Þjóðviljinn - 14.01.1982, Page 1
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 14. janúar 1982 — 9. tbl. 47. árg.
i hlákunni i gærdag myndaðist víða vatnseigur á götum borgarinnar og áttu gang-
andi vegfarendur í vandræðum með að forðast gusurnar sem gengu í allar áttir
eins og sjá má á þessari mynd sem gel tók.
Hjúkmnarfræðingar
felldu samninginn
Hjúkrunarfræðingar
sem starfa hjá Reykja-
víkurborg og Akureyrarbæ
felldu í gær og í fyrradag
aðalkjarasamninga sem
nýlega voru gerðir við þær
með fyrirvara um sam-
þykki beggja aðila. Samn-
ingur Reykjavíkurborgar
við hjúkrunarfræðingana
var samhljóða þeim sem
gerður var við Starfs-
mannafélag Reykjavikur í
framhaldi af aðalkjara-
samningi BSRB og ríkisins
og fól i sér 3,25% grunn-
kaupshækkun, m.a. til
hjúkrunarf ræðinga sem
starfa á ríkisspitölunum.
Langvarandi óánægja hefur
veriö meöal hjúkrunarfræöinga
meö kjörin og eins og ein oröaöi
þaö i gær eru þær langþreyttar og
margsviknar! Þegar niöurstaöa I
kosningum um aöalkjarasamning
BSRB var kynnt i Hjúkrunar-
fræöingafélagi lslands kom fram
megn óánægja en félagiö hefur
ekki sjálfstæöan samningsrétt viö
rikiö eins og viö sveitarfélögin.
Þessi óánægja kom svo fram i at-
kvæðagreiðslunni þannig að i
Reykjavik greiddu 118 atkvæöi
gegn samningnum en aöeins 18
meö.
Ekki verður ljóst hvert fram-
haldib veröur fyrr en i næstu viku
en stjórnarfundur verður hjá
félaginu á mánudag og félags-
fundur á miðvikudag. Sérkjara-
samningar hafa ekki enn verið
geröir viö hjúkrunarfræöinga en
ljóst er aö hér er i uppsiglingu
sérstæö kjaradeila. Hjúkrunar-
fræöingar hjá rikinu eru meö
fasta samninga um 3,25% frá 1.
nóvember si. sem starfsmenn
tveggja stærstu bæjarfélaganna
hafa nú hafnaö. Þaö er I raun
rikið sem greiöir laun þeirra
siöastnefndu lika i samræmi viö
lög um rekstur sjúkrahúsa þó
hjúkrunarfræðingar hafi sér-
stakan samningsrétt viö bæjar-
félögin sem þeir vinna hjá. _
Svæðamótið i skák
Guð-
mundur
vann
Helgi tapaði, en
Jón L. sat hjá
a
L
Fjórða umferð á svæðamótinu i skák, sem fram fer I Randers i |
Danmörku var tefld i gærkvöldi. Guðmundur Sigurjónsson vann I
Sviann Karlsson i 40 leikjum. Helgi Óiafsson tapaði fyrir I
Norðmanninum Tiiler. Skákin fór i bið, en var svo tefld áfram i gær- -
kveldi. Helgi féli i gildru sem Norðmaðurinn lagði fyrir hann, átti '
siðan jafntefiismöguieika, en missti af honum. Jón L. Arnason sat I
hjá i gær.
Efstur i B-riðli er Borik frá V-Þýskalandi með 3,5 v., en i A-riöii
nrttnfpld frá V-lrvskalnnHi mpö 3.5 v
Verður gengið
fellt í dag?
Ekki var tekin ákvörðun um skráningu islensku
krónunnar á rikisstjórnarfundi i gærkvöldi eins og
búist hafði verið við, en i dag klukkan niu verður
annar fundur þar sem gengismál verða aftur á dag-
skrá. Er jafnvel búist við að tilkynnt verði um
10—15% lækkun krónunnar eftir þann fund.
Mikil vinna heíur undanfarna
daga verið lögð i umræður á
vegum rikistjórnarflokkanna um
aðgerðir til að draga úr
verðbólguáhrifum gengisbreyt-
ingarinnar, þó þannig að ekki yrði
um skerðingu á kjarasamningum
að ræða. Hefur i þvi sambandi
m.a. verið rætt um niðurskurð á
rikisútgjöldum og möguleikum á
tekjuöflun.
Má búast við ákvörðunum
rikisstjórnarinnar i efnahags-
málum án verulegs dráttar, eftir
að samningar milli útgerðar-
manna og sjómanna hafa tekist.
— AI.
Sáttatillaga lögð fram í sjómannadeilunni:
Útgerðarmenn
jákvæðir
sjómenn voru enn að fjalla
um hana um miðnætti
Seinni part dags i gær, lagði
sáttanefnd fram sáttatillögu i
sjómannadeilunni. Aö þvi er
Þjóöviljinn fregnaöi f gærkveldi
tóku útgeröarmenn vel i tillöguna
en samninganefnd sjómanna var
ekki jafn hrifin og sat á fundi i allt
gærkveldi og fjallaöi um sátta-
tillöguna.
Eftir þvi sem Þjóöviljinn kemst
næst, fjallar sáttatillagan um þau
þrjú atriði, sem mest hefur verið
rætt um i samningunum undan-
fariö, hækkun kauptryggingar,
hafnarfri sjómanna og fasta-
kaupiö á stóru togurunum. Að
sjálfsögðu liggur á borðinu aö
sjómenn fái 3,2 % hækkun á kaup
tryggingu, sem er það sama og
verkafólk i landi fékk 1. nóv. sl. en
aö auki er talaö um hækkun þar
ofan á.
Hjá rikissáttasemjara fékk
Þjóöviljinn þær upplýsingar um
miðnætti sl. að sennilega yrði
sáttafundi haldið áfram eitthvað
fram á nóttina.
— S.dór.
I
| Svavar Gestsson félagsmálaráðherra:
| Engin vísitöluskerðing
IVið stöndum að sjálfsögðu fast á þvi að hamla
verði gegn auknum hraða verðbólgunnar og jafn-
Iframt þvi að ekki verði hróflað við forsendum
kjarasamninganna sem nýlega voru gerðir, sagði
, Svavar Gestsson félagsmálaráðherra i gær um
Iundirbúning efnahagsráðstafana rikisstjórnar-
innar.
Það er unnið að þessum rikisstjórnarinnar og hugmynd-
málum i sameiningu innan ir frá öllum aöilum þar til at-
hugunar, sagði Svavar
ennfremur. Við Alþýöubanda-
lagsmenn erum ekki i tillögu-
kapphlaupi viö einn eöa neinn,
en okkar tillögur byggj a á þess-
um tveimur grundvallaratriö-
um: aö hamla gegn vexti verö-
bólgunnar og standa vörö um
forsendur kjarasamninganna.
Svavar sagðist gera sér vonir
um að nú sæi fyrir endann á
kjaradeilu útgerðarmanna og
sjómanna og að fiskverð yrði
ákveðiðstraxað þvi búnu. Hann
sagöi aö bið eftir efnahags-
ráðstöfunum heföi ekki tafið
fiskverösákvöröun sem leysa
yröi sjálfstætt með hliösjón af
kjarasamningum útgerðar-
manna og sjómanna. Efnahags-
málin og aðgerðir i þeim efnum
væru aftur sérstakt mál sem
lögö væri áhersla á að leiöa til
lykta hið fyrsta.