Þjóðviljinn - 23.01.1982, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 23.01.1982, Blaðsíða 32
\diqðviuinn\ Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra starfsmenn hlaðsins i þessum slmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbroi Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Helgin 23.— 24. janúar 1982. 8i285, ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 ,Svona á mörkunurrí Hvenær má birta myndir og hvenær ekki? Þessu þurfum við fréttaljósmyndarar oft _ _ að velta íyrirokkur og álitamálin eru ófá. Og þess eru dæmi að við tökum mynd af manni úti á götu, hann verður æfur og heimtar að við birtum hana ekki eða fer hreinlega i mál. Almenna reglan er sú að birta má myndir af hverju og hverjum sem er, séu þær teknar i „almenningi”. Þ.e. maður sem er a gangi niðri i bæ, getur átt á hættu að af honum birtist mynd i blaði eða sjónvarpi.á sýningu eða i bók, án þess aö viðkom- andi ljósmyndari þurfi að æskja til leyfis. Myndin hér aö ofan er hins vegar skemmtileg að þvi leyti að hún er „svona á mörkunum”. v Hún er tekin i gegn um glugga á verslun. Konan til vinstri á myndinni afgreiðir i verslun- inni. Hún sá til mín er ég var að dunda mér við að mynda þær stöllur og brást hin versta viö. Fór fram á skýringar á fram- ferði minu. Hún sagði „skamm’astin”. En er ekki verslun „almenn- ingur”? Eða: Vilji maður ekki að sjáist inn til sin, setur maður gardinur fyrir gluggann. Slikar spurningar fara um huga manns er kemur að þvi að ákveða hvort birta eigi myndina eða ekki. Eins og sést, þekkjast ekki manneskjurnar á mynd- inni. En ef ég hins vegar segði i texta með henni að hún væri tekini gegn um glugga verunar- innar Bláa Búðin Bergstaða- stræti ki. 14.45 föstudaginn 22. janúar 1982, er vafi á að ég sé að gera rétt. Bg á sem sagt mjög erfitt með að ákveða hvort eigi að birta I þessa mynd. Hvað finnst ykkur? I -gel- : Bílainnflutningurinn 1981: Melra en helmíngur fólksblla frá Japan Saab 900 er samt mest seldi bíllinn hér á landi í skýrslu sem Hagstofa íslands hefur sent frá sér um biíainnflutning íslendinga árið 1981, kemur i ljós að 8.509 nýjar fóiksbifreiðar voru fluttar til landsins og af þeim eru 4.478 af japanskri gerð. Er þvi greinilegt að japönsku fólksbilarnir hafa algerlega hertekið islenska bilamarkaðinn, eins og raunar bilamarkaði flestra Evrópulanda og þann banda- riska. Samt er það athyglisvert, að sem er söluhæsti lólksbillinn hér þaðerhinn dyri sænski bill, Saab, á sl. ári. Af Saab 900 seldust 523 bilar, næst á eftir kemur Mazda 323gerðin með 499 bila, þá Mazda 626gerðin með 451 bil svo Subaro 476 og loks Lada AE2105/2106 gerðin 416 bifreiðar. Mest selda bifreiðartegundin er Mazda, en af þeim 4 gerðum sem fluttar eru inn af Mazdabilunum seldust 1190 bilar. 1 allt voru íluttar inn 10.366 bifreiðar til landsins, en 1980 8.927 bifreiðar. —S.dór Wír?wr~“'~'iMr 1 mimmF MFa Wm fc ,i mÆf L Strand Pelagusar: Þrjú Uk ófundin Sjópróf hafin Lik b jörguna rm annanna tveggja og belgiska sjómannsins af Pelagusi, höfðu ekki fundist i gærdag að sögn lögreglunnar i Vestmannaeyjum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið i gær og urðu menn einskis visari. Pelagus er nú að heita lagstur á stjórnborðs- siðuna, sem bendir til að botninn og siðan þeim megin séu úr hon- um. Aðsögnlögreglunnarer liðan skipbrotsmannanna bærileg eftir atvikum, eru þeir allir á fótum. Þá voru sjópróf hafin i gærdag kl. 14.00 og voru fyrst yfirheyrðir skipverjar á Amandine, sem dró Pelagus áleiðis til Vestmanna- eyja, er hann slitnaði aftan úr. Sjópróf munu halda áfram i dag, og munu þá menn af Pelagusi verða yfirheyrðir. Svæðamótið í skák — síðasta umferð í dag; Ég á smá von um að komast áfram ! sagði Helgi Ólafsson en Guðmundur stendur vel að Ég á smá von um að komast áfram i úrslitakeppnina, en til þess verð ég að vinna danska skákmanninn Höi á morgun, sagði Helgi ölafsson alþjóð- legur meistari i skák, er við ræddum við hann i gær. Siðasta umferð riðlakeppninnar fer fram í dag. Helgi sagði að Guðmundur stæði aíl vel að vigi i sfnum riðli. Ef Guðmundur vinnur sina skák i dag, þá er hann gulltryggður áfram og hann á von þótt hann næði ekki ncma jafntefli. Aftur á móti er Jón 1.. Ámason úr leik að þessu sinni. Við ræddum einnigvið Jón L. Hdgi Guðmundur vígi og sagði þá eina skýringu á frammistöðu sinniað hann væri illa upplagður, þetta er bara ekki „minn dagur” eins og sagt er, sagði Jón. Þvi má bæta við að þeir Jón og Guðmundur hafa verið veikirsiðústu dagana með innflúensu, sagðist Jón hafa verið með all háan hita einn keppnisdaginn og hafa orðið aö tefla þannig á sig kominn. Staðan I riðlunum fyrir siðustu umferðina sem fram fer I dag er þessi: A-riðill: 1. Lobron,V-Þýskal. 7,5v. 2. Griinfeld, Israel 6,0 v. 3. Tiller, Noregi 5,0 v. 4. -5. Helgi Ólafsson 4,5v. 4. -5. Ziiger, Sviss 4,5 v. B-riðill: 1. Mourey, tsrael 7,5v. 2. Borik, V-Þýskal. 6,5v. 3. -4. Guðm.Sigurj. 5,5v. 3.-4. LarsKarlss.,Sviþj. 5,5v. 5. Helmers, Noregi 5,0 v. Fjórir efstu menn Ur hvorum riðli komast i úrslitakeppnina. —S.dór J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.