Þjóðviljinn - 14.01.1982, Page 15

Þjóðviljinn - 14.01.1982, Page 15
Fimmtudagur 14. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 |\ y\ Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum tfra lesendum Soldátagarg í strætó Skrúfa hermanna- útvarpið Strætisvagnar eru yndisleg farartæki, og mikii skömm að þeir séu ekki notaðir meir en raun ber vitni. t staðinn fyrir að setjast áhyggjulaus i góð sæti, berjast menn á einkabilunum sinum um allar götur, sjálfum sér til ama og öðrum til leið- inda. Hversu mörg mannslif ætli fari i súginn á ári hverju vegna þess að menn æsast upp i umferðaröngþveitinu, blóö- þrýstingurinn þýtur upp úr öllu valdi og hinar veiku kransæðar hjartans þola ekki álagiö. Það er alveg öruggt að blessaður strætó hefur og getur bjargað mörgum mannslifum. Undirritaöur ferðast mikið með strætó, en skilur einkabil- inn ávallt heima þegar farið er i vinnuna. Með þessu sparar hann mikla fjármuni, bæði sina eigin og samborgaranna. En eitt er þó sem angrar. Sumir strætisvagnabilstjórar eru þeim leiða vana haldnir að láta Kefla- vikurútvarpið glymja yfir far- þegana. Vitanlega er það móðg- un við háttvirta farþega að þeir þurfi aö sitja undir slikri skemmtan eöa hitt þó heldur. Strætisvagnar eru i almanna- eign og ætlaðir til notkunar i al- mannaþágu. Farþegarnir eiga þvi heimtingu á þvi að þurfa ekki nauöugir aö innbyröa slik- ar kræsingar. Sem betur fer hafa reykingar aldrei verið leyföar i strætisvögnunum, og er þar veriö að taka tillit til þeirra sem ekki reykja. Með sama hætti á ekki saklaust fólk að vera skikkaö til hlustunar á hermannaútvarp, þó þaö vilji notfæra sér annars ágæta þjón- ustu strætisvagnanna. Ég vil þvi beina þvi til þeirra sem þarna eiga hlut aö máli aö láta skipast, svo að sem flestir geti setið i strætisvagninum sinum meö gleði i sinni og trú i hjarta á ágæti og leikni bilstjórans. KS. Barnahornið Ferð í Heyrn- leysingj a- neyt't, /eya /naja sból ihn aTlW (< \ j A 11 1 / j V ■1 | i y | J ^ k k*« 'óísi peíi4 skólann Við fórum á 2 bilum. Við heimsóttum 3, 4 og 5 ára krakka. Þau töluðu táknmál. Kennarinn, hann Rúnai; skrifaði nöfnin okkar með tússi og krakkarnir límdu þau upp á töflu. Rúnar kenndi okkur f ingramál. Við lærðum A, B, S, Þ, H, R. Við lærðum hvaða dag- ur er í dag. Svo kenndum við þeim söng. Þau sungu fyrir okkur á táknmáli, ,,í skóginum stóð kofi einn". Höfundar eru, Hjörleifur Bryndís, Atli, Steinar, Þórunn, Sveinn, Þórdís. 3. des. '81 Verslun og viðskipti •Útvarp kl. 11.00 Gils Guðmundsson les frásöguþátt uni Goðafossstrandiö 1916 i kvöld. Frá Goðafoss- strandinu 1916 jÉÉí Útvarp %/p? kl. 20.05 I kvöld les hinn góðkunni út- varpsmaður og fyrrum al- þingismaöur Gils Guðmunds- son frásöguþátt eftir Ólaf Elímundarson um björgunar- afrek Látramanna. Þátturinn ber yfirskriftina Frá Goða- fossstrandinu 1916. Ingvi Hrafn Jónsson frétta- maður hjá sjónvarpinu kcinur viða við i bransanum einsog þar stendur. Klukkan ellefu morguns ræðir hann við Gunnar Snorrason formann Kaupmannasamtakanna og Einar líirni formann Félags islenskra stórkaupmanna. Verður fróðlegt að heyra hvort viðskiptin ganga jafn vel og eyöslan gefur til kynna. Verslun og viðskipti heitir þáttur Ingva, og rödd hans Ingvi llrafn Jónsson stjórnar þætti um verslun og viðskipti klukkan ellefu. Uppá siökastið hefur ekki heyrst mikið frá viöskiptamönnuin... mun vera eitt af fáu sem minnir alþjóð á tilvist sjón- varpsins, sem hvilist bless- unarlega á fimmtudögum. Kobbi Leikrit vlkunnar: Útvarp kl. 21.10 1 kvöld kl. 21.10 veröur flutt leikritið ,,Jack bróðir” (Brother Jack) eftir E.lt. Fugh. Þýðandi og lcik- stjóri cr Briet lléðinsdóttir. i hlutverkum eru Gunnar Eyjólfsson, Guðrún Þ. Stephensen, Jón Sigurbjörns- son, Þóra Friðriksdóttir, Lilja Þórisdóttir og Guðmundur Klemenzson. Leikritiö er tæp klukkustund i flutningi. Tæknimaður: Georg Magnús- Jack hefur vegnaö vel i við- skiptalifinu. Hann er borgar- búi, en finnst eins og fleirum góð tilbreyting i að bregða sér út i sveit. Nú er hann að heim- sækja bróður sinn, John, sem býr á fremur litilli jörð, a.m.k. á nútimamælikvarða. Með Jack er kona hans og tvö börn. Brátt kemur i ljós að þeir bróðir Þýöandi og leikstjóri leikrits- ins i kvöld er Briet Héðinsdótt- ir. bræður gera sér ekki sömu hugmyndir um sveitalifið en bóndinn fær stuðning úr óvæntri átt. E.R.Pugh er breskur höf- undur sem m.a. skrifar tals- vertfyrir BBC. Þetta er fyrsta leikrit hans sem flutt er i is- lenska útvarpinu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.