Þjóðviljinn - 07.01.1982, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. janúar 1982
ALÞÝÐUBANDÁLAGIO
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
FORVAL
Fyrri áfangi verður laugardaginn 16. janúar kl. 11 til 19 að Strandeötu
41 (Skálanum).
Seinni áfangi verður laugardaginn 6. febrúar kl. 11 til 19 að Strandgötu
Félagar kynnið ykkur forvalsreglurnar.
Fjölmenniö.
— Stjórnin
Alþýðubandalag Héraðsmanna
HelgiSeljan, alþingismaður mætir á almennum
félagsfundi i fundarsal Egilsstaðahrepps föstu-
daginn 8. janúar kl. 20:30. — Kaffi. — Stjórnin.
Umræðufundir ABR um málefni Þjóðviljans
Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik efnir til tveggja umræðu- og
vinnufunda til undirbúnings ráöstefnu útgáfufélags Þjóðviljans. — Eru
flokksmenn sem hyggjast sækja ráðstefnuna hvattir til að mæta á
þessa umræðufundi.
Reksturog útgáfa Þjóðviljans, horfurnar framundan
og leiðir tii úrbóta.
Er yfirskrift fyrri umræðu- og vinnufundarins um málefni Þjóðviljans
sem haldinn verður mánudaginn 11. janúar kl. 20.30 aö Grettisgötu 3. —
Frummælendur: Ragnar Arnason og Úlfar Þormóðsson.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Alþýðubandalagið i Kópavogi heldur almennan félagsfund i Þinghóli,
Hamraborg 11, miðvikudaginn 13. janúar n.k. kl. 20.30. Dagskrá: 1.
Akvörðun um sameiginlegt prófkjör stjórnmálaflokkanna i Kópavogi
vegna bæjarstjórnarkosninganna i vor. 2. Lagðar fram til samþykktar
forvalsreglur fyrir féiagið vegna tilnefningar þess á framboðslista i
prófkjörinu. 3. Onnur mál. — Skorað er á félaga aö fjölmenna. —
Stjórnin.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir til-
boðum i stjórn- og liðabúnað, rafgeyma og
hleðslutæki fyrir aðveitustöðvar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik frá og með föstudegi 8. janúar
1982 og kosta kr. 50.00 hvert eintak.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 16. febrúar 1982 merkt
RARIK 82001 og verða tilboðin þá opnuð
að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
Reykjavik 5. janúar 1982
Rafmagnsveitur rikisins
Heflsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðinga — við barnadeild —
heilsuverndarnám æskilegt.
Hjúkrunarfræðing — til starfa með
trúnaðarlækni — heilsuverndarnám æski-
legt.
Ljósmóður — við mæðradeild — hálft
starf.
Starfsmenn i móttöku og við simavörslu —
á barnadeild.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri.
Læknaritara i Domus Medica — fullt
starf.
Bókasafnsfræðing, hálft starf.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdar-
stjóri.
Umsóknir berist á skrifstofu Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavikur fyrir 16.
janúar n.k.
Umsóknareyðublöð fást i afgreiðslu
heilsuver ndarstöð varinnar.
Heilbrigðisráð Reykjavikur
Næst kaldasta ár
aldarmnar
segja veðurmælingar i Reykjavík
Kalt ár hefur nú kvatt og hlý-
legar mætti hið nýja heilsa þótt
ekki sé fönninni fyrir að fara hér
á Siðumúlalandshorninu. Aðeins
eitt ár á þessri öld hefur reynst
kaldara en það, sem nú er liðið
hjá, árið 1979. Siðan koma árin
1919 og 1921. Voru þau þó 0.1 og 0.4
gr. hlýrri en það næstliðna. 1
Reykjavik var meðalhiti þess 3.3
gr. C., 1.7 gr. kaldara en meðaltal
áranna 1931—1960 og 1.1 gr. kald-
ara en meðaltalið frá 1961—1980.
Þetta á við um aðal höfuðstað-
inn, Reykjavik. Ofurlitið öðru
máli gegnir með höfuöstaö Norö-
urlands, Akureyri. Þar var áriö
1981 aö visu eitt af hinum 4
köldustu siðan 1920. Meðalhiti
þess á Akureyri var 2.2 gr. ,1.5 gr.
1979. Hinsvegar er það svo, að á
fyrstu tveimur áratugum aldar-
innar komu 9 ár ámóta köld eða
kaldari á Akureyri en sl. ár. Mið-
að við þetta er áriö ekki hlutfalls-
lega eins kalt fyrir noröan og
syðra.
Ef við litum á veðurfar ein-
stakra mánaða árið sem leið þá
blasir þetta við okkur:
Janúarkaldur og umhleypinga-
samur, hörkufrost og þiðviðri á
vixl og fylgdi þiðunni gjarna
hvassvirði. Úrkomusamt um-
fram venju, og snjóalög.
Febrúar var áþekkur bróður
sinum um veðurfar að þvi við-
bættu þá, að þá reið yfir sá mesti
veðurofsi, sem mælst hefur i
Reykjavik, með tilheyrandi tjóni.
Meðalhiti mánaðarins var 1.0 gr.
undir meðallagi i Reykjavik og
1.4 gr. á Akureyri.
Mars var þó enn kaldari en
febrúar. Þá var hiti i Reykjavik
2.4 gr. undir meöallagi og 2.6 gr. á
Akureyri. Um miöjan manuðinn
eða þann 17. gekk i viku norðan-
stórhrið á Norðurlandi.
Aprll var hinsvegar hlýr um
allt land og héldu menn nú að vor-
iö væri komið. Hiti 2.0 gr. yfir
meðallagi á Akureyri og i
Reykjavik 0.7 gr. Seinni hluta
mánaðarins gerði þó tvö skamm-
vinn kuldaköst.
En Paradísarvist Adams varð
skömm sem áöur. Það vor, sem
kom i april, hvarf í mai. Hann var
allur kaldur um mikinn hluta
landsins en seinniparturinn þó
sæmilegur sunnanlands. 1
Reykjavik var hiti 0.3 gr. undir
meöallagi en 1.5 gr. á Akureyri.
Júni var hálf harðnjóskulegur
norðan- og austanlands, kaldur og
þurr, en hlýrri og rakari sunnan-
lands. A Akureyri var hiti 1.5 gr.
undir meðallagi en 0.5 gr. i
Reykjavik.
Júli var kaldur, litil úrkoma
sunnanlands, nokkru meiri
nyrðra. Hiti 0.7 gr. undir meðal-
lagi I Reykjavik en 1.4 gr. á Akur-
eyri.
1 ágústvar hiti i Reykjavik 0.5
gr. undir meöallagi en á Akureyri
0.5 gr. yfir þvi.
September var kaldur um allt
land að undanteknum stuttum
hlýindakafla um miðjan mánuð-
inn. Mjög úrkomusamt norðan-
og austanlands. A Akureyri
meira en tvöföld meðal úrkoma.
V araslökkviliðsstjóri
Mælt með
Hrólfi
1 borgarráði á þriðjudag var
samþykkt með 3 samhljóða at-
kvæðum að mæla með ráðningu
Hrólfs Jónssonar tæknifræðings i
stöðu varaslökkviliðsstjóra
Reykjavikurborgar. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins tóku ekki af-
stöðu en umsækjendur voru 12.
Hrólfur Jónsson starfar hjá
Slökkviliðinu og hefur verið stað-
gengill Gunnars Sigurðssonar
fráfarandi varaslökkviliðsstjóra.
Hiti i Reykjavik 1.2 gr. undir
meðallagi og 1.7 gr. á Akureyri.
Steininn tók þó úr i október.
Reyndist hann sá kaldasti siðan
1917. I höfuðstaönum var hitinn
4.4 gr. undir meöallagi og 4.2 gr. á
Akureyri. Fyrr má nú rota en
dauörota. Snjókoma var mikil
nyrðra og nokkrir fjárskaðar.
Kisuleikur heitir leikritið sem
Þjóðleikhúsið er að fara að sýna i
kjallaranum. Frumsýningin er i
kvöld. Þetta leikrit er eftir ung-
verjann István örkény og þýtt af
Karli Guðmundssyni og Hjalta
Kristgeirssyni. Eftir sama höf-
und sýndi Iðnó Það er kominn
gestur fyrir rúmum áratug. Höf-
undurinn hefur næmt auga fyrir
þvi fjarstæðukennda I hvunndeg-
inum og þykir lýsa firringu nú-
timamanneskjunnar giska vel.
Leikstjóri Kisuleiks er Benedikt
Arnason en aðalhlutverkið er i
höndum Herdisar Þorvaldsdótt-
Skákþing Reykjavikur 1982
hefst næstkomandi sunnudag, 10.
janúar og verður teflt I húsakynn-
um Taflfélags Reykjavikur að
Grensásvegi 46.
t aðalkeppninni verður þátttak-
endum skipt i tvo flokka eftir
Eló-skákstigum, sem Skáksam-
band tslands er nú að láta reikna.
t A-flokki munu þeir keppa, sem
náð hafa 1900 Eló-stigum, en aörir
munu keppa i B-flokki. i báðum
flokkum verða tefldar ellefu um-
ferðir eftir Monrad-kerfi.
Umferðir verða þrisvar i viku,
á sunnudögum kl. 14 og á mið-
vikudögum og föstudögum kl.
19.30. Biöskákdagar verða inn á
milli.
Keppni i flokki 14 ára og yngri á
skákþingi Reykjavikur hefst
laugardag, 16. janúar. I þeim
flokki verða tefldar niu umferðir
eftir Monrad-kerfi, umhugsunar-
timi 40 minútur á skák fyrir hvorn
keppanda. Keppnin tekur þrjá
laugardaga, þrjár umferöir I
senn. Bókaverðlaun verða fyrir
a.m.k. fimm efstu sætin.
Lokaskráning i aðalkeppnina
verður laugardag, 9. janúar kl.
14—18.
Taflfélag Reykjavikur hefur
haldið skákþing Reykjavikur ár-
lega siðan 1931. Ingi R. Jóhanns-
son hefur oftast orðiö skákmeist-
ari Reykjavikur, alls sex sinnum.
Næstir koma Asmundur Asgeirs-
son, Baldur Möller, Eggert Gilf-
Varð sumsstaðar aö taka sláturfé
á gjöf.
Nóvembervar og kaldur, 3.0 gr.
undir meðallagi i Reykjavik og
2.9 gr. á Akureyri. Október og
nóvember hafa ekki áður mælst
svo kaldir i Reykjavik. Norðanátt
' rikjandi með verulegri snjókomu
um norðanvert landið en brúk-
legu veöurfari sunnanlands.
1 desember breyttist veðurfar
ekki til stórra bóta. Þó vottaöi
fyrir þiðviðri en kuldi annars
mikill og hiti I Reykjavik 3.1 gr.
undir meðallagi og 2.9 gr. á Akur-
eyri. Er þetta allt saman ljótur
lestur. —mhg
Leikritið fjallar um systur tvær
og hvernig þær taka lifinu ólikum
tökum. Auk þess koma ástmaður
(Þorsteinn Hannesson) og vin-
kona (Bryndis Pétursdóttir)
mjög við sögu. Systirin er leikin
af Guðbjörgu Þorbjarnardóttur.
Konan i næstu Ibúð er leikin af
Margrétu Guðmundsdóttur. Þaö
þykir nokkrum tiöindum sæta að
þau Þorsteinn Hannesson og Þóra
Borg skuli nú sjást á leiksviði eft-
ir nokkurt hlé. Þorsteinn er i hlut-
verki aflóga söngvara og Þóra i
hlutverki móður hans. Sigurjón
Jóhannsson gerði leikmynd og
búninga. —óg
er, Benóný Benediktsson, Björn
Þorsteinsson og Jón Kristinsson,
en þeir hafa unnið meistaratitil-
inn fjórum sinnum hver. Núver-
andi skákmeistari Reykjavikur
er Jón L. Arnason, alþjóðlegur
skákmeistari.
Tengsl íslands
Framhald af 1
ófriðar dregur á svæöum þar sem
loftvarnir Sovétmanna eru
veikar.”
Þá kemur og fram að mikil-
vægar stjórnstöðvar i kjarnorku-
kafbátahernaði eru staösettar á
tslandi svo sem gerfihnattasam-
band og AWACS-vélar. Á bls. 73
segir i ritinu að „Þau skotmörk,
sem Bandarikjamenn álita að
Sovétmenn muni beita kafbáta-
eldflaugum gegn, strax i upphafi
kjarnorkustriðs, eru bækistöðvar
B-52 sprengjuflugvéla og fjar-
skipta- og stjórnkerfi.”
Að siðustu má geta þess að
fjallaö er um vopnabúnaö Phant-
om-þota og Orion PC 3 flug-
véla, en það leiðir af hlutverki
herstöðvarinnar á Miðnesheiði
sem lykilþáttar I kjarnorku-
kafbátahernaði á Norður-Atlants-
hafi, að frá Islandi er samkvæmt
áætlunum ætlað að senda flug-
vélar ti! árása á eldflaugakaf-
báta.
—ekh
Aðalhlutverkin eru I höndum Herdlsar Þorvaldsdóttur og Guðbjargar
Þorvaldsdóttur.
Kisuleikur
Frumsýning á litla sviðinu í kvöld
ur.
Skákþing Reykjavíkur
hefst á sunnudaginn