Þjóðviljinn - 23.01.1982, Page 2

Þjóðviljinn - 23.01.1982, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.— 17. janúar 1982. shammtur Af hverspjallamanni „Ekki er gaman að guðspjöllunum, enginn er í þeim bardaginn", er haft eftir orðheppn- um alþýðumanni, íslenskum, og er ekki ör- grannt um að hann hafi haft nokkuð til síns máls. En það eru ekki bara guðspjöllin, sem eru gamanlaus án bardaga. Eiginlega er sama hvaða spjöll það eru, þau geta ekki verið til gamans og yndisauka fyrr en dregur til tíðinda vegna þeirra, og þau haf a annað hvort verið framin eða verið er að fremja þau. Spjölluð fyrirbrigði í tilverunni eru æði oft eftirsóknarverðari en óspjölluð. Tökum til dæmis sardínudós. Einskis unaðar verður not- ið af sardinudós, né skyggnst í leyndardóma hennar, fyrr en friðhelgi hennar hefur verið rofin og hún spjölluð. Sama má raunar segja um konuna. Margt af því sem okkur er heilagt eru raun- ar einskis nýtar umbúðir, þar til spjöllun hef- ur átt sér stað. Tökum til dæmis sviða- kjamma. Hvert gildi hefur hann ef hann er friðhelgur? Fagurfræðilegtgildi?— Ef til vill. En hvorki notagildi né nægingargildi. Við óspjallaðan sviðakjamma er, satt að segja lítil ástæða til að staldra. En um leið og friðhelgi hans hefur verið rofin og hann hefur sætt spjöllum (sviðspjöllum) verður hans notið til þeirrar f ullnustu og dýrðar, sem aðeins sviða- kjammi getur veitt. Goshverir teljast, að því mér er tjáð, til náttúruundra, en það ætti að vera hverjum manni I jóst að þeir eru ekki náttúruundur f yrr en þeir gjósa. Þangaðtil eru þeir bara holur oni jörðina og meira að segja stórháskalegar búfénaði dreifbýlismanna/að ekki sé nú talað um bændur sjálfa. Víðfrægastur allra goshvera er tvímæla- laust Geysir í Haukadal. Hann er víst talinn eitt af náttúruundrum veraldar. Einn er aðeins hængur á undrinu. Hann hefur ekki gosið í rúm þrjátíu ár. Þó hef ur ekkert íslenskt náttúrufyrirbrigði verið jafn sleitulaust auglýst í ferðamannapésum og landkynn- ingarbæklingum og Geysir. Saklaust fólk hef- ur verið tælt hingað til lands áratugum saman til að sjá goshverinn f ræga og síðan hef ur það verið platað uppúr skónum með því að setja karbít í „Sóða" og f ramkalla þannig „skakkt, skítugt og óyndislegt fruss", eins og segir í Ferðabók Eggerts og Bjarna. Þá hefur torfu- snepli stundum verið troðið í „Öþerrisholu", en slíkum kræsingum spýtir sá goshver fljótlega líkt og ungabarn vondum graut. Á miðjum sjöunda áratugi þessarar aldar var svo tekið til við að bora ofaní „Strokk" sem um langt ára, áratuga eða aldabil hafði aðeins verið stórháskaleg „hola oní jörðina". Vinur minn, stórhöfðinginn og síðasti víking- urinn, Sigurður Greipsson valdi þeim, sem að þeirri borun stóðu sæmdarheitið „Bormenn Islands". Síðan hefur Strokkur gosið jafnaðarlega á fimmmínútna fresti og óvandaðir íslendinaar logið því að ókunnugum gestum að þarna væri Geysir. Nú kem ég að því, sem fæstir vita. Geysir í Haukadal hafði ekki gosið í fleiri áratugi þegar þaðdatt í Jón heitinn á Laug og Trausta Einarsson jarðfræðing að lækka vatnsborðið á hvernum með því að veita vatnsfarginu útúr gosskálinni. Þetta var gert árið 1934. Síðan gaus Geysir reglulega næstu tuttugu árin, eða þar til kísilskálin hafði hækkað svo að hann náði ekki að létta á séf. í þessi tuttugu ár, sem hverinn gaus hinu svonef nda guf ugosi, sem nú er frægt af myndum, var það alltaf fram- kallað með sextíu kílóum af grænsápu og miklum tilfæringum viðað fylla skálina, fyrst með því að stífla affallið og hleypa svo köldu yfirborðsvatninu út rétt fyrir gos. öðruvísi hef ur Geysir ekki gosið síðan löngu fyrir alda- mót — og þá á ég að sjálfsögðu við hið ann- álaða og víðf ræga guf ugos, sem kemur, þegar hverinn hefur losað sig við vatnið. Gufugos Geysis hefur verið sýnt ósleitilega á myndum um víða veröld, áratugum saman, til að laða hingað sakleysingja. Það er auðvitað dálítið broslegt að Geysis- nefnd er stofnuð 1953, nákvæmlega þegar Geysir er hættur að gjósa,og þess vegna er það vafalítið að nefndin hefur talið það megin- verkefni sitt að „vernda ríkjandi ástand undursins". Og hér er það að hverspjallamaður nokkur er nef ndur til sögunnar. Og útaf hverspjöllum hans verður víst lagt í flestum musterum íslenskrar stjórnsýslu á næstunni, eða eins og segir: „Hverspjallið skrifaði hverspjallamaðurinn Hrafn Gunnlaugsson: Og svo bar við að hann f ór að Geysi í Hauka- dal. Og mannf jöldinn sagði við hann: „Ef þú ert sá sem þú segist vera, vektu þá hinn dauða aftur til lífsins." Og hann lét gera rauf í hveraskálina og sjá, hverinn vaknaði aftur til lífsins og gaus fagurlega. En farísearnir sögðu: „Hann hefur rofið helgidóminn, van- helgað goshverinn, framið hverspjall". En hann svaraði og sagði: „Náttúruundur er ekki náttúruundur, nema þaðsé náttúruundur. Og þeir sem varna því að náttúruundur geti haldið áfram að vera náttúruundur fremja á því náttúruspjöll. Geysir er ekki náttúru- undur, þegar hann gýs ekki, heldur þegar hann gýs. Það eru því ekki náttúruundraspjöll að láta Geysi gjósa, heldur náttúruundra- vernd." Og mannfjöldinn hrópaði einum rómi: „Heill þérAHrafn hverspjallamaður". En þá urðu teikn á lofti og „Sóði" tók að gjósa neðar á hverasvæðinu og allir sungu, einum rómi: Uppúr Sóða vatnið vellur, vöknaraf því mannf jöldinn. Það er eins og miljón mellur mígi uppi himininn." skráargatid Ekki er öll vitleysan eins. Nú i vik- unni opnaði veitingastaðurinn Drekinn (sem áður hét Kirnan) á nýjan leik eftir miklar breyt- ingar. Þetta er staður sem býð- ur upp á kinverska rétti enda tveir kinverskir kokkar i eld- húsinu. Eigendur staðarins sóttu á sinum tima um leyfi til að hafa Iétt vin á boðstólum en vinveitingaeftirlitið hafnaði þeirri beiðni á einni forsendu. Ekki voru á staðnum sturtur handa starfsfólki. Allt annað var óaðfinnanlegt. Nú verður mannispurn: Hvað koma sturt- ur léttvinssötri við? Það er skrýtiö lögmál að eftir þvi sem bensin hækkar i veröi og bilar verða dýrari i rekstri eykst innflutningur á þeim. Þannig mun aldrei hafa verið fluttir inn fleiri bilar en einmitt á þvi herrans ári 1981 eða um 10 þúsund talsins. Af einstökum tegundum jókst mest innflutn- ingur á vissum evrópskum bii- um svo sem Saab, BMW, og Citroen. Hlutfail japanskra bila i innflutningnum á þessu ári minnkaði úr 61.6% i 50%. Prófkjör er nú i fullum gangi hjá stjórn- málaflokkunum og er margt kyndugt á seýði. Menn ráku t.d. upp stó'r augu þegar einn af frambjóðendum i prófkjöri Gerður: Afkom- andi Jónasar frá Hriflu nýtur stuðn- ings Eysteins. Pétur: Meðan öll- um hinum fram- bjóðendum nægði Hótel Holt lét hann sér ekki nægja minna en Broad- wa.v Framsóknarmanna bauö upp á sérstakan kynningarfund i veit- ingahúsinu Broadway með veit- ingum og öllu tilheyrandi. Þetta var Pétur nokkur Sturluson, ekki mjög þekktur maöur. Um svipað leyti var sameiginiegur fundur með öllum frambjóð- endum Framsóknarflokksins i HótelHeklu. Broadway ku taka 1500 manns en Hótei Hekla varla meira en 100-200. Sjöfn: Kvenfélag Alþýðuflokksins hefur afskrifað hana Davið: Spældur yf- ir þvi að hafa ekki getað samið betri spurningar handa Anders Björgvin: Loksins voru allir sammála um snilld hans. Svarthöfði alias Indriði G. Þorsteinsson tekur virkan þátt i kosningabar- áttu ýmissa flokka. Hann skrif- aði t.d. um daginn grein þar sem hann taldi fullvist að vinur sinn Jónas Guðmundsson stýri- maður hreppti annað sætið á framboðslista Framsóknar- flokksins i Reykjavik, næst á eftir Kristjáni Benediktssyni. Fór hann mörgum fögrum orð- um um snilld Jónasar, sam- herja sins úr kosningabaráttu fyrir Albert Guðmundsson i for- setakosningunum um árið. Þeir sem kunnugir eru málum vita auðvitað aö Jónas á engan möguleika i þetta sæti. Þar kemur Gerður Steinþórsdóttir hins vegar mjög til álita, ekki sist vegna stuðnings Eysteins gamla Jónssonar. Til gamans má geta {æss að Gerður er dótt- urdóttir Jónasar frá Hriflu en Eysteinn var einn af þeim sem hrundu honum úr sessi á sinum tima. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, litrikur og kraftmikill persónuleiki eins og stóð i risafyrirsögn á forsiðu svokallaðs Borgarblaðs fyrir7 skömmu, stendur nú i próf- kjörsslag hjá krötum og á við nokkuð ramman reip að draga. Kvenfélag Alþýðuflokksins studdi hana dyggilega i próf- kjörinu fyrir 4 árum en þykir nú sem Sjöfn hafi vanrækt þann fé- lagsskap með öllu og er þvi ekki einsfús til stuðnings nú. Miklar erjur voru lika i Alþýðuflokkn- um fyrir 4 árum milli manna eins og Björgvins Guðmunds- sonar og Eyjólfs Sigurðssonar og var þá Sjöfn eins konar mála- miðlun milli striðandi fylkinga. Þessa nýtur hún ekki nú. Spurningar og svör voru aðalumræðuefnið á siðasta borgarstjórnarfundi. 13 minútna útvarpsviðtal Anders Hansens við Sigurjón Pétursson varð Davið Oddssyni tilefni til hálftima ræðu utan dagskrár. Orðaði Sigurður G. Tómasson hugsanir feistra viðstaddra vel þegar hann benti á að Davið væri spældur yfir þvi að hafa ekki getað samið betri spurn- ingar fyrir blaðamann Moggans og jafnframt stýrt svörum Sig- urjóns Péturssonar. Sigurður benti á að þessi sama tilhneig- ing Daviðs hefði aftur komið, upp siðar á fundinum þegar hann vildi meina að borgar- stjóri hefði ekki skilið spurning- arnar sinar um iðnaðarlóöir og komið með vitlaus svör i þokka- bót. Spáði Sigurður þvi að lok- um að eftir að Daviö hefur tapað kosningunum i vor muni hann fullyrða að kjósendur hafi mis- skilið þetta allt. Þeir hafi bara ekki vitað um hvaö þeir voru að kjósa. Ekki er það einleikið með borgar- stjórnina. Loksins þegar allir eru sammála um ágæti, dreng- skap og heiðarleika og snilld eins borgarfulltrúa greiða allir þviatkvæðiaöleysa hann undan störfum! Þessi rómaði borgar- fulltrúi er Björgvin Guðmunds- son sem fékk lausn frá 20 ára starfi i borgarstjórn s.l. fimmtudag. Davið Oddsson, Kristján Benediktsson og Adda Bára Sigfúsdóttir þökkuöu Björgvin og báru á hann lof sem fyrr segir. Þau orð féllu að það væri huggun harmi gegn að Björgvin yrði áfram innan seil- ingar en hann tekur nú við for- stjórastöðunni I BÚR.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.