Þjóðviljinn - 07.01.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 07.01.1982, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 7. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum fra lesendum Góðar kveðjur frá Færeyjum Um jólin barst Markúsi B. Þorgeirssyni góö kveBja frá Færeyjunv nánar til tekið frá fráfarandi formanni færeyska slysavarnafélagsins (LFB) Ró- lant Paturssyni. Hefur Markús beðið Þjóðviljann að birta kveðjuna ásamt meðfylgjandi mynd: Góði Markus. Ja, nú eru jólini i hondum og tessvegna nökur fá orð. Fyrst er at siga at eg eri glaður um at ferðin hjá tær her i Föroyum gekkst væl og at tú komst aftur heim í öllum góðum. Frá L.F.B. er tað at siga at eg (sum ætlan var) havi lagt formanns-starvi frá mær. Adr. nýggja formannsins er: össur av Steinum, Kollafjörð Föroyar. Hann er góöur maður og vóni eg at gott samstarv kemur tykkara imillum, eg hevði fyri stuttum fund i L.F.B. og fór formanns- skifti fram tá. Millum onnur mál, varð Markusneti til umröðu og hildi »arð fram, at i fyrstu siftu áttu 811 felBgini at ogna sær tað, og eg vóni so verður. Eg viidi verið glaður, um tú kundi sent mær nBkur útklipp av teimum vitalum tú hevði við Is- lensk bl8ð, eftir at tú vart komin heim, tað hevði komi væl við i mittsavn av tilikum slag. (Ella fotokopi). Her er eystur ætt, veturin er komin við kulda og kava. Vinarliga Kólant Patursson Hér má sjá Markús B. Þorgeirsson ásamt nokkrum af þeim minja gripum sem honum voru gefnir i Þórshöfn m.a. frá slysavarna félögunum. Ljósm. gel Hverjir eru að nöldra um fátækt? Orð í eyra vinnuveitenda Hvers vegna i ósköpunum eru - flutt inn 20 þúsund litasjón- varpstæki, þegar allir eru aö kvarta og kveina vegna fátæktar? Hvernig stendur á þvi að 50 þúsund manns fara til út- landa á ári hverju, þegar allir eru að stynja undan blankheit- unum? Af hver ju eru keyptir inn i landið 10 þúsund bilar? Af hverju kostar hlutur tuttugu dollara hér á landi, sem kostar tvo dollara i Bandarikjunum? Hvaö er aö? !! Verkamaöur i borginni. Bræður tveir í Kópavog- sjónvarpsskerminn á inum sátu fyrir framan gamlaárskvöld og horfðu Barnahornið á skaupið. Fannst þeim mesttil pönkarans koma. Það var þeim tilefni til þess að teikna pönkarann sem sést á þessari mynd í fullu fjöri. og Jón Múla Rjúkandi ráð hans. Kristin, (móðir Skarp- héðins, er ákveðin kona sem veldur Stefáni veitingamanni talsverðum áhyggjum, uns hann sér sitt óvænna og fær strokufangann i lið meö sér. Eftir það má segja að fari að „hitna i kolunum”. ■ |É]É^ Útvarp kl. 20.30 Fimmtudaginn 7. janúar kl. 20.30 verður fluttur söngleikur- inn „Rjúkandi ráö” eftir Pir ó. Man. Tónlistina samdi Jón Múli Arnason, Sigrún Jónsdóttir syngur einsöng og hljómveit Magnúsar Ingimarssonar leik- ur. Leikstjóri er Flosi Ólafsson. Með hclstu hlutverk fara Krist- inn Hallsson, Erlingur Gislason, Einar Guðmundsson, Guðrún Högnadóttir og Steinunn Bjarnadóttir. Flutningstími er 85 minútur. Leikurinn var áður á dagskrá 1960. Stefán Þ. Jónsson veitinga- maöur hefur mikið umleikis, og þá er gott aö hafa ljúfa og elsku- lega dóttur við afgreiðsluna. Ekki er með öllu tiöindalaust i bænum, þvi sá stórhættulegi Skarphéðinn Nilsen gengur laus ennþá einu sinni og allt lög- regluliöið aö heita má á hælum Guðsorð í Gufuradíóinu Útvarp snemma morguns Islendingar hafa talið sig kristna þjóð i nær 1000 ár og jafnvel lengur. Þetta einkenni þjóöarsálarinnar fá útvarps- hlustendur svo sannarlega að veröa varir viö, þvi á hverjum degi sem drottinn lætur yfir þá liöa skammtar útvarpiö i það minnsta þrjá dagskrárliði tengda á einhvern hátt eiliföar- málunum. Er menn vakna upp á morgnana ýmist hressir eöa óhressir þá er eitt af þvi fyrsta, sem eyrun nema, morgun- bænin. Ekki getur dagskrárritari með góöri samvisku sagt, að þessi fasti dagskrárliður út- varpsins sé með þeim hressileg- ustu á þeim bæ. Oftast er þessi bæn flutt með slikum raddblæ aö ætla mætti að flytjandi væri þungt haldinn. Þaö er eins og dagskrárritara minni, að ein- hver forystumaöur kristninnar hafi i öndverðu brýnt fyrir mönnum að vera ávallt glaöir. Hvernig væri aö hressa þetta svolitið? Þeir hinir tveir þættir sem tengjast guðsótta og góöum siðum i landinu heita morgun- orð og orö kvöldsins. Eru þar venjulega á ferð flytjendur er ekki teljast til hinnar geistlegu stéttar. Eins og nöfn þessara liða bera meö sér eru þar flutt orö. Einhvern veginn hefur dag- skrárritari þaö á tilfinningunni, ' aö oröin verði stundum þeim mun fleiri sem sannfæringin sé minni. Kannski er hér um að ræða eitt birtingarform verð- bólgunnar. Kvöldstund meö Sveini •Útvarp kl. 23.00 Frómur maður sagði að Sveinn Einarsson hefði ein- hverja þá bestu kammerrödd á siðkvöldi sem hugsast gæti. Þegar dagskrárkynningin gekk á þann fróma og heimtaði skýr- ingar, þá sagöi hann sögu af öldruðum frænkum sinum. Gömlu konurnar settust fyrir framan viötækiö i hlustunar- stellingu ævinlega þegar Sveinn færi kvöldþýðri röddu um lag og ljóð. Þetta framkallaði ákafa sherrylöngun hjá kvinnunum og þær horföu dreymnar undir Sveini út i nóttina. Sá frómi Sveinn Einarsson þykir hafa góða kvöldrödd. Þættir hans njóta töluverðra vinsælda. sagði að þetta þýddi að Sveinn hefði góða kammerrödd.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.