Hg6 26. Kgl - Rxfl + 23. Dc7 - Dh3 27. Khl -Rg3+ 24. Hf2 - Re4! 28. Kgl - Re2+ 25. Hafl -Rg3+ og mátar i næsta leik. Sannkall- aðir meistarataktar. -eik- Ný úrslit í bréfskákþingum 1980 mótið: Landsliösflokkur: örn Þór- arinsson vann Jón Torfason. GIsli Gunnlaugsson jafntefli við þá Erling Þorsteinsson og Orn Þórarinsson. Meistaraflokkur: Þórketill Sigurðsson með jafn- tefli gegn Baldvin Kristjáns- syni. 1981 mótið: Landsliösflokkur: Gisli Gunn- laugsson vann Jón Þ. Þór. Jón Þ. Þór vann Jóhannes B. Gislason. Svavar G. Svavarsson jafntefli gegn Jóhannesi B. Gislasyni. Frank Heriufsen vann Jón Jóhannsson. Jón Þ. Þór jafntefli gegn Bjarna Magnússyni. Meistarafiokkur: Einar Karlsson vann þá Þór- ketil Sigurðsson og Guðlaug Bjarnason. Almennur flokkur — A-riöill: Jón B. Lorange vann Harald Jónasson. Friðrik Guðlaugsson vann þá ólaf Ingimundarson og Harald Jónasson. Guðmundur E. Traustason tapaði öllum sin- um skákum. — eik —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.